{"id":497,"date":"2013-04-08T23:16:54","date_gmt":"2013-04-08T23:16:54","guid":{"rendered":"http:\/\/harpa.blogg.is\/2013-04-08\/er-islenski-skautbuninurinn-fra-normandi\/"},"modified":"2013-11-19T09:48:13","modified_gmt":"2013-11-19T09:48:13","slug":"er-islenski-skautbuninurinn-fra-normandi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2013\/04\/08\/er-islenski-skautbuninurinn-fra-normandi\/","title":{"rendered":"Er \u00edslenski skautb\u00faningurinn fr\u00e1 Normand\u00ed?"},"content":{"rendered":"<p><font size=\"-1\">Prj\u00f3nasaga getur leitt mann \u00fat um \u00f3tr\u00falegustu trissur. \u00cd dag hef \u00e9g annars vegar lesi\u00f0 heilmiki\u00f0 um aft\u00f6ku Karls I. Englandsskonungs og svo hins vegar reynt a\u00f0 gl\u00f6ggva mig \u00e1 \u00fev\u00ed af hverju \u00edslenski skautb\u00faningurinn vir\u00f0ist sni\u00f0inn eftir skautb\u00faningum \u00ed Normand\u00ed. \u00c9g vissi fyrir a\u00f0 f\u00e6st \u00ed \u00edslenskum \u00fej\u00f3\u00f0b\u00faningum er s\u00e9r-\u00edslenskt; Ekki upphluturinn, ekki v\u00edravirki\u00f0, ekki bald\u00fdringin, ekki bl\u00f3mstursaumurinn\/misl\u00f6ngu sporin, ekki pilsi\u00f0, ekki stakkurinn sem tilheyrir 19. aldar faldb\u00faningi og l\u00edklega ekki peysan \u00ed peysuf\u00f6tunum\u00a0heldur &#8230; kannski helst a\u00f0 skotth\u00fafan s\u00e9 s\u00e9r\u00edslenskt fyrirb\u00e6ri, \u00fer\u00f3u\u00f0 \u00far nor\u00f0ur-evr\u00f3pskum karlmannsh\u00fafum fyrri t\u00edma og enda\u00f0i \u00ed skelfilega \u00f3prakt\u00edsku h\u00f6fu\u00f0fati. Og \u00e9g vissi au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 vins\u00e6l \u00fatsaumsmunstur \u00e1 20. aldar faldb\u00faningi og skautb\u00faningi eru ekki \u00edslensk, eitt \u00fea\u00f0 vins\u00e6lasta skreytir t.d. flest gr\u00edsk h\u00f3telhandl\u00e6\u00f0i. En \u00e9g h\u00e9lt \u00ed alv\u00f6runni a\u00f0 Siggi s\u00e9n\u00ed hef\u00f0i hanna\u00f0 faldinn upp \u00far s\u00e9r og m\u00e6tti \u00fe\u00e1 kalla hann \u00edslenskan.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00c1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g f\u00f3r a\u00f0 athuga \u00feetta var a\u00f0 \u00ed fer\u00f0ab\u00f3k sem \u00e9g var a\u00f0 glugga \u00ed l\u00fdsir ensk fer\u00f0akona b\u00faningi \u00edslenskrar st\u00falku um 1890 svona:<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">The dress consisted of a thickly-pleated black silk skirt, very full and somewhat short, embroidered round the bottom with a deep band of gold thread; a black bodice, also similarly embroidered with gold down the front and round the collar; a handsome necklet and girdle of silver gilt, and a high head-dress of white muslin, in appearance resembling a Normandy cap. This, she told us, she always wore on Sundays and great occasions, dressing like an Englishwoman on week days.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">(Tweedy, Alec. <i><a href=\"http:\/\/www.gutenberg.org\/files\/26006\/26006-h\/26006-h.htm\">A Girl&#8217;s Ride in Iceland<\/a><\/i>. \u00d6nnur \u00fatg\u00e1fa 1894, a\u00f0gengileg \u00e1 Gutenberg.org.)