{"id":997,"date":"2014-06-04T17:05:22","date_gmt":"2014-06-04T17:05:22","guid":{"rendered":"http:\/\/www.harpahreins.com\/blogg\/?p=997"},"modified":"2014-06-04T17:05:22","modified_gmt":"2014-06-04T17:05:22","slug":"spamennirnir-i-botnleysufirdi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2014\/06\/04\/spamennirnir-i-botnleysufirdi\/","title":{"rendered":"Sp\u00e1mennirnir \u00ed Botnleysufir\u00f0i"},"content":{"rendered":"<p><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" style=\"float: left; margin: 7px; border: 1px solid black;\" alt=\"\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/this.is\/harpa\/blogg_nytt\/botnleysufjordur_kapa.jpg?resize=255%2C400\" width=\"255\" height=\"400\" \/>\u00c9g var a\u00f0 kl\u00e1ra <em>Profeterne i Evighedsfjorden<\/em> eftir Kim Leine. \u00deessi s\u00f6gulega sk\u00e1ldsaga hlaut <a title=\"Profeterne i Evighedsfjorden\" href=\"http:\/\/bokmenntaborgin.is\/norraenar-baekur-verdlaunadar\/\">b\u00f3kmenntaver\u00f0laun Nor\u00f0urlandar\u00e1\u00f0s \u00e1ri\u00f0 2013<\/a> og skv. fregnum stefndi b\u00f3ka\u00fatg\u00e1fan Draums\u00fdn a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gefa \u00fat \u00edslenska \u00fe\u00fd\u00f0ingu J\u00f3ns Halls Stef\u00e1nssonar \u00ed mars \u00e1 \u00feessu \u00e1ri en ekkert b\u00f3lar \u00e1 henni.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 hefur teki\u00f0 mig h\u00e1tt \u00ed m\u00e1nu\u00f0 a\u00f0 komast \u00ed gegnum b\u00f3kina, ekki af \u00fev\u00ed h\u00fan v\u00e6ri svo lei\u00f0inleg heldur af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feetta er lj\u00f3t saga og gott a\u00f0 gr\u00edpa \u00ed anna\u00f0 j\u00e1kv\u00e6\u00f0ara efni samhli\u00f0a.<\/p>\n<p>B\u00f3kin fjallar um norskan mann, Morten Pedersen Falck, sem l\u00e6rir til prests \u00ed Kaupmannah\u00f6fn \u00e1 s\u00ed\u00f0ari hluta \u00e1tj\u00e1ndu aldar, gerist prestur \u00e1 Gr\u00e6nlandi \u00ed nokkur \u00e1r, hr\u00f6kklast til Noregs og \u00fea\u00f0an til Kaupmannahafnar og hverfur loks aftur til Gr\u00e6nlands. Talver\u00f0u r\u00fami er eytt \u00ed a\u00f0 l\u00fdsa l\u00edfinu \u00ed Kaupmannah\u00f6fn, b\u00e6\u00f0i \u00e1 n\u00e1ms\u00e1rum Mortens og svo brunanum miklar 1798 sem hann ver\u00f0ur vitni a\u00f0 \u00ed seinni dv\u00f6l sinni \u00ed borginni. En hryggjarstykki\u00f0 \u00ed s\u00f6gunni er fr\u00e1s\u00f6gnin af Gr\u00e6nlands\u00e1rum hans.<\/p>\n<p>\u00deetta er \u00fev\u00ed nokkurs konar <em>\u00cdslandsklukka<\/em> sem gerist \u00e1 Gr\u00e6nlandi. N\u00fa hefur m\u00e9r alltaf fundist <em>\u00cdslandsklukkan<\/em> vera heldur kuldaleg b\u00f3k, flestar pers\u00f3nurnar eru \u00feannig a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekki nokkur lei\u00f0 a\u00f0 hafa sam\u00fa\u00f0 me\u00f0 \u00feeim: Aumur \u00fej\u00f3fur af Akranesi, sem lemur sitt heimilisf\u00f3lk; hofr\u00f3\u00f0an Sn\u00e6fr\u00ed\u00f0ur og karr\u00ederklifrarinn Arnas eru ekki f\u00f3lk sem mann langar til a\u00f0 kynnast neitt n\u00e1nar en af bla\u00f0s\u00ed\u00f0um. Einna helst a\u00f0 g\u00f6mul m\u00f3\u00f0ir J\u00f3ns Hreggvi\u00f0ssonar vekji saml\u00ed\u00f0an margra lesenda &#8230; og svo hef \u00e9g einl\u00e6ga sam\u00fa\u00f0 me\u00f0 Magn\u00fasi \u00ed Br\u00e6\u00f0ratungu en efast um a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi veri\u00f0 \u00e6tlun h\u00f6fundar. En \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 a\u00f0alpers\u00f3nur <em>\u00cdslandsklukkunnar <\/em>s\u00e9u lei\u00f0indali\u00f0 \u00fe\u00e1 er \u00e1kve\u00f0in reisn yfir \u00feeim, \u00fev\u00ed ver\u00f0ur ekki neita\u00f0. Og sagan er fantag\u00f3\u00f0.