{"id":984,"date":"2014-04-27T22:36:53","date_gmt":"2014-04-27T22:36:53","guid":{"rendered":"http:\/\/www.harpahreins.com\/blogg\/?p=984"},"modified":"2014-04-27T22:36:53","modified_gmt":"2014-04-27T22:36:53","slug":"fingravettlingar-viktoria-drottning-dularfullar-hirdmeyjar-og-hagraeding-sannleikans","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2014\/04\/27\/fingravettlingar-viktoria-drottning-dularfullar-hirdmeyjar-og-hagraeding-sannleikans\/","title":{"rendered":"Fingravettlingar, Viktor\u00eda drottning, dularfullar hir\u00f0meyjar og hagr\u00e6\u00f0ing sannleikans"},"content":{"rendered":"<p>H\u00e9r segir af ofurlitlu gr\u00faski undanfari\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed skyni a\u00f0 kanna meintan \u00e1huga Viktor\u00edu Bretadrottningar \u00e1 \u00edslenskum fingravettlingum, sem allt bendir til a\u00f0 s\u00e9 haganlega tilb\u00fain lygasaga sem hver etur upp eftir \u00f6\u00f0rum enn \u00feann dag \u00ed dag.<\/p>\n<p><strong>Sk\u00fdringar \u00e1 \u00e1rita\u00f0ri mynd af Viktor\u00edu drottningu \u00ed eigu Sigr\u00ed\u00f0ar Einarsd\u00f3ttur Magn\u00fasson<\/strong><\/p>\n<p>\u00c1 d\u00f6gunum var \u00e9g a\u00f0 lesa <em>\u00de\u00f3ru biskups og raunir \u00edslenskrar emb\u00e6ttismannast\u00e9ttar 1847-1917<\/em>, eftir Sigr\u00fanu P\u00e1lsd\u00f3ttur (\u00fatg. 2010); a\u00f0 m\u00f6rgu leyti \u00e1g\u00e6tisb\u00f3k sem \u00e9g hef lesi\u00f0 \u00e1\u00f0ur, \u00fe\u00f3tt a\u00f0alpers\u00f3nan s\u00e9 frekar lei\u00f0inleg dekurr\u00f3fa. En \u00fea\u00f0 er ekki efni \u00feessa pistils.<\/p>\n<p>\u00cd mi\u00f0ri <em>\u00de\u00f3ru biskups<\/em> segir af heims\u00f3kn hennar til hj\u00f3nanna Eir\u00edks Magn\u00fassonar og Sigr\u00ed\u00f0ar Einarsd\u00f3ttur sem bjuggu \u00ed Cambridge. Er h\u00fasakynnum \u00feeirra l\u00fdst og \u00fe.\u00e1.m. segir:<\/p>\n<blockquote><p>\u00c1 mi\u00f0h\u00e6\u00f0 gestaherbergi og st\u00e1ssstofa e\u00f0a vi\u00f0hafnarherbergi \u00fear sem yfir arinhillunni hangir mynd s\u00fa af Viktor\u00edu sem drottningin sendi \u00e1rita\u00f0a til Gu\u00f0r\u00fanar \u00ed Brekkub\u00e6 sem \u00feakkl\u00e6tisvott fyrir vettlinga sem h\u00fan haf\u00f0i eitt sinn prj\u00f3na\u00f0 handa henni og gefi\u00f0.<a href=\"#1\"><sup>1<\/sup><\/a><\/p><\/blockquote>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" decoding=\"async\" alt=\"Viktoria Englandsdrottning\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/viktoria_drottning.jpg?w=540\" align=\"right\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" \/>\u00deetta vakti athygli m\u00edna \u00fev\u00ed fr\u00e6g d\u00e6mi eru um a\u00f0 breskum hannyr\u00f0um hafi veri\u00f0 komi\u00f0 r\u00e6kilega \u00e1 framf\u00e6ri me\u00f0 velvild Viktor\u00edu drottningar og hennar fj\u00f6lskyldu svo mig langa\u00f0i a\u00f0 vita meir um \u00feessa \u00edslensku vettlinga sem drottningin var svo \u00feakkl\u00e1t fyrir. <em>\u00de\u00f3ra biskups<\/em> er v\u00f6ndu\u00f0 heimildask\u00e1ldsaga og a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u er v\u00edsa\u00f0 \u00ed heimild fyrir \u00feessu, sem er <em>Saga Eir\u00edks Magn\u00fassonar \u00ed Cambridge<\/em> eftir Stef\u00e1n Einarsson.<\/p>\n<p>\u00cd <em>S\u00f6gu Eir\u00edks Magn\u00fassonar<\/em> er l\u00f6ng tilvitnun \u00ed l\u00fdsingu Gu\u00f0mundar Magn\u00fassonar sk\u00e1lds (\u00fe.e. J\u00f3ns Trausta) sem heims\u00f3tti \u00feau Sigr\u00ed\u00f0i og Eir\u00edk \u00e1ri\u00f0 1904. J\u00f3n Trausti sag\u00f0i m.a. um h\u00fasakynni \u00feeirra: \u201e\u00c1 arinhillunni \u00fear stendur lj\u00f3smynd af Viktor\u00edu drotningu me\u00f0 eiginhandar-\u00e1ritun hennar, send fr\u00fa Sigr\u00ed\u00f0i.\u201c<a href=\"#2\"><sup>2<\/sup><\/a> Ne\u00f0anm\u00e1ls \u00ed sinni b\u00f3k gerir Stef\u00e1n Einarsson \u00feessa athugasemd: \u201eMyndin var ekki send Sigr\u00ed\u00f0i, heldur Gu\u00f0r\u00fanu m\u00f3\u00f0ur hennar, er prj\u00f3na\u00f0 haf\u00f0i drotningunni vetlinga.