{"id":491,"date":"2013-03-13T13:37:15","date_gmt":"2013-03-13T13:37:15","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2013-03-13\/gedlaeknar-mega-dompa-sjuklingum-ad-vild\/"},"modified":"2013-11-19T09:56:31","modified_gmt":"2013-11-19T09:56:31","slug":"gedlaeknar-mega-dompa-sjuklingum-ad-vild","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2013\/03\/13\/gedlaeknar-mega-dompa-sjuklingum-ad-vild\/","title":{"rendered":"Ge\u00f0l\u00e6knar mega d\u00f6mpa sj\u00faklingum a\u00f0 vild"},"content":{"rendered":"<p><font size=\"-1\">Eins og \u00e9g rakti \u00ed bloggf\u00e6rslunni <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-11-14\/gedlaeknir-dompar-sjuklingi-vegna-bloggs\/\" title=\"Engilbert Sigur\u00f0sson ge\u00f0l\u00e6knir losar sig vi\u00f0 sj\u00fakling\">Ge\u00f0l\u00e6knir d\u00f6mpar sj\u00faklingi<\/a> lenti \u00e9g \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 ge\u00f0l\u00e6knirinn minn til 12 \u00e1ra, Engilbert Sigur\u00f0sson, sendi m\u00e9r langt br\u00e9f og \u201esag\u00f0i m\u00e9r upp\u201c sem sj\u00faklingi, a\u00f0 \u00fev\u00ed er virtist vegna \u00feess a\u00f0 honum hugna\u00f0ist ekki hvernig \u00e9g blogga\u00f0i um eigin sj\u00fakras\u00f6gu. \u00c9g haf\u00f0i \u00fe\u00f3 lagt mig \u00ed l\u00edma vi\u00f0 a\u00f0 taka jafn\u00f3\u00f0um fram a\u00f0 \u00feessar bloggf\u00e6rslur v\u00e6ru um mig og a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri ekki a\u00f0 leita s\u00f6kud\u00f3lgi fyrir sj\u00fakras\u00f6gu minni, allt fr\u00e1 \u00fev\u00ed hann hringdi \u00ed mig \u00ed vor, \u00fe\u00e1 s\u00e1rm\u00f3\u00f0ga\u00f0ur yfir nokkrum f\u00e6rslum sem fj\u00f6llu\u00f0u um erkit\u00fdpu \u00feunglyndissj\u00faklinga, \u00f3h\u00f3flega lyfjagj\u00f6f og aflei\u00f0ingar hennar o.fl. Eftir a\u00f0 \u00e9g kvarta\u00f0i vi\u00f0 yfirmann Engilberts f\u00e9kk \u00e9g t\u00f6lvup\u00f3st fr\u00e1 honum \u00fear sem taldar voru upp fleiri \u00e1st\u00e6\u00f0ur, t.a.m. s\u00fa a\u00f0 \u00e9g hef\u00f0i tala\u00f0 vi\u00f0 s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ing \u00e1n \u00feess a\u00f0 bi\u00f0ja hann leyfis\/spyrja hann \u00e1\u00f0ur.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c9g v\u00edsa\u00f0i m\u00e1linu til Emb\u00e6ttis landl\u00e6knis af \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 vakti fur\u00f0u m\u00edna a\u00f0 starfandi ge\u00f0l\u00e6knir \u00e1 r\u00edkissp\u00edtala g\u00e6ti upp \u00e1 sitt eind\u00e6mi grisja\u00f0 \u00ed s\u00ednum sj\u00faklingah\u00f3pi ef honum hugna\u00f0ist ekki hvernig sj\u00faklingurinn hugsa\u00f0i og tj\u00e1\u00f0i sig um eigin sj\u00fakd\u00f3m. N\u00fa hefur ni\u00f0ursta\u00f0a landl\u00e6knis borist og ber \u00feess eins og fleiri m\u00e1l vitni um a\u00f0 landl\u00e6knir \u00e1l\u00edti sitt meginhlutverk vera a\u00f0 standa me\u00f0 sinni st\u00e9tt, l\u00e6knum. Ni\u00f0ursta\u00f0an er \u201ea\u00f0 hvorki vanr\u00e6ksla, mist\u00f6k n\u00e9 \u00f3tilhl\u00fd\u00f0ileg framkoma hafi \u00e1tt s\u00e9r sta\u00f0 vi\u00f0 veitingu heilbrig\u00f0is\u00fej\u00f3nustu \u00ed tilviki H\u00f6rpu Hreinsd\u00f3ttur \u00feann 27. september 2012.