{"id":988,"date":"2014-04-27T22:38:52","date_gmt":"2014-04-27T22:38:52","guid":{"rendered":"http:\/\/www.harpahreins.com\/blogg\/?p=988"},"modified":"2014-04-27T22:38:52","modified_gmt":"2014-04-27T22:38:52","slug":"hun-sigridur-og-hann-eirikur","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2014\/04\/27\/hun-sigridur-og-hann-eirikur\/","title":{"rendered":"H\u00fan Sigr\u00ed\u00f0ur &#8230; og hann Eir\u00edkur &#8230;"},"content":{"rendered":"<p>N\u00fa er \u00e9g or\u00f0in d\u00e1l\u00edti\u00f0 lei\u00f0 \u00e1 Sigr\u00ed\u00f0i Einarsd\u00f3ttur Magn\u00fasson og hennar famil\u00edu, eftir mikinn lestur um \u00fea\u00f0 slekti. Og af \u00fev\u00ed \u00e9g veit a\u00f0 Sigr\u00fan P\u00e1lsd\u00f3ttir sagnfr\u00e6\u00f0ingur er a\u00f0 skrifa um \u00feessa konu, \u00e1rei\u00f0anlega af sagnfr\u00e6\u00f0ilegri n\u00e1kv\u00e6mni, \u00e1kva\u00f0 \u00e9g a\u00f0 h\u00e6tta a\u00f0 leika sagnfr\u00e6\u00f0ing me\u00f0 tilv\u00edsunum \u00ed lok hverrar m\u00e1lsgreinar. \u00deessi f\u00e6rsla er framhald af <a title=\"fingravettlingar og Viktor\ufffda drottning\" href=\"http:\/\/harpa.blogg.is\/2014-04-18\/fingravettlingar-viktoria-drottning-dularfullar-hirdmeyjar-og-hagraeding-sannleikans\/\">Fingravettlingar, Viktor\u00eda drottning, dularfullar hir\u00f0meyjar og hagr\u00e6\u00f0ing sannleikans<\/a>.<\/p>\n<p><strong>Hvers lags kona var Sigr\u00ed\u00f0ur?<\/strong><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" alt=\"Sigr\ufffd\u00f0ur Einarsd\u00f3ttir Magn\u00fasson\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/sigridur_ung.jpg?resize=261%2C310\" width=\"261\" height=\"310\" align=\"right\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" \/>Sigr\u00ed\u00f0ur Einarsd\u00f3ttir f\u00e6ddist \u00e1ri\u00f0 1831 og var af alm\u00fagaf\u00f3lki komin; fa\u00f0ir hennar var \u201eassistent\u201c (l\u00edklega afgrei\u00f0sluma\u00f0ur \u00ed verslun) og hattamakari (hattager\u00f0arma\u00f0ur), \u00e6tta\u00f0ur \u00far Skaftafellss\u00fdslum. M\u00f3\u00f0ir hennar var ein fj\u00f6lmargra barna \u00d3lafs Loftssonar, sem hann \u00e1tti hvert me\u00f0 sinni konunni. \u00deau endurreistu torfb\u00e6inn Brekkub\u00e6 \u00ed Reykjav\u00edk og \u00fear \u00f3lst Sigr\u00ed\u00f0ur upp, \u00e1samt tveimur systrum og einum br\u00f3\u00f0ur. Til a\u00f0 dr\u00fdgja tekjur heimilisins haf\u00f0i Gu\u00f0r\u00fan, m\u00f3\u00f0ir Sigr\u00ed\u00f0ar, sk\u00f3lapilta \u00ed f\u00e6\u00f0i og var einn \u00feeirra Eir\u00edkur Magn\u00fasson. \u00deannig kynntust \u00feau Sigr\u00ed\u00f0ur, t\u00f3kust me\u00f0 \u00feeim \u00e1stir og \u00feau tr\u00falofu\u00f0u sig 1856, \u00feegar Eir\u00edkur haf\u00f0i loki\u00f0 st\u00fadentspr\u00f3fi 23 \u00e1ra gamall, og giftust \u00e1ri\u00f0 eftir.