{"id":483,"date":"2013-02-03T17:29:11","date_gmt":"2013-02-03T17:29:11","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2013-02-03\/1294\/"},"modified":"2013-11-19T09:58:50","modified_gmt":"2013-11-19T09:58:50","slug":"1294","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2013\/02\/03\/1294\/","title":{"rendered":"Samf\u00e9lagsmi\u00f0lar"},"content":{"rendered":"<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"10\" vspace=\"10\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/samfelagsmidlar.jpg?resize=259%2C216\" alt=\"Samf\u00e9lagsmi\u00f0lar\" align=\"left\" height=\"216\" width=\"259\" \/><font size=\"-1\">eru \u00fea\u00f0 sem \u00e1 ensku kallast <a href=\"http:\/\/en.wikipedia.org\/wiki\/Social_media\">Social Media<\/a>. Menn hafa reynt a\u00f0 afmarka hugtaki\u00f0 vi\u00f0 \u00fdmislegt en \u00ed rauninni m\u00e1 segja a\u00f0 Vefurinn eins og hann leggur sig s\u00e9 samf\u00e9lagsmi\u00f0ill \u00fev\u00ed n\u00faor\u00f0i\u00f0 er allra handa efni deilt og \u00fea\u00f0 r\u00e6tt e\u00f0a a.m.k. \u201el\u00edka\u00f0\u201c. \u00datst\u00f6\u00f0var \u00feessarar t\u00e6kni eru l\u00edka a\u00f0 renna saman \u00ed snjalls\u00edmum og spjaldt\u00f6lvum (\u00fea\u00f0 ver\u00f0ur \u00f6rugglega flj\u00f3tlega h\u00e6gt a\u00f0 hringja \u00far spj\u00f6ldum &#8211; s\u00e9 \u00fea\u00f0 ekki h\u00e6gt n\u00fa \u00feegar &#8211; og samruninn ver\u00f0ur fullkominn).<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c9g byrja\u00f0i a\u00f0 nota interneti\u00f0 \u00ed jan\u00faar 1991. \u00dea\u00f0 var fyrir daga Vefjarins og tengingin vi\u00f0 alheimsneti\u00f0 var \u00ed gegnum t\u00f6lvuna Imbu (s\u00e1lugu) \u00e1 K\u00f3paskeri. \u00dea\u00f0 sem ma\u00f0ur nota\u00f0i einkum var t\u00f6lvup\u00f3stur (Elm forriti\u00f0 \u00ed \u00f3vingjarnlegu Unix-umhverfi), leit \u00ed gagnab\u00f6nkum, skrif \u00e1 spjallbor\u00f0 sem k\u00f6llu\u00f0ust r\u00e1\u00f0stefnur og einstaka sinnum m\u00f6guleikann \u201eTalk\u201c, sem var undanfari <em>IRC<\/em>-sins og \u00ed rauninni alveg n\u00e1kv\u00e6mlega eins og <i>Facebook<\/i>-spjall n\u00fat\u00edmans. Fr\u00e1 \u00fev\u00ed Vefurinn leit dagsins lj\u00f3s h\u00e9r \u00e1 landi, svona 1994-1995, hef \u00e9g nota\u00f0 hann b\u00e6\u00f0i til a\u00f0 leita m\u00e9r uppl\u00fdsinga og til a\u00f0 setja inn uppl\u00fdsingar. \u00c9g byrja\u00f0i a\u00f0 blogga \u00ed upphafi \u00e1rs 2005 og hef gert \u00fea\u00f0 allar g\u00f6tur s\u00ed\u00f0ar. (Fyrsta t\u00f6lvan \u00e1 okkar heimili var keypt 1985 en \u00e9g geri hana ekki a\u00f0 umtalsefni h\u00e9r.)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">En \u00e9g k\u00e6ri mig ekki um a\u00f0 vera s\u00edtengd. \u00deess vegna \u00e1 \u00e9g ekki snjalls\u00edma, \u00e9g nota raunar fars\u00edma afar sjaldan. Og \u00e9g er enn n\u00f3gu h\u00e1\u00f0 ritm\u00e1li (er svakalega flj\u00f3t a\u00f0 pikka)\u00a0til a\u00f0 k\u00e6ra mig ekki um spjaldt\u00f6lvu &#8230; er hins vegar d\u00e1l\u00edti\u00f0 veik fyrir kr\u00edlum \u00fev\u00ed n\u00fana loksins eru fart\u00f6lvur or\u00f0nar raunverulega far- eitthva\u00f0, \u00fe.e.a.s. n\u00f3gu l\u00e9ttar til a\u00f0 dr\u00f6sla \u00feeim me\u00f0 s\u00e9r me\u00f0 l\u00e9ttum leik.