<\/p>\n<p>Pers\u00f3nugaller\u00edi\u00f0 \u00ed <em>Sp\u00e1m\u00f6nnunum \u00ed Botnleysufir\u00f0i<\/em> er \u00fe\u00f3 a\u00f0 mun andstyggilegra en pers\u00f3nur HKL. A\u00f0alpers\u00f3nan, Morten Falck, er ekki beinl\u00ednis illmenni heldur duglaus r\u00e6fill sem l\u00e6tur reka \u00e1 rei\u00f0anum um n\u00e1nast allt. Enda er ni\u00f0ursta\u00f0a hans \u00ed b\u00f3karlok a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 best a\u00f0 vera ekkert a\u00f0 reyna a\u00f0 breyta neinu heldur veltast \u00e1fram um sem \u00f3sj\u00e1lfbjarga leiksoppur kringumst\u00e6\u00f0na. L\u00edf hans er a\u00f0 sumu leyti eins og sigling inn Evighedsfjorden en fj\u00f6r\u00f0urinn dregur nafn sitt af \u00fev\u00ed hversu kr\u00f3k\u00f3ttur og langur hann er: Menn halda \u00e6 ofan \u00ed \u00e6 a\u00f0 n\u00fa sj\u00e1i \u00feeir inn \u00ed fjar\u00f0arbotninn og a\u00f0 takmarkinu s\u00e9 n\u00e1\u00f0 en \u00fea\u00f0 reynist einatt t\u00e1ls\u00fdn \u00fev\u00ed sn\u00f6ggbeygja er \u00e1 fir\u00f0inum.<\/p>\n<p>Af og til \u00ed allri s\u00f6gunni veltir Morten Falck fyrir s\u00e9r tilvitnun \u00ed Rousseau: \u201eMennesket er f\u00f8dt frit, og overalt ligger det i l\u00e6nker!\u201c [\u201eMa\u00f0urinn f\u00e6\u00f0ist frj\u00e1ls en er hvarvetna \u00ed hlekkjum\u201c] en kemst svo sem ekki a\u00f0 neinni ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u sj\u00e1lfur \u00ed \u00feessum eil\u00edfu p\u00e6lingum. E.t.v. \u00e1 \u00feessi klifun a\u00f0 segja lesandanum eitthva\u00f0 og vissulega eru margir \u00ed hlekkjum hugarfarsins \u00ed \u00feessari s\u00f6gu, jafnvel raunverulega hlekkja\u00f0ir, en kannski s\u00edst af \u00f6llu Morten sj\u00e1lfur: Hans \u00f3hamingja stafar miklu frekar af skorti \u00e1 drift og dug (og of mikilli brenniv\u00ednsdrykkju) en hlekkjum samf\u00e9lagsins, a.m.k. ef \u00e6vi hans er sko\u00f0u\u00f0 \u00ed heild.<\/p>\n<p>N\u00e6r allir Danir \u00ed s\u00f6gunni eru illmenni: rasistar, gr\u00f3\u00f0apungar, jafnvel sadistar. M\u00e1 ekki \u00e1 milli sj\u00e1 hvor er verri: Danski kaupma\u00f0urinn \u00ed Sukkertoppen [<a href=\"http:\/\/no.wikipedia.org\/wiki\/Maniitsoq\">Maniitsoq<\/a>] e\u00f0a danski kynfer\u00f0isafbrotapresturinn \u00ed Holsteinsborg [<a href=\"http:\/\/is.wikipedia.org\/wiki\/Sisimiut\">Sisimut<\/a>]! S\u00f3\u00f0askapnum \u00ed Kaupmannah\u00f6fn \u00feessa t\u00edma er l\u00fdst \u00ed sm\u00e1atri\u00f0um, sama gildir um l\u00fdsingarnar fr\u00e1 Gr\u00e6nlandi. V\u00e6ri gaman a\u00f0 telja hversu oft l\u00fas og \u00f3\u00feef ber \u00e1 g\u00f3ma \u00ed \u00feessari b\u00f3k.<\/p>\n<p>\u00deeir sem hafa einhverjar hugsj\u00f3nir og m\u00e6tti telja \u00e6rlegt f\u00f3lk eru Gr\u00e6nlendingarnir, ekki hva\u00f0 s\u00edst tr\u00fas\u00f6fnu\u00f0ur Mar\u00edu Magdalenu og Habakuks, sem hefur a\u00f0setur lengst inni \u00ed Evighedsfjorden [<a href=\"http:\/\/en.wikipedia.org\/wiki\/Kangerlussuatsiaq_Fjord\">Kangerlussuatsiaq<\/a>], allt \u00fear til \u00feeir d\u00f6nsku r\u00e1\u00f0ast \u00e1 bygg\u00f0 \u00feeirra, ey\u00f0ileggja h\u00fas og kirkju og stugga \u00edb\u00faunum \u00e1 brott. Raunar eru \u00feeir h\u00e1lfd\u00f6nsku, bastar\u00f0ar d\u00f6nsku karlanna og gr\u00e6nlenskra kvenna, einnig almennilegt f\u00f3lk upp til h\u00f3pa en eiga erfitt uppdr\u00e1ttar \u00fev\u00ed hvorki\u00a0Danir n\u00e9 Gr\u00e6nlendingarnir sam\u00feykkja \u00fe\u00e1 svo \u00feeir eru\u00a0eins konar par\u00edar \u00ed samf\u00e9laginu.