Myndir lýsir deginum í dag. Hve stutt er þar til ég hætti alveg að geta talað eða lagt saman 2 + 2 eða lesið léttan reyfara er erfitt að meta. Ég væri til í að býtta á þunglyndinu í flesta aðra sjúkdóma en slíkt býðst því miður ekki. Enginn ljós punktur í dag og mikil uppgjöf.
Þetta endar alltaf eins: Kona verður fangi þunglyndis, í lengri eða skemmri tíma.
Ohh, glatað! Hugsa til þín og vona þetta verði ekki langt kast.
Æ þetta er hræðilegt ástand, sendi mínar bestu kveðjur yfir flóann. gua
Sæl Harpa mín. Það er leiðinlegt að heyra hvað þú ert lasin, ég hugsa til þín á hverjum degi og bið þess að þér líði betur. Sjálf var ég að koma úr mikilli slark ferð til Akureyrar en ég lá inni á FSA í smá aðgerð í vikunni. Mestur tími fór í að bíða eftir flugi til og frá Akureyri og svo austur á Egilsstaði. Svo er aldrei skemmtilegt að fljúga í vitlausu veðri – ég þakka mínum sæla fyrir það að vera ekki flughrædd!
Takk þið góðu konur – haldið áfram að hugsa vel til mín því ekki veitir af. Ég er verulega veik.
Elsku Harpa, ég sendi að sjálfsögðu batakveðjur líka og vona að þetta lagist fljótt.
Takk fyrir að halda samt áfram að skrifa, hef reyndar fundið sjálf í svipuðum hremmingum að það eitt getur haft góð áhrif, þ.e. að drösla sér að tölvunni hvað sem á gengur. Takk líka fyrir snilldarvefinn um formæðurnar og forfeðurna, á eftir að lesa þetta allt upp til agna 🙂