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd m\u00ednum augum er Vefurinn samb\u00e6rilegur vi\u00f0 sj\u00f3nvarp, \u00fea\u00f0 borgar sig a\u00f0 velja og hafna og s\u00fdna h\u00f3f \u00ed notkun svolei\u00f0is t\u00e6kja. Vins\u00e6lt kv\u00f6rtunarefni kennara n\u00fatildags er hve nemendur eru h\u00e1\u00f0ir fars\u00edmunum s\u00ednum. \u00c9g er svo sem samm\u00e1la \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 getur veri\u00f0 \u00f3tr\u00falega erfitt a\u00f0 f\u00e1 unglinga til a\u00f0 missa sj\u00f3nar af s\u00ednum snjalls\u00edmad\u00fdrgrip \u00ed klukkustund en held a\u00f0 \u00feetta gildi alveg eins um marga \u00fe\u00e1 sem teljast fullor\u00f0nir, a.m.k. er m\u00e9r minnisst\u00e6tt \u00feegar sessunautur minn dr\u00f3 upp s\u00edmann sinn og opna\u00f0i <i>Facebook<\/i> \u00e1 HAM n\u00e1mskei\u00f0i s\u00ed\u00f0sumars \u00e1 li\u00f0nu \u00e1ri &#8230; vitandi \u00fea\u00f0 a\u00f0 enginn s\u00f3tti \u00feetta n\u00e1mskei\u00f0 nema af br\u00fdnni \u00fe\u00f6rf og veigamiklum \u00e1st\u00e6\u00f0um. Ef menn geta gert tvo hluti vel \u00ed einu er ekkert \u00fev\u00ed til fyrirst\u00f6\u00f0u a\u00f0 vera s\u00edtengdur, reynsla m\u00edn er hins vegar s\u00fa a\u00f0 f\u00e1ir h\u00f6ndla sl\u00edkt, einna helst eru \u00fea\u00f0 flinkar prj\u00f3nakonur.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">M\u00e9r finnst notkun pers\u00f3nulegs t\u00f6lvup\u00f3sts vera heldur a\u00f0 minnka, a.m.k. breytast. Kunningjar og fj\u00f6lskylda senda allt eins <i>Facebook<\/i> skilabo\u00f0 og t\u00f6lvup\u00f3st, <i>Facebook<\/i>-h\u00f3par koma a\u00f0 m\u00f6rgu leyti \u00ed sta\u00f0 p\u00f3stlista. \u00c1 hinn b\u00f3ginn er l\u00edklega or\u00f0i\u00f0 algengara a\u00f0 menn sendi \u00fdmis erindi s\u00edn \u00ed t\u00f6lvup\u00f3sti en hringi, svo ekki s\u00e9 tala\u00f0 um yfirvofandi dau\u00f0a sniglap\u00f3sts. Eiginma\u00f0ur minn er sk\u00f3lameistari og hann kve\u00f0st f\u00e1 a\u00f0 me\u00f0altali kringum 100 t\u00f6lvup\u00f3sta \u00e1 dag, yfirleitt flj\u00f3tsv\u00f6ru\u00f0 erindi og s\u00edmt\u00f6lum hefur f\u00e6kka\u00f0 a\u00f0 mun \u00e1 m\u00f3ti. Hann telur a\u00f0 t\u00f6lvup\u00f3stur s\u00e9 skilvirkari og flj\u00f3tlegri lei\u00f0 en s\u00edmt\u00f6l e\u00f0a vi\u00f0t\u00f6l. \u00c9g hugsa a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 r\u00e9tt hj\u00e1 honum og tek reyndar eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 n\u00faor\u00f0i\u00f0 er \u00fea\u00f0 hending a\u00f0 kennari s\u00e9 kalla\u00f0ur fram til a\u00f0 tala vi\u00f0 nemanda \u00ed fr\u00edm\u00edn\u00fatum &#8230; mestallan minn kennaraferil hefur glumi\u00f0 oft \u00ed kallkerfinu \u00ed hverjum fr\u00edm\u00edn\u00fatum &#8230; og l\u00edklega er \u00fea\u00f0 vegna \u00feess a\u00f0 nemendur eru \u00f3ragir vi\u00f0 a\u00f0 senda fyrirspurnir e\u00f0a skilabo\u00f0 inn \u00e1 loka\u00f0 kennsluumhverfi.