{"id":481,"date":"2013-01-28T19:04:25","date_gmt":"2013-01-28T19:04:25","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2013-01-28\/smart-markmid-og-leidarstjornur\/"},"modified":"2013-11-19T09:59:43","modified_gmt":"2013-11-19T09:59:43","slug":"smart-markmid-og-leidarstjornur","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2013\/01\/28\/smart-markmid-og-leidarstjornur\/","title":{"rendered":"Smart markmi\u00f0 og lei\u00f0arstj\u00f6rnur"},"content":{"rendered":"<p><font size=\"-1\">\u00c9g var a\u00f0 koma af l\u00f6ngum kennarafundi \u00ed \u00f6\u00f0rum landsfj\u00f3r\u00f0ungi. Fyrir h\u00e1degi hl\u00fdddum vi\u00f0 \u00e1 erindi \u00fear sem m.a. var minnst \u00e1 svok\u00f6llu\u00f0 SMART-markmi\u00f0 og eftir h\u00e1degi b\u00e1rust \u00fdmiss konar markmi\u00f0 og lei\u00f0ir a\u00f0 \u00feeim \u00ed tal \u00e1 fagkennarafundi. <\/font><font size=\"-1\">\u00cd vetur hef \u00e9g talsvert velt fyrir m\u00e9r markmi\u00f0um, ekki s\u00e9rstaklega markmi\u00f0um \u00ed kennslu heldur kannski frekar almennt. \u00deessi f\u00e6rsla fjallar um svolei\u00f0is.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"2\">\u00cd \u00e1ram\u00f3taheitstrengingaumr\u00e6\u00f0unni n\u00fdli\u00f0inni b\u00e1rust <\/font><a href=\"http:\/\/is.wikipedia.org\/wiki\/SMART-reglan\"><font size=\"2\">SMART markmi\u00f0<\/font><\/a><font size=\"2\"> oft \u00ed tal og \u00fe\u00f3ttu \u00e6skilegust markmi\u00f0a. SMART stendur fyrir: Sk\u00fdr &#8211; M\u00e6lanleg &#8211; Alv\u00f6ru &#8211; Raunh\u00e6f &#8211; T\u00edmasett. \u00deetta er n\u00e1tt\u00farlega amr\u00edskt fyrirb\u00e6ri, skv. <\/font><a href=\"http:\/\/en.wikipedia.org\/wiki\/SMART_criteria\"><font size=\"2\">Wikkunni sem allt veit var klisjan notu\u00f0 fyrst 1981<\/font><\/a><font size=\"2\">, og raunar stingur \u00edslenska or\u00f0i\u00f0 Alv\u00f6ru \u00ed st\u00faf en sj\u00e1lfsagt hefur m\u00f6nnum ekki hugkv\u00e6mst sk\u00e1rra \u00edslenskt or\u00f0 sem byrjar \u00e1 A (enska or\u00f0i\u00f0 er Attainable, \u00fe.e. \u00fea\u00f0 sem er kleift a\u00f0 n\u00e1\/uppfylla). Skv. SMART-fr\u00e6\u00f0um er ekki v\u00e6nlegt til \u00e1rangurs a\u00f0 setja s\u00e9r markmi\u00f0i\u00f0\u00a0\u201e\u00c9g \u00e6tla a\u00f0 l\u00e9ttast \u00e1 \u00e1rinu\u201c (svo \u00e9g vitni n\u00fa \u00ed \u00fe\u00e1 tegund \u00e1ram\u00f3taheita sem vins\u00e6lust er) heldur er \u00e6skilegra a\u00f0 markmi\u00f0i\u00f0 hlj\u00f3mi einhvern veginn svona:\u00a0 \u201e\u00c9g \u00e6tla a\u00f0 l\u00e9ttast um 500 gr \u00ed jan\u00faar 2013 og 1 k\u00edl\u00f3 \u00ed febr\u00faar\u201c og svo eru settar fram lei\u00f0ir til a\u00f0 n\u00e1 \u00feeim markmi\u00f0um, t.d. \u201e\u00c9g h\u00e6tti a\u00f0 eta s\u00e6lg\u00e6ti nema \u00e1 laugard\u00f6gum og fer \u00ed salinn \u00ferisvar \u00ed viku\u201c e\u00f0a eitthva\u00f0 svolei\u00f0is.