{"id":808,"date":"2014-01-27T17:51:27","date_gmt":"2014-01-27T17:51:27","guid":{"rendered":"http:\/\/www.harpahreins.com\/blogg\/?p=808"},"modified":"2014-01-27T17:59:39","modified_gmt":"2014-01-27T17:59:39","slug":"modursjukir-islendingar-einkum-reykvikingar-nutimans","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2014\/01\/27\/modursjukir-islendingar-einkum-reykvikingar-nutimans\/","title":{"rendered":"M\u00f3\u00f0ursj\u00fakir \u00cdslendingar, einkum Reykv\u00edkingar, n\u00fat\u00edmans"},"content":{"rendered":"<div id=\"attachment_797\" style=\"width: 696px\" class=\"wp-caption alignnone\"><a href=\"https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2014\/01\/kona_med_verk.jpg?ssl=1\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" aria-describedby=\"caption-attachment-797\" class=\"size-full wp-image-797\" alt=\"Kona me\u00f0 verk\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2014\/01\/kona_med_verk.jpg?resize=540%2C342&#038;ssl=1\" width=\"540\" height=\"342\" srcset=\"https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2014\/01\/kona_med_verk.jpg?w=686&amp;ssl=1 686w, https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2014\/01\/kona_med_verk.jpg?resize=300%2C190&amp;ssl=1 300w\" sizes=\"auto, (max-width: 540px) 100vw, 540px\" \/><\/a><p id=\"caption-attachment-797\" class=\"wp-caption-text\">Kona me\u00f0 verk<\/p><\/div>\n<p>\u00dea\u00f0 kann a\u00f0 koma einhverjum \u00e1 \u00f3vart en sta\u00f0reyndin er s\u00fa a\u00f0 rusl-sj\u00fakd\u00f3ms-greiningarhugtaki\u00f0 gamla, hyster\u00eda (m\u00f3\u00f0urs\u00fdki), \u00e1samt karlkyns\u00fatg\u00e1fu \u00feess, h\u00fdp\u00f3kondr\u00edu (\u201emiltisveike e\u00f0a vaniflas\u00f3tt (Hypochondria, Miltsyge), hj\u00e1 karlm\u00f8nnumm, e\u00f0r m\u00f3\u00f0ursyke hi\u00e1 kvennf\u00f3lki, [&#8230;] eru n\u00e6rstums\u00f8mu veikleikar\u201c, skrifa\u00f0i Sveinn P\u00e1lsson landl\u00e6knir \u00e1ri\u00f0 1794)\u00a0<strong>er n\u00e6stalgengasta ge\u00f0r\u00f6skun Reykv\u00edkinga og n\u00e6rsveitamanna n\u00fa \u00e1 d\u00f6gum<\/strong>! Sj\u00fakd\u00f3murinn hefur hins vegar fengi\u00f0 n\u00fdtt nafn og fj\u00f6lda undirflokkaheita.<\/p>\n<p>\u00c9g hef undanfari\u00f0 skrifa\u00f0 nokkra pistla um v\u00edsindalegar ranns\u00f3knir dr. Jean-Martin Charcot \u00e1 hyster\u00edu (m\u00f3\u00f0urs\u00fdki) fyrir um 130-140 \u00e1rum. \u00cd sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 halda \u00e1fram skrifum \u00ed t\u00edmar\u00f6\u00f0, fjalla um nafnbreytingar sj\u00fakd\u00f3msins \u00ed t\u00edmans r\u00e1s, hvernig Freud t\u00f3k hyster\u00eduna upp \u00e1 arma s\u00edna o.s.fr. ver\u00f0ur stokki\u00f0 til n\u00fat\u00edmans og hyster\u00edu\u00e1standi\u00f0 \u00e1 okkar g\u00f3\u00f0a \u00cdslandi meti\u00f0.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<h3>Hva\u00f0 var\u00f0 um hyster\u00eduna (m\u00f3\u00f0ur\u00fdkina) sem hrj\u00e1\u00f0i konur svo mj\u00f6g \u00e1 n\u00edtj\u00e1ndu \u00f6ld a\u00f0 fr\u00e6gt var\u00f0 um allan hinn vestr\u00e6na heim?