\u201c<a href=\"#3\"><sup>3<\/sup><\/a><\/p>\n<p>Enn \u00f6nnur \u00fatg\u00e1fa er til um sk\u00fdringuna \u00e1 \u00e1ritu\u00f0u myndinni af Viktor\u00edu drottningu sem ku hafa sta\u00f0i\u00f0 \u00e1 arinhillunni \u00e1 heimili \u00feeirra Sigr\u00ed\u00f0ar og Eir\u00edks \u00ed Cambridge, einnig h\u00f6f\u00f0 eftir gesti \u00feeirra hj\u00f3na. Gu\u00f0mundur \u00c1rnason skrifa\u00f0i grein um Eir\u00edk Magn\u00fasson sem birtist \u00e1ri\u00f0 1920. Gu\u00f0mundur segist segist hafa dvali\u00f0 \u00ed Cambridge \u00ed tv\u00e6r vikur \u00e1ri\u00f0 1910 og veri\u00f0 daglegur gestur hj\u00e1 \u00feeim hj\u00f3num. Undir lok greinarinnar hr\u00f3sar hann Sigr\u00ed\u00f0i mj\u00f6g, segir m.a. a\u00f0 h\u00fan hafi veri\u00f0 \u201e\u00f3\u00fereytandi a\u00f0 \u00fatbrei\u00f0a \u00feekkingu \u00e1 \u00cdslandi og \u00edslenzkum handi\u00f0na\u00f0i \u00e1 Englandi og v\u00ed\u00f0ar\u201c og a\u00f0 h\u00fan hafi teki\u00f0 \u201edrj\u00fagan \u00fe\u00e1tt \u00ed kvennfrelsism\u00e1linu og \u00fdmsum \u00f6\u00f0rum framfararm\u00e1lum\u201c, b\u00e6tir svo vi\u00f0:<\/p>\n<blockquote><p>\u00ddmsir ur\u00f0u til \u00feess a\u00f0 veita tilraunum hennar eftirtekt og s\u00fdna henni vi\u00f0urkenningu, \u00fear \u00e1 me\u00f0al Victor\u00eda drotning, sem sendi henni lj\u00f3smynd af s\u00e9r me\u00f0 eiginhandar kve\u00f0ju.<a href=\"#4\"><sup>4<\/sup><\/a><\/p><\/blockquote>\n<p>\u00cd VI. Vi\u00f0auka \u00ed <em>S\u00f6gu Eir\u00edks Magn\u00fassonar<\/em> segir Stef\u00e1n Einarsson deili \u00e1 \u00e6ttum hans, eiginkonu o.fl. sem honum \u00fe\u00f3tti ekki eiga erindi \u00ed meginm\u00e1l. \u00dear segir um m\u00f3\u00f0ur Sigr\u00ed\u00f0ar, Gu\u00f0r\u00fanu \u00d3lafsd\u00f3ttur \u00ed Brekkub\u00e6 [koti\u00f0 st\u00f3\u00f0 \u00fear sem n\u00fa stendur Mj\u00f3str\u00e6ti 3] og vettlingana og Viktor\u00edu:<\/p>\n<blockquote><p>Til merkis um \u00fea\u00f0, hve vel h\u00fan vann, m\u00e1 geta \u00feess, a\u00f0 einu sinni kom me\u00f0 Sigr\u00ed\u00f0i hir\u00f0m\u00e6r Viktor\u00edu drotningar til Reykjav\u00edkur og f\u00e9kk fingravettlinga hj\u00e1 Gu\u00f0r\u00fanu. En Viktor\u00edu drotningu leist svo vel \u00e1 vetlingana, a\u00f0 h\u00fan panta\u00f0i a\u00f0ra, og er h\u00fan f\u00e9kk \u00fe\u00e1, sendi h\u00fan Gu\u00f0r\u00fanu mynd af s\u00e9r me\u00f0 eiginhandar \u00e1ritun. \u00deessa mynd geymdi Sigr\u00ed\u00f0ur eins og menjagrip, en \u00fe\u00f3 hefur t\u00fdnst. Til eru \u00e1 \u00dej\u00f3\u00f0menjasafni vetlingar eftir Gu\u00f0r\u00fanu sem h\u00fan f\u00e9kk ver\u00f0laun fyrir.<a href=\"#5\"><sup>5<\/sup><\/a><\/p><\/blockquote>\n<p><a href=\"http:\/\/sarpur.is\/Adfang.aspx?AdfangID=335228\"><img data-recalc-dims=\"1\" decoding=\"async\" alt=\"Ver\u00f0launvettlingar Gu\u00f0r\u00fanar \u00d3lafsd\u00f3ttur\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/verdalaunavettlingar_gudrunar.jpg?w=540\" align=\"left\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" \/><\/a>Gu\u00f0r\u00fan \u00feessi \u00d3lafsd\u00f3ttir \u00ed Brekkub\u00e6 var f\u00e6dd \u00e1ri\u00f0 1805 en \u00e9g finn engar heimildir um d\u00e1nar\u00e1r hennar. Sigr\u00ed\u00f0ur d\u00f3ttir hennar fluttist me\u00f0 s\u00ednum manni, Eir\u00edki Magn\u00fassyni, til Englands \u00e1ri\u00f0 1862 og var d\u00e1l\u00edtill \u00fev\u00e6lingur \u00e1 \u00feeim n\u00e6stu \u00e1rin en fr\u00e1 1871 var heimili \u00feeirra \u00ed Cambridge. B\u00e6\u00f0i heims\u00f3ttu \u00feau \u00cdsland mj\u00f6g oft.<\/p>\n<p>\u00cd <em>\u00de\u00f3ru biskups<\/em> segir a\u00f0 Sigr\u00ed\u00f0ur hafi hausti\u00f0 1883 teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed \u201eI\u00f0nss\u00fdningunni \u00ed Reykjav\u00edk\u201c \u00e1samt \u00de\u00f3ru o.fl. og a\u00f0 \u201eSigr\u00ed\u00f0ur og \u00de\u00f3ra vinna b\u00e1\u00f0ar til ver\u00f0launa \u00ed fyrsta flokki sem gaf pening \u00far silfri\u201c. <a href=\"#6\"><sup>6<\/sup><\/a> H\u00e9r er rangt fari\u00f0 me\u00f0. \u00cd fyrsta lagi h\u00e9t \u00feessi s\u00fdning I\u00f0na\u00f0ars\u00fdningin \u00ed Reykjav\u00edk. H\u00fan st\u00f3\u00f0 dagana 2.