{"id":470,"date":"2012-12-06T21:52:39","date_gmt":"2012-12-06T21:52:39","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-12-06\/hefur-baratta-islenskra-feminista-skilad-arangri\/"},"modified":"2013-11-21T09:00:14","modified_gmt":"2013-11-21T09:00:14","slug":"hefur-baratta-islenskra-feminista-skilad-arangri","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/12\/06\/hefur-baratta-islenskra-feminista-skilad-arangri\/","title":{"rendered":"Hefur bar\u00e1tta \u00edslenskra fem\u00ednista skila\u00f0 \u00e1rangri?"},"content":{"rendered":"<p><font size=\"-1\">Fem\u00ednistaf\u00e9lag \u00cdslands var stofna\u00f0 vori\u00f0 2003. \u00dea\u00f0 er vitaskuld nokkrum erfi\u00f0leikum h\u00e1\u00f0 a\u00f0 meta hvort e\u00f0a hversu mikil \u00e1hrif \u00feetta f\u00e9lag og einstaklingar sem \u00fear eru \u00ed forsvari hafa haft. Bar\u00e1ttum\u00e1lin eru \u00feess e\u00f0lis a\u00f0 au\u00f0velt \u00e6tti a\u00f0 vera til a\u00f0 f\u00e1 f\u00f3lk til a\u00f0 sty\u00f0ja bar\u00e1ttuna. <a href=\"http:\/\/www.feministinn.is\/?page_id=3\">Markmi\u00f0 og lei\u00f0ir Fem\u00ednistaf\u00e9lags \u00cdslands eru skv. heimas\u00ed\u00f0u f\u00e9lagsins<\/a>:<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">A\u00f0 vinna a\u00f0 jafnr\u00e9tti kynjanna.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">A\u00f0 vinna gegn hverskonar birtingarmyndum kynjamisr\u00e9ttis. \u00dear m\u00e1 nefna kl\u00e1mv\u00e6\u00f0inguna, \u00e1gengar, l\u00edtilsvir\u00f0andi augl\u00fdsingar, ofbeldi, mansal og v\u00e6ndi.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">A\u00f0 uppr\u00e6ta sta\u00f0almyndir um hlutverk og e\u00f0li kvenna og karla.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">A\u00f0 b\u00e6ta st\u00f6\u00f0u kvenna \u00e1 vinnumarka\u00f0i, \u00fatr\u00fdma kynbundnum launamun og auka hlut kvenna \u00ed stj\u00f3rnun au\u00f0linda og fj\u00e1rmagns.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">A\u00f0 styrkja \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku kvenna \u00ed opinberu l\u00edfi, fj\u00f6lmi\u00f0lum og stj\u00f3rnm\u00e1lum.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">A\u00f0 stu\u00f0la a\u00f0 samf\u00e9lagi sem tekur mi\u00f0 af mismunandi hagsmunum og sj\u00f3narmi\u00f0um karla og kvenna svo sem \u00ed atvinnu- og menntam\u00e1lum, stj\u00f3rnm\u00e1lum, menningu og \u00e1 vettvangi einkal\u00edfsins.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Markmi\u00f0um \u00feessum skal n\u00e1\u00f0 me\u00f0 l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0islegri, gagnr\u00fdnni og s\u00fdnilegri umr\u00e6\u00f0u \u00e1 fundum, Netinu og \u00ed \u00f6\u00f0rum fj\u00f6lmi\u00f0lum.