{"id":492,"date":"2013-03-14T19:10:37","date_gmt":"2013-03-14T19:10:37","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2013-03-14\/hafa-thunglyndislaekningar-villst-af-leid\/"},"modified":"2013-11-19T09:56:17","modified_gmt":"2013-11-19T09:56:17","slug":"hafa-thunglyndislaekningar-villst-af-leid","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2013\/03\/14\/hafa-thunglyndislaekningar-villst-af-leid\/","title":{"rendered":"Hafa \u00feunglyndisl\u00e6kningar villst af lei\u00f0?"},"content":{"rendered":"<p><font size=\"-1\">\u00dea\u00f0 var fyrir r\u00e9ttu \u00e1ri s\u00ed\u00f0an a\u00f0 augu m\u00edn opnu\u00f0ust; \u00c9g \u00e1tta\u00f0i mig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g myndi aldrei n\u00e1 bata me\u00f0 hef\u00f0bundnum a\u00f0fer\u00f0um ge\u00f0l\u00e6kna vi\u00f0 \u00feunglyndi. Svo merkilegt sem \u00fea\u00f0 n\u00fa er var \u00fea\u00f0 b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0i sem opna\u00f0i m\u00e9r lei\u00f0. Af r\u00e6lni haf\u00f0i \u00e9g fengi\u00f0 l\u00e1na\u00f0a b\u00f3kina <i>Sykdom som litteratur<\/i> \u00e1 b\u00f3kasafni, \u00e6tla\u00f0i raunar bara a\u00f0 glugga \u00ed kaflana um berkla og holdsveiki en k\u00edkti svo l\u00edka \u00ed kaflann um \u00feunglyndi. Allt \u00ed einu rann upp fyrir m\u00e9r a\u00f0 \u00e9g var farin a\u00f0 gegna hlutverki b\u00f3kmenntapers\u00f3nu, klisju e\u00f0a erkit\u00fdpu, en ekki pers\u00f3nu af holdi og bl\u00f3\u00f0i. Eitt er a\u00f0 lesa n\u00fdr\u00f3mant\u00edskan harmagr\u00e1t &#8211; allt anna\u00f0 a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 leika n\u00fdr\u00f3mant\u00edska harmr\u00e6na kvenpers\u00f3nu\u00a0upp \u00e1 hvern dag og finna sig engan veginn \u00ed hlutverkinu.<\/font><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"10\" vspace=\"10\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/stytta_thunglynd_kona2.jpg?resize=250%2C164\" alt=\"Stytta af \u00feunglyndri konu\" align=\"left\" height=\"164\" width=\"250\" \/><font size=\"-1\">Me\u00f0an \u00e9g var a\u00f0 \u00e1tta mig \u00e1 hvernig vi\u00f0horf ge\u00f0heilbrig\u00f0isstarfsmanna til sj\u00faklinga m\u00e1 a\u00f0\u00a0einhverju leyti skilja \u00fat fr\u00e1 b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0ikenningum blogga\u00f0i \u00e9g f\u00e6rslurnar <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-03-17\/ged-sal-likami-stadalimynd\/\">Ge\u00f0, s\u00e1l, l\u00edkami, sta\u00f0al\u00edmynd<\/a> og\u00a0 <a href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2012-04-19\/haltu-kjafti-og-vertu-thunglynd\/\">Haltu kjafti og vertu &#8230; \u00feunglynd?<\/a>, sem reyndust fara s\u00e9rstaklega fyrir brj\u00f3sti\u00f0 \u00e1 \u00fe\u00e1verandi ge\u00f0l\u00e6kninum m\u00ednum. \u00cd f\u00e6rslunum er teki\u00f0 nokku\u00f0 dj\u00fapt \u00ed \u00e1rinni og eftir a\u00f0 hafa kynnt m\u00e9r hef\u00f0bundnar \u00feunglyndisl\u00e6kningar \u00ed \u00e1r s\u00e9 \u00e9g a\u00f0 m\u00e1lin eru fl\u00f3knari en \u00ed \u00feeim kemur fram. En \u00feetta var g\u00f3\u00f0ur byrjunarreitur fyrir mig og raunar er \u00e9g enn samm\u00e1la megninu af f\u00e6rslunum. \u00c9g rakst n\u00fana \u00e1\u00f0an \u00e1 