{"id":999,"date":"2014-06-07T18:55:24","date_gmt":"2014-06-07T18:55:24","guid":{"rendered":"http:\/\/www.harpahreins.com\/blogg\/?p=999"},"modified":"2014-06-07T18:55:24","modified_gmt":"2014-06-07T18:55:24","slug":"kettir","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2014\/06\/07\/kettir\/","title":{"rendered":"Kettir"},"content":{"rendered":"<p>Fors\u00ed\u00f0umyndin er af gr\u00edskum kettlingum. Allir sem fer\u00f0ast hafa um gr\u00edsku eyjarnar kannast vi\u00f0 kattafj\u00f6ld alls sta\u00f0ar: \u00c1 veitingast\u00f6\u00f0um \u00feiggja \u00feeir bita sem falla af diskum gestanna, \u00ed b\u00f3kab\u00fa\u00f0um og b\u00f3kas\u00f6fnum b\u00faa gjarna einn til tveir kettir og \u00e1 g\u00f6tum og h\u00fasasundum er fj\u00f6ldi gullfallegra gr\u00edskra katta.<\/p>\n<p>\u00cd \u00feessum pistli ver\u00f0ur stikla\u00f0 \u00e1 st\u00f3ru um \u00fdmislegt sem snertir ketti \u00ed fort\u00ed\u00f0 og n\u00fat\u00ed\u00f0.<\/p>\n<h3>Kettir og gu\u00f0ir<\/h3>\n<p>Einna fr\u00e6gust eru tengsl katta vi\u00f0 go\u00f0m\u00f6gn \u00ed Egyptalandi hinu forna. H\u00e9r fyrir ne\u00f0an er mynd af\u00a0<a href=\"http:\/\/en.wikipedia.org\/wiki\/Bastet\">kattagy\u00f0junni Bastet<\/a>\u00a0\u00a0sem d\u00fdrku\u00f0 var allt fr\u00e1 \u00feri\u00f0ju \u00f6ld fyrir Krists bur\u00f0. H\u00fan gegndi \u00fdmsum hlutverkum eftir \u00fev\u00ed t\u00edmar li\u00f0u og sumir telja eitt \u00feeirra hafa veri\u00f0 frj\u00f3semi. Bastet var geysivins\u00e6l gy\u00f0ja.\u00a0<a href=\"http:\/\/en.wikipedia.org\/wiki\/Cats_in_ancient_Egypt\">Kettir voru s\u00e9rstaklega helga\u00f0ir henni<\/a>\u00a0og smur\u00f0ir eftir dau\u00f0ann. \u00a0Vi\u00f0 hli\u00f0 styttunnar af Bastet er ein fj\u00f6lmargra kattam\u00fam\u00eda sem hafa fundist.<\/p>\n<div>\n<dl id=\"attachment_14217\">\n<dt><a href=\"https:\/\/i0.wp.com\/kvennabladid.is\/wp-content\/uploads\/2014\/06\/mumia_bastet.jpg\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" alt=\"Hvoru tveggja gripirnir eru \u00e1 British Museum\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/kvennabladid.is\/wp-content\/uploads\/2014\/06\/mumia_bastet.jpg?resize=430%2C446\" width=\"430\" height=\"446\" \/><\/a><\/dt>\n<dd>Hvorir tveggju gripirnir eru \u00e1 British Museum<\/dd>\n<\/dl>\n<\/div>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00cd norr\u00e6nni go\u00f0atr\u00fa eru kettir tengdir frj\u00f3semisgy\u00f0junni Freyju \u00fev\u00ed tveir sl\u00edkir draga vagninn hennar. Freyja er \u00e1 s\u00edfelldum faraldsf\u00e6ti \u00a0\u00fev\u00ed h\u00fan leitar stanslaust eiginmanns s\u00edns, \u00d3\u00f0s, sem skila\u00f0i s\u00e9r ekki heim \u00far fer\u00f0alagi. Og s\u00e9u menn ekki vel versa\u00f0ir \u00ed go\u00f0afr\u00e6\u00f0i er \u00feetta sk\u00fdringin \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 v\u00f6rumerki s\u00e6lg\u00e6tisverksmi\u00f0junnar Freyju er k\u00f6ttur.