{"id":471,"date":"2012-12-09T19:41:49","date_gmt":"2012-12-09T19:41:49","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-12-09\/svarthvita-hetjan-min\/"},"modified":"2013-11-21T09:00:00","modified_gmt":"2013-11-21T09:00:00","slug":"svarthvita-hetjan-min","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/12\/09\/svarthvita-hetjan-min\/","title":{"rendered":"Svarthv\u00edta hetjan m\u00edn &#8230;"},"content":{"rendered":"<p><font size=\"-1\">\u00c9g hef undanfari\u00f0 fylgst me\u00f0 netumr\u00e6\u00f0u um till\u00f6gu til \u00feings\u00e1lyktunar um heildr\u00e6nar me\u00f0fer\u00f0ir gr\u00e6\u00f0ara. \u00deetta er varlega or\u00f0u\u00f0 tillaga um a\u00f0 Al\u00feingi feli velfer\u00f0arr\u00e1\u00f0herra a\u00f0 skipa starfsh\u00f3p til a\u00f0 kanna hvort ni\u00f0urgrei\u00f0a \u00e6tti me\u00f0fer\u00f0ir gr\u00e6\u00f0ara e\u00f0a gera grei\u00f0slur til \u00feeirra undan\u00feegnar vir\u00f0isaukaskatti. \u00cd nethamf\u00f6rum hefur umr\u00e6\u00f0an sn\u00faist upp \u00ed a\u00f0 \u00d3l\u00edna \u00deorvar\u00f0ard\u00f3ttir (me\u00f0flutningsma\u00f0ur \u00feessarar till\u00f6gu) vilji l\u00e1ta okkur skattgrei\u00f0endur borga fyrir kukl; sn\u00e1kaol\u00eda og mi\u00f0lar eru nefnd \u00ed \u00fev\u00ed sambandi og s\u00ed\u00f0an \u00ed g\u00e6r hefur einn og einn hamfarakommentari spl\u00e6st \u00f3skyldri fr\u00e9tt um andsetin b\u00f6rn vi\u00f0 \u00feessa umr\u00e6\u00f0u: N\u00fa vill \u00d3l\u00edna l\u00e1ta okkur skattgrei\u00f0endur halda uppi s\u00e6ringam\u00f6nnum &#8230;<\/font><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"10\" vspace=\"10\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/svaedanudd.jpg?resize=112%2C112\" alt=\"Sv\u00e6\u00f0anudd\" align=\"left\" height=\"112\" width=\"112\" \/><font size=\"-1\">\u00deegar svokalla\u00f0 kukl berst \u00ed tal st\u00edgur \u00e1vallt fram \u00e1 sj\u00f3narsvi\u00f0i\u00f0 sj\u00e1lfskipa\u00f0ur riddari okkar p\u00f6pulsins, l\u00e6knirinn og vantr\u00faarf\u00e9laginn Svanur Sigurbj\u00f6rnsson*. Hann er \u00f3\u00fereytandi \u00ed sinni bar\u00e1ttu fyrir a\u00f0 ullabjakki og kukli s\u00e9 ekki haldi\u00f0 a\u00f0 okkur hinum, l\u00edklega okkur hinum f\u00e1v\u00edsu sem ella l\u00e9tum glepjast af gyllibo\u00f0um. Bar\u00e1ttuna heyr hann einkum \u00e1 s\u00ednu bloggi, vefs\u00ed\u00f0u Raunf\u00e9lagsins, spjall\u00fer\u00e1\u00f0um Vantr\u00faarvefjarins og \u00ed <i>L\u00e6knabla\u00f0inu<\/i>.