{"id":567,"date":"2013-11-11T22:14:34","date_gmt":"2013-11-11T22:14:34","guid":{"rendered":"http:\/\/www.harpahreins.com\/afrit_blogg\/?p=531"},"modified":"2013-11-19T09:28:40","modified_gmt":"2013-11-19T09:28:40","slug":"dr-svanur-og-hinir-vantruarfelagarnir","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2013\/11\/11\/dr-svanur-og-hinir-vantruarfelagarnir\/","title":{"rendered":"Dr. Svanur og hinir vantr\u00faarf\u00e9lagarnir"},"content":{"rendered":"<p>\u00c9g horf\u00f0i \u00e1 Svan Sigurbj\u00f6rnsson l\u00e6kni \u00ed sj\u00f3nvarpsfr\u00e9ttum um daginn, m\u00e9r til \u00e1n\u00e6gju \u00fev\u00ed \u00feetta er mesti myndarma\u00f0ur, og sko\u00f0a\u00f0i svo gl\u00e6rurnar hans (kr\u00e6kt er \u00ed \u00fe\u00e6r ne\u00f0st \u00ed \u00feessum stutta pistli <a href=\"http:\/\/skodun.is\/2013\/11\/07\/af-hjalaekningum-og-kukli\/\" title=\"Svanur Sigurbj\u00f6rnsson um kukl\">h\u00e9r<\/a>, \u00e1 <em>skodun.is<\/em>) sem fylgdu fyrirlestrinum hans \u00e1 Fr\u00e6\u00f0ad\u00f6gum heilsug\u00e6slunnar. Vennmyndirnar \u00e1 gl\u00e6runum eru flottar. \u00de\u00f3tt \u00e9g s\u00e9 afar \u00f3samm\u00e1la m\u00e1lflutningi Svans nennti \u00e9g ekki a\u00f0 m\u00f3tm\u00e6la honum &#8230; ekki fyrr en n\u00fana \u00feegar \u00e9g s\u00e1 a\u00f0 f\u00e9lagar hans \u00ed Vantr\u00fa hnykkja \u00e1 m\u00e1lflutningnum (sj\u00e1 pistilinn <a href=\"http:\/\/www.vantru.is\/2013\/11\/11\/09.00\/\" title=\"Vantr\u00fa um kukl\">Kuklfrelsi<\/a> \u00e1 vef Vantr\u00faar). \u00dea\u00f0 er langt s\u00ed\u00f0an \u00e9g hef bloggast \u00e1 vi\u00f0 vantr\u00faarf\u00e9laga og m\u00e9r finnst soldi\u00f0 lj\u00f3tt a\u00f0 afr\u00e6kja \u00fe\u00e1 \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er eiginlega enginn sem nennir a\u00f0 svara \u00feeim n\u00faor\u00f0i\u00f0. \u00c9g b\u00e6ti \u00far \u00feessu n\u00fana.<\/p>\n<p>\u00cd m\u00e1lflutningi Svans gegn kukli eru nokkrar au\u00f0sj\u00e1anlegar gloppur. Helstar eru\u00a0\u00feessar:<\/p>\n<p><strong>*<\/strong> <strong>Hann vir\u00f0ist gera r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 f\u00f3lk s\u00e9 almennt f\u00edfl\/\u00f3vitar sem ver\u00f0i a\u00f0 hafa vit fyrir svo \u00fea\u00f0 fari s\u00e9r ekki a\u00f0 vo\u00f0a<\/strong>. M\u00edn reynsla af f\u00f3lki er a\u00f0 flest er \u00fea\u00f0 skynsamt. \u00c9g held a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 hi\u00f0 besta m\u00e1l a\u00f0 gera f\u00f3lki betur kleift a\u00f0 n\u00e1lgast uppl\u00fdsingar um \u00f3hef\u00f0bundnar l\u00e6kningar (kukl og hj\u00e1l\u00e6kningar, sem Svanur k\u00fds a\u00f0 kalla \u00fe\u00e6r), \u00fe\u00e1 eru meiri l\u00edkur \u00e1 a\u00f0 menn geti teki\u00f0 uppl\u00fdsta \u00e1kv\u00f6r\u00f0un um m\u00f6gulega gagnsemi sl\u00edkra l\u00e6kninga vi\u00f0 s\u00ednum kvillum. Forsendan fyrir frj\u00e1lsum vilja er \u00feekking og \u00e9g er viss um a\u00f0 vi\u00f0 Svanur erum hjartanlega samm\u00e1la um a\u00f0 frj\u00e1ls vilji er eftirs\u00f3knarver\u00f0ur. (Vi\u00f0 erum hins vegar l\u00edklega ekki samm\u00e1la um hven\u00e6r hann eigi vi\u00f0, t.d. er \u00e9g ekki samm\u00e1la \u00fev\u00ed a\u00f0 leik- og grunnsk\u00f3lahald \u00e1 a\u00f0ventunni eigi algerlega a\u00f0 l\u00fata vilja \u00feeirra \u00f6rf\u00e1u sem er \u00ed n\u00f6p vi\u00f0 j\u00f3laundirb\u00faning kristinna manna og Svanur vir\u00f0ist ekki samm\u00e1la \u00fev\u00ed a\u00f0 veikt f\u00f3lk f\u00e1i a\u00f0 velja s\u00e9r l\u00e6kningara\u00f0fer\u00f0ir.)