<\/p>\n<div>\n<dl id=\"attachment_14220\">\n<dt><a href=\"https:\/\/i0.wp.com\/kvennabladid.is\/wp-content\/uploads\/2014\/06\/freycats.jpg\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" alt=\"Freyja og kettirnir. \u00dar \u00fatg. Nor\u00f0mannsins P.A. Munch \u00e1 norr\u00e6num go\u00f0s\u00f6gum 1880.\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/kvennabladid.is\/wp-content\/uploads\/2014\/06\/freycats.jpg?resize=432%2C360\" width=\"432\" height=\"360\" \/><\/a><\/dt>\n<dd>Freyja og kettirnir. \u00dar \u00fatg. Nor\u00f0mannsins P.A. Munch \u00e1 norr\u00e6num go\u00f0s\u00f6gum 1880.<\/dd>\n<\/dl>\n<\/div>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<div>\n<dl id=\"attachment_14215\">\n<dt><a href=\"https:\/\/i0.wp.com\/kvennabladid.is\/wp-content\/uploads\/2014\/06\/kottur_lindesfarne.jpg\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" alt=\"H\u00e6gt er a\u00f0 sj\u00e1 betri mynd af \u00feessum skrautbor\u00f0a \u00e1 Flickr.com. https:\/\/www.flickr.com\/photos\/28493949@N02\/4384217199\/\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/kvennabladid.is\/wp-content\/uploads\/2014\/06\/kottur_lindesfarne.jpg?resize=150%2C263\" width=\"150\" height=\"263\" \/><\/a><\/dt>\n<dd>H\u00e6gt er a\u00f0 sj\u00e1 betri mynd af \u00feessum skrautbor\u00f0a \u00e1\u00a0<a href=\"https:\/\/www.flickr.com\/photos\/28493949@N02\/4384217199\/\">Flickr.com<\/a>.<\/dd>\n<\/dl>\n<\/div>\n<p>Kettir tengjast ekki beinl\u00ednis kristinni tr\u00fa. En \u00f3beinar tengingar m\u00e1 finna, s.s. hluta af skrautbor\u00f0a \u00ed hinum fr\u00e6gu\u00a0<a href=\"http:\/\/en.wikipedia.org\/wiki\/Lindisfarne_Gospels\">Lindisfarne gu\u00f0spj\u00f6llum<\/a>, sem s\u00e9st h\u00e9r til h\u00e6gri. Handriti\u00f0 er r\u00f3ma\u00f0 fyrir fegur\u00f0 og er tali\u00f0 vera fr\u00e1 \u00fev\u00ed um 700. Skrautbor\u00f0inn me\u00f0 kettinum er \u00ed upphafi L\u00fakasargu\u00f0spjalls.<\/p>\n<p>Um \u00f6ld eftir a\u00f0 munkar \u00e1 Eynni helgu (Lindisfarne) bjuggu til sitt gl\u00e6silega handrit hripa\u00f0i einsetumunkur \u00e1 \u00cdrlandi hj\u00e1 s\u00e9r kv\u00e6\u00f0i um k\u00f6ttinn sinn. K\u00f6tturinn hans h\u00e9t\u00a0<a href=\"http:\/\/en.wikipedia.org\/wiki\/Pangur_B%C3%A1n\">Pang\u00far Ban<\/a>, sem g\u00e6ti \u00fe\u00fdtt hv\u00edtur \u00fe\u00f3fari e\u00f0a bara hv\u00edti Pang\u00far. J\u00f3n Helgason pr\u00f3fessor \u00fe\u00fdddi kv\u00e6\u00f0i\u00f0 um Pang\u00far Ban og hefst \u00fea\u00f0 \u00feannig:<\/p>\n<p>G\u00f6mul skipti m\u00edn \u00e9g man<br \/>\nm\u00f6rg vi\u00f0 fressi\u00f0 Pang\u00far Ban,<br \/>\nme\u00f0an kr\u00e1s \u00ed kl\u00e6r hann t\u00f3k<br \/>\nklausur henti \u00e9g af b\u00f3k.