Þegar Hallgerður langbrók og Bergþóra létu drepa menn hvor fyrir annarri voru bæturnar þannig:

(Brennu-Njáls saga, kaflar 36 - 44.)

Hér sést vel hvernig bætur miðast við stétt og stöðu þess sem drepinn var. Hafi menn áhuga á að skoða manngjöld eftir stétt og stöðu má sjá töflu yfir slíkt, umreiknað í álnir vaðmáls og ársverk, á síðu Friedmans, http://www.daviddfriedman.com/Academic/Iceland/Iceland.html  (mjög neðarlega á vefsíðunni, undir liðnum APPENDIX A Wages and Wergelds).

Það er ótrúlega erfitt að gera sér grein fyrir því hvað þessar tölur þýða á núvirði. Hvorki vaðmál né kýr eru sérlega dýrmætar nú á dögum, silfur nútímans er á algerri útsölu miðað við fyrstu aldir Íslands byggðar og laun í nútíma þjóðfélagi eru að engu leyti sambærileg við laun áður fyrr. Það getur samt verið gaman að skoða verðlag í Íslendingasögum og Sturlungu miðað við nútímann. Hér á eftir eru sýndar nokkrar mismunandi leiðir til þess að gera þetta og fást gjörólíkar niðurstöður eftir því hvernig er reiknað. Gæti verið gaman að reikna út hvað írsk prinsessa kostaði á þrælamarkaði í Brenneyjum á 10. öld.
 

Myndin af Melkorku er tekin 
á Sögusafninu, Perlunni, Reykjavík, 
og birt  með leyfi Ernst Backman, 
höfundar sýningarinnar. 
Þá mælti Höskuldur: „Hversu dýr skal sjá kona ef eg vil kaupa?“ 

Gilli svarar: „Þú skalt reiða fyrir hana þrjár merkur silfurs.“ 

„Svo virði eg,“ segir Höskuldur, „sem þú munir þessa ambátt gera heldur dýrlagða því að þetta er þriggja verð.“

Þá svarar Gilli: „Rétt segir þú það að eg met hana dýrra en aðrar. Kjós nú einhverja af þessum ellefu og gjalt þar fyrir mörk silfurs en þessi sé eftir í minni eign.“ 

Höskuldur segir: „Vita mun eg fyrst hversu mikið silfur er í sjóð þeim er eg hefi á belti mér,“ biður Gilla taka vogina en hann leitar að sjóðnum. 
...

Reiða nú silfrið og voru það þrjár merkur vegnar. 

Þá mælti Höskuldur: „Svo hefir nú til tekist að þetta mun verða kaup okkar. Tak þú fé þetta til þín en eg mun taka við konu þessi....“



Ein leiðin til að skoða þetta er: 

3 merkur silfurs =  3 x 4 kúgildi = 3 x 480 álnir vaðmáls = 1.440 álnir vaðmáls.  Það tók líklega fullan vinnudag að vefa 1 alin vaðmáls í gamla kljásteinsvefstaðnum.  Á hinn bóginn voru árslaun kvenna fyrir vefnað harla lág, ef nokkur. Sjá frekari útreikninga hér í dæminu fyrir neðan, einnig mismunandi leiðir til að finna út nútímaverðmæti. 


 
 
Hæstu bætur sem um getur eru bætur Hafliða Mássonar fyrir fingurmissi, árið 1121.  Þetta voru 80 hundruð þriggja álna aura, sem líklegast hafa jafngilt 28.800 álnum vaðmáls (Hannes Hólmsteinn Gissurarson. 1997: 356.).  Um þetta var sagt:  „Dýr myndi Hafliði allur ef svo skyldi hver limur.“ (Þorgils saga og Hafliða, 14. og 35. kafli.)

Ath. að hér og annars staðar þar sem talað er um  „hundrað“ er átt við stórt hundrað, þ.e. 120.


 
Reiknað í álnum vaðmáls og árslaunum
Séu bæturnar umreiknaðar í ársverk í vefnaði, miðað við 300 álnir á ári, eru bæturnar um 96 ársverk.  Meðal dagvinnulaun ófaglærðra verkakvenna á síðasta ársfjórðungi ársins 2002 voru 121.800 kr. á mánuði, sem gera 1.461.600 krónur í árslaun (Upplýsingar frá ASÍ í símtali 19. maí 2003).  Sé dæmið reiknað út frá þessari tölu samsvara bætur Hafliða fyrir afhöggvinn fingurinn u.þ.b. 140 milljónum og rúmum 300 þúsundum króna. 

 
Reiknað í kúgildum
Einnig hafa þessar bætur verið umreiknaðar þannig að 80 hundruð þriggja álna hafi jafngilt 240 hundruðum vaðmáls í einfaldri breidd (3 x 80 = 240).  Þetta samsvarar 240 kúgildum.  Algengt verð á mjólkurkú er um 100.000 kr. (skv. upplýsingum Bændasamtaka Íslands í símtali þann 19. maí 2003) og því yrði upphæðin um 24 milljónir króna, þannig reiknuð.  Vel að merkja er verð á búfénaði heldur lágt og hefur verið það lengi.  (Sjá Sigurður Samúelsson. 1998: 139.  Ath. að Sigurði láist að reikna „hundrað“ sem stór hundrað og fær því út lægri tölu.)
Reiknað í silfri

Myndin er tekin af vefsíðunni 
http://www.hurstwic.org/history/articles/
daily_living/text/Towns.htm
og birt með leyfi forráðamanna síðunnar.
Séu 28.800 álnir vaðmáls umreiknaðar í aura silfurs má fá út 2.400 aura silfurs.  Eyrir silfurs var 27 g (sé litið fram hjá verðbreytingum og mismunandi skíru silfri).  Þetta eru því 2.400 x 27 g = 64.800 g.  Gramm af hreinu silfri (í silfurplötu sem er tilbúin til vinnslu) kostar 25 kr. (skv. upplýsingum frá Láru Magnúsdóttur, gullsmið, í símtali þann 19. maí 2003).  64.800 g x 25 kr. = 1.620.000 kr. 

Bætur Tryggingastofnunar

Loks má nefna að Sigurður Samúelsson hefur skoðað hvaða bætur Hafliði Másson hefði fengið frá Tryggingarstofnun nú á dögum og er niðurstaða hans á þessa leið: „... missir löngutangar væri metinn til 10% örorku, en fremsti köggull baugfingurs og litla fingurs til 5% saman, því samtals 15%.  Eftir upplýsingum frá Slysadeild Tryggingarstofnunar ríkisins er 15% örorka metin á kr. 300.000, eingreiðslu ...“ (Sigurður Samúelsson. 1998:139.)
 
 
 
 
 

Gert í maí  2003
Uppfært í ágúst 2010
Kennsluvefir Hörpu Hreinsdóttur