klausu eftir s\u00e1lfr\u00e6\u00f0inginn og ge\u00f0hvarfaj\u00faklinginn Kay Redfield Jamison um tengsl \u00feunglyndis og erkt\u00fdpu kvenleikans:<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">\u00deunglyndi\u00f0 samr\u00e6mist betur hugmyndum \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagsins um \u00fea\u00f0 hvernig konur s\u00e9u \u00ed innsta e\u00f0li s\u00ednu, \u00fe.e.a.s. hl\u00e9dr\u00e6gar, vi\u00f0kv\u00e6mar, veiklyndar, bjargarlausar, gr\u00e1tgjarnar, \u00f3sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0ar, ringla\u00f0ar, fremur lei\u00f0inlegar og ekki mj\u00f6g metna\u00f0arfullar. (S. 90 \u00ed <i>\u00cd r\u00f3ti hugans<\/i>.)<\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">Margt af ofant\u00f6ldu voru <b>sj\u00fakd\u00f3mseinkenni<\/b> m\u00edn en eru hreint ekki hluti af m\u00ednu skapferli og sumu hef \u00e9g megnustu\u00a0sk\u00f6mm \u00e1. \u00dea\u00f0 m\u00e1 vel spyrja sig hvort vi\u00f0m\u00f3t einhverra \u00feeirra sem sj\u00faklingar \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 mig m\u00e6ta \u00ed ge\u00f0heilbrig\u00f0iskerfinu m\u00f3tist af tr\u00fa \u00feeirra \u00e1 a\u00f0 \u00feessi einkenni s\u00e9u eftirs\u00f3knarver\u00f0 fyrir konur. <\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd <i>Morgunbla\u00f0i<\/i> (mannsins) \u00ed dag er a\u00f0send grein eftir \u00fe\u00e6r Sv\u00f6vu Arnard\u00f3ttur og Tinnu Ragnarsd\u00f3ttur, Lei\u00f0ir til lausna heitir greinin og fjallar um lei\u00f0ir til bata \u00ed ge\u00f0r\u00e6num veikindum. \u00c9g er l\u00f6ngu b\u00fain a\u00f0 \u00e1tta mig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekki \u00e9g sem hef veri\u00f0 svona s\u00e9rstaklega \u00f3heppin \u00ed vi\u00f0skiptum vi\u00f0 ge\u00f0l\u00e6kningakerfi\u00f0 heldur er saga m\u00edn saga margra. \u00cd grein Sv\u00f6vu og Tinnu er l\u00fdst \u00fev\u00ed sem fj\u00f6lm\u00f6rgum ge\u00f0sj\u00fakum er talin tr\u00fa um:<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">\u00c1\u00f0ur en \u00e9g kynntist Hugarafli haf\u00f0i \u00e9g ekki hugmynd um a\u00f0 h\u00e6gt v\u00e6ri a\u00f0 n\u00e1 s\u00e9r eftir ge\u00f0r\u00e6n veikindi. \u00de\u00f3 haf\u00f0i \u00e9g stunda\u00f0 sj\u00e1lfsvinnu og gl\u00edmt vi\u00f0 \u00feunglyndi og kv\u00ed\u00f0a \u00ed \u00e1rara\u00f0ir. Haf\u00f0i s\u00f3tt \u00fej\u00f3nustu til \u00fdmissa s\u00e1lfr\u00e6\u00f0inga og ge\u00f0l\u00e6kna og hvergi fengi\u00f0 \u00feau skilabo\u00f0 a\u00f0 \u00e9g g\u00e6ti n\u00e1\u00f0 m\u00e9r og or\u00f0i\u00f0 heilbrig\u00f0ur einstaklingur \u00e1 n\u00fdjan leik. \u00c9g f\u00e9kk hins vegar a\u00f0 heyra \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri \u00feunglynd a\u00f0 e\u00f0lisfari og ef \u00e9g v\u00e6ri dugleg a\u00f0 taka lyfin m\u00edn og t\u00e6ki \u00feau um \u00f3komna framt\u00ed\u00f0 g\u00e6ti \u00e9g vonast til a\u00f0 halda \u00feessum einkennum \u00ed skefjum. Sl\u00edk skilabo\u00f0 draga \u00far vonum og v\u00e6ntingum einstaklings &#8230;<\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">S\u00ed\u00f0an l\u00fdsir m\u00e6landi hvernig hann l\u00e6r\u00f0i af samt\u00f6lum vi\u00f0 a\u00f0ra, \u00fe.e. heyr\u00f0i\u00a0\u201el\u00edfss\u00f6gur einstaklinga sem voru komnir langt \u00ed bata en h\u00f6f\u00f0u veri\u00f0 \u00e1 sama sta\u00f0 og \u00e9g\u201c, \u00f6\u00f0la\u00f0ist fyrirmyndir og m\u00e6tti j\u00e1kv\u00e6\u00f0u vi\u00f0m\u00f3ti \u201e\u00ed vi\u00f0t\u00f6lum vi\u00f0 faga\u00f0ila sem l\u00fdsti yfir tr\u00fa \u00e1 m\u00e9r. \u00dea\u00f0 \u00feekkti \u00e9g ekki \u00e1\u00f0ur.