\u201c\u00a0 N\u00e1nar tilteki\u00f0 segir \u00ed ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u Emb\u00e6ttis landl\u00e6knis:<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">\u00deegar ekki r\u00edkir lengur traust og tr\u00fana\u00f0arsamband \u00ed me\u00f0fer\u00f0, a\u00f0 mati anna\u00f0 hvort sj\u00faklings e\u00f0a heilbrig\u00f0isstarfsmanns, ver\u00f0ur a\u00f0 telja \u00feeim b\u00e1\u00f0um heimilt a\u00f0 sl\u00edta me\u00f0fer\u00f0arsambandi. L\u00e6knirinn \u00ed \u00feessu tilviki l\u00e9t sj\u00fakling sinn vita um \u00fea\u00f0 skriflega og me\u00f0 r\u00f6kstu\u00f0ningi a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri hans mat a\u00f0 traust r\u00edkti ekki lengur milli hans og sj\u00faklings og hann s\u00e6i s\u00e9r ekki f\u00e6rt a\u00f0 vera l\u00e6knir hennar lengur. \u00de\u00e1 er \u00fea\u00f0 teki\u00f0 fram a\u00f0 sj\u00faklingur s\u00e9 \u00e1fram velkominn \u00e1 \u00fe\u00e1 deild Landsp\u00edtala sem hann haf\u00f0i dvali\u00f0 \u00e1. A\u00f0 mati landl\u00e6knis ver\u00f0ur ekki tali\u00f0 a\u00f0 framkoma heilbrig\u00f0isstarfsmanns hafi \u00ed \u00feessu tilviki veri\u00f0 \u00f3tilhl\u00fd\u00f0ileg. \u00de\u00e1 liggur \u00fea\u00f0 fyrir a\u00f0 sj\u00faklingur haf\u00f0i leita\u00f0 me\u00f0fer\u00f0ar hj\u00e1 \u00f6\u00f0rum heilbrig\u00f0isstarfsmanni um t\u00edma, \u00fe.e. s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingi og haf\u00f0i lagt dr\u00f6g a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 leita til annars ge\u00f0l\u00e6knis, en ekki \u00f3ska\u00f0 r\u00e1\u00f0a e\u00f0a atbeina umr\u00e6dds l\u00e6knis vi\u00f0 \u00fea\u00f0. Ver\u00f0ur \u00fev\u00ed ekki fundi\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00e6knirinn hafi ekki komi\u00f0 sj\u00faklingi til me\u00f0fer\u00f0ar hj\u00e1 \u00f6\u00f0rum ge\u00f0l\u00e6kni.<\/font><\/p><\/blockquote>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">\u00dea\u00f0 er ni\u00f0ursta\u00f0a landl\u00e6knis a\u00f0 l\u00e6knir hafi ekki s\u00fdnt af s\u00e9r \u00f3tilhl\u00fd\u00f0ilega framkomu er hann tilkynnti kvartanda br\u00e9flega a\u00f0 honum v\u00e6ri ekki f\u00e6rt a\u00f0 vera l\u00e6knir hans lengur.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">Engilbert Sigur\u00f0sson er yfirl\u00e6knir \u00e1 deild 32 A \u00e1 Landsp\u00edtalanum. \u00dea\u00f0 vekur fur\u00f0u m\u00edna a\u00f0 landl\u00e6knir skuli telja honum \u00fea\u00f0 til tekna a\u00f0 hann taki fram a\u00f0 \u00e9g megi \u00e1fram leggjast inn \u00e1 \u00fe\u00e1 ge\u00f0deild \u00feurfi \u00e9g \u00e1 sj\u00fakrah\u00fasvist a\u00f0 halda. Er \u00fea\u00f0 s\u00e9rstakt tillit? Eru \u00fe\u00e1 d\u00e6mi \u00feess a\u00f0 yfirl\u00e6knar \u00e1 ge\u00f0deildum Landsp\u00edtala meini sj\u00faklingi sj\u00fakrah\u00fasvist a\u00f0 ge\u00f0\u00fe\u00f3tta?