Próf 2 úr Egils sögu
Fimm möguleg svör eru birt við hverri spurningu. Einungis eitt þeirra er rétt.
1
Skalla-Grímur vildi ekki verða hirðmaður Haralds hárfagra og sagði: "Eigi mun ég þjóna þér því ég veit að ég mun eigi gæfu til bera að veita þér þá þjónustu sem ég myndi vilja og vert væri." Skalla-Grímur meinti þá þjónustu að
skera hár og skegg konungs
að sjá um skipasmíði fyrir konung
að innheimta skatt fyrir konung
að drepa konung
að losa næturgagn konungs
2
Skalla-Grímur og Kveld-Úlfur drápu syni Guttorms til að hefna Þórólfs. Þessi Guttormur var
tengdasonur konungs
fósturfaðir konungs
tengdafaðir konungs
uppeldisbróðir konungs
yngsti bróðir konungs
3
Skalla-Grímur nam land á Borg á Mýrum en Kveld-Úlfur
settist að á Álftanesi
lést í hafi
gerðist konungur yfir hálfu Skotlandi
sættist við Harald konung
reisti bæ í Brákarey
4
Kona Skalla-Gríms hét
Sigríður
Birna
Salbjörg
Bera
Unnur brák
5
"... var það eitt kveld, þá er aðrir menn fóru að sofa, að Skalla-Grímur gekk til sjávar og hratt fram skipi áttæru, er hann átti, og reri út til Miðfjarðaeyja, lét þá hlaupa niður stjóra fyrir stafn á skipinu." Erindi Skalla-Gríms var
að vitja um net
að kafa eftir steini
að synda sér til hressingar
að sitja fyrir óvinum sínum
að skutla hvítan hval
6
"Ekki skaltu fara," segir Skalla-Grímur, "því að þú kannt ekki fyrir þér að vera í fjölmenni þar er drykkjur eru miklar, er þú þykir ekki góður viðskiptis að þú sért ódrukkinn." Þetta sagði Skalla-Grímur við
Þórólf
Ölvi
Egil
Þóri hersi
Kveld-Úlf
7
Egill Skalla-Grímsson varð strax á unga aldri
skáldmæltur
læs
skrifandi
fær á skíðum
göldróttur
8
Björn hersir Brynjólfsson rændi Þóru hlaðhönd því
hann hugðist krefjast lausnargjalds
hann vantaði ambátt
hann vildi hefna sín á bróður hennar
hann langaði að ná sér niðri á föður hennar
hann vildi giftast henni
9
Þegar Þórólfur Skalla-Grímsson kom heim frá Noregi færði hann föður sínum gjöf frá Eiríki blóðöx, Noregskonungi. Þessi gjöf var
langskipssegl
skarlatsskikkja
gulli skreytt exi
sverðið Dragbítur
tröllaukinn fýsibelgur
10
Það sem einkum var ólíkt með Agli og Skalla-Grími var að
Egill var fríður en Skalla-Grímur ekki
Egill var hamrammur en Skalla-Grímur ekki
Egill var málugur en Skalla-Grímur ekki
Egill var skáldmæltur en Skalla-Grímur ekki
Egill var konungssinni en Skalla-Grímur ekki