\u201c<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00deessa hj\u00e1lp sem skila\u00f0i \u00e1rangri f\u00e9kk h\u00f6fundur greinarinnar hj\u00e1 Hugarafli. \u00c9g hef ekki leita\u00f0 til Hugarafls, a\u00f0allega af \u00fev\u00ed \u00e9g b\u00fd ekki \u00ed Reykjav\u00edk og hef oft \u00e1 t\u00ed\u00f0um veri\u00f0 n\u00e1nast \u00f3f\u00e6r um a\u00f0 breg\u00f0a m\u00e9r af b\u00e6. \u00c9g hef hins vegar fengi\u00f0 svipa\u00f0an stu\u00f0ning annars sta\u00f0ar, eftir a\u00f0 \u00e9g \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 taka m\u00edn m\u00e1l og minn sj\u00fakd\u00f3m \u00ed eigin hendur, hafandi treyst hef\u00f0bundnum ge\u00f0l\u00e6knisa\u00f0fer\u00f0um \u00ed blindni \u00ed meir en \u00e1ratug\u00a0\u00fe\u00f3tt \u00fe\u00e6r\u00a0skilu\u00f0u engum \u00e1rangri til b\u00f3ta og yllu m\u00e9r ska\u00f0a \u00ed m\u00f6rgum tilvikum. Me\u00f0 hj\u00e1lp skynsamra og g\u00f3\u00f0ra manna hef \u00e9g n\u00e1\u00f0 miklu betri \u00e1rangri \u00e1 \u00fev\u00ed \u00e1ri sem li\u00f0i\u00f0 er en nokkru sinni gafst af pillud\u00f3tinu og stu\u00f0unum. \u00c9g hef fulla tr\u00fa \u00e1 a\u00f0 \u00feessi a\u00f0fer\u00f0 skili \u00e1rangri \u00e1fram og er vo\u00f0alega fegin a\u00f0 vera h\u00e6tt \u00ed pillupr\u00f3funum og hafa \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 ekki ver\u00f0i floga\u00f0 meir me\u00f0 rafmagni \u00ed heilanum \u00e1 m\u00e9r.<\/font>\u00a0<br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">Pillusortum vi\u00f0 \u00feunglyndi fj\u00f6lgar \u00e6 meir og heila\u00fevotturinn um a\u00f0 orsakir \u00feunglyndis liggi \u00ed tilt\u00f6lulega einf\u00f6ldu efna\u00f3jafnv\u00e6gi \u00ed heila ver\u00f0ur \u00e6 \u00f6flugri &#8230; en \u00e1 sama t\u00edma ver\u00f0ur \u00feunglyndi \u00e6 algengara og \u00e6 \u00feyngri v\u00e1 og \u00e6 meir \u00f3l\u00e6knandi \u00ed \u00feeim skilningi a\u00f0 flestum \u00feunglyndissj\u00faklingum er sagt a\u00f0 \u00feeir \u00feurfi a\u00f0 eta \u00feunglyndislyf til framb\u00fa\u00f0ar. M\u00e1 \u00fe\u00e1 ekki draga \u00fe\u00e1 \u00e1lyktun a\u00f0 \u00e1rangurinn af l\u00e6knisa\u00f0fer\u00f0unum s\u00e9 sorglega l\u00edtill? Hva\u00f0 klikkar? Er m\u00f6gulegt a\u00f0 \u00feunglyndisl\u00e6kningar n\u00fat\u00edmans s\u00e9u, \u00feegar allt kemur til alls, skelfilegt kukl en ekki v\u00edsindi?