<\/p>\n<p><strong>*<\/strong> Svanur (og hinir vantr\u00faarf\u00e9lagarnir) ganga \u00fat fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 <strong>sk\u00f6rp skil s\u00e9u milli v\u00edsinda og ekki-v\u00edsinda<\/strong>, <strong>\u00fear sem l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0i s\u00e9u v\u00edsindi<\/strong>. Ritstj\u00f3rn Vantr\u00faarvefjarins segist gera \u00fe\u00e1 einu kr\u00f6fu a\u00f0 <strong>v\u00edsindaleg vinnubr\u00f6g\u00f0<\/strong> r\u00e1\u00f0i f\u00f6r \u00feegar komi a\u00f0 heilsu f\u00f3lks. N\u00fa er margt \u00ed l\u00e6kningum sem \u00f3m\u00f6gulega er h\u00e6gt a\u00f0 kalla v\u00edsindi \u00ed \u00feeim skilningi a\u00f0 \u00fear hafi v\u00edsindalegar a\u00f0fer\u00f0ir geta\u00f0 greint orsakir og e\u00f0li krankleika e\u00f0a a\u00f0 l\u00e6knisme\u00f0fer\u00f0 byggi \u00e1 einhverju sem er v\u00edsindalega sanna\u00f0.<\/p>\n<p>Svo \u00e9g taki d\u00e6mi af \u00feeirri l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0i sem \u00e9g hef helst einhverja inns\u00fdn \u00ed, \u00feunglyndisl\u00e6kningum (sem eru hluti ge\u00f0l\u00e6kninga) \u00fe\u00e1\u00a0hefur ekki veri\u00f0 s\u00fdnt fram \u00e1\u00a0orsakir \u00feunglyndis (\u00fe\u00f3tt settar hafi veri\u00f0 fram \u00fdmsar \u00f3l\u00edkar tilg\u00e1tur \u00fat \u00ed bl\u00e1inn \u00f6ldum saman &#8211; tuttugasta- og tuttugastaogfyrsta\u00f6ldin \u00fear ekki undanskildar), v\u00edsindaleg r\u00f6k fyrir samsetningu \u00feunglyndislyfja eru engin (\u00fe\u00f3tt settar hafi veri\u00f0 fram tilg\u00e1tur en s\u00ed\u00f0an bakka\u00f0 me\u00f0 \u00fe\u00e6r) og virkni \u00feunglyndislyfja umfram virkni lyfleysu m\u00e6list ekki svo markt\u00e6kt s\u00e9\u00a0nema \u00ed \u00f6rf\u00e1mennum h\u00f3pi allra veikustu sj\u00faklinganna.\u00a0 R\u00f6kin fyrir lyfjagj\u00f6f (oft mismunandi bl\u00f6ndu\u00f0um lyfjakokteilum) handa \u00feunglyndissj\u00faklingum eru kl\u00edn\u00edsk reynsla vi\u00f0komandi l\u00e6knis (m\u00f6gulega st\u00e9ttarinnar \u00ed heild ef menn eru duglegir a\u00f0 bakka hver annan upp). A\u00f0alr\u00f6k \u00feeirra sem stunda \u00f3hef\u00f0bundnar l\u00e6kningar eru einmitt a\u00f0 reynslan s\u00fdni a\u00f0 \u00fe\u00e6r virki. \u00de\u00e1 vaknar au\u00f0vita\u00f0 spurningin, \u00ed lj\u00f3si m\u00e1lflutnings Svans og f\u00e9laga, hvort reynsla ge\u00f0l\u00e6kna hafi miklu meira v\u00e6gi en reynsla annarra \u00feeirra sem br\u00faka a\u00f0fer\u00f0ir sem ekki geta kallast v\u00edsindalegar.<\/p>\n<p>N\u00e6sti kostur sem ge\u00f0l\u00e6knar bj\u00f3\u00f0a \u00feunglyndum upp \u00e1 \u00feegar lj\u00f3st er a\u00f0 lyfin virka ekki h\u00e6tis h\u00f3t eru endurtekin raflost. \u00dea\u00f0 er n\u00e1kv\u00e6mlega ekkert vita\u00f0 hva\u00f0 endurtekin raflost gera vi\u00f0 heilann; a\u00f0fer\u00f0in var fundin upp vi\u00f0 allt \u00f6\u00f0rum ge\u00f0sj\u00fakd\u00f3mi (ge\u00f0klofa) en \u00feykir virka illa \u00e1 hann; af reynslu veit \u00e9g a\u00f0 sj\u00faklingum er ekki gefinn kostur \u00e1 uppl\u00fdstu sam\u00feykki fyrir \u00feessari a\u00f0fer\u00f0 heldur einungis sam\u00feykki \u00e1 grundvelli afar takmarka\u00f0ra og fegra\u00f0ra uppl\u00fdsinga. Skelfilegum aflei\u00f0ingum sem \u00feessi hrossal\u00e6kning (til a\u00f0 g\u00e6ta sannm\u00e6lis tek \u00e9g fram a\u00f0 h\u00fan var samt upphaflega pr\u00f3fu\u00f0 \u00e1 sv\u00ednum en ekki hrossum) getur haft er ekki haldi\u00f0 \u00e1 lofti \u00ed heilbrig\u00f0iskerfinu.