<\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"10\" vspace=\"10\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/karla_kvenna.jpg?resize=140%2C140\" alt=\"\u00d6skur\" align=\"left\" height=\"140\" width=\"140\" \/><font size=\"-1\">En eins og \u00e9g rakti \u00ed s\u00ed\u00f0ustu f\u00e6rslu sn\u00fdst framganga fem\u00ednista \u00ed \u00e6 r\u00edkari m\u00e6li um \u00f6grun og athygli \u00e1 s\u00ednum a\u00f0alvettvangi, Netinu. \u00d6grun og \u00f6fgafullur m\u00e1lflutningur kalla \u00e1 \u00f6fgafull vi\u00f0br\u00f6g\u00f0. Au\u00f0vita\u00f0 bera fem\u00ednistar ekki \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 ni\u00f0randi, s\u00e6randi og jafnvel h\u00f3tandi umm\u00e6lum sem a\u00f0 \u00feeim beinast en \u00feeir eru ekki algerlega bl\u00e1saklausir heldur \u00fev\u00ed \u00feeir haga m\u00e1lflutningi s\u00ednum stundum \u00feannig a\u00f0 \u00feessi vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 eru fyrirsj\u00e1anleg, stimpla sig s\u00ed\u00f0an f\u00f3rnarl\u00f6mb ofs\u00f3kna \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0. (N\u00e1kv\u00e6mlega s\u00f6mu herna\u00f0arlist m\u00e1 sj\u00e1 \u00ed \u00f6\u00f0rum akt\u00edvistah\u00f3pum \u00e1 netinu, t.d. f\u00e9laginu Vantr\u00fa.) Skyldu svona bar\u00e1ttua\u00f0fer\u00f0ir vera v\u00e6nlegar til \u00e1rangurs? Er l\u00edklegt a\u00f0 \u00fe\u00e6r auki samst\u00f6\u00f0u f\u00f3lks me\u00f0 m\u00e1lsta\u00f0num, \u00fe.e. efli jafnr\u00e9tti og hvetji f\u00f3lk til a\u00f0 vilja jafna st\u00f6\u00f0u karla og kvenna? \u00deetta er erfitt a\u00f0 m\u00e6la en finna m\u00e1 ranns\u00f3knir sem gefa v\u00edsbendingar um svari\u00f0.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd norr\u00e6nni k\u00f6nnun sem ger\u00f0 var \u00e1ri\u00f0 2009, <a href=\"http:\/\/www.rannsoknir.is\/media\/rg\/skjol\/Nordic-Youth-Research-Descriptive-Report.pdf\">The Nordic Youth Research among 16 to 19 year old in \u00c5land Islands, Denmark, Faroe Islands, Finland,\u00a0 Greenland, Iceland, Norway and Sweden<\/a>, voru 16-19 \u00e1ra nemendur spur\u00f0ir um \u00fdmislegt, \u00fe.\u00e1 m. vi\u00f0horf til karla og kvenna (sj\u00e1 s. 92 o.\u00e1fr. \u00ed sk\u00fdrslunni sem kr\u00e6kt er \u00ed). Sv\u00f6r \u00edslenskra unglinga um \u00feetta skera sig ekki \u00e1berandi \u00far sv\u00f6rum unglinga \u00e1 hinum Nor\u00f0url\u00f6ndunum nema \u00feegar spurt er hvort \u00feeir telji a\u00f0 kona geti veitt tr\u00faf\u00e9lagi forst\u00f6\u00f0u, t.d. veri\u00f0 prestur, en \u00edslenskir unglingar af b\u00e1\u00f0um kynjum hafa \u00e1berandi litla tr\u00fa \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 svolei\u00f0is starf henti konum (sj\u00e1 s. 96).\u00a0 \u00cd <a href=\"http:\/\/www.visir.is\/um-14-prosent-drengja-telja-ad-konur-eigi-ekki-ad-vinna-uti\/article\/201022233525\">fr\u00e9tt af ni\u00f0urst\u00f6\u00f0um \u00feessarar k\u00f6nnunar<\/a> var \u00fev\u00ed slegi\u00f0 upp a\u00f0 14% \u00edslenskra unglingsstr\u00e1ka teldu a\u00f0 konur \u00e6ttu alls ekki a\u00f0 vinna \u00fati (\u00ed fr\u00e9ttinni kemur einnig fram a\u00f0 4,6% st\u00falkna voru piltunum samm\u00e1la og raunar voru \u00feessar t\u00f6lur n\u00e1nast samhlj\u00f3\u00f0a me\u00f0altali \u00e1lits allra norr\u00e6nu unglinganna).