<\/p>\n<p>H\u00f6fundurinn, Kim Leine, \u00e1 nokku\u00f0 skrautlega fort\u00ed\u00f0, m.a. uppeldi hj\u00e1 Vottum Jeh\u00f3va og verandi l\u00e6knad\u00f3pisti um t\u00edma. Hann hefur sj\u00e1lfsagt v\u00ed\u00f0a leita\u00f0 fanga um efnivi\u00f0inn en nefnir \u00ed eftirm\u00e1la a\u00f0 \u00e1 Vefnum s\u00e9 grein eftir Mads Lidegaard um Mariu Magdalenu og Habakuk sem hafi n\u00fdst s\u00e9r vel. \u00c9g las greinina eftir a\u00f0 hafa lesi\u00f0 b\u00f3kina, h\u00fan heitir einmitt <a href=\"http:\/\/www.tidsskriftetgronland.dk\/archive\/1986-6-Artikel01.pdf\">Profeterne i Evighedsfjorden<\/a> og birtist \u00ed <em>Tidsskriftet Gr\u00f8nland<\/em> 1986.\u00a0Satt best a\u00f0 segja vir\u00f0ist Kim Leine hafa gj\u00f6rn\u00fdtt grein Lidegaard\u00a0og hef\u00f0i ekki veri\u00f0 \u00far vegi a\u00f0 tiltaka titil og vefsl\u00f3\u00f0 \u00ed tilefni \u00feess, \u00ed eftirm\u00e1lanum.<\/p>\n<p>Sem sagt: \u00deetta er verulega lj\u00f3t og andstyggileg saga. En h\u00fan er einkennilega heillandi eigi a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur svo \u00e9g m\u00e6li eindregi\u00f0 me\u00f0 henni. Hva\u00f0 sem m\u00e1 um efni\u00f0 segja er kristalt\u00e6rt a\u00f0 Kim Leine kann a\u00f0 segja g\u00f3\u00f0a s\u00f6gu!<\/p>\n<p>Myndin vi\u00f0 f\u00e6rsluna er af k\u00e1pu norsku \u00fe\u00fd\u00f0ingarinnar. L\u00fdsnar eru upphleyptar \ud83d\ude09 <a href=\"http:\/\/www.forlagsliv.no\/blog\/2012\/12\/13\/profetene-i-evighetsfjorden\/\">H\u00e9r er f\u00e6rsla um p\u00e6lingarnar \u00ed hvernig b\u00f3kark\u00e1pa yr\u00f0i best<\/a>.\u00a0A\u00f0 m\u00ednu mati hefur Nor\u00f0m\u00f6nnum tekist a\u00f0 gera miklu meir l\u00fdsandi umb\u00fa\u00f0ir um \u00feessa s\u00f6gu en D\u00f6num. Ver\u00f0ur spennandi a\u00f0 sj\u00e1 hvernig gripurinn l\u00edtur \u00fat \u00e1 \u00edslensku &#8230; ef tekst a\u00f0 koma \u00fe\u00fd\u00f0ingunni \u00fat.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g var a\u00f0 kl\u00e1ra Profeterne i Evighedsfjorden eftir Kim Leine. \u00deessi s\u00f6gulega sk\u00e1ldsaga hlaut b\u00f3kmenntaver\u00f0laun Nor\u00f0urlandar\u00e1\u00f0s \u00e1ri\u00f0 2013 og skv. fregnum stefndi b\u00f3ka\u00fatg\u00e1fan Draums\u00fdn a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gefa \u00fat \u00edslenska \u00fe\u00fd\u00f0ingu J\u00f3ns Halls Stef\u00e1nssonar \u00ed <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2014\/06\/04\/spamennirnir-i-botnleysufirdi\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-997","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/997","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=997"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/997\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":998,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/997\/revisions\/998"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=997"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=997"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=997"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}