Próf 4 úr Egils sögu

Fimm möguleg svör eru birt við hverri spurningu. Einungis eitt þeirra er rétt.



1 Egill vissi strax að Þórólfur bróðir hans væri fallinn þegar
hann heyrði harmakvein liðsmanna Þórólfs
hann sá þrjá hrafna hnita hringi yfir orustuvellinum
hann fann snöggan sársauka í brjósti sér ("helnauð")
hann sá merki Þórólfs hörfa ("fara á hæl")
hann sá lík Þórólfs fljúga útbyrðist ("hræ fló hoggið á sæ")

2 Eftir lát Þórólfs var Agli þungt í skapi og var heldur þungbrýnn. Hann jafnaði sig þegar
hann fékk samúðar-rúnaspjald frá konungi
Þórólfi var veitt konungleg útför
konungur gaf honum gullhring
konungur lét reisa bautastein yfir gröf Þórólfs
Þórólfur var tekinn í dýrlingatölu

3 "Hann tók í hönd sér heslistöng og gekk á bergsnös nokkra þá er vissi til lands inn. Þá tók hann hrosshöfuð og setti á stöngina. Síðan veitti hann formála og mælti svo ..." Þessi klausa lýsir því er Egill
reisti minnisvarða að Þórólfi látnum
bjóst til að verjast mönnum Aenviðar jarls
reyndi að verjast göldrum Gunnhildar drottningar
var að seiða Ásgerði til sín
reisti norsku konungshjónunum níðstöng

4 Egill gerði ýmsar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir að afturganga Skalla-Gríms kæmist inn í bæinn á Borg. Sennilega gerði Egill ráð fyrir hugsanlegri afturgöngu því
Skalla-Grímur hataði Egil
Skalla-Grímur hafði ekki lokið við að smíða exi nokkra
Egill skuldaði Skalla-Grími fé
Egill vissi að berserkir ganga alltaf aftur
Skalla-Grímur hafði selt kölska sál sína

5 Skalla-Grímur var heygður
að Borg
á Álftanesi
í Tjaldanesi
að Hrísbrú
í Borgarnesi

6 Egill lenti í mikill lífshættu í borginni Jórvík á Englandi þegar
Hringur jarl hugðist hengja hann
Eiríkur blóðöx hugðist hálshöggva hann
Aðalsteinn konungur hugðist gera hann að merkisbera
Gunnhildur drottning hugðist eitra fyrir honum
Ketill flatnefur hugðist rista honum blóðörn

7 En Egill reyndi að bjarga lífi sínu, í Jórvík, með því að yrkja kvæði. Það gekk þó illa framan af því
hann var búinn að drekka alltof mikið
fugl nokkur truflaði hann sífellt með kvaki sínu
hann hafði áhyggjur af skipverjum sínum
kalt var og klakafullt í húsi Arinbjarnar
hann var máttvana af þreytu og vosbúð

8 Þegar Egill hugðist svelta sig í hel, af sorg eftir lát sonar síns, fékk Þorgerður, dóttir hans, hann til að borða
harðfisk
hákarl
fjallagrös
súran hval
söl

9 Á ferðum sínum og heima hafði Egill jafnan hjá sér
tvö skip
tvær kistur með silfri
mjöðdrekku
kaleik og oblátur
rúnakefli

10 Kvæðið sem Egill orti til minningar um syni sína heitir
Sonaparruk
Sonatregróf
Sonaharmur
Sonasút
Sonatorrek