<\/font><\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">Blogg<\/font><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Blogg eru or\u00f0in sjalds\u00e9\u00f0ari eftir a\u00f0 <i>Facebook<\/i> var\u00f0 til og eftir a\u00f0 netmi\u00f0lar t\u00f3ku upp athugasemdakerfi (n\u00faor\u00f0i\u00f0 n\u00fdta \u00feeir flestir <i>Facebook<\/i> sem athugasemdam\u00f6guleika). St\u00f3ra bloggsprengingin var\u00f0 \u00feegar mbl.is bau\u00f0 upp \u00e1 notendav\u00e6nt bloggumhverfi. En bloggararnir \u00fear, \u00e1 blog.is, voru sjaldnast raunverulegir bloggarar heldur n\u00fdttu bloggumhverfi\u00f0 sem athugasemdakerfi. \u00c1g\u00e6tt d\u00e6mi um \u00fea\u00f0 er fr\u00e9tt \u00e1 mbl.is fr\u00e1 2007 sem gekk \u00ed endurn\u00fdjun l\u00edfdaga \u00e1 <i>Facebook<\/i> fyrir sk\u00f6mmu: Vi\u00f0 fr\u00e9ttina <a href=\"http:\/\/www.mbl.is\/frettir\/taekni\/2007\/06\/23\/elsta_systkinid_gafadast\/\">Elsta systkini\u00f0 g\u00e1fa\u00f0ast<\/a> eru 32 blogg!\u00a0 \u00dea\u00f0 eimir enn eftir af \u00feessari \u201emoggabloggs-hef\u00f0\u201c, \u00fe.e. bloggum sem eru bara nokkrar l\u00ednur og oftast er vi\u00f0komandi a\u00f0 tj\u00e1 sig um einhverja fr\u00e9tt. Og \u00fea\u00f0 er \u00e1rei\u00f0anlega grundv\u00f6llur fyrir moggabloggshef\u00f0inni enn\u00fe\u00e1 \u00fev\u00ed me\u00f0al vins\u00e6lustu bloggara landins, skv. <em>Bloggg\u00e1ttinni<\/em> sem\u00a0vel a\u00f0 merkja er \u00f3traustur m\u00e6likvar\u00f0i,\u00a0eru <a href=\"http:\/\/www.jonas.is\/\">J\u00f3nas Kristj\u00e1nsson<\/a> og <a href=\"http:\/\/eirikurjonsson.is\/\">Eir\u00edkur J\u00f3nsson<\/a>, fyrrum bla\u00f0amenn (blogg hins s\u00ed\u00f0arnefnda er raunar flokka\u00f0 sem vefrit \u00e1 <i>Bloggg\u00e1ttinni<\/i>) en b\u00e1\u00f0ir blogga \u00feeir \u00f6rstutt og stundum oft \u00e1 dag, J\u00f3nas er yfirleitt me\u00f0 eigin yfirl\u00fdsingar um eitthva\u00f0 sem hefur rata\u00f0 \u00ed fr\u00e9ttirnar \u00feann daginn, Eir\u00edkur birtir fremur myndir e\u00f0a sl\u00fa\u00f0urs\u00f6gur af \u00fdmsu tagi. Enn einn mj\u00f6g vins\u00e6ll bloggari sem bloggar jafnvel oft \u00e1 dag er <a href=\"http:\/\/eyjan.pressan.is\/silfuregils\/\">Egill Helgason<\/a> sem alla jafna bloggar \u00ed styttri kantinum en umfj\u00f6llun hans er oftast mun bitast\u00e6\u00f0ari en \u00feessara tveggja sem \u00e9g nefndi. Og \u00e9g tek fram a\u00f0 \u00feeir sem blogga \u00e1 blog.is fylgja hreint ekki allir g\u00f6mlu moggabloggs-hef\u00f0inni. Bloggsetri\u00f0 skiptir ekki m\u00e1li \u00fe\u00f3tt veran \u00e1 blog.is s\u00e9 vissulega v\u00edsbending um g\u00e6\u00f0i bloggs.