<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Hva\u00f0 var\u00f0ar annan ge\u00f0l\u00e6kni \u00fe\u00e1 haf\u00f0i Engilbert sj\u00e1lfur nefnt a\u00f0 e.t.v. farna\u00f0ist m\u00e9r betur hj\u00e1 \u00f6\u00f0rum l\u00e6kni en honum, \u00ed \u00fev\u00ed langa s\u00edmtali \u00ed apr\u00edl sl., sem\u00a0af minni h\u00e1lfu f\u00f3r\u00a0\u00ed \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00fatsk\u00fdra fyrir honum hvernig bloggf\u00e6rslur v\u00e6ru skrifa\u00f0ar (a\u00f0 \u00fe\u00e6r hverf\u00f0ust oftast um eitt e\u00f0a f\u00e1 vi\u00f0fangsefni) og hva\u00f0 b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0ihugt\u00f6k \u00ed f\u00e6rslununum sem hann m\u00f3\u00f0ga\u00f0ist yfir \u00fe\u00fdddu. \u00c9g t\u00f3k \u00e1bendingu hans til greina og kanna\u00f0i \u00f6\u00f0ru hvoru sl. sumar hvort \u00e9g k\u00e6mist a\u00f0 hj\u00e1 \u00f6\u00f0rum l\u00e6kni, \u00e1n \u00e1rangurs. \u00deetta sag\u00f0i \u00e9g honum \u00ed vi\u00f0talst\u00edma \u00e1tta d\u00f6gum \u00e1\u00f0ur en hann \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 segja m\u00e9r upp og b\u00e6tti vi\u00f0 a\u00f0 \u00e9g vildi gjarna vera \u00e1fram hj\u00e1 honum. Hann s\u00fdndi aldrei vott af \u00e1huga \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 a\u00f0sto\u00f0a mig vi\u00f0 a\u00f0 komast a\u00f0 hj\u00e1 \u00f6\u00f0rum l\u00e6kni og satt best a\u00f0 segja h\u00e9lt \u00e9g a\u00f0 honum \u00fe\u00e6tti \u00fea\u00f0 ekki \u00ed s\u00ednum verkahring mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 vi\u00f0br\u00f6g\u00f0.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Af \u00e1litsger\u00f0 Emb\u00e6ttis landl\u00e6knis m\u00e1 \u00fev\u00ed r\u00e1\u00f0a a\u00f0<b> stingi l\u00e6knir upp \u00e1 \u00fev\u00ed vi\u00f0 sj\u00fakling a\u00f0 hann leiti annars l\u00e6knis geti l\u00e6knirinn flj\u00f3tlega \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 losa\u00f0 sig vi\u00f0 sj\u00faklinginn <\/b>\u00e1n \u00feess a\u00f0 teljast hafa broti\u00f0 gegn \u00fev\u00ed sem segir \u00ed lei\u00f0beiningum landl\u00e6knisemb\u00e6ttisins til l\u00e6kna, <a href=\"http:\/\/www.landlaeknir.is\/utgefid-efni\/skjal\/item2749\/Godir-starfshaettir-laekna\"><em>G\u00f3\u00f0ir starfsh\u00e6ttir l\u00e6kna<\/em><\/a>\u00a0(s. 9):<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">A\u00f0 sl\u00edta sambandi l\u00e6knis vi\u00f0 sj\u00fakling<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">24. \u00cd undantekningartilfellum kunna a\u00f0 koma upp \u00fe\u00e6r a\u00f0st\u00e6\u00f0ur, til d\u00e6mis ef sj\u00faklingur hefur beitt l\u00e6kni e\u00f0a samstarfsf\u00f3lk ofbeldi e\u00f0a \u00edtreka\u00f0 heg\u00f0a\u00f0 s\u00e9r af tillitsleysi e\u00f0a \u00f3sanngirni, a\u00f0 tr\u00fana\u00f0artraust milli l\u00e6knis og sj\u00faklings rofnar og l\u00e6knirinn telur nau\u00f0synlegt a\u00f0 sl\u00edta sambandi vi\u00f0 sj\u00fakling sinn. Vi\u00f0 \u00feannig a\u00f0st\u00e6\u00f0ur ver\u00f0ur