<\/p>\n<p>Sem ung kona var Sigr\u00ed\u00f0ur vins\u00e6l og h\u00e9lt uppi stu\u00f0inu \u00ed henni Reykjav\u00edk, a.m.k. me\u00f0al sk\u00f3lapilta og menntamanna. H\u00fan var \u201efj\u00f6rug og g\u00e1fu\u00f0, l\u00e9k \u00e1 g\u00edtar og s\u00f6ng vel &#8230; \u00de\u00e1 var Brekkub\u00e6r l\u00edti\u00f0 kot og d\u00e1l\u00edtil stofa e\u00f0a h\u00fas ni\u00f0ri; \u00fear komum vi\u00f0 oft saman og var \u00fe\u00e1 glatt \u00e1 hjalla\u201c, segir Benedikt Gr\u00f6ndal \u00ed <em>D\u00e6gradv\u00f6l<\/em>, s. 206 (tilv. \u00ed Stef\u00e1n Einarsson. 1933, s. 13.).<\/p>\n<p>Benedikt Gr\u00f6ndal l\u00e9k einmitt \u00e1 m\u00f3ti Sigr\u00ed\u00f0i \u00ed leikriti sem h\u00e9t <em>Pakk<\/em> og var sett upp 1854. H\u00fan var nefnilega fyrsta alv\u00f6ru leikkonan \u00ed Reykjav\u00edk, var \u201ehin fyrsta \u201eprimadonna\u201c \u00feessa b\u00e6jar, og haf\u00f0i enda alla tilbur\u00f0i \u00fear til, g\u00e1fur, fegur\u00f0 og gl\u00e6sileik [&#8230;]\u201f. \u00cd skr\u00e1 yfir leikendur \u00ed <em>Pakk<\/em>(<em>i?<\/em>) er Sigr\u00ed\u00f0ur k\u00f6llu\u00f0 Sigga Tipp, sem kannski hefur veri\u00f0 vi\u00f0urnefni hennar. (L.G. 1939 (2)7, s. 17. og sami 1939 (2)8, s. 5.)<\/p>\n<p>Myndin af Sigr\u00ed\u00f0i er <a title=\"Sigr\ufffd\u00f0ur E. Magn\u00fasson\" href=\"http:\/\/sarpur.is\/Adfang.aspx?AdfangID=894297\">\u00farklippa \u00far mynd sem var\u00f0veitt er \u00ed <em>Sarpi<\/em><\/a>, gagnasafni \u00dej\u00f3\u00f0minjasafnsins.<\/p>\n<p>Hvernig breyttist s\u00fa fj\u00f6ruga og skemmtilega Sigga Tipp \u00ed braskarann og skrumarann og snobbarann Sigr\u00ed\u00f0i Einarsd\u00f3ttur Magn\u00fasson? Til \u00feess a\u00f0 skilja \u00fea\u00f0 \u00fearf a\u00f0 sko\u00f0a hj\u00f3naband hennar og athafnasemi eiginmannsins.<\/p>\n<p><strong>A\u00f0 meika \u00fea\u00f0 \u00ed \u00fatl\u00f6ndum<\/strong><\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" alt=\"Eir\ufffdkur Magn\u00fasson \ufffd Cambridge\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/eirikur.jpg?resize=242%2C297\" width=\"242\" height=\"297\" align=\"left\" border=\"1\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" \/>Eir\u00edkur dreif sig \u00ed Prestask\u00f3lann og lauk n\u00e1mi \u00fea\u00f0an 1859, \u00e1 me\u00f0an s\u00e1 Sigr\u00ed\u00f0ur a\u00f0 talsver\u00f0u leyti fyrir \u00feeim me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 kenna \u00e1 g\u00edtar. \u00deau eignu\u00f0ust barn flj\u00f3tlega eftir giftinguna en \u00fea\u00f0 f\u00e6ddist andvana. (Einhvern t\u00edma s\u00ed\u00f0ar eignu\u00f0ust \u00feau anna\u00f0 barn sem einnig f\u00e6ddist andvana, eftir \u00fea\u00f0 var hj\u00f3naband \u00feeirra barnlaust.) (Stef\u00e1n Einarsson. 