<\/p>\n<p>Allt kv\u00e6\u00f0i\u00f0 \u00ed \u00fe\u00fd\u00f0ingu J\u00f3ns m\u00e1 lesa \u00ed\u00a0<a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pageId=4979420\"><em>N\u00fdja st\u00fadentabla\u00f0inu 26<\/em>(1) 1962, s. 23<\/a>.<\/p>\n<h3>Kettir \u00ed sk\u00e1ldskap<\/h3>\n<p>Til er fj\u00f6ldi \u00fej\u00f3\u00f0v\u00edsna, barnag\u00e6la og kv\u00e6\u00f0a um ketti og engin lei\u00f0 a\u00f0 gera sl\u00edku skil \u00ed svo stuttum pistli. En \u00far \u00fev\u00ed minnst var \u00e1 J\u00f3n Helgason h\u00e9r a\u00f0 ofan nefni \u00e9g eitt af m\u00ednum upp\u00e1haldskv\u00e6\u00f0um sem hann orti, l\u00edklega til s\u00edns eigin kattar, sem heitir \u00c1 afm\u00e6li kattarins. Kv\u00e6\u00f0i\u00f0 m\u00e1 lesa \u00ed heild \u00ed\u00a0<a href=\"http:\/\/timarit.is\/view_page_init.jsp?pageId=4948132\"><em>D\u00fdraverndaranum 3<\/em>7(8) 1951, s. 60<\/a>. \u00a0\u00dear er m.a. \u00feessi v\u00edsa, sem \u00e9g veit a\u00f0 margir eru samm\u00e1la:<\/p>\n<p>\u00d3lundin margsinnis \u00far m\u00e9r rauk<br \/>\ner \u00e9g um kverk \u00fe\u00e9r og vanga strauk,<br \/>\nekki er m\u00e9r kunnugt um anna\u00f0 tal<br \/>\n\u00e1l\u00edka sefandi og kattarmal.<\/p>\n<p>Kettir eru dularfull d\u00fdr og l\u00e1ta ekki allt uppi. \u00deetta vissi sk\u00e1ldi\u00f0 T.S. Eliot og orti kv\u00e6\u00f0i um n\u00f6fn katta (sem birtist \u00ed\u00a0<em>Old Possum&#8217;s Book of Practical Cats<\/em>, \u00fatg. 1939) . Hver k\u00f6ttur \u00e1 \u00ferj\u00fa n\u00f6fn: Eitt hvunndagslegt, sem f\u00f3lki\u00f0 hans notar, eitt tignarheiti, sem er einstakt fyrir hvern k\u00f6tt, og loks eitt nafn sem einungis k\u00f6tturinn sj\u00e1lfur veit hvert er! Sj\u00e1ir\u00f0u k\u00f6tt \u00ed \u00feungum \u00fe\u00f6nkum er hann a\u00f0 hugsa um \u00fea\u00f0 nafni\u00f0 sitt, e\u00f0a eins og G\u00edsli \u00c1sgeirsson segir \u00ed \u00fe\u00fd\u00f0ingu sinni \u00e1 lj\u00f3\u00f0i Eliot:<\/p>\n<p>\u00deegar \u00fe\u00fa s\u00e9r\u00f0 k\u00f6ttinn sitja \u00ed \u00fe\u00f6nkum \u00feungum<br \/>\n\u00fe\u00e1 er hugur hans a\u00f0 dvelja vi\u00f0<br \/>\nsitt heimullega nafn, er hann a\u00f0 hugsa um<br \/>\nhi\u00f0 dularfulla,<br \/>\n\u00f3nefnanlega,<br \/>\n\u00f3a\u00f0finnanlega, einstaka nafn.<\/p>\n<p>(Alla \u00fe\u00fd\u00f0ingu G\u00edsla og frumtexta T.S. Eliot m\u00e1 sj\u00e1 \u00ed f\u00e6rslunni\u00a0<a href=\"http:\/\/malbeinid.wordpress.com\/2013\/09\/30\/i-tilefni-dagsins\/\">\u00cd tilefni dagsins<\/a>\u00a030.9.2013 \u00e1\u00a0<em>malbeinid.wordpress.com<\/em>\u00a0)<\/p>\n<div>\n<dl id=\"attachment_14218\">\n<dt><a href=\"https:\/\/i0.wp.com\/kvennabladid.is\/wp-content\/uploads\/2014\/06\/eliot_kottur.jpg\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" alt=\"Myndskreyting Nicholas Bentley vi\u00f0 lj\u00f3\u00f0i\u00f0 The Naming of Cats \u00ed b\u00f3k Eliot.