<\/h3>\n<p>Sum einkennin, s.s. mikil \u00fereyta og eymsli sem ekki finnst l\u00edffr\u00e6\u00f0ileg sk\u00fdring \u00e1 var felld undir \u00fea\u00f0 sem n\u00fa kallast vefjagigt. Stutt er s\u00ed\u00f0an s\u00e1 sj\u00fakd\u00f3mur var yfirleitt vi\u00f0urkenndur af l\u00e6knum. Ors\u00f6k hans er ekki \u00feekkt og engin s\u00e9rst\u00f6k l\u00e6kning, \u00fe.e.a.s. sj\u00faklingar ver\u00f0a a\u00f0 pr\u00f3fa sig \u00e1fram me\u00f0 \u00fdmis lyf og l\u00e6knisr\u00e1\u00f0 sem eru \u00ed mismunandi m\u00e6li sam\u00feykkt af l\u00e6knum. Sum m\u00f3\u00f0urs\u00fdkin gamla er n\u00fa hluti af skjaldkirtilssj\u00fakd\u00f3mum, sj\u00e1lfsofn\u00e6missj\u00fakd\u00f3mum, taugasj\u00fakd\u00f3mum og \u00fdmsu fleiru.<\/p>\n<p>M\u00f6rg skapger\u00f0areinkenni g\u00f6mlu m\u00f3\u00f0urs\u00fdkinnar, t.d. duttlungar, miklar skapsveiflur, \u00f3e\u00f0lilegur uggur\/\u00f3tti\/ kv\u00ed\u00f0i og fleira hafa n\u00fa fengi\u00f0 inni \u00ed \u00feunglyndis- og kv\u00ed\u00f0agreiningum \u00fdmiss konar, jar\u00f0arpers\u00f3nuleikar\u00f6skun e\u00f0a \u00f6\u00f0rum algengum greiningum ge\u00f0l\u00e6kna n\u00fat\u00edmans.<\/p>\n<p>\u201eL\u00edkamleg\u201f einkenni m\u00f3\u00f0urs\u00fdkinnar sem enn voru afgangs voru sett \u00ed ge\u00f0r\u00f6skunarflokkinn\u00a0<strong>L\u00edk\u00f6mnunarraskanir<\/strong>. \u00dea\u00f0 fl\u00e6kir m\u00e1lin d\u00e1l\u00edti\u00f0 a\u00f0 l\u00edk\u00f6mnunarr\u00f6skunum er ekki eins ra\u00f0a\u00f0 \u00ed DSM-IV, greiningarlykli Amer\u00edsku ge\u00f0l\u00e6knasamtakanna, og ICD-10, greiningarlyklinum sem evr\u00f3pskir l\u00e6knar nota. \u00cdslenskir ge\u00f0l\u00e6knar sty\u00f0jast oft vi\u00f0 DSM-IV (n\u00fa v\u00e6ntanlega DSM 5 sem fj\u00f6lga mun tilfellum verulega ef marka m\u00e1 umr\u00e6\u00f0u um Somatic symptom and related disorders eins og ge\u00f0r\u00f6skunarflokkurinn heitir \u00fear) \u00fe\u00f3tt \u00ed vottor\u00f0um og \u00f6\u00f0rum opinberum pl\u00f6ggum s\u00e9 \u00feeim skylt a\u00f0 nota ICD-10. H\u00e9r ver\u00f0ur reynt a\u00f0 taka tillit til \u00feessa \u00f3samr\u00e6mis \u00feegar umfj\u00f6llun \u00edslenskra ge\u00f0l\u00e6kna, taugal\u00e6kna og s\u00e1lfr\u00e6\u00f0inga er rakin.<\/p>\n<div id=\"attachment_796\" style=\"width: 362px\" class=\"wp-caption alignnone\"><a href=\"https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2014\/01\/kona_nutima_hysteria.jpg?ssl=1\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" aria-describedby=\"caption-attachment-796\" class=\"size-full wp-image-796\" alt=\"M\u00f3\u00f0ursj\u00fak kona\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2014\/01\/kona_nutima_hysteria.jpg?resize=352%2C412&#038;ssl=1\" width=\"352\" height=\"412\" srcset=\"https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2014\/01\/kona_nutima_hysteria.jpg?w=352&amp;ssl=1 352w, https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2014\/01\/kona_nutima_hysteria.jpg?resize=256%2C300&amp;ssl=1 256w\" sizes=\"auto, (max-width: 352px) 100vw, 352px\" \/><\/a><p id=\"caption-attachment-796\" class=\"wp-caption-text\">Hva\u00f0 \u00e1 a\u00f0 kalla m\u00f3\u00f0ursj\u00faka konu?<\/p><\/div>\n<div><\/div>\n<h3>1992: Hva\u00f0 \u00e1 a\u00f0 kalla m\u00f3\u00f0urs\u00fdki \u00edslenskra kvenna?