1933, s. 15.)<\/p>\n<p>\u00deau Eir\u00edkur og Sigr\u00ed\u00f0ur bjuggu \u00ed Reykjav\u00edk fyrstu fj\u00f6gur \u00e1rin eftir a\u00f0 \u00feau giftust. En vori\u00f0 1862 fluttu \u00feau til London og vi\u00f0 t\u00f3k mesta basl n\u00e6stu \u00e1rin. Eir\u00edkur haf\u00f0i stopula vinnu og af \u00fev\u00ed hann var \u00e1kve\u00f0inn \u00ed a\u00f0 \u201emeika \u00fea\u00f0\u201c, \u00fe.e.a.s. vera talinn \u00ed h\u00f3pi menntamanna og f\u00edna f\u00f3lksins \u00ed Englandi, gat hann ekki einu sinni \u00feegi\u00f0 suma vinnu sem honum \u00fe\u00f3 bau\u00f0st \u00fev\u00ed vinnan var ekki n\u00f3gu f\u00edn. (Stef\u00e1n Einarsson. 1933, s. 80.) Alls konar brask hans n\u00e6stu \u00e1rin mist\u00f3kst yfirleitt. Til a\u00f0 skilja athafnir Sigr\u00ed\u00f0ar seinna meir er nau\u00f0synlegt a\u00f0 nefna nokku\u00f0 af braski og brambolti Eir\u00edks \u00fev\u00ed l\u00edklega f\u00e9kk h\u00fan fyrirmynd a\u00f0 \u00fdmsu \u00fear.<\/p>\n<p>Myndin af Eir\u00edki er <a title=\"Eir\ufffdkur Magn\u00fasson \ufffd Cambridge\" href=\"http:\/\/sarpur.is\/Adfang.aspx?AdfangID=891248\">\u00farklippa \u00far mynd sem var\u00f0veitt er \u00ed <em>Sarpi<\/em><\/a>, gagnasafni \u00dej\u00f3\u00f0minjasafnsins.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 var\u00f0 \u00feeim hj\u00f3num til happs a\u00f0 samskipa \u00feeim til Englands vori\u00f0 1862 var enskur st\u00fadent, George J. E. Powell, sem haf\u00f0i fer\u00f0ast um \u00cdsland um sumari\u00f0 og haf\u00f0i \u00f3\u00ferj\u00f3tandi \u00e1huga \u00e1 \u00f6llu \u00fev\u00ed sem \u00edslenskt var (s.s. var \u00ed t\u00edsku me\u00f0al menntamanna \u00e1 Englandi \u00e1 Viktor\u00edut\u00edmunum; Annars vegar tengdist \u00feetta r\u00f3mant\u00edskum \u00e1huga \u00e1 fornb\u00f3kmenntum, hins vegar \u00fe\u00f3tti \u00cdsland ex\u00f3t\u00edskt land og \u00fe.a.l. eftirst\u00f3knarvert til heims\u00f3kna). Hann George Powell reyndist sterkefna\u00f0ur og f\u00f3r svo a\u00f0 hann h\u00e9lt \u00feeim Eir\u00edki og Sigr\u00ed\u00f0i uppi \u00ed Frakklandi og \u00de\u00fdskalandi \u00e1 \u00e1runum 1864-66. \u00dear dundu\u00f0u \u00feeir s\u00e9r vi\u00f0 or\u00f0ab\u00f3karger\u00f0 og <a title=\"\u00fe\u00fd\u00f0ing \u00e1 \u00dej\u00f3\u00f0s\u00f6gum J\u00f3ns \u00c1rnasonar\" href=\"https:\/\/archive.org\/details\/icelandiclegend00magngoog\">\u00fe\u00fd\u00f0ingar \u00e1 \u00dej\u00f3\u00f0s\u00f6gum J\u00f3ns \u00c1rnasonar<\/a> o.fl. og Eir\u00edkur l\u00e6r\u00f0i \u00edslenska m\u00e1lfr\u00e6\u00f0i. Or\u00f0ab\u00f3karsm\u00ed\u00f0inni var sj\u00e1lfh\u00e6tt \u00feegar Eir\u00edkur fr\u00e9tti a\u00f0 Gu\u00f0brandur Vigf\u00fasson v\u00e6ri langt kominn \u00ed vinnu vi\u00f0 og \u00fatg\u00e1fu \u00e1 <a title=\"Or\u00f0ab\u00f3k Cleasby og Vigf\u00fasson\" href=\"https:\/\/archive.org\/details\/icelandicenglish00cleauoft\">or\u00f0ab\u00f3k Cleasby<\/a> en \u00fej\u00f3\u00f0sagna\u00fe\u00fd\u00f0ingin var gefin \u00fat.<\/p>\n<p>\u00deegar rann upp fyrir Eir\u00edki hve au\u00f0ugur fa\u00f0ir Georges Powell var og a\u00f0 George mundi einn erfa hann h\u00f3f hann a\u00f0 tala \u00feennan vin sinn (og framf\u00e6randa) inn \u00e1 a\u00f0 fj\u00e1rmagna h\u00e1sk\u00f3la \u00e1 \u00cdslandi. Um \u00feetta skrifar Eir\u00edkur vini s\u00ednum, J\u00f3ni Sigur\u00f0ssyni [forseta] \u00ed Kaupmannah\u00f6fn, \u00feann 3. j\u00fan\u00ed 1864 og segir m.a.:<\/p>\n<blockquote><p>N\u00fa ber svo til a\u00f0 fa\u00f0ir vinar m\u00edns, &#8230; vellau\u00f0ugur &#8230;, er a\u00f0 kve\u00f0ja ver\u00f6ldina, en sonur hans, einberni tekur vi\u00f0 \u00f6llum arfinum, 300 j\u00f6r\u00f0um, sem gefa af s\u00e9r 12-14000 punda \u00e1 \u00e1ri. Eg \u00e6tla \u00fev\u00ed a\u00f0 treysta \u00e1 gjaflyndi hans, \u00feegar s\u00e1 gamli er hrokkinn af klakknum [- &#8211; -] Eg b\u00fdst alls ekki vi\u00f0, a\u00f0 hann gefi alt, er gefa \u00fearf. En ef hann g\u00e6fi \u00f6rt, \u00fe\u00e1 yr\u00f0i h\u00e6gra a\u00f0 afla hins me\u00f0 subscribtionum \u00e1 Englandi &#8230;.<\/p>\n<p>(Stef\u00e1n Einarsson. 1933, s. 40.)<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00deessi \u00e1g\u00e6tu pl\u00f6n voru au\u00f0vita\u00f0 h\u00e1\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 pabbi Georges r\u00e6ki upp t\u00e6rnar sem fyrst. En \u00fev\u00ed mi\u00f0ur (fyrir Eir\u00edk) t\u00f3r\u00f0i gamli ma\u00f0urinn \u00e1fram og ekkert var\u00f0 \u00far hinni st\u00f3rfenglegu gj\u00f6f\/hinum st\u00f3rfenglegu sn\u00edkjum til a\u00f0 fj\u00e1rmagna h\u00e1sk\u00f3lastofnun \u00e1 \u00cdslandi.<\/p>\n<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" alt=\"George Powell\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/powell.jpg?resize=199%2C233\" width=\"199\" height=\"233\" align=\"left\" border=\"1\" hspace=\"7\" vspace=\"7\" \/>Hins vegar \u00e1tti George Powell talsvert eftir af m\u00f3\u00f0urarfi s\u00ednum og Eir\u00edki t\u00f3kst a\u00f0 f\u00e1 hann til a\u00f0 grei\u00f0a fyrir \u00cdslandss\u00f6gu \u00ed sex bindum, sem J\u00f3n