<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Ein lei\u00f0 til a\u00f0 leita a\u00f0 sv\u00f6rum vi\u00f0 \u00feessu er a\u00f0 sko\u00f0a s\u00f6guna, hugmyndir fyrri t\u00ed\u00f0ar manna og eldri l\u00e6kninga\u00f0afer\u00f0ir. \u00c9g er \u00feessa dagana a\u00f0 glugga \u00ed efni eftir a\u00f0ra en ge\u00f0l\u00e6kna af \u00fev\u00ed m\u00e9r \u00feykir, af minni f\u00e1t\u00e6klegu reynslu af ge\u00f0l\u00e6knum, a\u00f0 s\u00fdn ge\u00f0l\u00e6kna s\u00e9 \u00fer\u00f6ng, eiginlega m\u00e1 segja a\u00f0 v\u00edsindaleg l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0ileg s\u00fdn \u00e1 \u00feunglyndi s\u00e9 gott d\u00e6mi um a\u00f0 sj\u00e1 ekki sk\u00f3ginn fyrir trj\u00e1num. \u00c9g er satt best a\u00f0 segja eiginlega b\u00fain a\u00f0 f\u00e1 mig fullsadda af greinum um \u00feunglyndi eftir ge\u00f0l\u00e6kna. Svo \u00e9g sko\u00f0a n\u00fana efni um \u00feunglyndi eftir heimspekinga (sem gle\u00f0ur eflaust eiginmanninn mj\u00f6g) og efni tengt hugmyndas\u00f6gu og b\u00f3kmenntum. Fyrir m\u00f6rgum \u00e1rum byrja\u00f0i \u00e9g a\u00f0 lesa <i><a href=\"http:\/\/www.psyplexus.com\/burton\/\" title=\"Anatomy of Melancholy\">The Anatomy of Melancholy<\/a><\/i> (\u00fatg. 1621) eftir Robert Burton en gafst upp \u00e1 a\u00f0 lesa gotneska letri\u00f0 \u00ed \u00fatg\u00e1funni sem bau\u00f0st \u00fe\u00e1 \u00e1 Vefnum\u00a0&#8211; n\u00fa er \u00e9g b\u00fain a\u00f0 finna hana \u00e1 Vefnum me\u00f0 n\u00fdm\u00f3\u00f0ins lat\u00ednuletri og ekkert \u00fev\u00ed til fyrirst\u00f6\u00f0u a\u00f0\u00a0hra\u00f0fletta gegnum\u00a0b\u00f3kina. Og \u00e9g er ni\u00f0ursokkin \u00ed grein um\u00a0tengsl hugmynda sautj\u00e1ndu og \u00e1tj\u00e1ndu aldar manna um melank\u00f3l\u00edu vi\u00f0 hugmyndir s\u00f6mu manna um konur &#8230; s\u00e9 ekki betur en kona sem erkit\u00fdpa \u00feunglyndissj\u00faklings s\u00e9 ansi g\u00f6mul hugmynd \ud83d\ude09<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Og heilsan? Tja, lei\u00f0in vir\u00f0ist liggja upp \u00e1 vi\u00f0 ef marka m\u00e1 \u00e1rangur \u00ed sunndagskrossg\u00e1tu moggans og almennt ge\u00f0slag. En \u00e9g gl\u00edmi vi\u00f0 draugatilfinningar \u00e1 hverjum degi. Og minnistruflanirnar geta gert mig ge\u00f0veika! \u00c9g er svo helv\u00edti metna\u00f0argj\u00f6rn, sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0 o.s.fr. skilji\u00f0i\u00f0 &#8230;<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00dea\u00f0 var fyrir r\u00e9ttu \u00e1ri s\u00ed\u00f0an a\u00f0 augu m\u00edn opnu\u00f0ust; \u00c9g \u00e1tta\u00f0i mig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g myndi aldrei n\u00e1 bata me\u00f0 hef\u00f0bundnum a\u00f0fer\u00f0um ge\u00f0l\u00e6kna vi\u00f0 \u00feunglyndi. Svo merkilegt sem \u00fea\u00f0 n\u00fa er var \u00fea\u00f0 <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2013\/03\/14\/hafa-thunglyndislaekningar-villst-af-leid\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[10],"tags":[],"class_list":["post-492","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-saga_gedlaekninga"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/492","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=492"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/492\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":593,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/492\/revisions\/593"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=492"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=492"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=492"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}