<\/h3>\n<p>Or\u00f0r\u00e6\u00f0a l\u00e6kna getur stundum brug\u00f0i\u00f0 lj\u00f3si yfir vi\u00f0horf \u00feeirra til sj\u00fakd\u00f3ma og sj\u00faklinga. \u00c1ri\u00f0 1992 voru einhverjir \u00edslenskir l\u00e6knar a\u00f0 velta fyrir s\u00e9r hva\u00f0 v\u00e6ri h\u00e6gt a\u00f0 kalla m\u00f3\u00f0urs\u00fdki anna\u00f0 en m\u00f3\u00f0urs\u00fdki, \u00ed lj\u00f3si n\u00fdjustu fr\u00e6\u00f0ilegrar umr\u00e6\u00f0u erlendis. \u00deetta er raki\u00f0 \u00ed\u00a0<a title=\"Hva\u00f0 \u00e1 a\u00f0 kalla m\u00f3\u00f0urs\u00fdki?\" href=\"http:\/\/www.laeknabladid.is\/2001\/fylgirit\/14\/idordapistlar\/nr\/599\">\u00cd\u00f0or\u00f0apistli nr. 028 Hysteria<\/a>, sem birtist \u00ed\u00a0<em>L\u00e6knabla\u00f0inu<\/em>\u00a01992 (h\u00e9r er kr\u00e6kt \u00ed endur\u00fatg\u00e1fu hans \u00ed fylgiriti me\u00f0\u00a0<em>L\u00e6knabla\u00f0inu<\/em>\u00a02001). Segir \u00fear m.a.:<\/p>\n<p style=\"padding-left: 30px;\">N\u00fdlega var haldinn fr\u00e6\u00f0slufundur \u00e1 Landsp\u00edtala \u00fear sem sagt var fr\u00e1 \u00fev\u00ed sj\u00fakd\u00f3msfyrirb\u00e6ri sem \u00e1\u00f0ur var kalla\u00f0 hysteria en hefur n\u00fa fengi\u00f0 fr\u00e6\u00f0iheiti\u00f0 somatization disorder. \u00cd \u00fatsendu fundarbo\u00f0i var \u00feetta nefnt sj\u00fakd\u00f3mas\u00f3tt (\u00f3sk\u00fdr\u00f0ar l\u00edkamlegar kvartanir).<br \/>\n[- &#8211; -]<\/p>\n<p style=\"padding-left: 30px;\">Fyrrgreindur fyrirlesari var svo vinsamlegur a\u00f0 l\u00e1na undirritu\u00f0um sumt af fundarefni s\u00ednu. Fram kemur a\u00f0 fyrirb\u00e6rinu er \u00feannig l\u00fdst a\u00f0 sj\u00faklingarnir s\u00e9u eing\u00f6ngu konur og a\u00f0 sj\u00fakd\u00f3msferillinn hefjist fyrir \u00fer\u00edtugt me\u00f0 margv\u00edslegum l\u00edkamlegum einkennum. Einkennin eru \u00fea\u00f0 mikil e\u00f0a alvarleg, a\u00f0 \u00e1hrifanna g\u00e6tir \u00ed daglegu l\u00edfi \u00feeirra og heg\u00f0un, og fyrr e\u00f0a s\u00ed\u00f0ar leita \u00fe\u00e6r s\u00e9r me\u00f0fer\u00f0ar. L\u00edkamleg sk\u00fdring finnst ekki \u00fer\u00e1tt fyrir n\u00e1kv\u00e6ma sko\u00f0un og ranns\u00f3knir. Einkennin halda \u00e1fram og n\u00fd b\u00e6tast vi\u00f0 \u00fer\u00e1tt fyrir \u00fdmis konar me\u00f0fer\u00f0. \u00cd flestum tilfellum lei\u00f0a kvartanir sj\u00faklinganna fyrr e\u00f0a s\u00ed\u00f0ar til \u00fdmis konar inngripsranns\u00f3kna og a\u00f0ger\u00f0a, sem ekki gera \u00feeim neitt gagn hva\u00f0 var\u00f0ar linun einkenna og \u00fej\u00e1ninga. Hins vegar spilla \u00fe\u00e6r i\u00f0ulega l\u00edkama kvennanna og gefa tilefni til fylgikvilla og n\u00fdrra einkenna. Ranns\u00f3knir vir\u00f0ast hafa leitt \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 einkenni \u00feeirra s\u00e9u ekki fleiri e\u00f0a alvarlegri en annarra, en a\u00f0 mat \u00e1 eigin l\u00edkams\u00e1standi og heilsufari s\u00e9 brengla\u00f0 \u00feannig a\u00f0 \u00f6ll l\u00edkamleg einkenni s\u00e9u oft\u00falku\u00f0.