\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/kvennabladid.is\/wp-content\/uploads\/2014\/06\/eliot_kottur.jpg?resize=430%2C525\" width=\"430\" height=\"525\" \/><\/a><\/dt>\n<dd>Myndskreyting Nicholas Bentley vi\u00f0 lj\u00f3\u00f0i\u00f0 The Naming of Cats \u00ed b\u00f3k Eliot.<\/dd>\n<\/dl>\n<\/div>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<h3>Fr\u00e6gir \u00edslenskir kettir<\/h3>\n<p>H\u00e9r er l\u00edklega r\u00e9tt a\u00f0 telja au\u00f0ugasta k\u00f6tt \u00cdslands, k\u00f6ttinn \u00ed Hraunsnefi \u00ed Nor\u00f0ur\u00e1rdal. S\u00e1 k\u00f6ttur var uppi \u00e1 seinni hluta n\u00edtj\u00e1ndu aldar og \u00fe\u00f3tti svo g\u00f3\u00f0ur til \u00e1heita a\u00f0 \u00e1 endanum \u00feurfti a\u00f0 f\u00e1 fj\u00e1rhaldsmann sem g\u00e6tti fj\u00e1rins og \u00e1vaxta\u00f0i dyggilega \u00fea\u00f0 sem kettinum barst.<\/p>\n<p>Peningar og skuldabr\u00e9f kattarins voru geymd \u00ed \u00e1g\u00e6tum kistli (sem \u00e9g hef fyrir satt a\u00f0 s\u00e9 enn til) en einnig voru keyptar jar\u00f0ir fyrir f\u00e9\u00f0, peningar l\u00e1na\u00f0ir og \u00e6r leig\u00f0ar.<\/p>\n<p>Ekki voru allir \u00e1n\u00e6g\u00f0ir me\u00f0 vaxandi r\u00edkid\u00e6mi kattarins, t.d. \u00e1minnti pr\u00f3fasturinn \u00ed Stafholti sinn s\u00f6fnu\u00f0 fyrir a\u00f0 ey\u00f0a f\u00e9 \u00ed ves\u00e6lan k\u00f6tt en vanr\u00e6kja kirkjur og kristind\u00f3m. R\u00e1\u00f0settir b\u00e6ndur n\u00f6ldru\u00f0u \u00e1 hinn b\u00f3ginn yfir a\u00f0 Hraunsnefsf\u00f3lki\u00f0 v\u00e6ri a\u00f0 skj\u00f3ta eigum s\u00ednum undan skatti \u00ed kattarsj\u00f3\u00f0inn \u00fev\u00ed ekki \u00fe\u00f3tti vi\u00f0 h\u00e6fi a\u00f0 leggja \u00fatsvar e\u00f0a skatt \u00e1 k\u00f6ttinn. En \u00fear sem fj\u00e1rhaldsmenn kattarins voru fyrst hreppstj\u00f3rinn \u00ed sveitinni og svo oddvitinn var ekkert gert \u00ed m\u00e1lunum og k\u00f6tturinn h\u00e9lt \u00e1fram a\u00f0 gr\u00e6\u00f0a.<\/p>\n<p>\u00deegar eigandi kattarins, Oddn\u00fd \u00deorgilsd\u00f3ttir, l\u00e9st \u00e1ri\u00f0 1887 fylgdi k\u00f6tturinn henni til grafar \u00e1samt hennar heimaf\u00f3lki en skila\u00f0i s\u00e9r ekki aftur heim heldur lag\u00f0ist \u00fat. Enginn veit hva\u00f0 af honum var\u00f0.<\/p>\n<p>\u00cdtarlegri s\u00f6guna af r\u00edkasta ketti \u00e1 \u00cdslandi m\u00e1 lesa \u00ed\u00a0<a href=\"http:\/\/timarit.is\/direct_links_init.jsp?pageId=5622598\"><em>N\u00fdja t\u00edmanum 17<\/em>(3) 1957, s. 3<\/a>.<\/p>\n<div>\n<dl id=\"attachment_14216\">\n<dt><a href=\"https:\/\/i0.wp.com\/kvennabladid.is\/wp-content\/uploads\/2014\/06\/josefina.jpg\"><img data-recalc-dims=\"1\" loading=\"lazy\" decoding=\"async\" alt=\"Sk\u00e1ldi\u00f0 J\u00f3sef\u00edna Meulengracht Dietrich von Steuffenberg.\" src=\"https:\/\/i0.wp.com\/kvennabladid.is\/wp-content\/uploads\/2014\/06\/josefina.jpg?resize=432%2C435\" width=\"432\" height=\"435\" \/><\/a><\/dt>\n<dd>Sk\u00e1ldi\u00f0 J\u00f3sef\u00edna Meulengracht Dietrich von Steuffenberg.