<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd fr\u00e9ttinni sem kr\u00e6kt er \u00ed h\u00e9r a\u00f0 ofan l\u00fdsir Andrea Hj\u00e1lmsd\u00f3ttir f\u00e9lagsfr\u00e6\u00f0ingur \u00fev\u00ed yfir a\u00f0 ni\u00f0urst\u00f6\u00f0urnar s\u00e9u \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 a\u00f0rar kannanir, hennar eigin og annarra. \u00cd\u00a0 yfirlitsgreininni <a href=\"http:\/\/rafhladan.is\/bitstream\/handle\/10802\/1874\/http___hugsandi.is_articles_mamma-er-meira-svona-i-einfalda-lifinu-thu-veist_.pdf?sequence=1\">\u201cMamma er meira svona \u00ed einfalda l\u00edfinu, \u00fe\u00fa veist\u201d<\/a> rekur Andrea nokkrar ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur s\u00ednar og annarra og bendir \u00e1 a\u00f0 h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 greina bakslag \u00ed vi\u00f0horfum unglinga til jafnr\u00e9ttis: \u201e\u00c1rgangurinn sem var \u00ed 10. bekk vori\u00f0 1992 haf\u00f0i mun j\u00e1kv\u00e6\u00f0ari vi\u00f0horf til jafnr\u00e9ttis en 10. bekkingar vori\u00f0 2006.\u201c \u00cd greininni <a href=\"http:\/\/link.springer.com\/article\/10.1007\/s11199-008-9428-0\/fulltext.html\">Egalitarian Attitudes Towards the Division of Household Labor Among Adolescents in Iceland<\/a> fjalla Andrea Hj\u00e1lmsd\u00f3ttir og \u00de\u00f3roddur Bjarnason um ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur ranns\u00f3knarinnar 2006. Af umfj\u00f6llun \u00feeirra m\u00e1 skilja a\u00f0 \u00fea\u00f0 atri\u00f0i sem helst m\u00e1 tengja vi\u00f0 vi\u00f0horf unglinganna s\u00e9 heg\u00f0un foreldra, t.d. hvort m\u00f3\u00f0ir vinnur \u00fati, hvort fa\u00f0ir s\u00e9 heimaverandi, hvort foreldri s\u00e9 einst\u00e6tt o.s.fr. en tengsl milli sj\u00f3nvarpsgl\u00e1ps og vi\u00f0horfa unglinga til jafnr\u00e9ttis m\u00e6last ekki, \u00fevert \u00e1 \u00fea\u00f0 sem \u00feau Andrea og \u00de\u00f3roddur bjuggust fyrirfram vi\u00f0 (\u00fev\u00ed \u00e6tla m\u00e6tti a\u00f0 \u00fdmsar s\u00e1pu\u00f3perur festu \u00edhaldss\u00f6m vi\u00f0horf \u00ed sessi). Tengsl milli internet-notkunar og vi\u00f0horfa til\u00a0 jafnr\u00e9ttis m\u00e6ldust einungis hj\u00e1 st\u00falkum: \u00dev\u00ed meira sem \u00fe\u00e6r h\u00e9ngu \u00ed t\u00f6lvunum \u00fev\u00ed \u00edhaldsamara var vi\u00f0horf \u00feeirra til karlhlutverka. \u00cd \u00feessu sambandi velti \u00e9g \u00fev\u00ed fyrir m\u00e9r hvort mikil \u00e1hersla \u00ed kynjafr\u00e6\u00f0i \u00ed sumum sk\u00f3lum\u00a0\u00e1 augl\u00fdsingar e\u00f0a kynhlutverk \u00ed sj\u00f3nvarpss\u00e1pum og kvikmyndum skipti einhverju m\u00e1li \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 ala upp\/mennta jafnr\u00e9ttissinna\u00f0ri unglinga en ella &#8211; en kannski virkar \u00feessi \u00e1hersla eitthva\u00f0 \u00e1 stelpurnar og gerir \u00fe\u00e6r eil\u00edti\u00f0 v\u00ed\u00f0s\u00fdnni \u00ed gar\u00f0 karla.