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Sj\u00e1lf reyni \u00e9g a\u00f0 blogga langar f\u00e6rslur. Annars vegar gefur \u00fea\u00f0 kost \u00e1 a\u00f0 reifa efni\u00f0 a\u00f0 einhverju leyti en ekki bara upphr\u00f3punum \u00ed \u00e6sifr\u00e9ttast\u00edl. Hins vegar kemur svolei\u00f0is h\u00e1ttalag \u00e1g\u00e6tlega \u00ed veg fyrir a\u00f0 \u00e1kve\u00f0inn h\u00f3pur lesenda \u00fev\u00e6list miki\u00f0 \u00e1 m\u00ednu bloggi, \u00fe.e.a.s. lesendur sem h\u00f6ndla ekki a\u00f0 lesa nema nokkrar l\u00ednur af texta \u00e1 skj\u00e1 og byrja s\u00ed\u00f0an a\u00f0 garga h\u00e1st\u00f6fum byggt \u00e1 \u00feessari agnar\u00f6gn sem \u00feeir l\u00e1su. \u00c9g vil gjarna vera laus vi\u00f0 svolei\u00f0is lesendur og \u00feykir \u00e1g\u00e6tt a\u00f0 \u00feeir haldi sig vi\u00f0 kommentakerfi \u00f3vanda\u00f0ra netmi\u00f0la, sem \u00fej\u00f3na sl\u00edkum lesendah\u00f3pi \u00e1g\u00e6tlega me\u00f0 \u00f6rfr\u00e9ttum undir str\u00ed\u00f0sfyrirs\u00f6gnum og reyna \u00e6vinlega a\u00f0 draga eitthva\u00f0 krassandi fram \u00ed \u00f6rfr\u00e9ttunum.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00dea\u00f0 er erfitt a\u00f0 meta hvort blogg s\u00e9u vins\u00e6l e\u00f0a ekki. Ein lei\u00f0in er a\u00f0 sko\u00f0a <em>Bloggg\u00e1ttina<\/em> en \u00fea\u00f0 er mj\u00f6g takm\u00f6rku\u00f0 vitneskja sem f\u00e6st \u00far \u00feeim lista. \u00c1 honum er l\u00edka fj\u00f6ldi gamaldags moggabloggara.\u00a0Heims\u00f3knart\u00f6lur \u00e1 mitt blogg eru\u00a0kringum hundra\u00f0\u00a0\u00fe\u00e1 daga sem \u00e9g blogga ekki (og \u00fev\u00ed fer fjarri a\u00f0 \u00e9g bloggi daglega), undir e\u00f0lilegum kringumst\u00e6\u00f0um. St\u00f3r hluti \u00feeirra heims\u00f3kna er gegnum\u00a0<em>Google<\/em>.\u00a0T\u00f6lurnar\u00a0eru flj\u00f3tar a\u00f0 h\u00e6kka ef einhver vekur athygli \u00e1 einhverri (oft eldri) bloggf\u00e6rslunni, sem oft gerist, \u00e9g s\u00e9 \u00fea\u00f0 gerast gegnum \u00f6nnur blogg, gegnum <i>Facebook<\/i>, einstaka sinnum gegnum netmi\u00f0la, gegnum spjallvefi o.s.fr. S\u00f3larhringinn eftir a\u00f0 \u00e9g sendi inn bloggf\u00e6rslu eru yfirleitt \u00ed kringum 200-250 heims\u00f3knir \u00e1 bloggi\u00f0 mitt. Fjalli f\u00e6rslan um einhver \u201eheit\u201c m\u00e1lefni og s\u00e9 deilt miki\u00f0 \u00e1 <i>Facebook<\/i> fara heims\u00f3knir flj\u00f3tt yfir \u00fe\u00fasundi\u00f0. <\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Dags daglega s\u00e9 \u00e9g miklu h\u00e6rri t\u00f6lur \u00e1 teljurum sumra gamaldags moggabloggara en \u00ed lj\u00f3si \u00feess a\u00f0 n\u00e1nast aldrei eru skrifa\u00f0ar athugasemdir vi\u00f0 svolei\u00f0is blogg held \u00e9g a\u00f0 smellirnir \u00e1 \u00feau s\u00e9u \u201e\u00f3vart-smellir\u201c \u00feeirra sem lesa vi\u00f0komandi fr\u00e9tt \u00e1 mbl.is (sem tengir \u00ed bloggin um fr\u00e9ttina). Veit \u00e9g \u00fe\u00f3 a\u00f0 athugasemdir segja \u00e6 minni s\u00f6gu \u00fev\u00ed talsvert af athugasemdum vi\u00f0 m\u00ednar eigin f\u00e6rslur f\u00e6 \u00e9g gegnum <i>Facebook<\/i>, einstaka sinnum \u00ed t\u00f6lvup\u00f3sti. <\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Af m\u00ednu eigin bloggi a\u00f0 d\u00e6ma vir\u00f0ist vera a\u00f0 \u00fev\u00ed \u00f3merkilegri sem f\u00e6rsla er \u00fev\u00ed vins\u00e6lli m\u00e6lt \u00ed hreinum teljarat\u00f6lum, t.d. er <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-02-29\/urklippur-hildar-lilliendahl\/\">\u00darklippur Hildar