Próf 5 úr Egils sögu

Fimm möguleg svör eru birt við hverri spurningu. Einungis eitt þeirra er rétt.


1 Áður en Egill lést
faldi hann silfur sitt svo enginn gæti notið þess
dreifði hann silfri sínu yfir Alþingi til að upplifa bardaga í síðasta sinn
arfleiddi hann Þórdísi að silfri sínu svo Þorsteinn myndi ekki eignast það
kastaði hann silfri sínu í sjóinn því hann dýrkaði Njörð
orti hann drápu um silfur sitt og skjöld

2 Egill orti Arinbjarnarkviðu þegar
hann frétti að Arinbjörn væri aftur sestur að í Noregi
hann frétti að Arinbjörn hefði látist í orustu
hann frétti að Arinbjörn hefði loksins kvænst
hann frétti að Arinbjörn væri orðinn landstjóri í Noregi
honum varð ljóst að Arinbjörn hefði bjargað lífi hans

3 Bein Egils hvíla líklega
í kirkjugarði að Mosfelli, Mosfellsbæ
í þjóðargrafreit á Þingvöllum
í haug í Borgarnesi (Digranesi)
í kirkjugarði að Borg
í kirkjugarði að Görðum, Akranesi

4 Leitt hefur verið getum að því að Egill hafi þjáðst af ákveðnum sjúkdómi allt sitt líf, sem kunni að skýra að einhverju leyti hegðun hans. Þessi sjúkdómur er
Psoriasis
Heymæði
Paget-sjúkdómur
Stálmi
Alzheimer sjúkdómur

5 Rím í dróttkvæðum vísum er nefnt
skáhendingar og oddhendingar
skothendingar og aðalhendingar
skjóthendingar og seinhendingar
skyrhendingar og bláhendingar
skotthendingar og halahendingar

6 Myndmál í dróttkvæðum vísum felst oft í svokölluðum
hendingum
myndhverfingum
viðlíkingum
kenningum
blondínum


Þél höggr stórt fyr stáli
stafnkvígs á veg jafnan
út með éla meitli
andær jötunn vandar,
en svalbúinn selju
sverfr eirar vanr þeiri
Gestils álft með gustum/áðr gisti
gandr of stál fyr brandi
 
7 "Stafnkvígs vegur" í vísunni hér að ofan þýðir
himinn
sjór
ský
jörð
regnbogi

8 "Vandar jötunn" í vísunni hér að ofan þýðir
konungurinn
tröllskessan
sjórinn
skipið
vindurinn

9 "Selju gandr" í vísunni hér að ofan þýðir
konungurinn
tröllskessan
sjórinn
skipið
vindurinn

10 "Stál" í vísunni hér að ofan þýðir
málmur
vindur
skip
stefni
sjór