<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">M\u00e1lflutningur Svans \u00ed \u00feessum mi\u00f0lum er keiml\u00edkur og felst einkum \u00ed a\u00f0 benda (okkur hinum) \u00e1 a\u00f0 \u00fdmsar kukl-a\u00f0fer\u00f0ir hafi aldrei veri\u00f0 sanna\u00f0ar v\u00edsindalega og s\u00e9u ekki reistar \u00e1 v\u00edsindalegum grunni. \u00cd <a href=\"http:\/\/www.laeknabladid.is\/tolublod\/2012\/0708\/nr\/4570\">lei\u00f0ara \u00ed <em>L\u00e6knabla\u00f0inu<\/em> 07\/08. tbl. 98. \u00e1rg. 2012<\/a> skilgreinir hann kukl \u00feannig:<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Hva\u00f0 er kukl? Til forna var kuklari s\u00e1 sem i\u00f0ka\u00f0i galdur e\u00f0a f\u00fask, oft me\u00f0 dul\u00fa\u00f0 og sj\u00f3narspili. Einnig beindist kukl a\u00f0 l\u00e6kningum og \u00fe\u00f3 a\u00f0 yfirbrag\u00f0i\u00f0 s\u00e9 anna\u00f0 \u00ed dag er \u00feetta or\u00f0 mest l\u00fdsandi fyrir \u00fe\u00e6r me\u00f0fer\u00f0artilraunir sem byggja \u00e1 gerviv\u00edsindum. \u00dea\u00f0 einkennist af \u00fev\u00ed a\u00f0 hugmyndafr\u00e6\u00f0in er \u00ed andst\u00f6\u00f0u vi\u00f0 sannreynda l\u00edfe\u00f0lisfr\u00e6\u00f0i, efnafr\u00e6\u00f0i og sj\u00fakd\u00f3mafr\u00e6\u00f0i n\u00fat\u00edmans. Kukl stenst ekki l\u00e1gmarksranns\u00f3kn \u00e1 verkun \u00feess sem sagt er a\u00f0 eigi s\u00e9r sta\u00f0, \u00fea\u00f0 kann a\u00f0 vera gamalt en aldur fr\u00e6\u00f0a segir ekkert til um sannleiksgildi \u00feeirra. Jafnframt ber \u00fea\u00f0 \u00feess \u00f6ll merki \u00feess a\u00f0 vera sk\u00e1ldskapur og byggir oft \u00e1 margnotu\u00f0u \u00feema sem getur veri\u00f0 a\u00f0la\u00f0andi fyrir \u00f3fagl\u00e6rt f\u00f3lk \u00ed heilbrig\u00f0isv\u00edsindum eins og \u201estyrking \u00f3n\u00e6miskerfisins\u201c, \u201elosun eiturefna\u201c og svo framvegis.<\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">Svanur bl\u00e6s \u00e1 m\u00f6gulega l\u00e6kningu kukls\u00a0af lyfleysu\u00e1hrifum \u00fev\u00ed si\u00f0fer\u00f0ilega s\u00e9 engin r\u00e9ttl\u00e6ting fyrir notkun lyfleysu nema \u00ed ranns\u00f3knum. Aflei\u00f0ingar kukls eru m.a. fj\u00e1rhagslegt tj\u00f3n og \u201e\u00fatbrei\u00f0sla ranghugmynda um mannsl\u00edkamann og me\u00f0fer\u00f0ir\u201c, segir hann.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c9g hef d\u00e1l\u00edti\u00f0 velt fyrir m\u00e9r \u00feessum sk\u00f6rpu skilum sem Svanur o.fl. sj\u00e1lfskipa\u00f0ar hetjur, sem vernda okkur alm\u00fagann fyrir \u00e1s\u00e6lni kuklara, telja vera milli v\u00edsindalegra l\u00e6kninga l\u00e6kna annars vegar og kuklara hins vegar. Eftir a\u00f0 hafa kynnt m\u00e9r \u00feokkalega vel minn eigin sj\u00fakd\u00f3m, \u00feunglyndi, og reynt vestr\u00e6nar l\u00e6knisa\u00f0fer\u00f0ir vi\u00f0 honum \u00ed \u00feaula er ni\u00f0ursta\u00f0an s\u00fa a\u00f0:<\/font><\/p>\n<ul>\n<li><font size=\"-1\">Ekki er vita\u00f0 af hverju sj\u00fakd\u00f3murinn \u00feunglyndi stafar (\u00fea\u00f0 eru til \u00fdmsar kenningar um \u00fea\u00f0 en engin \u00feeirra hefur veri\u00f0 sannreynd me\u00f0 \u00f3yggjandi h\u00e6tti);<\/font><\/li>\n<li><font size=\"-1\">Tilg\u00e1tan um bo\u00f0efna\u00f3jafnv\u00e6gi \u00ed heila sem \u00feunglyndislyf geti lei\u00f0r\u00e9tt ver\u00f0ur \u00e6 \u00f3sennilegri (vi\u00f0 \u00fev\u00ed er brug\u00f0ist me\u00f0 a\u00f0 reyna a\u00f0 fl\u00e6kja tilg\u00e1tuna en h\u00fan er jafn \u00f3s\u00f6nnu\u00f0 eftir sem \u00e1\u00f0ur);<\/font><\/li>\n<li><font size=\"-1\">\u00deunglyndislyf virka yfirleitt ekki betur en lyfleysa \u00ed v\u00edsindalegum ranns\u00f3knum (munur \u00e1 virkni \u00feunglyndislyfja og lyfleysu er l\u00edtill sem enginn nema \u00ed h\u00f3pi alveikustu sj\u00faklinga og \u00fear sk\u00fdrist munurinn af \u00fev\u00ed a\u00f0 lyfleysa virkar s\u00ed\u00f0ur \u00e1 \u00fe\u00e1 sj\u00faklinga).<\/font><\/li>\n<\/ul>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"10\" vspace=\"10\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/pillubox.jpg?resize=112%2C76\" alt=\"Pillubox\" align=\"left\" height=\"76\" width=\"112\" \/><font size=\"-1\">V\u00edsindaleg og s\u00f6nnu\u00f0 \u00fatsk\u00fdring \u00e1 ors\u00f6k \u00feunglyndis er sem sagt ekki til, ekki heldur v\u00edsindaleg s\u00f6nnun fyrir a\u00f0 lyfin sem notu\u00f0 eru vi\u00f0 sj\u00fakd\u00f3mnum virki, \u00feau eru heldur ekki reist \u00e1 neinum v\u00edsindalega s\u00f6nnu\u00f0um grundvelli. Lyfl\u00e6kningar vi\u00f0 \u00feunglyndi eru samt mj\u00f6g algengar. \u00de\u00e6r byggjast oftar en ekki \u00e1 dularfullu hugr\u00e6nu fyrirbrig\u00f0i sem kallast kl\u00edn\u00edsk reynsla (l\u00e6kna). Kl\u00edn\u00edsk reynsla vir\u00f0ist geta veri\u00f0 hva\u00f0 sem er, h\u00fan er a.m.k. \u00f3m\u00e6lanleg me\u00f0 \u00f6llu. Einfaldar (en \u00f3sannar) bo\u00f0efnaruglingssk\u00fdringar eru oft gefnar sj\u00faklingum og \u00feeirra a\u00f0standendum og tilraunamennska l\u00e6kna \u00ed bl\u00f6ndun lyfjakokteila er r\u00f6kstudd me\u00f0 \u201ekl\u00edn\u00edskri reynslu\u201c.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Satt best a\u00f0 segja er \u00fea\u00f0 m\u00edn sj\u00faklingsreynsla (og h\u00fan er ansi yfirgripsmikil) a\u00f0 n\u00fat\u00edma \u00feunglyndisl\u00e6kningar byggi einmitt afskaplega miki\u00f0 \u00e1 dul\u00fa\u00f0 og sj\u00f3narspili en ekki v\u00edsindalegum r\u00f6kum e\u00f0a s\u00f6nnunum. \u00c9g hef spurt Svan Sigurbj\u00f6rnsson um hvort hann telji n\u00fat\u00edma \u00feunglyndisl\u00e6kningar kukl, af \u00fev\u00ed \u00fe\u00e6r uppfylla \u00f6ll skilyr\u00f0i hans fyrir a\u00f0 svo s\u00e9, en hann s\u00e1 ekki \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 svara \u00feeirri spurningu. \u00c9g tek fram a\u00f0 \u00feunglyndi er sko ekki neinn ja\u00f0arsj\u00fakd\u00f3mur: Innan f\u00e1rra \u00e1ra ver\u00f0ur \u00feunglyndi mest heilsufarsv\u00e1 \u00e1 Vesturl\u00f6ndum a\u00f0 mati Heilbrig\u00f0isstofnunarinnar Sameinu\u00f0u \u00fej\u00f3\u00f0anna og fj\u00f6lda annarra. Svolei\u00f0is a\u00f0 m\u00e9r finnst mikilv\u00e6gt a\u00f0 hetjan okkar, sem berst gegn \u00fev\u00ed illa kukli, beiti s\u00ednum kr\u00edter\u00edum \u00e1 \u00fe\u00e1 l\u00e6knisme\u00f0fer\u00f0 sem b\u00fd\u00f0st \u00feorra \u00feunglyndissj\u00faklinga, sem eru fj\u00f6lmennur h\u00f3pur \u00ed heilbrig\u00f0iskerfinu, og felli sinn \u00farskur\u00f0.