<\/dd>\n<\/dl>\n<\/div>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>H\u00e9r a\u00f0 ofan var t\u00e6pt \u00e1 nokkrum d\u00e6mum um menn sem ortu um ketti. Hitt vita f\u00e6rri a\u00f0 uppi \u00e1 Skaga b\u00fdr einkar hagm\u00e6lt l\u00e6\u00f0a sem gefur \u00fat\u00a0<a href=\"http:\/\/this.is\/atli\/ljod\/ljodabok_josefinu_myndskreytt_4_utgafa.pdf\">lj\u00f3\u00f0ab\u00f3k<\/a>\u00a0\u00e1 hverju \u00e1ri (h\u00e9r er kr\u00e6kt \u00ed fj\u00f3r\u00f0u \u00fatg\u00e1fu hennar). Er vi\u00f0 h\u00e6fi a\u00f0 lj\u00faka \u00feessum pistli me\u00f0 tveimur v\u00edsum eftir J\u00f3sef\u00ednu Dietrich sem s\u00f3ma s\u00e9r vel \u00ed kvennabla\u00f0i:<\/p>\n<p>\u00c9g er fagur fem\u00ednisti og fer \u00e1 kostum,<br \/>\nmalandi l\u00e6t r\u00edmi\u00f0 renna,<br \/>\nraula fyrir m\u00e1lsta\u00f0 kvenna.<\/p>\n<p>\u00de\u00f3 a\u00f0 fress \u00ed f\u00falu skapi fussi og svei-i<br \/>\nr\u00f3fu m\u00edna lo\u00f0na og langa<br \/>\nlegg \u00e9g undir gulan vanga.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>(Birtist fyrst \u00ed <em>Kvennabla\u00f0inu<\/em> 7. j\u00fan\u00ed 2014.)<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fors\u00ed\u00f0umyndin er af gr\u00edskum kettlingum. Allir sem fer\u00f0ast hafa um gr\u00edsku eyjarnar kannast vi\u00f0 kattafj\u00f6ld alls sta\u00f0ar: \u00c1 veitingast\u00f6\u00f0um \u00feiggja \u00feeir bita sem falla af diskum gestanna, \u00ed b\u00f3kab\u00fa\u00f0um og b\u00f3kas\u00f6fnum b\u00faa gjarna einn til <span class=\"ellipsis\">&hellip;<\/span> <span class=\"more-link-wrap\"><a href=\"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/2014\/06\/07\/kettir\/\" class=\"more-link\"><span>Read More &#8230;<\/span><\/a><\/span><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"nf_dc_page":"","_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":""},"categories":[16],"tags":[50,49,52,47,51,48],"class_list":["post-999","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-daglegt-lif","tag-bastet","tag-jon-helgason","tag-josefina-dietrich","tag-kettir","tag-kotturinn-i-hraunsnefi","tag-t-s-eliot"],"jetpack_featured_media_url":"","jetpack_sharing_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/999","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=999"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/999\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1000,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/999\/revisions\/1000"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=999"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=999"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/harpahreins.com\/blogg\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=999"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}