Próf 3 úr Eglu

Fimm möguleg svör eru birt við hverri spurningu. Einungis eitt þeirra er rétt.



1 "Ganga þeir þar til er sveinaleikurinn var. ... hafði þá hent knöttinn og rak undan en aðrir sveinarnir sóttu eftir. Þá hljóp Egill að ... og rak öxina í höfuð honum svo þegar stóð í heila." Sá sem Egill drap hét:
Þórður
Skeggi
Grímur
Úlfur
Heggur

2 Þegar Egill drap sinn fyrsta mann var hann
þriggja ára
sex ára
átta ára
tólf ára
sautján ára

3 "En um kveldið eftir sólarfall þá tók þeim Agli verr að ganga. Gerðist Grímur þá svo sterkur að hann greip Þórð upp og keyrði niður svo hart að hann lamdist allur og fékk hann þegar bana. Síðan greip hann til Egils." Til bjargar Agli kom
Þórólfur gjallandi, ráðsmaður Skalla-Gríms
Ásgerður, fóstursystir Egils
Brák, fóstra Egils
Yngvar, afi Egils
Þórólfur, bróðir Egils

4 "Maður hét Þorgeir þyrnifótur. Hann bjó á Hörðalandi, í Fenhring. Þar heitir á Aski. Hann átti þrjá sonu. Hét einn Haddur, annar Berg-Önundur, þriðji hét ..." Þriðji bróðirinn hét
Atleyjar-Bárður
Friðgeir
Ljótur
Atli hinn skammi
Ármóður skegg

5 Arinbjörn, besti vinur Egils, og Eiríkur blóðöx eru þannig tengdir að
þeir eru bræðrasynir
þeir eru þremenningar
þeir eru uppeldisbræður
þeir eru feðgar
þeir eru kvæntir systrum

6 "En þá er mjög var komið að stefnudegi þeim er Þórólfur skyldi heiman fara, og brúðmenn voru komnir, þá tók Egill sótt, svo hann var eigi fær." Veikindi Egils stöfuðu líklega af
ástarsorg
hettusótt
kúariðu
fégræðgi
drykkjusýki

7 "Bóndason sagði að þá gerði myrkt af nóttu og mætti þá enga skemmtun af hafa að kvelja þá. Bað hann láta bíða morguns. Var þeim þá skotið í hús eitt og bundnir rammlega. Egill var bundinn við staf einn, bæði hendur og fætur." Egill lenti í þessum lífsháska þegar hann
barðist í her Aðalsteins Englandskonungs
var í víkingaferð á Fríslandi
átti í útstöðum við Berg-Önund
heimti skatt af Arnviði jarli á Vermalandi
var í víkingaferð á Kúrlandi

8 "Signdi ... fullið, fékk síðan ölseljunni. Færði hún Agli og bað hann drekka. Egill brá þá hnífi sínum og stakk í lófa sér. Hann tók við horninu og reist á rúnir og reið á blóðinu." Sá sem signdi fullið var
Gunnhildur drottning
Eiríkur blóðöx
Atleyjar-Bárður
Ölvir
Arinbjörn

9 Þórólfur, bróðir Egils, féll
í orustu á Englandi
í víkingaferð á Fríslandi
á Gulaþingi
í hættuför á Vermalandi
í víkingaferð á Kúrlandi

10 "... var allra kvenna vænst og vitrust og fjölkunnug mjög." Þessi lýsing á við
Þóru hlaðhönd
Ásgerði
Gunnhildi drottningu
Þorgerði
Þórdísi