Smá móðurlegt mont

sem ég skrifa aðallega fyrir ömmurnar! En frumburðurinn er sumsé orðinn andlit skólans síns, HR.  Sé farið á http://www.ru.is þá eru þar kynningarmyndbönd á forsíðunni og drengurinn er bæði í vídjóinu um lagadeild og líka vídjóinu sem er þarna “Um Háskólann í Reykjavík”. 

 

Þótt auðvitað sé vitað frá forneskju að börn erfa gáfur frá mæðrum sínum en útlitið frá feðrum get ég ekki stillt mig um að benda á gáfulegt fas frumburðarins, þar sem þetta tvennt sameinast.

 

 

4 Thoughts on “Smá móðurlegt mont

  1. freyja systir on February 23, 2009 at 13:47 said:

    ég er búin að skoða þetta og hann tekur sig vel út. Mér finnst spurning hverjum hann er líkur, aðallega þér held ég (og hvaðan koma þá gáfurnar?)

  2. Þetta er misskilningur: Drengurinn – eða báðir drengirnir – þykja einkar líkir Atla, á ættarmótum í þeirri ætt! Við Atli teljum að í upphafi, svona vel fram á fjórða ár, höfum við verið eins og tvíburar, þótt hvort væri á sínu landhorni. En svo fór að draga í sundur með okkur og eftir að við bæði lögðum niður hrikalega stóru gleraugun (sem náðu yfir hálft andlitið) ólíkjumst við dag frá degi.

    Þetta ruglar náttúrlega það fólk í ríminu sem ekki hefur stundað ættarmót beggja stófjölskyldna.

  3. Þegar ég fór að vakna betur (af middagskaffinu) sá ég hvaða krókaleið þú ert að fara, litla systir, og best að stoppa þig strax af: Það eru engin dæmi þess að drengir erfi gáfur frá móðursystur sinni! Þetta ætti nú Gísli þinn að geta útskýrt betur en ég …

  4. freyja systir on February 23, 2009 at 22:18 said:

    ég var nú ekki alveg komin svona langt á krókaleiðinni en núna þegar þú segir það þá hefur hann áreiðanlega erft algebrugenin frá Kópaskeri!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Post Navigation