l\u00e6knir a\u00f0 tryggja a\u00f0 \u00e1kv\u00f6r\u00f0un hans s\u00e9 sanngj\u00f6rn og brj\u00f3ti ekki \u00ed b\u00e1ga vi\u00f0 \u00e1kv\u00e6\u00f0i 5. greinar \u00ed \u00feessum lei\u00f0beiningum. L\u00e6knirinn ver\u00f0ur a\u00f0 vera rei\u00f0ub\u00fainn til a\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ta \u00e1kv\u00f6r\u00f0unina, ver\u00f0i eftir \u00fev\u00ed leita\u00f0. L\u00e6knir \u00e6tti ekki a\u00f0 sl\u00edta sambandi vi\u00f0 sj\u00fakling sinn af \u00feeirri \u00e1st\u00e6\u00f0u einni a\u00f0 sj\u00faklingurinn hafi kvarta\u00f0 undan honum e\u00f0a samstarfsf\u00f3lki hans nema a\u00f0 l\u00e6knirinn meti \u00fea\u00f0 svo a\u00f0 tr\u00fana\u00f0ur milli hans og sj\u00faklingsins s\u00e9 rofinn me\u00f0 \u00f6llu og l\u00e6knirinn treysti s\u00e9r ekki til a\u00f0 veita sj\u00faklingi \u00f3vilhalla \u00fej\u00f3nustu.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">25. L\u00e6kni ber a\u00f0 tilkynna sj\u00faklingi munnlega e\u00f0a skriflega um \u00e1st\u00e6\u00f0ur \u00feess a\u00f0 hann hefur \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 sl\u00edta sambandinu vi\u00f0 sj\u00faklinginn. Einnig ber honum a\u00f0 gera r\u00e1\u00f0stafanir til \u00feess a\u00f0 tryggja a\u00f0 sj\u00faklingurinn f\u00e1i flj\u00f3tlega \u00e1framhaldandi me\u00f0fer\u00f0 og afhenda sj\u00fakrask\u00fdrslur hans n\u00fdjum l\u00e6kni eins flj\u00f3tt og au\u00f0i\u00f0 er.<\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">Engilbert Sigur\u00f0sson telur a\u00f0 \u00e9g hafi rofi\u00f0 tr\u00fana\u00f0arsamband l\u00e6knis og sj\u00faklings me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0\u00a0hafa tala\u00f0\u00a0einu sinni vi\u00f0 s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ing \u00e1n hans vitundar. \u00dea\u00f0 er au\u00f0vita\u00f0 gr\u00e1thl\u00e6gilegt \u00ed \u00feessu samhengi a\u00f0 lesa <a href=\"http:\/\/www.laeknabladid.is\/tolublod\/2011\/11\/nr\/4367\" title=\"Engilbert Sigur\u00f0sson ge\u00f0l\u00e6knir um s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ime\u00f0fer\u00f0\">lofgrein um gagnsemi s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ime\u00f0fer\u00f0ar vi\u00f0 \u00feunglyndi<\/a> sem hann er me\u00f0h\u00f6fundur a\u00f0. N\u00fa er \u00feessi s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingur pr\u00fd\u00f0ilega mennta\u00f0ur, betur mennta\u00f0ur en Engilbert, og starfar m.a. \u00e1 ge\u00f0svi\u00f0i Landsp\u00edtala svo \u00fea\u00f0 er ekki eins og \u00e9g hafi veri\u00f0 a\u00f0 leita \u00e1 n\u00e1\u00f0ir \u00feeirra illu kuklara sem l\u00e6knum er uppsiga\u00f0 vi\u00f0. Forma\u00f0ur Ge\u00f0l\u00e6knaf\u00e9lagsins hefur l\u00edkt s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingum vi\u00f0 sj\u00fakra\u00fej\u00e1lfara. \u00c6tli \u00fea\u00f0 s\u00e9 algengt a\u00f0 gigtarl\u00e6knar, skur\u00f0l\u00e6knar e\u00f0a a\u00f0rir s\u00e9rfr\u00e6\u00f0il\u00e6knar telji \u00fea\u00f0 sj\u00faklingum s\u00ednum til vansa a\u00f0 leita til sj\u00fakra\u00fej\u00e1lfara \u00e1n leyfis fr\u00e1 \u00feeim? E\u00f0a er vi\u00f0horf ge\u00f0l\u00e6kna til s\u00e1lfr\u00e6\u00f0inga allt anna\u00f0 en vi\u00f0horf annarra s\u00e9rfr\u00e6\u00f0inga til sj\u00fakra\u00fej\u00e1lfara og s\u00e1lfr\u00e6\u00f0inga?