<\/p>\n<p style=\"padding-left: 30px;\">[- &#8211; -]<br \/>\nFyrirlesari lag\u00f0i me\u00f0al annars til a\u00f0 \u00fe\u00e6r konur, sem fengi\u00f0 hafa ofangreinda sj\u00fakd\u00f3msgreiningu svo \u00f3yggjandi s\u00e9, f\u00e1i a\u00f0 vita hva\u00f0 \u00e1 sey\u00f0i er. \u00cd \u00fev\u00ed felst vafal\u00edti\u00f0 a\u00f0 \u00feeim skuli gefin fulln\u00e6gjandi l\u00fdsing \u00e1 fyrirb\u00e6rinu og tj\u00e1\u00f0 heiti \u00feess. Heiti\u00f0 ver\u00f0ur \u00fev\u00ed b\u00e6\u00f0i a\u00f0 vera l\u00fdsandi og lipurt. \u00dea\u00f0 \u00fearf a\u00f0 vera s\u00e6milega n\u00e1kv\u00e6mt sem fr\u00e6\u00f0iheiti og m\u00e1 ekki vera s\u00e6randi e\u00f0a mei\u00f0andi fyrir \u00fe\u00e1 sj\u00faklinga sem \u00fej\u00e1st af kvillanum.<br \/>\n[- &#8211; -]<br \/>\n[&#8230;] til br\u00e1\u00f0abirg\u00f0a er kasta\u00f0 fram tveimur till\u00f6gum: einkennas\u00fdki e\u00f0a kvillaveiki.<\/p>\n<p>Sem v\u00edsindalegri \u00feekkingu \u00ed ge\u00f0l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0um vatt hratt fram n\u00e6sta \u00e1ratuginn var\u00f0 greiningin n\u00e1kv\u00e6mari og heitin \u00e1 flokkunum fleiri. En kjarninn er samt sem \u00e1\u00f0ur a\u00f0 \u00fdmsir \u00feeir kvillar sem l\u00e6knar geta ekki greint l\u00edffr\u00e6\u00f0ilega ors\u00f6k fyrir og ekki svo au\u00f0veldlega hent inn \u00ed \u00fdmsar \u00fe\u00e6r ge\u00f0greiningar sem taldar voru h\u00e9r a\u00f0 ofan e\u00f0a \u00ed vefjagigtarkistuna eru n\u00fa kalla\u00f0ir einu nafni\u00a0<strong>l\u00edk\u00f6mnunarraskanir<\/strong>\u00a0e\u00f0a\u00a0<strong>l\u00edkamsgervingarheilkenn<\/strong>i (\u00feessi s\u00e9rstaklega kau\u00f0slegu og \u00f3agns\u00e6ju n\u00fdyr\u00f0i eru hvort tveggja notu\u00f0 n\u00fa sem \u00fe\u00fd\u00f0ing \u00e1 somatization disorder).<br \/>\nSkilgreiningin \u00ed ICD-10, \u00feeim greiningarsta\u00f0li sem \u00edslenskir l\u00e6knar eiga a\u00f0 sty\u00f0jast vi\u00f0, er nokkurn veginn svona:<\/p>\n<p style=\"padding-left: 30px;\"><strong>F 45<\/strong><br \/>\n<strong>L\u00edk\u00f6mnunarraskanir<\/strong><br \/>\nA\u00f0aleinkennin eru endurteknar kvartanir um l\u00edkamleg einkenni \u00e1samt endurteknum bei\u00f0num um l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0ilegar ranns\u00f3knir, \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 \u00fe\u00e6r lei\u00f0i ekkert \u00ed lj\u00f3s og \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 l\u00e6knar fullvissi sj\u00faklinginn um a\u00f0 einkennin stafi ekki af l\u00edkamlegum ors\u00f6kum. Hrj\u00e1i einhver l\u00edkamlegur krankleiki sj\u00faklinginn er engan veginn h\u00e6gt a\u00f0 tengja hann e\u00f0li og fj\u00f6lda einkennanna sem kvarta\u00f0 er yfir e\u00f0a \u00fe\u00e6r kvalir sem eiga hug sj\u00faklingsins allan.<\/p>\n<p style=\"padding-left: 30px;\">(Landl\u00e6knisemb\u00e6ttinu hefur ekki au\u00f0nast a\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0a nema brot af ICD-10 svo \u00e9g snara\u00f0i \u00feessum textanum \u00far ensku af\u00a0<a title=\"Skafl\" href=\"http:\/\/skafl.is\">skafl.is<\/a>.)