-19. \u00e1g\u00fast 1883. Vissulega sendu \u00fe\u00e6r \u00de\u00f3ra og Sigr\u00ed\u00f0ur b\u00e1\u00f0ar inn m\u00e1lverk \u00e1 s\u00fdninguna<a href=\"#7\"><sup>7<\/sup><\/a> en einungis \u00de\u00f3ra hlaut silfurpening \u00ed ver\u00f0laun. Sigr\u00ed\u00f0ur f\u00e9kk engin ver\u00f0laun<a href=\"#8\"><sup>8<\/sup><\/a>. Aftur \u00e1 m\u00f3ti er \u00fea\u00f0 satt sem \u00e1\u00f0ur var nefnt a\u00f0 m\u00f3\u00f0ir Sigr\u00ed\u00f0ar, Gu\u00f0r\u00fan \u00d3lafsd\u00f3ttir Ormarst\u00f6\u00f0um, f\u00e9kk silfurpening fyrir fingravettlinga. (Soff\u00eda Einarsd\u00f3ttir \u00e1 \u00c1si \u00ed Fellum, systir Sigr\u00ed\u00f0ar, f\u00e9kk bronspening fyrir svuntu og \u00deorvar\u00f0ur Kjer\u00falf, kv\u00e6ntur systurd\u00f3ttur Sigr\u00ed\u00f0ar, f\u00e9kk silfurpening fyrir hnakk sem hann sendi inn en \u00f3v\u00edst er hver sm\u00ed\u00f0a\u00f0i &#8211; svo \u00e6ttin l\u00e1 svo sem ekki \u00f3b\u00e6tt hj\u00e1 gar\u00f0i \u00ed ver\u00f0launaveitingu \u00fe\u00f3tt Sigr\u00ed\u00f0ur fengi sj\u00e1lf engin ver\u00f0laun)<a href=\"#9\"><sup>9<\/sup><\/a>. Raunar \u00fe\u00f3tti ver\u00f0launadreifingin fyrir muni \u00e1 \u00feessari s\u00fdningu d\u00e1l\u00edti\u00f0 einkennileg sem kann a\u00f0 stafa af \u00fev\u00ed a\u00f0 d\u00f3mnefndin virtist \u00f3sp\u00f6r \u00e1 a\u00f0 hygla s\u00ednum vinum og kunningjum umfram a\u00f0ra.<a href=\"#10\"><sup>10<\/sup><\/a><\/p>\n<p>Myndin til vinstri er af ver\u00f0launavettlingum Gu\u00f0r\u00fanar \u00d3lafsd\u00f3ttur og kr\u00e6kir \u00ed uppl\u00fdsingas\u00ed\u00f0u um \u00fe\u00e1 \u00ed <em>Sarpi<\/em>, gagnasafni \u00dej\u00f3\u00f0minjasafnsins.<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/sarpur.is\/Adfang.aspx?AdfangID=904062\"><img data-recalc-dims=\"1\" decoding=\"async\" alt=\"Soff\ufffda og Sigr\ufffd\u00f0ur Einarsd\u00e6tur og Gu\u00f0r\u00fan \u00d3lafsd\u00f3ttir\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/soffia_sigridur_gudrun.jpg?w=540\" align=\"top\" \/><\/a><\/p>\n<p>\u00c1 myndinni h\u00e9r a\u00f0 ofan sj\u00e1st systurnar Soff\u00eda Einarsd\u00f3ttir og Sigr\u00ed\u00f0ur Einarsd\u00f3ttir Magn\u00fasson og Gu\u00f0r\u00fan \u00d3lafsd\u00f3ttir m\u00f3\u00f0ir \u00feeirra. Fremst \u00e1 myndinni eru d\u00e6tur Soff\u00edu, \u00fe\u00e6r Sigr\u00ed\u00f0ur Mar\u00eda Gunnarsson (f. 1885) og Berglj\u00f3t Sigur\u00f0ard\u00f3ttir (f. 1879). Af henni m\u00e1 marka a\u00f0 Gu\u00f0r\u00fan hafi n\u00e1\u00f0 h\u00e1um aldri. \u00deetta er st\u00e6kku\u00f0 \u00farklippa \u00far mynd sem sko\u00f0a m\u00e1 \u00ed <em>Sarpi<\/em>, gagnasafni \u00dej\u00f3\u00f0minjasafns, og kr\u00e6kir \u00farklippan \u00ed myndas\u00ed\u00f0una \u00fear.<\/p>\n<p><strong>Eftir<\/strong> I\u00f0na\u00f0ars\u00fdninguna augl\u00fdsir Sigr\u00ed\u00f0ur eftir \u00edslenskum hannyr\u00f0um \u00ed fyrsta sinn. Er ekki \u00f3sennilegt a\u00f0 augu hennar hafi opnast fyrir a\u00f0 h\u00e6gt v\u00e6ri, me\u00f0 r\u00e9ttri marka\u00f0ssetningu, a\u00f0 gera \u00fe\u00e6r eftirs\u00f3knarver\u00f0ar \u00ed Bretlandi og hafa eitthva\u00f0 upp \u00far s\u00e9r vi\u00f0 \u00fea\u00f0. Augl\u00fdsing sem h\u00fan birti \u00ed dagbl\u00f6\u00f0um er dagsett 28. \u00e1g\u00fast og hefst \u00feannig:<\/p>\n<blockquote><p>\u00cd \u00fev\u00ed skyni, a\u00f0 gj\u00f6ra mitt til \u00feess, a\u00f0 efla \u00edslenzkar hannyr\u00f0ir einkanlega, og ef til vill fleiri i\u00f0nir, og sjer \u00ed lagi a\u00f0 gj\u00f6ra \u00edslenzkan verkna\u00f0 \u00fatgengilegan \u00e1 Englandi, svo a\u00f0 vinnendum yr\u00f0i sem mestur hagur a\u00f0, \u00fe\u00e1 hefi eg \u00e1forma\u00f0 og gj\u00f6rt talsver\u00f0an undirb\u00faning til \u00feess, a\u00f0 s\u00fdning geti or\u00f0i\u00f0 haldin \u00e1 sl\u00edkum munum \u00ed Lund\u00fanaborg a\u00f0 \u00e1ri komanda, m\u00e1nu\u00f0ina ma\u00ed, j\u00fan\u00ed og j\u00fal\u00ed. Jeg hefi \u00feegar fengi\u00f0 nokkurar enskar heldri konur, \u00fear \u00e1 me\u00f0al Mrs. Morris, til a\u00f0 ganga \u00ed nefnd me\u00f0 mjer til \u00feess a\u00f0 koma upp sj\u00f3\u00f0i, svo fyrirt\u00e6kinu megi \u00feannig framgengt ver\u00f0a og munirnir fluttir til Englands, s\u00fdnendunum a\u00f0 kostna\u00f0arlausu.<a href=\"#11\"><sup>11<\/sup><\/a><\/p><\/blockquote>\n<p>Seinna \u00ed augl\u00fdsingunni telur h\u00fan upp hvers lags hannyr\u00f0ir sig vanti og eru \u00fear \u00e1 me\u00f0al sokkar, belgvettlingar og fingravettlingar.<\/p>\n<p><strong>Sta\u00f0h\u00e6fingar Sigr\u00ed\u00f0ar um Viktor\u00edu drottningu og \u00edslenska fingravettlinga \u00e1 s\u00fdningum hennar \u00e1 \u00edslenskri handavinnu erlendis<\/strong><\/p>\n<p>Sigr\u00ed\u00f0ur Einarsd\u00f3ttir Magn\u00fasson st\u00f3\u00f0 vi\u00f0 st\u00f3ru or\u00f0in og kom hannyr\u00f0um \u00edslenskra kvenna a\u00f0 \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0legri heilbrig\u00f0iss\u00fdningu (International Health Exhibition) \u00ed London 1884.