<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00de\u00f3tt Emb\u00e6tti landl\u00e6knis kj\u00f3si a\u00f0 telja s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ing jafngildan ge\u00f0l\u00e6kni \u00ed s\u00ednum \u00farskur\u00f0i er alls ekki svo \u00ed raunveruleikanum. \u00c9g \u00fearf reglulega a\u00f0 skila vottor\u00f0um um krankleik minn til \u00fdmissa l\u00edfeyrissj\u00f3\u00f0a. S\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingar geta ekki gefi\u00f0 \u00fat vottor\u00f0. \u00de\u00f3tt Emb\u00e6tti landl\u00e6knis kj\u00f3si a\u00f0 kalla \u00fea\u00f0 a\u00f0 leita til s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ings \u201eme\u00f0fer\u00f0 hj\u00e1 \u00f6\u00f0rum heilbrig\u00f0isstarfsmanni\u201c eru s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingar ekki innan heilbrig\u00f0iskerfisins a\u00f0 \u00fev\u00ed leyti a\u00f0 \u00fej\u00f3nusta \u00feeirra s\u00e9 greidd af sj\u00fakratryggingum. \u00deeir hafa \u00ed rauninni \u00f3sk\u00f6p svipa\u00f0a st\u00f6\u00f0u innan heilbrig\u00f0iskerfisins og nuddarar e\u00f0a a\u00f0rir gr\u00e6\u00f0arar.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">N\u00fa velti \u00e9g \u00fev\u00ed fyrir m\u00e9r hvort \u00e9g eigi a\u00f0 nenna a\u00f0 k\u00e6ra m\u00e1lsme\u00f0fer\u00f0 Emb\u00e6ttis landl\u00e6knis til Velfer\u00f0arr\u00e1\u00f0uneytisins. Ef landl\u00e6knir telur \u00fea\u00f0 meginhlutverk sitt a\u00f0 verja l\u00e6kna s\u00e9 \u00e9g ekki \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 \u00e6tla a\u00f0 Velfer\u00f0arr\u00e1\u00f0uneyti\u00f0 s\u00e9 ekki sama sinnis. \u00c9g hef \u00ferj\u00e1 m\u00e1nu\u00f0i til a\u00f0 \u00edhuga \u00feetta. \u00cd rauninni skiptir \u00e1kv\u00f6r\u00f0un Engilberts Sigur\u00f0ssonar um a\u00f0 d\u00f6mpa m\u00e9r sem sj\u00faklingi af \u00fev\u00ed hann var m\u00f3\u00f0ga\u00f0ur yfir \u00fev\u00ed hvernig \u00e9g blogga um sj\u00fakras\u00f6gu m\u00edna mig engu m\u00e1li. \u00cd langri og ruglingslegri greinarger\u00f0 Engilberts til Emb\u00e6ttis landl\u00e6knis gat hann ekki s\u00fdnt fram \u00e1 neitt sem benti til \u00feess a\u00f0 \u00e9g b\u00e6ri ekki traust til hans lengur en eins og \u00ed br\u00e9fi hans til m\u00edn var \u00fear miki\u00f0 um sta\u00f0reyndavillur, sem \u00e9g s\u00e1 ekki \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 lei\u00f0r\u00e9tta \u00fev\u00ed kv\u00f6rtun m\u00edn beindist ekki a\u00f0 l\u00e6knisme\u00f0fer\u00f0 Engilberts undanfarin t\u00f3lf \u00e1rin. \u00dea\u00f0 vir\u00f0ist duga landl\u00e6kni a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u201ehans [Engilberts] mat a\u00f0 traust r\u00edkti ekki lengur milli