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd HAM (hugr\u00e6nni atferlisme\u00f0fer\u00f0) er f\u00f3lki einmitt kennt a\u00f0 setja s\u00e9r SMART-markmi\u00f0. \u00c9g er hrifin af HAM-a\u00f0fer\u00f0inni og fellst \u00fev\u00ed f\u00faslega \u00e1 a\u00f0 SMART-markmi\u00f0 megi stundum nota. \u00deau eiga hins vegar alls ekki alltaf vi\u00f0 og eru stundum til mikils trafala. Sk\u00fdrasta d\u00e6mi\u00f0 um villig\u00f6tur sem menn rata \u00ed reyni \u00feeir a\u00f0 gera lei\u00f0arstj\u00f6rnumarkmi\u00f0 (sj\u00e1 ne\u00f0ar \u00ed f\u00e6rslunni) a\u00f0 SMART-markmi\u00f0um er svok\u00f6llu\u00f0\u00a0 \u201esporavinna\u201c AA f\u00e9laga: \u00c9g \u00feekki engan sem hefur batna\u00f0 h\u00e6tis h\u00f3t vi\u00f0 a\u00f0 fylla \u00fat papp\u00edr og tala vi\u00f0 sporasponsor daglega, raunar \u00feekki \u00e9g ansi marga sem hafa kolfalli\u00f0 eftir svona \u201esporavinnu\u201c, kannski af \u00fev\u00ed \u00feeir g\u00e6ttu ekki a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 <a href=\"http:\/\/is.wikipedia.org\/wiki\/12-spora_kerfi\" title=\"12 spor AA\">sporin t\u00f3lf<\/a> eru aldrei fullstigin og ver\u00f0a ekki m\u00e6ld \u00ed \u00fatfyllingum og s\u00edmt\u00f6lum.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c9g g\u00e6ti alls ekki sett m\u00e9r markmi\u00f0i\u00f0 \u201e\u00c9g \u00e6tla a\u00f0 ver\u00f0a 25% minna \u00feunglynd \u00ed febr\u00faarlok\u201c, \u00fea\u00f0 s\u00e9r hver ma\u00f0ur! \u00c9g g\u00e6ti m\u00e9r sett markmi\u00f0 eins og\u00a0 \u201e\u00c9g \u00e6tla a\u00f0 fara \u00fat a\u00f0 labba \u00ed a.m.k. 30 m\u00edn\u00fatur a\u00f0 minnsta kosti fj\u00f3rum sinnum \u00ed viku\u201c og m\u00f6gulega myndi svolei\u00f0is hreyfing gera mig minna \u00feunglynda, m\u00f6gulega skiptir h\u00fan engu m\u00e1li (af reynslunni veit \u00e9g a\u00f0 h\u00fan skiptir engu m\u00e1li til a\u00f0 koma \u00ed veg fyrir e\u00f0a b\u00e6ta sv\u00e6si\u00f0 \u00feunglyndiskast en h\u00fan gerir dagana sem \u00e9g er minna veik heldur betri).<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">N\u00fa hef \u00e9g r\u00edsla\u00f0 m\u00e9r vi\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00ed meir en \u00e1r a\u00f0 lesa yfir greinar og doktorsritger\u00f0 eftir eiginmanninn \u00fear sem markmi\u00f0 og markmi\u00f0ssetningu ber talsvert \u00e1 g\u00f3ma. \u00cd \u00feeim er m.a. fjalla\u00f0 um markmi\u00f0 af \u00fev\u00ed taginu sem minn \u00e1g\u00e6ti eiginma\u00f0ur k\u00fds a\u00f0 kalla\u00a0 \u201elei\u00f0arstj\u00f6rnur\u201c, \u00fe.e.a.s. markmi\u00f0 sem stefnt er a\u00f0 en n\u00e1st aldrei a\u00f0 fullu.