Lilliendahl<\/a> langvins\u00e6lasta f\u00e6rslan, me\u00f0 talsvert yfir 15.000 lesendur. Eins og nafni\u00f0 gefur til kynna er \u00feetta \u00ed rauninni ekki f\u00e6rsla heldur skj\u00e1myndasafn. Satt best a\u00f0 segja er m\u00e9r ekki kappsm\u00e1l a\u00f0 margir lesi bloggi\u00f0 mitt. M\u00e9r finnst miklu meira vir\u00f0i a\u00f0 hafa f\u00e1a g\u00f3\u00f0a (t.d. \u00ed merkingunni flugl\u00e6sa og \u00feokkalega kl\u00e1ra) lesendur heldur en a\u00f0 b\u00faa vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 holskeflu af misvitrum athugasemdum inn \u00e1 bloggi\u00f0 mitt &#8211; \u00fea\u00f0 er t.d. umtalsver\u00f0 vinna a\u00f0 halda or\u00f0brag\u00f0i svolei\u00f0is h\u00f3pa \u00ed skefjum.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00dea\u00f0 er allur gangur \u00e1 \u00fev\u00ed hvort blogg sem \u00e9g les sj\u00e1lf a\u00f0 sta\u00f0aldri s\u00e9u skr\u00e1\u00f0 \u00e1 <i>Bloggg\u00e1ttina<\/i>. Skv. minni reynslu er \u00feetta kynskipt: \u00c9g les talsvert af bloggf\u00e6rslum eftir konur sem einhverra hluta vegna kj\u00f3sa a\u00f0 skr\u00e1 ekki bloggin s\u00edn \u00ed RSS-veitu. Af \u00feeim sem \u00e9g les eru \u00feetta \u00fdmist blogg um \u00feunglyndi e\u00f0a blogg um hannyr\u00f0ir en \u00e9g hef svo sem enga yfirs\u00fdn yfir \u00f3skr\u00e1\u00f0 blogg almennt og man ekki eftir \u00f3skr\u00e1\u00f0u bloggi eftir karlmann. \u00c9g veit \u00fev\u00ed mi\u00f0ur ekki um neinn g\u00f3\u00f0an m\u00e6likvar\u00f0a til a\u00f0 meta vins\u00e6ldir bloggs eftir a\u00f0 blogg og <i>Facebook<\/i> og <i>Google <\/i>og l\u00edklega <i>Twitter<\/i> runnu saman, l\u00edklega er s\u00e1 m\u00e6likvar\u00f0i ekki til.<\/font><\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">Hannyr\u00f0a-heimurinn<\/font><\/b><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00dea\u00f0 er kannski ekki \u00far vegi a\u00f0 nefna st\u00f3ran og vins\u00e6lan en svo til \u00f3s\u00fdnilegan kima \u00e1 Vefnum \u00f6\u00f0rum en \u00feeim sem \u00e1huga hafa sem er efni tengt hannyr\u00f0um. Sem d\u00e6mi m\u00e1 nefna <a href=\"http:\/\/prjonablogg.blogspot.com\/\">Prj\u00f3nabloggi\u00f0<\/a>, eitt margra prj\u00f3nablogga \u00e1 \u00edslensku sem eru ekki skr\u00e1\u00f0 \u00ed <em>Bloggg\u00e1ttina<\/em>, en eigandi \u00feess tilkynnti n\u00fdveri\u00f0:<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">\u00c9g hef veri\u00f0 me\u00f0 blogig\u00f0 [svo] mitt \u00ed t\u00e6p 3 \u00e1r og \u00fear sem heims\u00f3knir \u00e1 s\u00ed\u00f0una eru komnar yfir 200.000 \u00e1 \u00feaim [svo] t\u00edma og fara yfir nokkur hundru\u00f0 og jafnvel nokkur \u00fe\u00fasund \u00e1 dag, \u00fe\u00e1 hef \u00e9g \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 gera facebook s\u00ed\u00f0u l\u00edka. Inn \u00e1 \u00feessa s\u00ed\u00f0u kem \u00e9g til me\u00f0 a\u00f0 setja inn myndir af \u00fev\u00ed sem \u00e9g er a\u00f0 gera \u00e1samt \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00e1ta ykkur, k\u00e6ru lesendur vita \u00feegar \u00e9g set inn n\u00fdjar f\u00e6rslur \u00e1 bloggi\u00f0 