Sigur\u00f0sson \u00e1tti a\u00f0 skrifa. Powell reiddi fram f\u00e9\u00f0, 600 pund, en um \u00fe\u00e1 sagnaritun f\u00f3r \u00e1takanlega svipa\u00f0 og um sagnaritun Akraneskaupsta\u00f0ar l\u00f6ngu seinna: J\u00f3n Sigur\u00f0sson \u00fe\u00e1\u00f0i launin, Eir\u00edkur f\u00e9kk 100 pund af \u00feeim, en svo b\u00f3la\u00f0i ekkert \u00e1 \u00cdslandss\u00f6gunni. \u00c1tta \u00e1rum seinna reyndi Powell a\u00f0 rukka J\u00f3n Sigur\u00f0sson um s\u00f6guna, \u00fe.e. \u00f3ska\u00f0i eftir greinarger\u00f0 um sagnaritunina. J\u00f3n sendi langt afs\u00f6kunarbr\u00e9f og t\u00edndi til \u00fdmsar orsakir til tafarinnar, taldi sig t.d. ekki geta byrja\u00f0 a\u00f0 skrifa af \u00fev\u00ed margt v\u00e6ri enn \u00f3rannsaka\u00f0 o.s.fr. Eir\u00edkur Magn\u00fasson \u00fatsk\u00fdr\u00f0i m\u00e1lin fyrir Powell, sem gafst upp og gaf eftir f\u00e9\u00f0 og J\u00f3n Sigur\u00f0sson \u201el\u00e1na\u00f0i\u201c Eir\u00edki vini s\u00ednum 100 pund fyrir vi\u00f0viki\u00f0. (Stef\u00e1n Einarsson. 1933, s. 50-54.) Og segir ekki meir af vinskap \u00feeirra Eir\u00edks og Powell, raunar vir\u00f0ist hafa slitna\u00f0 sundur me\u00f0 \u00feeim um \u00fea\u00f0 leyti sem m\u00f3\u00f0urarfur Powell t\u00f3k mj\u00f6g a\u00f0 ey\u00f0ast og fa\u00f0ir hans virtist \u00e1fram \u00f3drepandi \u00fer\u00e1tt fyrir \u00fdmsan krankleik.<\/p>\n<p>Myndin til vinstri er af George Powell.<\/p>\n<p>Af \u00f6\u00f0ru sem Eir\u00edkur t\u00f3k s\u00e9r fyrir hendur m\u00e1 nefna a\u00f0 beita s\u00e9r fyrir s\u00f6lu \u00edslensks fj\u00e1r til Englands. \u00c1ri\u00f0 1866 haf\u00f0i hann gert samning annars vegar vi\u00f0 kaupmenn \u00e1 Englandi, hins vegar vi\u00f0 b\u00e6ndur \u00e1 Nor\u00f0ur- og Austurlandi um kaup og s\u00f6lu \u00e1 \u00edslensku f\u00e9; leig\u00f0i skip, dreif sig til \u00cdslands um hausti\u00f0 og s\u00f3tti 2174 kindur \u00e1 Eskifir\u00f0i. Sj\u00e1lfsagt hefur \u00feeim veri\u00f0 \u00fe\u00e9tt stafla\u00f0 \u00ed skipi\u00f0. \u00c1 bakalei\u00f0inni ger\u00f0i snarvitlaust ve\u00f0ur svo st\u00f3r hluti fj\u00e1rins hryggbrotna\u00f0i, rota\u00f0ist og margbeinbrotna\u00f0i; var \u00fdldulyktin \u00far st\u00edunum or\u00f0in hro\u00f0aleg \u00feegar skipi\u00f0 n\u00e1lga\u00f0ist Katanes \u00fe\u00f3tt einhverjum skrokkum hafi tekist a\u00f0 kasta \u00fatbyr\u00f0is. A\u00f0 auki h\u00f6f\u00f0u menn gert sm\u00e1 mist\u00f6k sem uppg\u00f6tvu\u00f0ust \u00e1 bakalei\u00f0inni: \u00dea\u00f0 haf\u00f0i nefnilega gleymst a\u00f0 gera r\u00e1\u00f0 fyrir noth\u00e6fri pumpu til a\u00f0 d\u00e6la vatni \u00ed skj\u00f3lur handa skepnunum, svo sj\u00e1lfsagt