<\/p>\n<p><strong>*<\/strong> <strong>Svanur vir\u00f0ist gera r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 s\u00fa \u00feekking sem er vi\u00f0urkennd \u00ed l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0i \u00ed dag s\u00e9 hin eina r\u00e9tta v\u00edsindalega \u00feekking \u00e1 l\u00e6kningum<\/strong>. Hann vir\u00f0ist ekki gera s\u00e9r grein fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 hluti v\u00edsindalegra \u00feekkingar \u00ed l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0i n\u00fat\u00edmans g\u00e6ti \u00feess vegna veri\u00f0 \u00e1litin b\u00f6lva\u00f0ar b\u00e1biljur \u00ed framt\u00ed\u00f0inni.\u00a0Anna\u00f0 eins hefur n\u00fa gerst \u00ed s\u00f6gu l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0inngar. \u00c9g minni t.d. \u00e1 \u00fe\u00e1 tvo sem hafa fengi\u00f0 N\u00f3belsver\u00f0laun fyrir merkilegar uppg\u00f6tvanir \u00ed ge\u00f0l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0um:<\/p>\n<p>Walter-Jauregg\u00a0f\u00e9kk s\u00edn ver\u00f0laun 1927\u00a0fyrir \u00fe\u00e1 merkilegu uppg\u00f6tvun a\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 smita s\u00fdfilisge\u00f0veika me\u00f0 malar\u00edu og l\u00e1ta \u00fe\u00e1 f\u00e1 duglega hitatoppa \u00ed nokkurn t\u00edma\u00a0g\u00e6ti\u00a0laga\u00f0 ge\u00f0veikina t\u00edmabundi\u00f0 (a\u00f0 \u00fev\u00ed tilskildu au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 sj\u00faklingurinn dr\u00e6pist ekki \u00far malar\u00edunni). \u00c1 \u00cdslandi br\u00faku\u00f0u menn var\u00edant af \u00feessu, brennisteinsol\u00edu sem var sprauta\u00f0 \u00ed\u00a0v\u00f6\u00f0va \u00ed sama skyni, \u00fe.e. til a\u00f0 l\u00e1ta sj\u00faklinginn fr\u00e1 h\u00e1an hita, og \u00e1\u00a0sj\u00f6tta \u00e1ratugnum (\u00feegar s\u00fdfilisge\u00f0veiki haf\u00f0i veri\u00f0 \u00fatr\u00fdmt me\u00f0 pensill\u00edni) voru lei\u00f0inlega ge\u00f0veikir sj\u00faklingar \u00e1 Kleppi enn sprauta\u00f0ir me\u00f0 eigin bl\u00f3\u00f0i \u00ed v\u00f6\u00f0va til a\u00f0 framkalla s\u00f3tthita &#8230; \u00ed l\u00e6kningarskyni. Heimildir um l\u00e6kningam\u00e1tt a\u00f0fer\u00f0anna eru hins vegar sjaldg\u00e6far.<\/p>\n<p>Hinn sem f\u00e9kk N\u00f3belsver\u00f0laun, \u00e1ri\u00f0 1949,\u00a0fyrir \u00f3metanlegt framlag sitt til ge\u00f0l\u00e6kninga var Egan Moniz, sem fann upp \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 hr\u00e6ra tilviljanakennt \u00ed hvelatengslum \u00ed heilum ge\u00f0veikra og sta\u00f0h\u00e6f\u00f0i a\u00f0 \u00feeim batna\u00f0i vi\u00f0 \u00fea\u00f0. S\u00fa a\u00f0fer\u00f0, l\u00f3b\u00f3t\u00f3m\u00edan, f\u00f3r sigurf\u00f6r um heiminn og h\u00e9r \u00e1 \u00cdslandi ur\u00f0u har\u00f0v\u00edtugar bla\u00f0adeilur um mi\u00f0ja s\u00ed\u00f0ustu \u00f6ld milli v\u00edsindalega \u00feenkjandi l\u00e6kna og yfirl\u00e6knisins \u00e1 Kleppi sem ekki vildi hr\u00e6ra \u00ed heilum sinna sj\u00faklinga og var \u00fe.a.l. \u00e1saka\u00f0ur (af kollegunum) um a\u00f0 fylgjast ekki me\u00f0 og vilja ekki nota v\u00edsindalegar a\u00f0fer\u00f0ir. \u00cd lj\u00f3si s\u00f6gunnar finnast m\u00e9r \u00fev\u00ed yfirl\u00fdsingar Svans um v\u00edsindi n\u00fat\u00edma l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0i vera helsti hrokafullar.