mitt \ud83d\ude42<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">\u00dea\u00f0 er til talsvert af samb\u00e6rilegum s\u00ed\u00f0um \u00e1 <i>Facebook<\/i>, \u00e1hugas\u00f6mum er bent \u00e1 a\u00f0 leita me\u00f0 leitaror\u00f0inu prj\u00f3n e\u00f0a knitting \ud83d\ude42 E\u00f0li <i>Facebook<\/i> sem samf\u00e9lagsmi\u00f0ils eru ger\u00f0 skemmtileg skil \u00ed f\u00e6rslu G\u00edsla \u00c1sgeirssonar fr\u00e1 sl. n\u00f3vember, <a href=\"http:\/\/malbeinid.wordpress.com\/2012\/11\/24\/kvittad-laekad-og-deilt\/\">Kvitta\u00f0, l\u00e6ka\u00f0 og deilt<\/a>.<\/font><font size=\"-1\"><a href=\"http:\/\/malbeinid.wordpress.com\/2012\/11\/24\/kvittad-laekad-og-deilt\/\"><\/a><\/font><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"10\" vspace=\"10\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/gary_grant.jpg?resize=259%2C194\" alt=\"Gary Grant prj\u00f3nar\" align=\"left\" height=\"194\" width=\"259\" \/><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Fyrir utan prj\u00f3nablogg og uppskriftavefi (t.d. <a href=\"http:\/\/garnstudio.no\">garnstudio.no<\/a>) og prj\u00f3nakennsluvefi (t.d. <i><a href=\"http:\/\/woolandthegang.com\/en\/videos\/index\">Wool and the Gang<\/a><\/i>) og prj\u00f3navefi tengda garni e\u00f0a t\u00edmaritum (t.d. <i><a href=\"http:\/\/knittingdaily.com\">Knitting Daily<\/a><\/i>) og prj\u00f3na<i>facebook<\/i> og <i>Google<\/i> til a\u00f0 leita a\u00f0 svolei\u00f0is er <i>YouTube<\/i> \u00f3t\u00e6mandi uppspretta hannyr\u00f0afr\u00e6\u00f0a. Kennslumyndb\u00f6nd \u00ed \u00fdmsum hannyr\u00f0um l\u00e9tta f\u00f3lki eins og m\u00e9r (sem \u00e1 erfitt me\u00f0 a\u00f0 skilja uppskriftir, vegna me\u00f0f\u00e6dds skorts \u00e1 r\u00fdmisgreind) l\u00edfi\u00f0 \u00f3tr\u00falega miki\u00f0! Raunar er <i>YouTube<\/i> n\u00e1ma hvers kyns efnis: T\u00f3nlistar; hlj\u00f3\u00f0s; myndbanda; kvikmynda; gl\u00e6rus\u00fdninga; fyrirlestra o.s.fr. og l\u00f6ngu or\u00f0i\u00f0 \u00f3rj\u00fafanlegur hluti annarra samskiptami\u00f0la, fyrir utan a\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 vera samskiptami\u00f0ill sj\u00e1lft \u00fev\u00ed \u00e1 <i>YouTube<\/i> tj\u00e1 notendur sig \u00f3spart um efni\u00f0 og kr\u00e6kja \u00ed a\u00f0ra umfj\u00f6llun.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Loks ver\u00f0ur a\u00f0 nefna <i>Pintrest<\/i>, stafr\u00e6na korkt\u00f6flu \u00fear sem festa m\u00e1 myndir sem tengjast \u00e1hugasvi\u00f0i hvers og eins. <i>Pintrest<\/i> er au\u00f0vita\u00f0 draumur hverrar hannyr\u00f0akonu \u00fev\u00ed ma\u00f0ur gleymir \u00f3tr\u00falega flj\u00f3tt fyrir hva\u00f0 hvert b\u00f3kamerki \u00ed vafranum st\u00f3\u00f0 en sj\u00e1i ma\u00f0ur mynd af \u00fev\u00ed sem var \u00e1 s\u00ed\u00f0unni sem alls ekki \u00e1tti a\u00f0 lenda \u00ed glatkistunni er miklu au\u00f0veldara a\u00f0 passa upp \u00e1 \u00fea\u00f0 sem \u00e1tti a\u00f0 muna eftir. \u00c9g sko\u00f0a <i>Pinterest <\/i>s\u00ed\u00f0ur \u00feeirra sem hafa svipu\u00f0 \u00e1hugam\u00e1l og \u00e9g, endurfesti myndir af \u00feeirra