<\/p>\n<p>Obbinn af t\u00f6lubla\u00f0i <em>\u00dej\u00f3\u00f0\u00f3lfs<\/em> \u00feann 29. n\u00f3v. 1884 fjalla\u00f0i um s\u00fdningu Sigr\u00ed\u00f0ar og deilur sem af ver\u00f0launaveitingu \u00fear spruttu, undir yfirskriftinni \u201eFr\u00e1 hannyr\u00f0as\u00fdningunni \u00edslenzku \u00ed London\u201c. \u00deessi langa grein er \u00f6rugglega eftir Eir\u00edk Magn\u00fasson, eiginmann Sigr\u00ed\u00f0ar. Greinin hefst \u00e1 \u00fe\u00fd\u00f0ingu \u00e1 lofr\u00e6\u00f0u enska hannyr\u00f0abla\u00f0sins <em>The Queen<\/em> (sem ne\u00f0anm\u00e1ls er sagt \u201ekvennabla\u00f0 og gengr me\u00f0al au\u00f0f\u00f3lks og a\u00f0als og hefir mikla \u00fatbrei\u00f0slu\u201c). \u00cd \u00fe\u00fd\u00f0ingunni \u00e1 lofinu segir m.a.: \u201eOkkur voru s\u00fdndir \u00fear fingravetlingar af s\u00f6mu gj\u00f6r\u00f0 og \u00feeir voru, sem Drotningu vorri hafa veri\u00f0 sendir a\u00f0 gj\u00f6f.\u201c<a href=\"#12\"><sup>12<\/sup><\/a><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" decoding=\"async\" alt=\"Alexandra prinsessa af Wales\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/alexandra_prinsessa_af_wales.jpg?w=540\" align=\"right\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" \/><\/p>\n<p>\u00c1ri\u00f0 1886 komst Sigr\u00ed\u00f0ur a\u00f0 me\u00f0 sama d\u00f3t \u00e1 Al\u00fej\u00f3\u00f0lega i\u00f0ns\u00fdningu \u00ed Edinborg en s\u00e9rstakir verndarar hennar voru Prinsinn og Prinsessan af Wales. \u00cd fr\u00e9tt \u00ed <em>The Times<\/em> segir af \u00fev\u00ed \u00feegar \u00feessir h\u00e1ttsettu verndarar sko\u00f0u\u00f0u s\u00fdninguna og \u00fear \u00e1 me\u00f0al:<\/p>\n<blockquote><p>The attendant at the Icelandic stand presented the Princess of Wales with a pair of gloves, and her Royal Highness gave an order for a piece of cloth sufficient to make a dress.<a href=\"#13\"><sup>13<\/sup><\/a><\/p><\/blockquote>\n<p>Myndin til h\u00e6gri er af Alex\u00f6ndru, prinsessu af Wales, tekin 1881.<\/p>\n<p>V\u00edkur n\u00fa s\u00f6gunni \u00e1ratug fram \u00ed t\u00edmann, \u00feegar Sigr\u00ed\u00f0i t\u00f3kst a\u00f0 koma \u00edslenskum hannyr\u00f0um (a\u00f0 hluta \u00feeim s\u00f6mu og h\u00fan haf\u00f0i s\u00fdnt \u00e1ri\u00f0 1884 og oftar) og \u00edslenskri silfursm\u00ed\u00f0i \u00e1 Heimss\u00fdninguna miklu \u00ed Chicago 1893. \u00cd millit\u00ed\u00f0inni haf\u00f0i h\u00fan komi\u00f0 s\u00e9r \u00ed alls kyns \u00fatlendan kvenf\u00e9laga-\/kvenna-f\u00e9lagsskap, stofna\u00f0 kvennask\u00f3la \u00ed Reykjav\u00edk sem a\u00f0eins starfa\u00f0i eitt \u00e1r, kynnt \u00cdsland og b\u00e1g kj\u00f6r kvenna h\u00e9r og \u00fear og \u00edslenskt handverk. \u00cd r\u00e6\u00f0u sem h\u00fan flutti \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0legu kvenna\u00feingi sem haldi\u00f0 var \u00ed tengslum vi\u00f0 Heimss\u00fdninguna sag\u00f0i h\u00fan m.a.:<\/p>\n<blockquote><p>I think you will agree with me that the work must be good when I tell you that Her Majesty, Queen Victoria, has been wearing the Icelandic gloves for years, the only &#8220;woolen&#8221; gloves she wears, I am told; also that the work got the highest possible award at the International Health Exhibition in London, 1884, namely, &#8220;The Diploma of Honor,&#8221; &#8230; <a href=\"#14\"><sup>14<\/sup><\/a><\/p><\/blockquote>\n<p>\u00deessu sama h\u00e9lt Sigr\u00ed\u00f0ur v\u00ed\u00f0ar fram \u00ed tengslum vi\u00f0 heimss\u00fdninguna \u00ed Chicago, t.d. \u00ed vi\u00f0tali \u00ed <em>New York Times<\/em>: \u201eIn discussing the qualities of some woolen gloves shown in the exhibit of her nation &#8220;the only glove of the kind which Queen Victoria wears&#8221; this representative from Iceland &#8230;\u201c<a href=\"#15\"><sup>15<\/sup><\/a> Og au\u00f0vita\u00f0 rata\u00f0i sagan \u00ed \u00edslensk dagbl\u00f6\u00f0 einnig, sj\u00e1 t.d. \u00fe\u00fd\u00f0ingu \u00e1 fr\u00e9tt \u00far <em>Chicago Sun<\/em> \u00ed <em>Fjallkonunn<\/em>i hausti\u00f0 1893: \u201e\u00cd \u00feessari \u00edslenzku s\u00fdningu eru hannyr\u00f0ir kvenna og meyja og \u00fear \u00e1 me\u00f0al fingravetlingar \u00far ull, samskonar og Victoria drotning og prinsessan af Wales br\u00fakar [svo] sem unna mj\u00f6g hinum \u00edslenzku hannyr\u00f0um.