drapst eitthva\u00f0 \u00far \u00feorsta. Til Newcastle, \u00feanga\u00f0 sem f\u00f6rinni var heiti\u00f0, komust 1100 fj\u00e1r lifandi og me\u00f0 l\u00edfsmarki, um 1000 fj\u00e1r hjarna\u00f0i vi\u00f0 \u00feegar \u00fea\u00f0 komst \u00e1 beit. Ofan \u00e1 aff\u00f6llin kom \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 f\u00e9\u00f0 seldist illa og \u00fe\u00e6r f\u00e1u rollur sem seldust voru keyptar fyrir miklu l\u00e6gra ver\u00f0 en \u00e1\u00e6tla\u00f0 haf\u00f0i veri\u00f0. Tap \u00e1 sau\u00f0as\u00f6lu Eir\u00edks var \u00fev\u00ed um 1200 pund, sem var g\u00edfurlegt f\u00e9, enda kalla\u00f0i hann sj\u00e1lfur \u00feetta \u201e\u00f3happalega byrjun\u201c \u00e1 sau\u00f0as\u00f6lu til Englands. (Stef\u00e1n Einarsson. 1933, s. 68-74)<\/p>\n<p>Fleira sem Eir\u00edki datt \u00ed hug um svipa\u00f0 leyti var a\u00f0 hefja innflutning \u00e1 m\u00e1lmum fr\u00e1 \u00cdslandi og a\u00f0 gerast n\u00e1mueigandi \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 \u00ed f\u00e9lagi vi\u00f0 s\u00e6nskan mann; \u00deeir stre\u00f0u\u00f0u \u00ed tv\u00f6 \u00e1r vi\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 Breta til fj\u00e1rmagna fyrirt\u00e6ki\u00f0 en t\u00f3kst ekki. Hann var meira a\u00f0 segja a\u00f0 hugsa um a\u00f0 flytja aftur til \u00cdslands og s\u00f3tti um st\u00f6\u00f0u d\u00f3mkirkjuprests \u00ed Reykjav\u00edk sumari\u00f0 1871 en f\u00e9kk ekki. (Stef\u00e1n Einarsson. 1933, s. 70-71 og 82).<\/p>\n<p>En &#8211; svo f\u00e9kk Eir\u00edkur fasta st\u00f6\u00f0u b\u00f3kavar\u00f0ar \u00ed Cambridge snemma vetrar 1871! \u00c1 m\u00f3ti honum s\u00f3ttu 78 manns og Eir\u00edkur haf\u00f0i enga reynslu af b\u00f3kas\u00f6fnum nema sem vi\u00f0skiptavinur. Samt f\u00e9kk hann starfi\u00f0, l\u00edklega af \u00fev\u00ed Oxford haf\u00f0i \u00feegar fengi\u00f0 \u00cdslending til a\u00f0 vinna \u00fear (<a title=\"Gu\u00f0brandur Vigf\u00fasson\" href=\"http:\/\/is.wikipedia.org\/wiki\/Gu%C3%B0brandur_Vigf%C3%BAsson\">Gu\u00f0brand Vigf\u00fasson<\/a>) og \u00fe\u00e1 \u00feurfti Cambridge au\u00f0vita\u00f0 l\u00edka a\u00f0 geta skarta\u00f0 \u00cdslendingi. (Stef\u00e1n Einarsson. 1933. s. 125-126).<\/p>\n<p>Eftir \u00fea\u00f0 var\u00f0 l\u00edfi\u00f0 tryggara: Fast starf, fastur samasta\u00f0ur og f\u00f6st laun bj\u00f6rgu\u00f0u miklu \u00fe\u00f3tt \u00feau hj\u00f3n hafi \u00e6vinlega veri\u00f0 skuldug \u00fev\u00ed \u00feau b\u00e1rust \u00e1 um efni fram. \u00dea\u00f0 kosta\u00f0i sitt a\u00f0 vera gestrisin og halda sambandi vi\u00f0 f\u00edna f\u00f3lki\u00f0 sem \u00feau kynntust \u00ed Cambridge og v\u00ed\u00f0ar. Safnanir og styrkjasn\u00f6pun, jafnvel l\u00e1n, dug\u00f0u skammt til a\u00f0 br\u00faa bili\u00f0 milli tekna og \u00fatgjalda. En einhvern veginn skr\u00f6lti \u00feetta allt saman n\u00e6stu \u00e1ratugina.