<\/p>\n<p>S\u00ed\u00f0an eru l\u00edk\u00f6mnunarraskanir flokka\u00f0ar n\u00e1nar ni\u00f0ur, t.d. \u00ed\u00a0<strong>F45.0, Fj\u00f6ll\u00edk\u00f6mnunarr\u00f6skun<\/strong>, einnig nefnd\u00a0<strong>Margf\u00f6ld ge\u00f0vefr\u00e6n r\u00f6sku<\/strong>n e\u00f0a\u00a0<strong>Briquet-r\u00f6skun<\/strong>\u00a0(sem er einmitt hyster\u00eda, \u00fev\u00ed \u00feegar l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0in f\u00f3r a\u00f0 reyna a\u00f0 \u00feagga ni\u00f0ur hyster\u00eduv\u00edsindi Charcot var gripi\u00f0 til \u00feess r\u00e1\u00f0s a\u00f0 kenna sj\u00fakd\u00f3minn fremur vi\u00f0 fyrirrennara hans, hinn l\u00edtt \u00feekkta franska l\u00e6kni Briquet, sem haf\u00f0i \u00fe\u00f3 nokkurn veginn s\u00f6mu sko\u00f0un \u00e1 hyster\u00edu og Charcot). \u00deessi r\u00f6skun vir\u00f0ist geta l\u00fdst s\u00e9r \u00e1 allan m\u00f6gulegan m\u00e1ta mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 l\u00fdsingu \u00ed ICD-10, kannski er sk\u00e1sta greiningarmerki\u00f0 a\u00f0 sj\u00faklingurinn r\u00e1far stanslaust milli l\u00e6kna \u00e1rum saman \u00e1n \u00feess a\u00f0 f\u00e1 b\u00f3t meina sinna.<\/p>\n<p>Svo taka vi\u00f0\u00a0<strong>F45.1 \u00d3sundurgreind l\u00edk\u00f6mnunarr\u00f6skun<\/strong>,\u00a0<strong>F45.2 \u00cdmyndunarr\u00f6skun<\/strong>,\u00a0<strong>F45.3 L\u00edkamleg rangstarfsemi sj\u00e1lfvirkakerfis<\/strong>\u00a0(sem \u00fer\u00e1tt fyrir nafni\u00f0 tengist alls ekki l\u00edkamlegum ors\u00f6kum heldur eru hugmyndir sj\u00faklings um a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 eitthva\u00f0 a\u00f0 honum \u00ed hjartanu, maganum, ristlinum \u00e1n \u00feess a\u00f0 fyrir \u00fev\u00ed finnist nokkur l\u00edffr\u00e6\u00f0ileg sk\u00fdring) o.s.fr.<\/p>\n<div id=\"attachment_795\" style=\"width: 319px\" class=\"wp-caption alignnone\"><a href=\"https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2014\/01\/karl_magaverkur.jpg?ssl=1\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" aria-describedby=\"caption-attachment-795\" class=\"size-full wp-image-795\" alt=\"Karl me\u00f0 magaverk\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2014\/01\/karl_magaverkur.jpg?resize=309%2C412&#038;ssl=1\" width=\"309\" height=\"412\" srcset=\"https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2014\/01\/karl_magaverkur.jpg?w=309&amp;ssl=1 309w, https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2014\/01\/karl_magaverkur.jpg?resize=225%2C300&amp;ssl=1 225w\" sizes=\"auto, (max-width: 309px) 100vw, 309px\" \/><\/a><p id=\"caption-attachment-795\" class=\"wp-caption-text\">Er \u00feessi karl me\u00f0 l\u00edkamlega rangstarfsemi sj\u00e1lfvirkakerfis e\u00f0a ristilkrabbamein?<\/p><\/div>\n<div><\/div>\n<p>\u00deetta ver\u00f0ur ekki raki\u00f0 lengra en \u00e1hugas\u00f6mum um \u00feann b\u00faning sem m\u00f3\u00f0urs\u00fdki er n\u00fa kl\u00e6dd \u00ed af evr\u00f3pskum l\u00e6knum (e\u00f0a \u00e1hugam\u00f6nnum um misheppnu\u00f0 \u00ed\u00f0or\u00f0) er bent \u00e1 a\u00f0 lesa gegnum listann \u00ed ICD-10 \u00e1\u00a0<a title=\"ICD-10\" href=\"http:\/\/skafl.is\">skafl.is<\/a>, vefsetri\u00f0 heyrir undir Emb\u00e6tti landl\u00e6knis.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<h3>M\u00f3\u00f0urs\u00fdki Reykv\u00edkinga og n\u00e6rsveitunga \u00feeirra n\u00fa til dags<\/h3>\n<p>\u00cd fr\u00e6\u00f0igrein J\u00f3ns G. Stef\u00e1nssonar ge\u00f0l\u00e6knis og Eir\u00edks L\u00edndal s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ings,\u00a0<a title=\"Algengi ge\u00f0raskana \u00e1 St\u00f3r-Reykjav\u00edkursv\u00e6\u00f0inu\" href=\"http:\/\/www.laeknabladid.is\/media\/tolublod\/1433\/PDF\/f01.pdf\">Algengi ge\u00f0raskana \u00e1 St\u00f3r-Reykjav\u00edkursv\u00e6\u00f0inu<\/a>,\u00a0sem birtist \u00ed 3.tbl.