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">N\u00fa \u00feekki \u00e9g f\u00f3lk sem hefur batna\u00f0 \u00feunglyndi af \u00fev\u00ed a\u00f0 eta algeng \u00feunglyndislyf. \u00c9g \u00feekki l\u00edka f\u00f3lk sem hefur ekki batna\u00f0 baun vi\u00f0 hi\u00f0 sama. \u00c9g \u00feekki f\u00f3lk sem hefur hloti\u00f0 bata af \u00fdmsum kvillum af magnes\u00edumsprautum, LDN, n\u00e1lastungum e\u00f0a h\u00f3m\u00f3pat\u00edulyfjum. \u00c9g \u00feekki l\u00edka f\u00f3lk sem \u00feetta hefur ekkert virka\u00f0 \u00e1. Sj\u00e1lf var \u00e9g n\u00f3gu vitlaus til a\u00f0 tr\u00faa go\u00f0s\u00f6gnum um \u00feunglyndislyf, ge\u00f0lyf og rafl\u00e6kningar \u00ed meir en \u00e1ratug en hef aldrei n\u00e1\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 tr\u00faa \u00e1 h\u00f3m\u00f3patalyf: L\u00edklega flytur tr\u00fain fj\u00f6ll \u00ed hvoru tveggja tilvikinu.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">S\u00ed\u00f0ustu vikurnar hef \u00e9g\u00a0\u00feegi\u00f0 me\u00f0fer\u00f0 annars vegar hj\u00e1 nuddara (nuddarar eru \u00ed Bandalagi \u00edslenskra gr\u00e6\u00f0ara, eru sem sagt kuklarar) og hins vegar sj\u00fakra\u00fej\u00e1lfa. Hvor hefur til s\u00edns \u00e1g\u00e6tis nokku\u00f0: Nuddarinn er miklu flinkari a\u00f0 finna auma bletti me\u00f0 fingrunum en sj\u00fakra\u00fej\u00e1lfarinn hefur yfir g\u00f3\u00f0um gr\u00e6jum a\u00f0 r\u00e1\u00f0a, \u00ed \u00feessu tilviki hlj\u00f3\u00f0bylgjunuddt\u00e6ki. \u00c1rangurinn\u00a0af veittri me\u00f0fer\u00f0 beggja er enn sem komi\u00f0 er hinn sami, \u00fe.e.a.s. enginn. A\u00f0almunurinn fyrir mig er s\u00e1 a\u00f0 \u00e9g borga sk\u00edt \u00e1 priki fyrir t\u00edmann hj\u00e1 sj\u00fakra\u00fej\u00e1lfaranum en margfalt meira fyrir t\u00edmann hj\u00e1 nuddaranum. \u00c9g \u00e6tla a\u00f0 halda \u00e1fram a\u00f0 skipta vi\u00f0 b\u00e1\u00f0a og m\u00e9r er alveg sama hvor l\u00e6knar mig, vona einungis a\u00f0 \u00f6\u00f0rum hvorum takist \u00fea\u00f0 \ud83d\ude42<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd fullkomnasta heimi allra heima \u00e6ttu sj\u00faklingar hafa algert val um hvernig me\u00f0fer\u00f0 \u00feeir kj\u00f3sa a\u00f0 \u00feiggja og f\u00e1 hana ni\u00f0urgreidda \u00far sameiginlegum sj\u00f3\u00f0um. Vi\u00f0 lifum ekki \u00ed sl\u00edkum heimi heldur \u00feurfum a\u00f0 forgangsra\u00f0a. M\u00e9r finnst litlu skipta hvort Al\u00feingi skipar