<\/p>\n<p><strong>*<\/strong> <strong>Svanur tekur \u00f6fgafullt d\u00e6mi til a\u00f0 sanna a\u00f0 kukl geti veri\u00f0 l\u00edfsh\u00e6ttulegt<\/strong>, nefnilega \u00e1kv\u00f6r\u00f0un Steve Jobs um a\u00f0 leita s\u00e9r \u00f3hef\u00f0bundinna l\u00e6kninga vi\u00f0 s\u00ednu krabbameini. A\u00f0 taka s\u00e9rvitringinn Steve Jobs sem d\u00e6mi um h\u00e6ttu kuklisins er svona \u00e1l\u00edka og a\u00f0 taka Thalidomide sem d\u00e6mi um \u00fe\u00e6r skelfilegur h\u00e6ttur sem kunna a\u00f0 stafa af lyfl\u00e6kningum almennt\u00a0&#8230; Og \u00e9g vona a\u00f0 Svani s\u00e9 kunnugt um \u00fe\u00e1 sta\u00f0reynd a\u00f0 f\u00f3lk deyr stundum \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 \u00fea\u00f0 skipti vi\u00f0 l\u00e6kna, jafnvel inniliggjandi \u00e1 sp\u00edt\u00f6lum.<\/p>\n<p>N\u00fa er \u00e9g ekki s\u00e9rlega h\u00f6ll undir kukl, til \u00feess er \u00e9g of vantr\u00fau\u00f0 \u00e1 a\u00f0 margt af \u00fev\u00ed virki. En \u00e9g er heldur ekki h\u00f6ll undir allar (meintar) v\u00edsindalegar l\u00e6kningar af \u00fev\u00ed \u00e9g veit a\u00f0 sumar eru ekki endilega til b\u00f3ta og geta veri\u00f0 til mikils ska\u00f0a. Samt veit \u00e9g um m\u00f6rg d\u00e6mi \u00feess a\u00f0 \u00f3hef\u00f0bundnar l\u00e6kningar hafi hj\u00e1lpa\u00f0 sj\u00faklingum og einnig um m\u00f6rg d\u00e6mi \u00feess a\u00f0 hef\u00f0bundnar l\u00e6kningar hafi hj\u00e1lpa\u00f0 sj\u00faklingum. \u00c9g fagna samt\u00f6kum \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 Heilsufrelsi, ekki af \u00fev\u00ed \u00e9g s\u00e9 samm\u00e1la \u00f6llu \u00ed \u00feeirra m\u00e1lflutningi heldur vegna \u00feess a\u00f0 \u00e9g geri \u00fe\u00e1 kr\u00f6fu a\u00f0 f\u00f3lk geti n\u00e1lgast uppl\u00fdsingar, afla\u00f0 s\u00e9r \u00feekkingar og haft frelsi til a\u00f0 taka \u00e1kvar\u00f0anir sem snerta \u00feess heilsu. S\u00edst af \u00f6llu vil \u00e9g a\u00f0 strangtr\u00faarmenn \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 Svan taki a\u00f0 s\u00e9r sk\u00f6mmtun \u00e1 uppl\u00fdsingum um heilsutengd m\u00e1lefni.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g horf\u00f0i \u00e1 Svan Sigurbj\u00f6rnsson l\u00e6kni \u00ed sj\u00f3nvarpsfr\u00e9ttum um daginn, m\u00e9r til \u00e1n\u00e6gju \u00fev\u00ed \u00feetta er mesti myndarma\u00f0ur, og sko\u00f0a\u00f0i svo gl\u00e6rurnar hans (kr\u00e6kt er \u00ed \u00fe\u00e6r ne\u00f0st \u00ed \u00feessum stutta pistli h\u00e9r, \u00e1 skodun.is) <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2013\/11\/11\/dr-svanur-og-hinir-vantruarfelagarnir\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[18],"tags":[],"class_list":["post-567","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-oflokka"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/567","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=567"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/567\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":570,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/567\/revisions\/570"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=567"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=567"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=567"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}