\u201c<a href=\"#16\"><sup>16<\/sup><\/a><\/p>\n<p>Aftur \u00e1 m\u00f3ti voru \u00cdslendingar sem s\u00e1u muni \u00fe\u00e1 sem Sigr\u00ed\u00f0ur s\u00fdndi \u00ed Chicago v\u00e6gast sagt ekki uppve\u00f0ra\u00f0ir og spruttu upp har\u00f0ar bla\u00f0adeilur milli \u00feeirra og Sigr\u00ed\u00f0ar \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0. \u00deeim ver\u00f0a ekki ger\u00f0 skil \u00ed \u00feessum pistli heldur fingravettlingasagan sko\u00f0u\u00f0 \u00e1fram.<\/p>\n<p><strong> <\/strong><strong>Hver var hir\u00f0m\u00e6rin sem kveikti \u00e1st Viktor\u00edu drottningar \u00e1 \u00edslenskum fingravettlingum?<\/strong><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/www.royalcollection.org.uk\/collection\/2906615\/the-honourable-emily-sarah-cathcart-1834-1917\"><img data-recalc-dims=\"1\" decoding=\"async\" alt=\"Emily Sarah Cathcart\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/emily_cathcart.jpg?w=540\" align=\"left\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" \/><\/a>B\u00f6ndin berast a\u00f0 laf\u00f0i Emily Sarah Cathcart, sem var vissulega hir\u00f0m\u00e6r Viktor\u00edu drottningar.<a href=\"#17\"><sup>17<\/sup><\/a> (Andlitsmyndin af henni kr\u00e6kir \u00ed st\u00e6rri mynd.) Emily Cathcart kom \u00ed fyrsta sinn til \u00cdslands s\u00ed\u00f0sumars \u00e1ri\u00f0 1878, \u00ed fylgd me\u00f0 Elizabeth Jane Oswald, skoskri konu sem skrifa\u00f0i seinna b\u00f3k bygg\u00f0a \u00e1 \u00feremur \u00cdslandsfer\u00f0um s\u00ednum.<a href=\"#18\"><sup>18<\/sup><\/a> \u00dea\u00f0 sumar var Sigr\u00ed\u00f0ur \u00e1 fer\u00f0alagi um Nor\u00f0url\u00f6nd \u00e1samt Eir\u00edki eiginmanni s\u00ednum og kom ekki til \u00cdslands.<a href=\"#19\"><sup>19<\/sup><\/a><\/p>\n<p>\u00de\u00e6r Sigr\u00ed\u00f0ur og laf\u00f0i Emily voru hins vegar samskipa til \u00cdslands \u00ed j\u00fal\u00ed 1879 og aftur til Englands \u00ed septemberbyrjun.<a href=\"#20\"><sup>20<\/sup><\/a> Sigr\u00ed\u00f0ur hefur svo eflaust kynnst Emily Cathcart betur gegnum \u00de\u00f3ru Pjetursd\u00f3ttur biskups sumari\u00f0 1880 \u00ed London<a href=\"#21\"><sup>21<\/sup><\/a> og sat svo enn seinna me\u00f0 Cathcart \u00ed nefnd til a\u00f0 safna f\u00e9 vegna h\u00f6rmunga \u00e1 \u00cdslandi \u00e1ri\u00f0 1882.<a href=\"#22\"><sup>22<\/sup><\/a> En n\u00e6st kom Sigr\u00ed\u00f0ur til \u00cdslands \u00e1ri\u00f0 1883. \u00de\u00e1 var Gu\u00f0r\u00fan \u00d3lafsd\u00f3ttir, m\u00f3\u00f0ir Sigr\u00ed\u00f0ar, skr\u00e1\u00f0 til heimilis a\u00f0 Ormarst\u00f6\u00f0um \u00ed N-M\u00falas\u00fdslu svo sem fram hefur komi\u00f0.<\/p>\n<p>Svo eini s\u00e9nsinn til a\u00f0 sagan lj\u00fafa um Sigr\u00ed\u00f0i sem fer me\u00f0 hir\u00f0mey Viktor\u00edu drottningar \u00ed heims\u00f3kn til m\u00f6mmu sinnar gangi upp er a\u00f0 Sigr\u00ed\u00f0ur hafi teki\u00f0 laf\u00f0i Emily Cathcart me\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 hitta m\u00f6mmu sumari\u00f0 1879 og Gu\u00f0r\u00fan hafi \u00fea\u00f0 sumari\u00f0 sent fingravettlingapar me\u00f0 henni Emily til Viktor\u00edu. \u00dear me\u00f0 komst Viktor\u00eda drottning \u00e1 brag\u00f0i\u00f0 me\u00f0 \u00edslenska fingravettlinga og var\u00f0 n\u00e1nast h\u00e1\u00f0 \u00feeim ef marka m\u00e1 or\u00f0 Sigr\u00ed\u00f0ar. \u00c1 hinn b\u00f3ginn geta menn spurt sig hversu l\u00edklegt \u00fea\u00f0 s\u00e9 a\u00f0 kona eins og Sigr\u00ed\u00f0ur Einarsd\u00f3ttir Magn\u00fasson hafi dregi\u00f0 me\u00f0 s\u00e9r hir\u00f0mey \u00e1 fund aldra\u00f0rar m\u00f3\u00f0ur sinnar, hvort Brekkub\u00e6r (sem var torfb\u00e6r) hafi \u00fe\u00e1 enn veri\u00f0 uppistandandi og \u00fe\u00e6r hist \u00fear o.s.fr.<\/p>\n<p>M\u00e1 b\u00e6ta \u00fev\u00ed vi\u00f0 a\u00f0 \u00feetta ekki eina hir\u00f0m\u00e6rin sem Sigr\u00ed\u00f0ur Einarsd\u00f3ttir Magn\u00fasson og afkomendur \u00ed fj\u00f6lskyldu hennar hafa tengt \u00e6ttina vi\u00f0 \u00fev\u00ed \u00ed n\u00fdlegri \u00e6vis\u00f6gu Haraldar N\u00edelssonar segir um Soff\u00edu Einarsd\u00f3ttur, systur Sigr\u00ed\u00f0ar:<\/p>\n<blockquote><p>Soff\u00eda haf\u00f0i dvali\u00f0 langdv\u00f6lum \u00ed Englandi \u00e1 vegum systur sinnar og forframast \u00fear \u00ed si\u00f0um f\u00edna f\u00f3lksins, me\u00f0al annars veri\u00f0 \u00ed vist hj\u00e1 fyrrverandi hir\u00f0mey Viktor\u00edu drottningar.