<\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"10\" vspace=\"10\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/normonsk_bondakona.jpg?resize=155%2C258\" alt=\"B\u00f3ndakona \ufffd Normand\ufffd\" align=\"left\" height=\"258\" width=\"155\" \/><font size=\"-1\">Svo \u00e9g f\u00f3r a\u00f0 sko\u00f0a \u00feetta m\u00e1l, \u00fe.e.a.s. p\u00e6la \u00ed \u00fev\u00ed af hverju \u00feessi h\u00e1i h\u00f6fu\u00f0b\u00fana\u00f0ur minnti ensku konuna \u00e1 h\u00fafur \u00ed Normand\u00ed. Komst svo a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 faldur og skaut minna ekki bara \u00e1 h\u00f6fu\u00f0b\u00fana\u00f0 \u00ed Normand\u00ed heldur er \u00feetta hreint og beint k\u00f3pera\u00f0 fr\u00e1 Normand\u00ed. (Lj\u00f3smyndin er af b\u00f3ndakonu \u00ed Normand\u00ed, s\u00fa ber fald og bl\u00e6ju. \u00c9g veit ekki hven\u00e6r h\u00fan er tekin.)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Sn\u00faum okkur n\u00fa a\u00f0 upphafsmanninum: Sigur\u00f0i m\u00e1lara.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">Sigur\u00f0ur Gu\u00f0mundsson (f. 1833, d. 1874) hanna\u00f0i sem fyrr sag\u00f0i \u00edslenska skautb\u00faninginn sem fegur\u00f0ardrottningar landsins skarta \u00e1vallt \u00e1 17. j\u00fan\u00ed, okkur al\u00fe\u00fd\u00f0unni til yndis og \u00e1n\u00e6gjuauka. <\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Sigur\u00f0ur ger\u00f0i grein fyrir hugmyndum s\u00ednum um n\u00fdjan \u00edslenskan kvenb\u00faning \u00ed greininni <a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pageId=4984140\">Um kvennb\u00faninga \u00e1 \u00cdslandi a\u00f0 fornu og n\u00fdju<\/a>, sem birtist \u00ed <i>N\u00fdjum f\u00e9lagsritum<\/i> \u00e1ri\u00f0 1857. \u00deetta er kostuleg og skemmtileg grein sem \u00e9g hvet alla til a\u00f0 lesa. Sigur\u00f0i gekk \u00e6tlunarverk sitt feikilega vel, \u00fe.e. a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 r\u00e1\u00f0a \u00fev\u00ed hverju \u00edslenskar konur kl\u00e6ddust. Elsa E. Gu\u00f0j\u00f3nsson segir \u00ed b\u00e6klingnum <i><a href=\"http:\/\/www.ismennt.is\/vefir\/ari\/thod\/elsa\/kvenbun2.html\">\u00cdslenskir \u00fej\u00f3\u00f0b\u00faningar kvenna n\u00fa \u00e1 d\u00f6gum<\/a><\/i>, \u00e1rs. 1999 og a\u00f0gengilegur \u00e1 vef:<\/font><\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">F\u00e9llu breytingartill\u00f6gur \u00feessar \u00ed g\u00f3\u00f0an jar\u00f0veg; l\u00e9t Sigur\u00f0ur enda ekki sitja vi\u00f0 or\u00f0in t\u00f3m heldur hj\u00e1lpa\u00f0i konum um myndir, sni\u00f0 og munstur og sag\u00f0i fyrir um hvernig b\u00faningurinn \u00e6tti a\u00f0 vera \u00ed \u00f6llum sm\u00e1atri\u00f0um. Var fyrsti skautb\u00faningurinn kominn \u00ed notkun \u00ed Reykjav\u00edk \u00feegar s\u00ed\u00f0la \u00e1rs 1859, og hefur haldist s\u00ed\u00f0an svo til \u00f3breyttur.<\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">Hafi menn \u00e1huga \u00e1 konunum sem ger\u00f0u drauma og fantas\u00edur Sigur\u00f0ar m\u00e1lara\u00a0a\u00f0 veruleika bendi \u00e9g \u00e1<\/font><font size=\"2\">\u00a0s\u00ed\u00f0una <\/font><a href=\"http:\/\/www.skagafjordur.is\/displayer.asp?cat_id=1359\"><font size=\"2\">Hagleiksf\u00f3lk og hugsu\u00f0ir<\/font><\/a><font size=\"2\">, \u00e1 vef Bygg\u00f0asafns Skagfir\u00f0inga, en \u00fear segir fr\u00e1 Sigurlaugu Gunnarsd\u00f3ttur \u00ed \u00c1si, mikilli hannyr\u00f0akonu, sem var ein af \u00feeim konum.