Við í framhaldsskólunum brúkum blessunarlega ekki stimpilklukku. Hins vegar erum við kennararnir nokkurs konar gangandi lifandi stimpilklukkur því við stimplum viðveru (eða fjarveru) nemenda í rafrænan kladda sem heitir Inna. Nú blasti við okkur kennurum ný Inna í gær, áreiðanlega eigum við einhverjum góðum ködlum í Mrn. að þakka þessa uppfærslu, og það sem mest hefur glatt mig, persónulega, er að svo virðist sem nú þurfi ég bara að vinna þriggja daga vinnuviku! Viðverulistinn, sem stimpilklukkan ég stimpla inn í, er nefnilega aðeins fyrir seinni hluta vikunnar, sjá mynd. Ég er ákaflega hlynnt þriggja daga vinnuviku og held ég geti jafnvel giskað á hvur var svona hupplegur að breyta þessu svona fyrir okkur kennarana … þúsund kossar til … X (góði maðurinn í ráðuneytinu á konu og gæti misskilist ef ég færi að nafngreina hann svona á opinberu bloggi)!
Svo ætlaði ég að blogga helling í viðbót en mér er svo illt í maganum að ég held ég leggist aftur útaf. Þessi magaveiki hefur versnað hægt og bítandi í nokkur ár og ég hafði mig loks í fyrsta skrefið, að panta tíma hjá heimilislækni, í dag. Vonandi finnst einföld ástæða sem er ekkert mál að lækna.
Næ þó að nefna frumburðurinn hefur linkað í myndir af sér hlaupandi, ljómandi huggulegar myndir og strákurinn ansi stæltur í svona spandex-brókum … sjá þessa og þessa (bloggið mitt á fleiri lesendur en fésbókin hans svo hann verður sjálfsagt þakklátur móður sinni fyrir auglýsinguna 😉
Enn eitt: Hef ástæðu til að ætla að ÆM (stóra útgáfan) sé komin til landsins! En ég á eftir að svara klassíska bréfinu frá tollinum um hvort megi opna pakkann til að leita að reikningi o.s.fr. … má kallast gott ef ég næ sendingunni út klónum tollsins fyrir helgi. Áskrifendur (sem ég ákvað reyndar sjálf hverjir væru) geta nú bráðum farið að kafa djúpt í buddur sínar!
Hann er alveg gasaleg huggulegur drengurinn!
Er ÆM eitthvað sem ég á að fatta, eða er það prívat? (Var bara að spá hvort ég væri venju fremur treg í dag sko)
Ja … ÆM er skammstöfun fyrir Ættarsöguna miklu, sem ég hef verið að semja síðan í vor og blurb.com gefur út (ég vann sumsé í umhverfinu þeirra og læt þá gefa út).
Stærri útgáfan er 120 síður og var heilmikið maus að vinna í öllum myndunum (þetta er myndabók með texta) og dekka ættina frá því fyrir 1900 til 2009. Ég er voða spennt að sjá afurðina!!!
Minni útgáfan af ÆM dekkar svona 1900 – 1970 og er ætluð móðursystkinum mínum. Ég sendi þá útgáfu talsvert seinna í prentun og á ekki von á henni strax.
Með ÆM er ég svona að vísa í AM 348 4to o.s.fr. og annarra Árna Magnússonar- handrita. Gefur Ættarsögunni akademískt yfirbragð 😉
Meinti AM 748 …
Kúl!