einum starfsh\u00f3pi fleiri e\u00f0a f\u00e6rri en held a\u00f0 ni\u00f0ursta\u00f0an hlj\u00f3ti a\u00f0 vera a\u00f0 skynsamlegast s\u00e9 a\u00f0 ni\u00f0urgrei\u00f0a \u00fe\u00e1 \u00fej\u00f3nustu sem flestum kemur til g\u00f3\u00f0a og er a\u00f0 \u00fev\u00ed leyti samm\u00e1la Svani og sko\u00f0anasystkinum hans: L\u00edklega er flestum til hagsb\u00f3ta a\u00f0 ni\u00f0urgrei\u00f0a n\u00e6st \u00fej\u00f3nustu tannl\u00e6kna og s\u00e1lfr\u00e6\u00f0inga.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Umr\u00e6\u00f0an \u00e1 netinu um \u00feings\u00e1lyktunartill\u00f6guna undanfari\u00f0 l\u00fdtur s\u00f6mu l\u00f6gm\u00e1lum og \u00f6nnur umr\u00e6\u00f0a sem akt\u00edvistah\u00f3par einhenda s\u00e9r \u00ed, er sem sagt ekki umr\u00e6\u00f0a heldur keppni \u00ed hver getur haft svarthv\u00edtasta vi\u00f0horfi\u00f0 og garga\u00f0 h\u00e6st \u00ed netheimum. \u00c9g er engin D\u00fakkul\u00edsa en f\u00e6 samt ekki varist \u00fev\u00ed a\u00f0 hugsa \u00ed hvert sinn sem \u00e9g les m\u00e1lflutning Svans Sigurbj\u00f6rnssonar: <b>Hvernig ertu \u00ed lit?<\/b><\/font><br \/>\n<b><font size=\"-1\">\u00a0<\/font><\/b><br \/>\n<b><font size=\"-1\">\u00a0<\/font><\/b><br \/>\n<b><font size=\"-1\">\u00a0<\/font><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\"><b>* <\/b>\u00c9g veit ekki hvort Svanur Sigurbj\u00f6rnsson l\u00e6knir er enn\u00fe\u00e1 f\u00e9lagi \u00ed Vantr\u00fa, athugasemdir hans \u00e1 vef Vantr\u00faar \u00ed sambandi vi\u00f0 \u00feessa \u00feings\u00e1lyktunartill\u00f6gu eru ekki merktar \u00feannig.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g hef undanfari\u00f0 fylgst me\u00f0 netumr\u00e6\u00f0u um till\u00f6gu til \u00feings\u00e1lyktunar um heildr\u00e6nar me\u00f0fer\u00f0ir gr\u00e6\u00f0ara. \u00deetta er varlega or\u00f0u\u00f0 tillaga um a\u00f0 Al\u00feingi feli velfer\u00f0arr\u00e1\u00f0herra a\u00f0 skipa starfsh\u00f3p til a\u00f0 kanna hvort ni\u00f0urgrei\u00f0a \u00e6tti me\u00f0fer\u00f0ir gr\u00e6\u00f0ara <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2012\/12\/09\/svarthvita-hetjan-min\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[18],"tags":[],"class_list":["post-471","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-oflokka"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/471","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=471"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/471\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":614,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/471\/revisions\/614"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=471"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=471"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=471"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}