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er auglj\u00f3st a\u00f0 meiki ma\u00f0ur \u00fea\u00f0 \u00ed \u00fatl\u00f6ndum \u00e1 fr\u00e6g\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi a\u00f0 fylgja eftir. \u00deetta lukka\u00f0ist nokku\u00f0 vel hj\u00e1 <a title=\"Eir\ufffdkur Magn\u00fasson b\u00f3kav\u00f6r\u00f0ur \ufffd Cambridge\" href=\"http:\/\/en.wikipedia.org\/wiki\/Eir%C3%ADkr_Magn%C3%BAsson\">Eir\u00edki Magn\u00fassyni b\u00f3kaver\u00f0i \u00ed Cambridge<\/a>. N\u00e6sta f\u00e6rsla fjallar um hvernig Sigr\u00ed\u00f0i gekk \u00ed \u00feessum efnum.<\/p>\n<p><strong>Heimildir a\u00f0rar en kr\u00e6kt er \u00ed \u00far texta<\/strong>:<\/p>\n<p>Stef\u00e1n Einarsson. (1933). Saga Eir\u00edks Magn\u00fassonar \u00ed Cambridge. \u00cdsafoldarprentsmi\u00f0ja, Reykjav\u00edk<\/p>\n<p>L.S. [L\u00e1rus Sigurbj\u00f6rnsson]. 1939. <a title=\"Li\u00f0nir leikarar\" href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pageId=4522538\">Li\u00f0nir leikarar. Fimmta grein<\/a>. <em>Vikan 2<\/em>(8) 23. feb. 1939, s. 5.<\/p>\n<p>L.G. [L\u00e1rus Sigurbj\u00f6rnsson]. 1939. <a title=\"Li\u00f0nir leikarar\" href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pageId=45225269\">Li\u00f0nir leikarar. Fj\u00f3r\u00f0a grein<\/a>. <em>Vikan (2)<\/em>7, 16. feb. 1939, s. 17.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>N\u00fa er \u00e9g or\u00f0in d\u00e1l\u00edti\u00f0 lei\u00f0 \u00e1 Sigr\u00ed\u00f0i Einarsd\u00f3ttur Magn\u00fasson og hennar famil\u00edu, eftir mikinn lestur um \u00fea\u00f0 slekti. Og af \u00fev\u00ed \u00e9g veit a\u00f0 Sigr\u00fan P\u00e1lsd\u00f3ttir sagnfr\u00e6\u00f0ingur er a\u00f0 skrifa um \u00feessa konu, \u00e1rei\u00f0anlega <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2014\/04\/27\/hun-sigridur-og-hann-eirikur\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-988","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/988","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=988"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/988\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":989,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/988\/revisions\/989"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=988"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=988"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=988"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}