\u00a0<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd dag barst \u00ed tal hverju vi\u00f0 m\u00f3\u00f0urm\u00e1larar viljum gjarna n\u00e1 me\u00f0 lestri b\u00f3kmennta. \u00dea\u00f0 er kannski l\u00fdsandi fyrir fagi\u00f0 mitt a\u00f0 engum datt \u00ed hug a\u00f0 setja SMART-markmi\u00f0 um lesnar bla\u00f0s\u00ed\u00f0ur \u00e1 m\u00e6ldum t\u00edma! Nei, vi\u00f0 vorum samm\u00e1la um a\u00f0 t\u00e6kist a\u00f0 gera nemendur mennskari, \u00ed merkingunni skilningsr\u00edkari og umbur\u00f0arlyndari \u00ed gar\u00f0 annars f\u00f3lks og sinn eigin, me\u00f0 lestri g\u00f3\u00f0rar b\u00f3kar v\u00e6ri \u00feeim t\u00edma afskaplega vel vari\u00f0. \u00c9g held a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 bjartasta lei\u00f0arstjarnan sem vi\u00f0 viljum a\u00f0 v\u00edsi okkur veginn \u00ed \u00edslenskukennslu. En vitaskuld getum vi\u00f0 aldrei h\u00f6ndla\u00f0 hana og vegurinn til stjarnanna getur veri\u00f0 p\u00fal. Og \u00fea\u00f0 er svo sem ekki eins og vi\u00f0 s\u00e9um a\u00f0 finna upp kennslufr\u00e6\u00f0ihj\u00f3li\u00f0, g\u00f3\u00f0um kennara var \u00ed g\u00f6mlu reyfurunum l\u00fdst \u00feannig:\u00a0 \u201e\u00d6llum kom hann til nokkurs \u00feroska.\u201c<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c9g strengdi engin \u00e1ram\u00f3taheit fremur en venjulega. \u00deetta \u00e1ri\u00f0 \u00e6tla \u00e9g a\u00f0 halda mig vi\u00f0 s\u00f6mu g\u00f6mlu lei\u00f0arstj\u00f6rnurnar og \u00e1rin m\u00f6rgu \u00e1 undan, \u00fe.e.a.s. a\u00f0 <b>leitast vi\u00f0<\/b> a\u00f0 n\u00e1 betri stj\u00f3rn \u00e1 l\u00edfi m\u00ednu, a\u00f0 n\u00e1 betri heilsu, a\u00f0 ver\u00f0a betri manneskja. M\u00e9r finnast svona spor \u00e1 vegi sem lei\u00f0arstj\u00f6rnur l\u00fdsa, l\u00edtil sem \u00feau eru, mun g\u00e6fulegri en n\u00fdm\u00f3\u00f0ins marka\u00f0sfr\u00e6\u00f0i-markmi\u00f0 \u00fe\u00f3tt \u00feau kunni a\u00f0 vera \u00f3smartari.<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g var a\u00f0 koma af l\u00f6ngum kennarafundi \u00ed \u00f6\u00f0rum landsfj\u00f3r\u00f0ungi. Fyrir h\u00e1degi hl\u00fdddum vi\u00f0 \u00e1 erindi \u00fear sem m.a. var minnst \u00e1 svok\u00f6llu\u00f0 SMART-markmi\u00f0 og eftir h\u00e1degi b\u00e1rust \u00fdmiss konar markmi\u00f0 og lei\u00f0ir a\u00f0 \u00feeim <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2013\/01\/28\/smart-markmid-og-leidarstjornur\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[25],"tags":[],"class_list":["post-481","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-thunglyndid"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/481","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=481"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/481\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":604,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/481\/revisions\/604"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=481"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=481"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=481"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}