<a href=\"#23\"><sup>23<\/sup><\/a><\/p><\/blockquote>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>Ni\u00f0ursta\u00f0an<\/strong><\/p>\n<p>Engar heimildir a\u00f0rar en \u00feessi skemmtilega k\u00fanstbr\u00f3dera\u00f0a saga Sigr\u00ed\u00f0ar Einarsd\u00f3ttur Magn\u00fasson eru fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 Viktor\u00eda drottning e\u00f0a tengdad\u00f3ttir hennar, Alexandra prinsessa af Wales, hafi nokkru sinni kl\u00e6\u00f0st \u00edslenskum fingravettlingum. Svo sem raki\u00f0 er h\u00e9r a\u00f0 ofan vir\u00f0ist \u00feessi saga vera uppspuni til \u00feess, annars vegar, a\u00f0 varpa lj\u00f3ma \u00e1 Sigr\u00ed\u00f0i sj\u00e1lfa og \u00e6ttingja hennar, hins vegar sem li\u00f0ur \u00ed marka\u00f0ssetningu Sigr\u00ed\u00f0ar \u00e1 \u00edslensku handverki. S\u00fa marka\u00f0ssetning mist\u00f3kst.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er svo margt \u00ed s\u00f6gu Sigr\u00ed\u00f0ar Einarsd\u00f3ttur Magn\u00fasson sem er \u00e1hugavert og gefur \u00feessari fingravettlingas\u00f6gu l\u00edti\u00f0 eftir a\u00f0 \u00e9g hyggst skrifa fleiri pistla um hana, t.d. um silfurs\u00f6fnun, -s\u00f6lu og -s\u00fdningar hennar, fyrirlestra \u00e1 erlendri grundu, kvennask\u00f3lann sem h\u00fan reyndi a\u00f0 koma \u00e1 f\u00f3t \u00ed Reykjav\u00edk, fer\u00f0al\u00f6g hennar o.fl. Kannski er \u00fe\u00f3 mest spennandi a\u00f0 sko\u00f0a hvernig Sigr\u00ed\u00f0ur skapa\u00f0i gl\u00e6silega \u00edmynd af s\u00e9r \u00far litlu og hvernig fari\u00f0 er a\u00f0 dusta ryki\u00f0 af \u00feeirri glansmynd n\u00fa um stundir, jafnvel b\u00e6ta enn \u00ed glj\u00e1ann.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>Heimildir sem v\u00edsa\u00f0 er til<\/strong><\/p>\n<p><a title=\"1\" name=\"1\"><\/a>1 Sigr\u00fan P\u00e1lsd\u00f3ttir. (2010). <em>\u00de\u00f3ra biskups og raunir \u00edslenskrar emb\u00e6ttismannast\u00e9ttar 1847-1917<\/em>. JPV \u00fatg\u00e1fa, Reykjav\u00edk, s. 108.<\/p>\n<p><a title=\"2\" name=\"2\"><\/a>2 Gu\u00f0mundur Magn\u00fasson. (1908) <a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pageId=2290646\">Eir\u00edkur Magn\u00fasson heim a\u00f0 s\u00e6kja<\/a>. <em>\u00d3\u00f0inn 3<\/em>(11), s. 91.<\/p>\n<p><a title=\"3\" name=\"3\"><\/a>3 Stef\u00e1n Einarsson. (1933). <em>Saga Eir\u00edks Magn\u00fassonar \u00ed Cambridge<\/em>. \u00cdsafoldarprentsmi\u00f0ja, Reykjav\u00edk, s. 317. Stef\u00e1n skrifa\u00f0i b\u00f3kina \u00e1 \u00e1runum 1924-25 og var hans fyrsta verk \u00ed heimildas\u00f6fnun a\u00f0 fara \u00e1 fund erfingja \u00feeirra hj\u00f3na, Sigr\u00ed\u00f0ar Gunnarsson, systurd\u00f3ttur Sigr\u00ed\u00f0ar, og f\u00f6\u00f0ur hennar. Lei\u00f0r\u00e9tting Stef\u00e1ns \u00e1 hverjum Viktor\u00eda drottning sendi hina \u00e1ritu\u00f0u mynd af s\u00e9r hl\u00fdtur a\u00f0 vera bygg\u00f0 \u00e1 munnlegum heimildum fr\u00e1 \u00feeim. Sigr\u00ed\u00f0ur dvaldi hj\u00e1 Eir\u00edki og Sigr\u00ed\u00f0i fr\u00e1 1906 til \u00feess sem \u00feau \u00e1ttu \u00f3lifa\u00f0; Eir\u00edkur l\u00e9st 1913 en Sigr\u00ed\u00f0ur 1915. Vi\u00f0 \u00feetta m\u00e6tti b\u00e6ta a\u00f0 \u00fea\u00f0 er einkennilegt a\u00f0 einungis \u00e1ratug eftir l\u00e1t Sigr\u00ed\u00f0ar hafi \u00feessi merkilega \u00e1rita\u00f0a mynd Viktor\u00edu veri\u00f0 gl\u00f6tu\u00f0 og mikill ska\u00f0i a\u00f0 &#8211; hafi myndin s\u00fa veri\u00f0 ekta og sagan s\u00f6nn.<\/p>\n<p><a title=\"4\" name=\"4\"><\/a>4 Gu\u00f0mundur \u00c1rnason. (1920). <a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pageId=5680758\">Eir\u00edkur Magn\u00fasson<\/a>. <em>T\u00edmarit \u00dej\u00f3\u00f0r\u00e6knisf\u00e9lags \u00cdslendinga 2<\/em>(1). Winnipeg, Maniboba, s. 28-35. Bein tilvitnun er \u00e1 s. 35 \u00ed \u00feessari grein og kr\u00e6kir greinarheiti\u00f0 \u00ed \u00fe\u00e1 s\u00ed\u00f0u.<\/p>\n<p><a title=\"5\" name=\"5\"><\/a>5 Stef\u00e1n Einarsson. (1933), s. 317.<\/p>\n<p><a title=\"6\" name=\"6\"><\/a>6 Sigr\u00fan P\u00e1lsd\u00f3ttir. (2010), s. 125.<\/p>\n<p><a title=\"7\" name=\"7\"><\/a>7 <a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pageId=2044989\">I\u00f0na\u00f0ars\u00fdningin \u00ed Reykjav\u00edk<\/a>. (1884). <em>Fr\u00e9ttir fr\u00e1 \u00cdslandi 1883<\/em> 10(1) s. 37.