hans og sj\u00faklings\u201c og \u00fea\u00f0 \u00e1n \u00feess a\u00f0 Engilbert hafi geta\u00f0 r\u00f6kstutt \u00fea\u00f0 mat sitt me\u00f0 gildum r\u00f6kum. \u00c9g \u00e1 ekki von \u00e1 a\u00f0 a\u00f0rir ge\u00f0l\u00e6knar s\u00e9u jafn h\u00f6runds\u00e1rir og hann og hef raunar ekki gert tiltekinn ge\u00f0l\u00e6kni a\u00f0 s\u00e9rst\u00f6ku umfj\u00f6llunarefni \u00e1 m\u00ednu bloggi nema Engilbert Sigur\u00f0sson <b>eftir<\/b> hi\u00f0 dramat\u00edska uppsagnarbr\u00e9f fr\u00e1 honum.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Megin\u00e1st\u00e6\u00f0a \u00feess a\u00f0 \u00e9g fylgdi \u00feessu m\u00e1li eftir og fjalla um \u00fea\u00f0 opinberlega er a\u00f0 \u00e9g hef haft nokkrar spurnir af einmitt \u00feessu h\u00e1ttalagi einstakra ge\u00f0l\u00e6kna; a\u00f0 ef sj\u00faklingur tj\u00e1i sig opinberlega um sj\u00fakras\u00f6gu s\u00edna og l\u00e6knisme\u00f0fer\u00f0 tilkynni ge\u00f0l\u00e6knir a\u00f0 hann s\u00e9 h\u00e6ttur a\u00f0 vera l\u00e6knir sj\u00faklingsins. \u00cd einu tilviki haf\u00f0i \u00feetta geigv\u00e6nlegar aflei\u00f0ingar fyrir sj\u00fakling. Svolei\u00f0is a\u00f0 \u00e9g vildi f\u00e1 \u00e1lit Emb\u00e6ttis landl\u00e6knis \u00e1 akk\u00farat \u00feessu h\u00e1ttalagi. <b>Vir\u00f0ist a\u00f0 af \u00e1liti emb\u00e6ttis Landl\u00e6knis megi skilja a\u00f0 hva\u00f0a l\u00e6knir sem er geti losa\u00f0 sig vi\u00f0 hva\u00f0a sj\u00fakling sem er a\u00f0 \u00fev\u00ed tilskildu a\u00f0 l\u00e6knirinn hafi \u00e1\u00f0ur stungi\u00f0 upp \u00e1 a\u00f0 sj\u00faklingurinn leita\u00f0i til annarra l\u00e6kna og a\u00f0 sj\u00faklingurinn hafi leita\u00f0 s\u00e9r hj\u00e1lpar \u00e1n leyfis l\u00e6knisins, \u00feess vegna hj\u00e1 a\u00f0ila utan r\u00edkisrekins heilbrig\u00f0iskerfis.<\/b><\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Eins og \u00e9g rakti \u00ed bloggf\u00e6rslunni Ge\u00f0l\u00e6knir d\u00f6mpar sj\u00faklingi lenti \u00e9g \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 ge\u00f0l\u00e6knirinn minn til 12 \u00e1ra, Engilbert Sigur\u00f0sson, sendi m\u00e9r langt br\u00e9f og \u201esag\u00f0i m\u00e9r upp\u201c sem sj\u00faklingi, a\u00f0 \u00fev\u00ed er virtist <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2013\/03\/13\/gedlaeknar-mega-dompa-sjuklingum-ad-vild\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[9],"tags":[],"class_list":["post-491","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-gedheilsa"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/491","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=491"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/491\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":594,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/491\/revisions\/594"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=491"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=491"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=491"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}