\u00a0<\/font>\u00a0\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd greininni \u00ed <em>N\u00fdjum f\u00e9lagsritum<\/em> fer Sigur\u00f0ur um v\u00ed\u00f0an v\u00f6ll yfir \u00edslenskar forns\u00f6gur og fornkv\u00e6\u00f0i og er ekki feiminn a\u00f0 draga v\u00ed\u00f0t\u00e6kar \u00e1lyktanir um kl\u00e6\u00f0abur\u00f0 til forna af l\u00fdsingum \u00ed \u00feeim. Svo kemur kafli \u00fear sem hann hneykslast mj\u00f6g \u00e1 kl\u00e6\u00f0na\u00f0i \u00edslenskra kvenna einmitt n\u00fa (\u00fe.e. \u00e1ri\u00f0 1856-57), segir m.a. um h\u00f6fu\u00f0b\u00fana\u00f0 \u00feeirra sem kl\u00e6\u00f0a sig upp \u00e1:<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">Fyrir hinn \u00fej\u00f3\u00f0lega fald, sem Freyja sj\u00e1lf bar, eptir \u00fev\u00ed sem hin g\u00f6mlu kv\u00e6\u00f0i vor kenna oss, h\u00f6fum v\u00e9r fengi\u00f0 hatta, sem \u00ed sni\u00f0i varla l\u00edkjast neinu, sem konur hafa bori\u00f0 fyr e\u00f0a s\u00ed\u00f0ar; \u00feeir l\u00edkjast mest hellissk\u00fata, svo a\u00f0 konur, sem bera \u00fe\u00e1, l\u00edkjast mest steinuglum, e\u00f0a kattuglum, sem hnipra sig inn \u00ed sk\u00fata til a\u00f0 for\u00f0ast dagslj\u00f3si\u00f0. (s. 37)<\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">Svo v\u00edkur Sigur\u00f0ur a\u00f0 \u00f6\u00f0rum \u00fej\u00f3\u00f0um og segir: \u201e&#8230; hvergi veit eg a\u00f0 b\u00e6ndaf\u00f3lk s\u00e9 a\u00f0 s\u00e6kjast eptir \u00fatlendum b\u00fan\u00edngum, jafnmiki\u00f0 og v\u00ed\u00f0ast \u00e1 \u00cdslandi &#8230; \u00cd flestum l\u00f6ndum l\u00e6tr b\u00e6ndaf\u00f3lk s\u00e9r n\u00e6gja a\u00f0 bera sinn eigin \u00fej\u00f3\u00f0b\u00fan\u00edng.\u201c (s. 39)<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00deegar hann sn\u00fdr s\u00e9r a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00e6skilegan fald vi\u00f0 \u00e6skilegan n\u00fdjan b\u00faning kemur \u00feetta:<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<blockquote><p><font size=\"-1\">\u00cd Nor\u00f0mand\u00ed, sem a\u00f0 m\u00f6rgu er \u00e1liti\u00f0 kjarninn \u00far Frakklandi, s\u00e9r ma\u00f0r faldinn enn \u00ed dag, og hefir hann haldizt vi\u00f0 s\u00ed\u00f0an \u00e1 d\u00f6gum G\u00f6ngu-Hr\u00f3lfs; \u00feessvegna mun \u00fea\u00f0 vera, a\u00f0 Fr\u00f6kkum, sem koma til \u00cdslands, ver\u00f0ur svo stars\u00fdnt \u00e1 faldinn, \u00fev\u00ed hann er einn hluti \u00feeirra gamla \u00fej\u00f3\u00f0b\u00fan\u00edngs. (s. 41)<\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><a href=\"http:\/\/www.mfa.org\/collections\/object\/woman-s-headdress-121067\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"10\" vspace=\"10\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/faldur_normandi.jpg?resize=100%2C179\" alt=\"Faldur fr\u00e1 Normand\ufffd\" align=\"left\" height=\"179\" width=\"100\" \/><\/a><font size=\"-1\">Eftir a\u00f0 hafa stungi\u00f0 upp \u00e1 a\u00f0 n\u00faverandi faldi (gamla spa\u00f0afaldinum) ver\u00f0i breytt, \u00fev\u00ed \u201e\u00feessi \u00feunni leggr l\u00edtr ekki vel \u00fat fr\u00e1 hli\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1, og er l\u00edkastr \u00f6ngli\u201c, sagt a\u00f0 ekki \u00e6ttu konur a\u00f0 hylja h\u00e1ri\u00f0 me\u00f0 faldinum (enda hef\u00f0u \u00fe\u00e6r Gu\u00f0r\u00fan \u00d3sv\u00edfursd\u00f3ttir og Helga hin fagra ekki gert \u00fea\u00f0) og lagt til a\u00f0 \u201egamli\u201c h\u00f6fu\u00f0d\u00fakurinn v\u00e6ri settur yfir faldinn, \u00edtrekar hann tenginguna vi\u00f0 Normand\u00ed: \u201e\u00c9g hef \u00e1\u00f0r s\u00fdnt y\u00f0r, a\u00f0 konur \u00ed Nor\u00f0mand\u00ed l\u00e1ta s\u00e9r \u00feykja s\u00f3ma a\u00f0 bera fald enn \u00ed dag, en \u00fe\u00e6r \u00feykja fr\u00ed\u00f0astar og dugmestar af frakkneskum konum.