<\/p>\n<p><a title=\"8\" name=\"8\"><\/a>8 Sj\u00e1 <a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pageId=3940510\"><em>\u00cdsafold<\/em><\/a> 22. sept. 1883, s. 96 e\u00f0a <a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pageId=2134724\"><em>Fr\u00f3\u00f0a<\/em><\/a> 12.09.1883, s. 286-288 og <a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pageId=2134732\"><em>Fr\u00f3\u00f0a<\/em><\/a> 09.10.1883, s. 310-312.<\/p>\n<p><a title=\"9\" name=\"9\"><\/a>9 Sj\u00e1 <a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pageId=3940510\"><em>\u00cdsafold<\/em><\/a> 22. sept. 1883, s. 96. Gu\u00f0r\u00fan \u00d3lafsd\u00f3ttir finnst ekki \u00ed mannt\u00f6lum eftir 1870. H\u00fan var f\u00e6dd 1805 og var \u00fev\u00ed h\u00e1tt \u00e1 \u00e1ttr\u00e6\u00f0isaldri \u00feegar h\u00fan f\u00e9kk \u00feessi ver\u00f0laun fyrir fingravettlingana. L\u00edklega hefur Brekkub\u00e6r \u00ed Reykjav\u00edk \u00fe\u00e1 veri\u00f0 a\u00f0 hruni kominn, jafnvel hruninn (h\u00fasi\u00f0 finnst ekki \u00ed manntali 1880). \u00c1 Ormarst\u00f6\u00f0um \u00ed Fellum, N-M\u00falas\u00fdslu, bjuggu \u00e1ri\u00f0 1883 \u00feau \u00de\u00f3rvar\u00f0ur Kjer\u00falf h\u00e9ra\u00f0sl\u00e6knir og kona hans Kar\u00f3l\u00edna Kristjana Einarsd\u00f3ttir, sem l\u00e9st \u00ed desember \u00e1ri\u00f0 1883. Kar\u00f3l\u00edna var d\u00f3tturd\u00f3ttir Gu\u00f0r\u00fanar svo \u00fea\u00f0 er ekki \u00f3l\u00edklegt a\u00f0 gamla konan hafi fengi\u00f0 a\u00f0 dvelja hj\u00e1 henni \u00ed ellinni. Skv. manntali 1880 dvaldi \u00e1 fj\u00f6lmennu heimili \u00feeirra \u00de\u00f3rvar\u00f0ar og Kar\u00f3l\u00ednu Kristj\u00f6nu Mar\u00eda Einarsd\u00f3ttir, m\u00f3\u00f0ir Kar\u00f3l\u00ednu og d\u00f3ttir Gu\u00f0r\u00fanar, sem \u00fe\u00e1 var or\u00f0in ekkja. \u00cd s\u00f6mu s\u00f3kn bj\u00f3 \u00f6nnur d\u00f3ttir Gu\u00f0r\u00fanar \u00e1 \u00feessum t\u00edma, Soff\u00eda Emel\u00eda Einarsd\u00f3ttir, en s\u00fa var gift Sigur\u00f0i Gunnarssyni, prestinum \u00ed \u00c1si \u00ed Fellum. \u00deau bjuggu \u00ed \u00c1si og \u00e1 Val\u00fej\u00f3fsst\u00f6\u00f0um fr\u00e1 1879-1894.<\/p>\n<p><a title=\"10\" name=\"10\"><\/a>10 <a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pageId=2044990\">I\u00f0na\u00f0ars\u00fdningin \u00ed Reykjav\u00edk<\/a>. (1884). <em>Fr\u00e9ttir fr\u00e1 \u00cdslandi 1883 10<\/em>(1) s. 38.<\/p>\n<p>\u00cd <a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pageId=3940491\">\u00cd<em>safold<\/em><\/a> 22. \u00e1g\u00fast 1883, s. 77, segir a\u00f0 d\u00f3mnefndin hafi veri\u00f0 skipu\u00f0 \u201e2 fr\u00fam \u00far Reykjav\u00edk og 5 al\u00feingism\u00f6nnum. \u00dea\u00f0 var landsh\u00f6f\u00f0ingjafr\u00fa Elinborg Thorberg [systir \u00de\u00f3ru], amtmannsfr\u00fa Kristjana Havstein; J\u00f3n Sigur\u00f0sson forseti [vinur Eir\u00edks Magn\u00fassonar, eiginmanns Sigr\u00ed\u00f0ar] , s\u00edra Benidikt Kristj\u00e1nsson, Einar \u00c1smundsson, Sighvatur \u00c1rnason og Tryggvi Gunnarsson [br\u00f3\u00f0ir Kristj\u00f6nu].\u201c<\/p>\n<p><a title=\"11\" name=\"11\"><\/a>11 <a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pageId=2027973\"><em>\u00dej\u00f3\u00f0\u00f3lfur<\/em><\/a> 29.09.1883, s. 113.<\/p>\n<p><a title=\"12\" name=\"12\"><\/a>12 <a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pageId=2028203\">Fr\u00e1 hannyr\u00f0as\u00fdningunni \u00edslenzku \u00ed London<\/a>. <em>\u00dej\u00f3\u00f0\u00f3lfur <\/em>29. n\u00f3v. 1884, s. 181-183. Eftir langa umfj\u00f6llun um hannyr\u00f0irnar v\u00edkur a\u00f0 deilum Sigr\u00ed\u00f0ar og d\u00f3mnefndar \u00feessarar s\u00fdningar. \u00cdslenska prj\u00f3nlesi\u00f0 og hitt d\u00f3ti\u00f0 f\u00e9kk nefnilega bara bronsver\u00f0laun og \u00fev\u00ed undi Sigr\u00ed\u00f0ur ekki! \u00cd br\u00e9faskiptum milli hennar og d\u00f3mnefndar reyndi nefndin m.a. a\u00f0 verjast me\u00f0 \u00fev\u00ed benda \u00e1 a\u00f0 \u201evinnan fr\u00e1 \u00cdslandi hef\u00f0i d\u00f3mnefndin eigi geta\u00f0 s\u00e9\u00f0 a\u00f0 heyr\u00f0i undir \u201eHeilsu\u201c enn \u00fea\u00f0 v\u00e6ri \u00fe\u00f3 a\u00f0al-atri\u00f0i\u00f0.\u201c Sigr\u00ed\u00f0ur f\u00e9llst n\u00fa aldeilis ekki \u00e1 \u00feau r\u00f6k og eftir a\u00f0 hafa dengt fleiri br\u00e9fum yfir d\u00f3mnefndina f\u00f3r h\u00fan me\u00f0 sigur af h\u00f3lmi \u00fev\u00ed aftan vi\u00f0 l\u00f6ngu umfj\u00f6llunina er b\u00e6tt vi\u00f0: \u201eskeytt vi\u00f0 hra\u00f0fr\u00e9tt dags. 12 n\u00f3v. fr\u00e1 hr. E.M.: \u00cdslands hannyr\u00f0ir hafa fengi\u00f0 beztu ver\u00f0laun (hei\u00f0rs-dipl\u00f3ma\u201c (s. 183).