t\u00f6flum, s\u00e9 hva\u00f0an \u00feeir fengu myndirna, k\u00edki \u00e1 \u00fe\u00e6r s\u00ed\u00f0ur og <em>Pinterest<\/em>-t\u00f6flur\u00a0o.s.fr. &#8230; \u00fea\u00f0 er \u00f3tr\u00falega au\u00f0velt a\u00f0 festast \u00ed <em>Pinterest<\/em>-sko\u00f0un og ey\u00f0a \u00ed hana m\u00f6rgum klukkustundum! <i>Pinterest<\/i> m\u00e1 nota um hva\u00f0a \u00e1hugam\u00e1l sem er \u00fe\u00f3tt \u00e9g hafi fellt \u00feessa umfj\u00f6llun undir hannyr\u00f0ir \u00e1 netinu, \u00e9g er t.d. me\u00f0 Pinterest-t\u00f6flu yfir myndir sem tengjast <em>Snorra-Eddu<\/em> sem \u00e9g get nota\u00f0 \u00ed kennslu (e\u00f0a ekki nota\u00f0). <i>Pinterest<\/i>-t\u00f6flurnar m\u00ednar eru \u00e1 <a href=\"http:\/\/pinterest.com\/harpahreins\/\">http:\/\/pinterest.com\/harpahreins\/<\/a> ef einhver lesandi hefur ekki s\u00e9\u00f0 svona korkt\u00f6flur. (Af \u00fev\u00ed \u00e9g er n\u00fdbyrju\u00f0 a\u00f0 nota \u00feetta \u00e1 \u00e9g ekki margar korkt\u00f6flur.) \u00c9g s\u00e9 fyrir m\u00e9r a\u00f0 <i>Pinterest<\/i> muni skipta \u00e1l\u00edka m\u00e1li og <i>Google<\/i> \u00ed framt\u00ed\u00f0inni \u00ed a\u00f0 veita heims\u00f3knum inn \u00e1 vefs\u00ed\u00f0ur og blogg.<\/font><\/p>\n<p><b><font size=\"-1\">Akk\u00farat n\u00fana: \u00c9g \u00e1 l\u00edf og I&#8217;m a Cow<\/font><\/b><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"10\" vspace=\"10\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/kyr.jpg?resize=259%2C194\" alt=\"\u00cdslenska Eurovission lagi\u00f0\" align=\"left\" height=\"194\" width=\"259\" \/><font size=\"-1\">\u00c1g\u00e6tt d\u00e6mi um hvernig samskiptami\u00f0lar virka m\u00e1 sj\u00e1 akk\u00farat n\u00fana: Komi\u00f0 hefur \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 \u00edslenska Eurovission-lagi\u00f0 sem var kosi\u00f0 \u00ed g\u00e6rkv\u00f6ldi er nau\u00f0al\u00edkt \u00f6\u00f0ru lagi eftir kanad\u00edska hlj\u00f3msveit. \u00cd athugasemdir vi\u00f0 fr\u00e9tt netmi\u00f0la af \u00feessari kosningu er alls sta\u00f0ar vakin athygli \u00e1 \u00feessu og kr\u00e6kt \u00ed myndb\u00f6nd \u00e1 <i>YouTube<\/i>. \u00c1 <i>YouTube<\/i> eru skrifa\u00f0ar athugasemdir vi\u00f0 t\u00f3nlistarmyndb\u00f6nd af I&#8217;m a Cow og vakin athygli \u00e1 l\u00edkindum \u00feess og \u00edslenska Eurovision-lagsins \u00c9g \u00e1 l\u00edf. Strax \u00ed g\u00e6rkv\u00f6ldi blogga\u00f0i G\u00edsli \u00c1sgeirsson um \u00feessi \u00f3heppilegu l\u00edkindi, <a href=\"http:\/\/malbeinid.wordpress.com\/2013\/02\/02\/eg-a-lif-komid-ut-i-kanada\/\">\u201c\u00c9g \u00e1 l\u00edf \u201d e\u00f0a I Am Cow -Kom \u00fat \u00ed Kanada 2006<\/a> og aftur \u00ed dag, <a href=\"http:\/\/malbeinid.wordpress.com\/2013\/02\/03\/bukolla-og-systur-hennar-i-kanada\/\">B\u00fakolla og systur hennar \u00ed Kanada<\/a>. (G\u00edsli er einn af m\u00ednum upp\u00e1haldsbloggurum sem sk\u00fdrir af hverju \u00e9g vitna svona oft \u00ed hann \u00ed \u00feessari f\u00e6rslu.) \u00c1 <i>Facebook<\/i> ganga n\u00fa gr\u00edn-r\u00edm-statusar um texta og l\u00edkindi laganna, me\u00f0 kr\u00e6kjum \u00ed blogg G\u00edsla og <i>YouTube<\/i> myndb\u00f6nd og\u00a0L\u00e1ru H\u00f6nnu sem\u00a0<a href=\"https:\/\/soundcloud.com\/larahanna\/g-l-f-i-am-cow\">hefur sett saman l\u00f6gin tv\u00f6 \u00e1 <i>SoundCloud<\/i>.