Próf 1 úr Egils sögu
Fimm möguleg svör eru birt við hverri spurningu. Einungis eitt þeirra er rétt.
1
Björgólfur kallar til sín Högna bónda og segir "erindi er það hingað að ég vil að dóttir þín fari heim með mér og ...
mun ég nú ganga í eina sæng með henni."
mun ég nú gera hana að ambátt minni."
mun ég nú gifta hana syni mínum."
mun ég nú gera til hennar lausabrullaup."
mun ég nú færa hana konungi."
2
Kveld-Úlfur vill ekki berjast gegn Haraldi lúfu því:
Kveld-Úlfur var friðarsinni
Kveld-Úlfur óttaðist um hag norska smábænda
Kveld-Úlfur var of gamall til þess að berjast
Kveld-Úlfur vissi að gæfan fylgdi Haraldi
Kveld-Úlfur var fylgjandi menntuðu einveldi
3
Bárður Brynjólfsson arfleiddi Þórólf Kveld-Úlfsson að:
eigum sínum, konu og syni
eigum sínum, konu og langskipi
eigum sínum, konu og búfénaði
eigum sínum, konu og klæðum
eigum sínum, konu og óðalsjörð
4
Hildiríðarsynir sögðu konungi að:
Þórólfur vildi verða konungur yfir Háleygjafylki og Naumdælafylki
Þórólfur vildi verða konungur á Kúrlandi
Þórólfur vildi verða konungur yfir Finnmörku
Þórólfur vildi verða konungur yfir Firðafylki
Þórólfur vildi verða konungu yfir Norðimbralandi
5
Hildiríðarsynir sögðu konungi líka að Þórólfur hefði
rænt skipi konungs
stofnað nýja stjórnmálahreyfingu
ætlað að brenna konung inni
fíflað dóttur konungs
reist konungi níðstöng
6
Sá manna Þórólfs sem var forstjóri fyrir búi hans í Torgum og færði konungi skatt af Finnmörk hét:
Ölvir hnúfa
Atli hinn skammi
Berðlu-Kári
Sölvi klofi
Þorgils gjallandi
7
Haraldur konungur lét ræna skipi Þórólfs af því honum var sagt að
varningur á skipinu væri keyptur fyrir skattfé konungs
varningur á skipinu væri eign Hildiríðarsona
varningur á skipinu væri strandgóss konungs
varningur á skipinu væri smygl frá Englandi
varningur á skipinu væri stolið góss úr Firðafylki
8
Er þeir Kveld-Úlfur og Þórólfur kvöddust í síðasta sinn sagði Kveld-Úlfur: "Hefur þú nú það ráð upp tekið er ég varaði þig mest við ..." Það sem Kveld-Úlfur varaði son sinn mest við var:
að gerast fóstbróðir Bárðar Brynjólfssonar
að innheimta skatt konungs
að etja kappi við konung
að gerast merkisberi konungs
að flytjast búferlum úr Firðafylki
9
Síðust orð Þórólfs Kveld-Úlfssonar voru: "Nú gekk ég þremur fótum til skammt." Það sem hann átti við var:
að hann næði ekki að drepa merkisberann
að hann væri orðinn haltur af sárum
að hann hefði annars sloppið lifandi
að hann næði ekki að drepa kónginn
að hann væri of léttur á fæti til að berjast
10
Eftir lát Þórólfs Kveld-Úlfssonar giftist kona hans
Ölvi hnúfu
Háreki
Eyvindi lamba
Eiríki blóðöx
Haraldi hárfagra