Ég meldaði mig veika í dag – gat ekki hugsað mér að hitta litlu ljúflingana mína, hvað þá kennarastofuna. Aðallega var mér flökurt og illt í hálsi en ég veit að þetta eru bara feik-einkenni: Það er geðveikin sem dulbýst svona! Ég er ansi hrædd um að ég verði á Joe Boxer hérna heima á morgun líka.
Ég held að ástæðan sé fjölskylduboð á Laugarvatni á sunnudaginn. Þar var margt um manninn, frábær matur og mjög gaman. Svo kemur þetta í hausinn á mér eftir á. Svo virðist sem ef ég hitti mikið fleiri en tíu manns í spjalli sé það of erfitt fyrir mig. En ég hef ekki hugsað mér að vera eins og lík í líkhúsi (þau spjalla ekki) og þá er að taka því sem á höndum ber.