\u00a0<em>L\u00e6knabla\u00f0sins<\/em>\u00a0\u00e1ri\u00f0 2009, segir af merkri ranns\u00f3kn sem \u00feeir f\u00e9lagarnir ger\u00f0u \u00e1 \u00e1runum 2005-2007. Greindar voru v\u00edsindalega ge\u00f0raskanir 416 \u00edb\u00faa \u00e1 St\u00f3r-Reykjav\u00edkursv\u00e6\u00f0inu (um 50% \u00feess tilviljanakennda \u00fartaks sem bo\u00f0in var \u00fe\u00e1tttaka \u00ed ranns\u00f3kninni) og reikna\u00f0 l\u00edfalgengi ge\u00f0r\u00f6skunargreininga hj\u00e1 \u00feessum h\u00f3pi. L\u00edfalgengi \u00fe\u00fd\u00f0ir a\u00f0 vi\u00f0komandi hafi einhvern t\u00edma \u00e1 \u00e6vinni \u00fej\u00e1\u00f0st af \u00feessum krankleik \u00fe\u00f3tt hann kunni a\u00f0 vera fr\u00edskur \u00feegar k\u00f6nnunin var ger\u00f0. F\u00f3lki\u00f0 var \u00e1 aldrinum 34-76 \u00e1ra, skipt \u00ed \u00ferj\u00e1 aldursh\u00f3pa. A\u00f0alni\u00f0ursta\u00f0an var s\u00fa a\u00f0 r\u00e9tt t\u00e6p 50% h\u00f3psins alls haf\u00f0i einhvern t\u00edma \u00e1 \u00e6vinni gl\u00edmt vi\u00f0 ge\u00f0r\u00f6skun.<\/p>\n<p>\u00cd lj\u00f3s kom a\u00f0\u00a0<strong>n\u00e6stalgengasta ge\u00f0r\u00f6skunin sem hrj\u00e1\u00f0i \u00feetta f\u00f3lk var einmitt l\u00edk\u00f6mnunarr\u00f6skun<\/strong>; l\u00edfalgengi hennar var 19% \u00ed h\u00f3pnum. Konur voru \u00ed meirihluta \u00ed \u00feessum h\u00f3pi, sem og \u00ed h\u00f3pi \u00feeirra sem greindust me\u00f0 lyndisr\u00f6skun og kv\u00ed\u00f0ar\u00f6skun.<\/p>\n<p>(\u00dea\u00f0 kemur efni \u00feessa pistils ekki vi\u00f0 en r\u00e9tt er a\u00f0 uppl\u00fdsa a\u00f0 algengasta ge\u00f0veikin sem hrj\u00e1ir og hefur hrj\u00e1\u00f0 \u00edb\u00faa Reykjav\u00edkur og n\u00e1grennis \u00e1 seinni t\u00edmum er, skv. \u00feessari k\u00f6nnun, t\u00f3baksge\u00f0veikin illr\u00e6mda, \u00e1 fr\u00e6\u00f0im\u00e1li\u00a0<strong>F17 Ge\u00f0- og atferlisraskanir af v\u00f6ldum t\u00f3baksnotkunar<\/strong>.)<\/p>\n<p>M\u00f3\u00f0urs\u00fdkin (l\u00edk\u00f6mnunarr\u00f6skunin) er au\u00f0vita\u00f0 bagaleg fyrir sj\u00faklingana sj\u00e1lfa en kannski skiptir enn meira m\u00e1li a\u00f0 h\u00fan er r\u00e1nd\u00fdr fyrir heilbrig\u00f0iskerfi\u00f0 og eykur \u00e1lag \u00e1 heilsug\u00e6sluna svo um munar (og eins og \u00f6llum vitandi vits \u00e6tti a\u00f0 vera kunnugt eru heimilisl\u00e6knar, eins og a\u00f0rir \u00edslenskir l\u00e6knar, a\u00f0 kikna undan \u00e1lagi).<\/p>\n<p>\u00cd annarri fr\u00e6\u00f0igrein sem birtist sama \u00e1r \u00ed\u00a0<em>L\u00e6knabla\u00f0inu<\/em>, 9. tbl. 2009,\u00a0<a title=\"Hugbrig\u00f0ar\u00f6skun\" href=\"http:\/\/www.laeknabladid.is\/media\/tolublod\/1412\/PDF\/f02.pdf\">Hugbrig\u00f0ar\u00f6skun &#8211; yfirlitsgrein<\/a>, eftir \u00fe\u00e1 \u00d3laf \u00c1rna Sveinsson, l\u00e6kni, Sigurj\u00f3n B. Stef\u00e1nsson, s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ing \u00ed ge\u00f0l\u00e6kningum og kl\u00edn\u00edskri taugal\u00edfe\u00f0lisfr\u00e6\u00f0i, og Hauk