<\/font><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"10\" vspace=\"10\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/bleikt_blatt.jpg?resize=134%2C81\" alt=\"Bleikt og bl\u00e1tt\" align=\"left\" height=\"81\" width=\"134\" \/><font size=\"-1\">\u00cd meistararitger\u00f0 sinni, <a href=\"https:\/\/circle.ubc.ca\/bitstream\/id\/32087\/ubc_2009_fall_hjalmsdottir_andrea.pdf\">\u201cReality Bites\u201d Attitudes Toward Gender Equality Among Icelandic Youth<\/a> segir Andrea fr\u00e1 eigindlegri ranns\u00f3kn sem h\u00fan ger\u00f0i \u00ed j\u00fan\u00ed 2008 og ni\u00f0urst\u00f6\u00f0um hennar. Andrea og a\u00f0sto\u00f0arma\u00f0ur hennar t\u00f6lu\u00f0u vi\u00f0 \u00e1 22 t\u00edundubekkinga \u00e1 Akureyri (14 stelpur og 8 str\u00e1ka). Ni\u00f0ursta\u00f0an er a\u00f0 fylgi vi\u00f0 fem\u00ednisma standi \u00ed sta\u00f0 e\u00f0a fari jafnvel minnkandi. \u00cd ritger\u00f0inni er \u00e1hugaver\u00f0 sk\u00edrskotun til Kolbr\u00fanar Halld\u00f3rsd\u00f3ttur, \u00feingmanns vinstri gr\u00e6nna, sem f\u00f3r fram \u00e1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 heilbrig\u00f0isr\u00e1\u00f0herra rannsaka\u00f0i upphaf \u00feess si\u00f0ar a\u00f0 kl\u00e6\u00f0a n\u00fdf\u00e6dd st\u00falkub\u00f6rn \u00ed bleikt og drengb\u00f6rn \u00ed bl\u00e1tt \u00e1 f\u00e6\u00f0ingardeildum og spur\u00f0i hvort r\u00e1\u00f0herra vildi ekki breyta \u00feessu. Or\u00f0 Kolbr\u00fanar f\u00e9llu \u00e1 Al\u00feingi \u00ed ma\u00ed 2007, v\u00f6ktu mikla athygli og umr\u00e6\u00f0u. Ein unglingsst\u00falkan sem Andrea tala\u00f0i vi\u00f0 vakti m\u00e1ls \u00e1 \u00feessu, sag\u00f0i a\u00f0 stundum v\u00e6ri fem\u00ednismi einum of miki\u00f0 af \u00fev\u00ed g\u00f3\u00f0a og h\u00fan hef\u00f0i heyrt a\u00f0 \u00e1 einhverju sj\u00fakrah\u00fasi hef\u00f0i kona [fem\u00ednisti] or\u00f0i\u00f0 kolvitlaus yfir a\u00f0 ungb\u00f6rnin voru sett \u00ed bleik og bl\u00e1 f\u00f6t. Stalla hennar t\u00f3k undir a\u00f0 stundum f\u00e6ri fem\u00ednismi yfir striki\u00f0, s\u00fa fyrrnefnda b\u00e6tti vi\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri pirrandi \u00feegar gert v\u00e6ri st\u00f3rm\u00e1l \u00far einhverju sm\u00e1r\u00e6\u00f0i.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c9g hef ekki a\u00f0gang a\u00f0 k\u00f6nnuninni fr\u00e1 1992 en treysti Andreu Hj\u00e1lmsd\u00f3ttur fullkomlega til a\u00f0 fara ekki me\u00f0 fleipur \u00feegar h\u00fan segir a\u00f0 t\u00edundubekkingar \u00fe\u00e1 hafi haft mun j\u00e1kv\u00e6\u00f0ari vi\u00f0horf til jafnr\u00e9ttis en m\u00e6last \u00ed sama aldursh\u00f3pi \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rum. Andrea dregur af \u00feessu \u00fe\u00e1 \u00e1lyktun a\u00f0 efla \u00feurfi kynjafr\u00e6\u00f0ikennslu \u00ed sk\u00f3lum. \u00c9g er samm\u00e1la \u00fev\u00ed a\u00f0 gott er a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a upp \u00e1 n\u00e1m um \u00fdmis m\u00e1l sem snerta jafnr\u00e9tti karla og kvenna og hvetja nemendur til a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00feau m\u00e1l \u00ed s\u00ednum h\u00f3pi. En m\u00e9r s\u00fdnist a\u00f0 