\u201c (s. 52) Myndin er af norm\u00f6nnskum faldi, \u00e1n bl\u00e6ju, \u00e1 Listasafninu \u00ed Boston. H\u00fan kr\u00e6kir \u00ed s\u00ed\u00f0u safnsins me\u00f0 st\u00e6rri mynd og uppl\u00fdsingum um faldinn.<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cdslenskar konur hl\u00fdddu \u00fev\u00ed strax a\u00f0 kl\u00e6\u00f0ast sams konar faldi og \u00fe\u00e6r fr\u00ed\u00f0ustu og dugmestu me\u00f0al franskra kvenna, konurnar \u00ed Normand\u00ed \u00e1 Frakklandi. Hefur sj\u00e1lfsagt ekki spillt ef \u00fe\u00e6r \u00edslensku hafa tr\u00faa\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feessi faldur v\u00e6ri fr\u00e1 d\u00f6gum \u00feess hrausta danska v\u00edkings G\u00f6ngu-Hr\u00f3lfs. Og \u00fe\u00e6r hafa \u00f6rugglega vilja\u00f0 allt til vinna svo \u00fe\u00e6r l\u00edktust ekki lengur steinuglum og kattuglum &#8230;<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">\u00cdslenski faldurinn og skauti\u00f0 er svona:<\/font><\/p>\n<blockquote><p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"10\" vspace=\"10\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/faldurinn_festur.jpg?resize=100%2C100\" alt=\"\u00cdslenskur faldur undir skauti\" align=\"right\" height=\"100\" width=\"100\" \/><font size=\"-1\">Faldurinn sj\u00e1lfur, sem einnig er nefndur faldh\u00fafa, er kr\u00f3klaga og fremur l\u00e1gur. Hann er sauma\u00f0ur \u00far hv\u00edtu l\u00e9refti, en tilsni\u00f0in lengja \u00far pappa e\u00f0a eir\u00feynnu (faldpappi, faldeir) h\u00f6f\u00f0 innan \u00ed honum ofanver\u00f0um. \u00de\u00e1 er hann tro\u00f0inn \u00fat me\u00f0 ull e\u00f0a \u00f6\u00f0ru vi\u00f0eigandi tr\u00f3\u00f0i og f\u00f3\u00f0ra\u00f0ur utan me\u00f0 hv\u00edtu sm\u00e1l\u00e9refti e\u00f0a atlasksilki (sat\u00edni). Yfir faldinum er bl\u00e6ja, faldbl\u00e6ja, \u00far hv\u00edtu netefni, stundum me\u00f0 hv\u00edtum \u00eddregnum saumi og\/e\u00f0a brydd samlitri bl\u00fandu, en utan um faldinn ne\u00f0anver\u00f0an er gyllt koffur \u00far silfri, hlekkja\u00f0 saman \u00far stokkum me\u00f0 mismunandi skrautverki, e\u00f0a gyllt sp\u00f6ng, oftast n\u00e6r sl\u00e9tt, \u00far silfri e\u00f0a l\u00e1tuni. Faldhn\u00fatur, breitt hv\u00edtt hn\u00fdti (slaufa) \u00far silkibor\u00f0a er undir bl\u00e6junni a\u00f0 aftan til \u00feess a\u00f0 hylja samskeytin \u00e1 bl\u00e6junni og koffrinu e\u00f0a sp\u00f6nginni.<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">(Elsa E. Gu\u00f0j\u00f3nsson. 1999. <i><a href=\"http:\/\/www.ismennt.is\/vefir\/ari\/thod\/elsa\/kvenbun2.html\">\u00cdslenskir \u00fej\u00f3\u00f0b\u00faningar kvenna n\u00fa \u00e1 d\u00f6gum<\/a><\/i>. Myndin s\u00fdnir \u00feegar veri\u00f0 er a\u00f0 festa faldinn \u00e1 h\u00f6fu\u00f0 st\u00falku.)<\/font><\/p><\/blockquote>\n<p><font size=\"-1\">\u00cd svari \u00c6su Sigurj\u00f3nsd\u00f3ttur vi\u00f0 spurningunni <a href=\"http:\/\/visindavefur.hi.is\/svar.php?id=62841\">Hver er uppruni \u00edslenska spa\u00f0afaldsins e\u00f0a skauts \u00ed \u00edslenska faldb\u00faningnum?