Hjaltason, s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ing \u00ed taugasj\u00fakd\u00f3mum, kemur fram:<\/p>\n<p style=\"padding-left: 30px;\">L\u00edkamleg einkenni sem engin vefr\u00e6n sk\u00fdring finnst \u00e1 eru oft s\u00f6g\u00f0 vera starfr\u00e6n (functional). \u00cd ge\u00f0l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0i er sl\u00edkt \u00e1stand kalla\u00f0 r\u00f6skun (disorder). H\u00e9r ver\u00f0a notu\u00f0 hugt\u00f6kin starfr\u00e6n einkenni og starfr\u00e6n truflun \u00ed \u00feessari merkingu.<br \/>\n[- &#8211; -]<br \/>\n<strong>Ranns\u00f3knir hafa s\u00fdnt a\u00f0 allt a\u00f0 helmingur sj\u00faklinga sem leitar til heimilisl\u00e6kna kemur vegna starfr\u00e6nna einkenna. Um \u00feri\u00f0jungur allra sj\u00faklinga sem s\u00e6kja til taugal\u00e6kna \u00e1 g\u00f6ngudeildir hafa starfr\u00e6n einkenni.<\/strong>\u00a0[Feitletrun m\u00edn]<\/p>\n<p>(\u00dea\u00f0 er ekki lj\u00f3st af samhenginu hversu st\u00f3r hluti hinna starfr\u00e6nu einkenna sem \u00fearna eru nefnd eru l\u00edk\u00f6mnunarraskanir, \u00fe.e.a.s. ge\u00f0r\u00e6nar raskanir sem \u00e1\u00f0ur fyrr voru hluti m\u00f3\u00f0urs\u00fdkigreiningar.)<\/p>\n<p>S\u00ed\u00f0an b\u00e6ta h\u00f6fundarnir vi\u00f0 a\u00f0 svona sj\u00faklingar upplifi sig oft mun veikari en sj\u00faklingar me\u00f0 samb\u00e6rileg einkenni af vefr\u00e6num toga [\u00fe.e. sem h\u00e6gt er a\u00f0 greina l\u00edffr\u00e6\u00f0ilega ors\u00f6k fyrir], gangi oft milli l\u00e6kna og \u201eundirgangist endurteki\u00f0 \u00f3\u00fearfa ranns\u00f3knir, jafnvel a\u00f0ger\u00f0ir, og reyna margv\u00edsleg lyf.\u201c<\/p>\n<p>A\u00f0alefni \u00feessarar greinar er svo\u00a0<strong>hugbrig\u00f0ar\u00f6skun<\/strong>\u00a0(conversion disorder, eins og h\u00fan er skilgreind \u00ed DSM-IV, \u00ed ICD-10 hefur sami sj\u00fakd\u00f3mur veri\u00f0 f\u00e6r\u00f0ur \u00far flokki l\u00edk\u00f6mnunarraskana og \u00ed \u00ferj\u00e1 undirflokka\u00a0<strong>F44 Hugrofs[hugbrig\u00f0a]r\u00f6skun<\/strong>.) Hugbrig\u00f0ar\u00f6skun er hin gamla\u00a0<em>grand hysterie<\/em>\u00a0dr. Charcot, br\u00e1\u00f0lifandi enn \u00feann dag \u00ed dag og dugir ekki minna en s\u00e9rstakur pistill um hana, sem birtist s\u00ed\u00f0ar.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>Heimildir<\/strong><\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/www.mefelag.is\/\">Er munur \u00e1 ME, CFS og FM?<\/a>\u00a0<em>ME f\u00e9lag \u00cdslands<\/em>.<\/p>\n<p>ICD-10 Al\u00fej\u00f3\u00f0leg t\u00f6lfr\u00e6\u00f0iflokkun sj\u00fakd\u00f3ma og skyldra heilbrig\u00f0istvandam\u00e1l [svo].\u00a0<a href=\"http:\/\/skafl.is\"><em>SKAFL<\/em><\/a>\u00a0[St\u00f6\u00f0lu\u00f0 k\u00f3\u00f0un \u00ed al\u00fej\u00f3\u00f0legum flokkunarkerfum Landl\u00e6knisemb\u00e6ttisins].<\/p>\n<p>J\u00f3hann Hei\u00f0ar J\u00f3hannsson. 1992. 028 Hysteria. Fylgirit L\u00e6knabla\u00f0sins 10(3):4. H\u00e9r stu\u00f0st vi\u00f0 endurbirtingu pistilsins \u00ed \u00cd\u00f0or\u00f0apistlar 1-130 \u00ed\u00a0<a href=\"http:\/\/www.laeknabladid.is\/2001\/fylgirit\/14\/idordapistlar\/nr\/599\"><em>Fylgiriti L\u00e6knabla\u00f0sins<\/em><\/a>\u00a0nr. 14 \u00e1ri\u00f0 2001.