<\/a> Sj\u00e1lf nota \u00e9g ekki <i>Twitter<\/i> en efast ekki um a\u00f0 miki\u00f0 hefur veri\u00f0 t\u00edst um akk\u00farat \u00feetta. Laust eftir h\u00e1degi \u00ed dag f\u00f3ru a\u00f0 berast fr\u00e9ttir af \u00feessu \u00e1 netmi\u00f0lum, t.d. <a href=\"http:\/\/www.ruv.is\/frett\/likt-en-ekki-stolid\">L\u00edkt en ekki stoli\u00f0<\/a> \u00e1 ruv.is og\u00a0 <a href=\"http:\/\/www.visir.is\/er-framlag-islands-i-eurovision-stolid-\/article\/2013130209785\">Er framlag \u00cdslands \u00ed Eurovision stoli\u00f0?<\/a> \u00e1 visir.is, og eflaust er \u00feegar fari\u00f0 a\u00f0 deila \u00feeim fr\u00e9ttum \u00e1 <i>Facebook<\/i> og r\u00e6\u00f0a \u00fe\u00e6r, sem g\u00e6ti or\u00f0i\u00f0 uppspretta einhverra blogga, sem g\u00e6tu rata\u00f0 \u00ed netmi\u00f0la, sem g\u00e6tu s\u00ed\u00f0armeir or\u00f0i\u00f0 f\u00f3\u00f0ur \u00ed fr\u00e6\u00f0ilega grein um meint stolin Eurovision-l\u00f6g, sem g\u00e6ti or\u00f0i\u00f0 uppspretta fr\u00e9tta, sem g\u00e6ti veri\u00f0 deilt \u00e1 <i>Facebook<\/i> o.s.fr. Og yfir \u00f6llu \u00feessu vakir sj\u00e1lfur <i>Google<\/i> og g\u00e6tir a\u00f0 \u00fea\u00f0 t\u00fdnist ekki.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd \u00feessari f\u00e6rslu \u00e6tla\u00f0i \u00e9g a\u00f0 nefna algeng umfj\u00f6llunarefni blogga, fjalla um afst\u00f6\u00f0u e\u00f0a afst\u00f6\u00f0uleysi \u00e1kve\u00f0inna st\u00e9tta til samskiptami\u00f0la, um g\u00edfurlegt gagn landsa\u00f0gangs a\u00f0 fr\u00e6\u00f0igreinum o.fl. en \u00fe\u00f3tt \u00e9g hafi \u00fe\u00e1 stefnu a\u00f0 skrifa langar bloggf\u00e6rslur s\u00e9 \u00e9g a\u00f0 \u00feessi m\u00e1 ekki lengri vera svo \u00feetta ver\u00f0ur a\u00f0 b\u00ed\u00f0a betri t\u00edma.<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>eru \u00fea\u00f0 sem \u00e1 ensku kallast Social Media. Menn hafa reynt a\u00f0 afmarka hugtaki\u00f0 vi\u00f0 \u00fdmislegt en \u00ed rauninni m\u00e1 segja a\u00f0 Vefurinn eins og hann leggur sig s\u00e9 samf\u00e9lagsmi\u00f0ill \u00fev\u00ed n\u00faor\u00f0i\u00f0 er allra handa <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2013\/02\/03\/1294\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[26],"tags":[],"class_list":["post-483","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-netid"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/483","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=483"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/483\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":602,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/483\/revisions\/602"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=483"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=483"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=483"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}