<\/p>\n<p><a title=\"13\" name=\"13\"><\/a>13 The Prince and Princess of Wales in Edinburgh. <em>The Times<\/em> 15. okt. 1886, s. 6.<\/p>\n<p><a title=\"14\" name=\"14\"><\/a>14 Sigr\u00ed\u00f0ur E. Magn\u00fasson. <a href=\"http:\/\/digital.library.upenn.edu\/women\/eagle\/congress\/magnusson.html\">A Sketch of &#8220;Home-Life in Iceland.&#8221;<\/a>. (1894). <em>The Congress of Women: Held in the Woman&#8217;s Building, World&#8217;s Columbian Exposition, Chicago, U. S. A., 1893<\/em>. Ritstj\u00f3ri Eagle, Mary Kavanaugh Oldham. Monarch Book Company, Chicago, s. 521-525.<\/p>\n<p><a title=\"15\" name=\"15\"><\/a>15 For Icelandic Girls. A School soon to be Established for Their Higher Education. <em>The New York Times<\/em> 19. n\u00f3v. 1893, s. 13.<\/p>\n<p><a title=\"16\" name=\"16\"><\/a>16 <a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pageId=2137807\">\u00cdslenzkir munir \u00e1 Chigago s\u00fdningunni<\/a>. <em>Fjallkonan<\/em> 5. sept. 1893, s. 142.<\/p>\n<p><a title=\"17\" name=\"17\"><\/a>17 Uppl\u00fdsingar um laf\u00f0i Emily Sarah Cathcart m\u00e1 m.a. sj\u00e1 \u00ed <a href=\"https:\/\/archive.org\/stream\/StrandMagazine56\/Strand56#page\/n74\/mode\/1up\">Strand Magazine nr. 56<\/a>, \u00e1g\u00fast 1895, s. 196-7 og \u00ed l\u00f6ngum lista sem afrita\u00f0ur er \u00e1 umr\u00e6\u00f0ubor\u00f0i, <a href=\"http:\/\/boards.ancestry.ca\/topics.royalty.links\/202.1.1.1.1\/mb.ashx\">Re: Ladies in waiting to Queen Victoria<\/a>, m\u00e1 sj\u00e1 hva\u00f0a hlutverki h\u00fan gegndi \u00e1 mismunandi t\u00edmum (hversu h\u00e1tt sett h\u00fan var \u00ed hir\u00f0meyjafansi drottningar).<\/p>\n<p><a title=\"18\" name=\"18\"><\/a>18. Oswald, E.J. (1882). <a href=\"https:\/\/archive.org\/stream\/byfellandfjordo01oswagoog#page\/n7\/mode\/2up\"><em>By Fell and Fjord; Or, Scenes and Studies in Iceland<\/em><\/a>. W. Blackwood and sons, Edinburgh og London. Emily Sarah Cathcart er geti\u00f0 \u00e1 <a href=\"https:\/\/archive.org\/stream\/byfellandfjordo00oswagoog#page\/n152\/mode\/1up\/search\/1878\">s. 108<\/a>, sem fer\u00f0af\u00e9laga Oswald um \u00cdsland 1878, en \u00ed hinum tveimur \u00cdslandsfer\u00f0um h\u00f6fundar, \u00e1rin 1875 og 1879 var skosk kona, Miss Menzies fer\u00f0af\u00e9lagi hennar.<\/p>\n<p><a title=\"19\" name=\"19\"><\/a>19 Stef\u00e1n Einarsson. (1933), s. 317.<\/p>\n<p><a title=\"20\" name=\"20\"><\/a>20 Sj\u00e1 <a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pageId=3939983\"><em>\u00cdsafold<\/em><\/a> 4. sept. 1879, s. 88 og <a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pageId=2027438\"><em>\u00dej\u00f3\u00f0\u00f3lf<\/em><\/a> 18. sept. 1879, s. 98.<\/p>\n<p><a title=\"21\" name=\"21\"><\/a>21 Sigr\u00fan P\u00e1lsd\u00f3ttir. (2010), s. 110<\/p>\n<p><a title=\"22\" name=\"22\"><\/a>22 Distress in Iceland. <em>The Times<\/em> 17. \u00e1g\u00fast 1882, s. 5.<\/p>\n<p><a title=\"23\" name=\"23\"><\/a>23 P\u00e9tur P\u00e9tursson. (2011). <em>Tr\u00fama\u00f0ur \u00e1 t\u00edmam\u00f3tum. \u00c6visaga Haraldar N\u00edelssonar<\/em>. Hi\u00f0 \u00edslenska b\u00f3kmenntaf\u00e9lag, Reykjav\u00edk, s. 104.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>H\u00e9r segir af ofurlitlu gr\u00faski undanfari\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed skyni a\u00f0 kanna meintan \u00e1huga Viktor\u00edu Bretadrottningar \u00e1 \u00edslenskum fingravettlingum, sem allt bendir til a\u00f0 s\u00e9 haganlega tilb\u00fain lygasaga sem hver etur upp eftir \u00f6\u00f0rum enn \u00feann <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2014\/04\/27\/fingravettlingar-viktoria-drottning-dularfullar-hirdmeyjar-og-hagraeding-sannleikans\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-984","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/984","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=984"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/984\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":986,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/984\/revisions\/986"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=984"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=984"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=984"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}