n\u00faverandi \u00e1herslur \u00edslenskra fem\u00ednista \u00fdti ekki undir fylgi vi\u00f0 jafna st\u00f6\u00f0u karla og kvenna me\u00f0al \u00edslenskra unglinga og d\u00e6mi\u00f0 h\u00e9r a\u00f0 ofan s\u00fdnir a\u00f0 \u00ed st\u00f6ku tilvikum g\u00e6tu bar\u00e1ttua\u00f0fer\u00f0ir fem\u00ednista \u00fdtt undir a\u00f0 ungar st\u00falkur vilji ekki l\u00e1ta bendla sig vi\u00f0 fem\u00ednisma. \u00dea\u00f0 er v\u00e6ntanlega ekki markmi\u00f0 \u00edslenskra fem\u00ednista.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Vilji menn einkum n\u00e1 fram hugarfarsbreytingu hj\u00e1 ungu f\u00f3lki m\u00e1 til samanbur\u00f0ar nefna v\u00edmuefna- og t\u00f3baksneyslu unglinga og vi\u00f0horf til svolei\u00f0is neyslu: Undanfarin r\u00fam 15 \u00e1r hefur neysla unglinga \u00e1 v\u00edmuefnum og t\u00f3baki minnka\u00f0 \u00e1r fr\u00e1 \u00e1ri. \u00deetta er \u00feakka\u00f0 samanteknum r\u00e1\u00f0um foreldra, sk\u00f3la og fleiri a\u00f0ila. Fj\u00f6ldi kannana bendir og til \u00feess a\u00f0 s\u00e1 \u00fe\u00e1ttur sem skipti mestu m\u00e1li upp \u00e1 hvort unglingar fara a\u00f0 drekka e\u00f0a reykja s\u00e9 heg\u00f0un foreldra \u00feeirra \u00feannig a\u00f0 hinn \u00e1g\u00e6ti \u00e1rangur sem hefur n\u00e1\u00f0st er v\u00e6ntanlega ekki hva\u00f0 s\u00edst \u00feeim a\u00f0 \u00feakka, s\u00ed\u00f0ur opinberum forv\u00f6rnum e\u00f0a h\u00fall\u00famh\u00e6i \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum. Ef fem\u00ednistar vilja n\u00e1 raunverulegum \u00e1rangri legg \u00e9g til a\u00f0 \u00feeir sko\u00f0i hva\u00f0 virkar til hugarfarsbreytinga og breytinga \u00e1 heg\u00f0un \u00ed v\u00edmuefnaneyslu og t\u00f3baksneyslu og taki s\u00e9r til fyrirmyndar. Stafr\u00e6nt garg og stafr\u00e6nir hur\u00f0arskellir virka\u00a0ekki.<\/font><br \/>\n\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fem\u00ednistaf\u00e9lag \u00cdslands var stofna\u00f0 vori\u00f0 2003. \u00dea\u00f0 er vitaskuld nokkrum erfi\u00f0leikum h\u00e1\u00f0 a\u00f0 meta hvort e\u00f0a hversu mikil \u00e1hrif \u00feetta f\u00e9lag og einstaklingar sem \u00fear eru \u00ed forsvari hafa haft. Bar\u00e1ttum\u00e1lin eru \u00feess e\u00f0lis a\u00f0 <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/12\/06\/hefur-baratta-islenskra-feminista-skilad-arangri\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[18],"tags":[],"class_list":["post-470","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-oflokka"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/470","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=470"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/470\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":615,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/470\/revisions\/615"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=470"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=470"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=470"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}