<\/p>\n<p>J\u00f3n G. Stef\u00e1nsson og Eir\u00edkur L\u00edndal.\u00a0<a href=\"http:\/\/www.laeknabladid.is\/media\/tolublod\/1433\/PDF\/f01.pdf\">Algengi ge\u00f0raskana \u00e1 St\u00f3r-Reykjav\u00edkursv\u00e6\u00f0inu<\/a>.\u00a0<em>L\u00e6knabla\u00f0i\u00f0<\/em>\u00a095. \u00e1rg. 3. tbl. 2009, s. 559-564.<\/p>\n<p>\u00d3lafur \u00c1rni Sveinsson, Sigurj\u00f3n B. Stef\u00e1nsson og Haukur Hjaltason.\u00a0<a href=\"http:\/\/www.laeknabladid.is\/media\/tolublod\/1412\/PDF\/f02.pdf\">Hugbrig\u00f0ar\u00f6skun &#8211; yfirlitsgrein<\/a>.\u00a0<em>L\u00e6knabla\u00f0i\u00f0<\/em>\u00a095. \u00e1rg. 9. tbl. 2009, s. 269-276.<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/www.thraut.is\/UserFiles\/Skimun%20fyrir%20vefjagigtAV(2)(3).pdf\">Skimun fyrir vefjagigt<\/a>\u00a0[Skimunarskilmerki bandar\u00edsku gigtl\u00e6knasamtakanna fr\u00e1 2010].\u00a0<em>\u00deraut ehf<\/em><\/p>\n<p>Sveinn P\u00e1lsson.\u00a0<a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pageId=968773\">Tilraun a\u00f0 upptelja sj\u00fakd\u00f3ma \u00fe\u00e1 er a\u00f0 bana ver\u00f0a og or\u00f0i\u00f0 geta f\u00f3lki \u00e1 \u00cdsland<\/a>i.<em>\u00a0Rit \u00feess (konunglega) \u00edslenzka L\u00e6rd\u00f3mslistaf\u00e9lag<\/em>s 15. \u00e1rg 1794. S. 85.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/kvennabladid.is\/2014\/01\/25\/modursjukir-islendingar-einkum-reykvikingar-nutimans\/\">\u00deessi pistill birtist \u00e1\u00f0ur \u00ed <em>Kvennabla\u00f0inu<\/em><\/a> 25. jan\u00faar 2014.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00dea\u00f0 kann a\u00f0 koma einhverjum \u00e1 \u00f3vart en sta\u00f0reyndin er s\u00fa a\u00f0 rusl-sj\u00fakd\u00f3ms-greiningarhugtaki\u00f0 gamla, hyster\u00eda (m\u00f3\u00f0urs\u00fdki), \u00e1samt karlkyns\u00fatg\u00e1fu \u00feess, h\u00fdp\u00f3kondr\u00edu (\u201emiltisveike e\u00f0a vaniflas\u00f3tt (Hypochondria, Miltsyge), hj\u00e1 karlm\u00f8nnumm, e\u00f0r m\u00f3\u00f0ursyke hi\u00e1 kvennf\u00f3lki, [&#8230;] eru n\u00e6rstums\u00f8mu veikleikar\u201c, <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2014\/01\/27\/modursjukir-islendingar-einkum-reykvikingar-nutimans\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":797,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[10],"tags":[],"class_list":["post-808","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-saga_gedlaekninga"],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/i0.wp.com\/harpahreins.com\/blogg\/wp-content\/uploads\/2014\/01\/kona_med_verk.jpg?fit=686%2C435&ssl=1","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/808","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=808"}],"version-history":[{"count":4,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/808\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":811,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/808\/revisions\/811"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media\/797"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=808"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=808"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=808"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}