<\/a> \u00e1 <i>V\u00edsindavefnum<\/i> 19. des. 2012 telur h\u00fan ekki \u00f3l\u00edklegt a\u00f0 Sigur\u00f0ur m\u00e1lari hafi haft <a href=\"http:\/\/www.languedoc-france.info\/06141204_libertycap.htm\">frelsish\u00fafuna fr\u00f6nsku (bonnet de la Libert\u00e9)<\/a> a\u00f0 fyrirmynd faldsins \u00ed skautb\u00faningnum. \u00deessi h\u00fafa var upphaflega hv\u00edt en s\u00ed\u00f0ar rau\u00f0, \u00ed fr\u00f6nsku stj\u00f3rnarbyltingunni. H\u00fan var raunar vins\u00e6l \u00ed \u00fdmsum stj\u00f3rnarbyltingum, t.d. h\u00f6mpu\u00f0u Amer\u00edkanar svona h\u00fafum \u00ed s\u00ednu frelsisstr\u00ed\u00f0i og k\u00f6llu\u00f0u Liberty Caps. Frelsish\u00fafurnar eru l\u00edklega \u00feekktast n\u00fatildags \u00e1 Strumpunum. R\u00f6k \u00c6su eru a\u00f0 amer\u00edsk kvenr\u00e9ttindakona sem s\u00e1 \u00edslenska skautb\u00faninginn \u00e1 kvenna\u00feingi \u00ed B\u00fadapest \u00e1ri\u00f0 1913 sag\u00f0i \u00ed bla\u00f0agrein: \u201eThe head dress is a small white satin \u201cliberty cap\u201d in a golden coronet \u2026 surrounded by a sort of bridal veil. Freedom, modesty and beauty, courage and intellect \u2013 there was a warm welcome to Iceland.\u201c<\/font><\/p>\n<p><font size=\"-1\">Sj\u00e1lfri s\u00fdnist m\u00e9r eins\u00fdnt a\u00f0 Sigur\u00f0ur m\u00e1lari Gu\u00f0mundsson hafi einfaldlega gert h\u00f6fu\u00f0b\u00fana\u00f0 kvenna \u00ed Normand\u00ed \u00e1 19. \u00f6ld a\u00f0 s\u00ednum og \u00fear me\u00f0 a\u00f0 a\u00f0alst\u00e1ssinu \u00ed flottasta \u00edslenska b\u00faningnum, h\u00e1t\u00ed\u00f0ab\u00faningnum: Skautb\u00faningnum! \u00dea\u00f0 er \u00fev\u00ed hl\u00e1legt a\u00f0 hugsa til alls \u00feess regluverks sem \u00edslenskar konur hafa sett \u00ed kringum \u00feennan b\u00faning s\u00ed\u00f0an Sigur\u00f0i datt \u00feetta \u00ed hug.<\/font><br \/>\n\u00a0<\/p>\n<p><font size=\"-1\">Hva\u00f0 \u00e6tli konum \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0b\u00faningar\u00e1\u00f0inu \u00ed Normand\u00ed finnist um \u00edslenska skautb\u00faninginn?<\/font><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" hspace=\"5\" vspace=\"10\" border=\"1\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/islenskur_og_normandi.jpg?resize=540%2C426\" alt=\"\u00cdslenskur skautb\u00faningur og skautb\u00faningur \ufffd Normand\ufffd\" height=\"426\" width=\"540\" \/><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0<\/font><br \/>\n<font size=\"-1\">\u00a0<\/font><br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<br \/>\n\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Prj\u00f3nasaga getur leitt mann \u00fat um \u00f3tr\u00falegustu trissur. \u00cd dag hef \u00e9g annars vegar lesi\u00f0 heilmiki\u00f0 um aft\u00f6ku Karls I. Englandsskonungs og svo hins vegar reynt a\u00f0 gl\u00f6ggva mig \u00e1 \u00fev\u00ed af hverju \u00edslenski skautb\u00faningurinn <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2013\/04\/08\/er-islenski-skautbuninurinn-fra-normandi\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[12],"tags":[],"class_list":["post-497","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-handavinna"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/497","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=497"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/497\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":588,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/497\/revisions\/588"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=497"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=497"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=497"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}