Jess!!! Ættarsagan mikla er komin í hús!

Ein mynd segir meira en þúsund orð og tvær myndir ættu því að vera á við tvö þúsund orða færslu …  Litlu myndirnar krækja í aðrar flennistórar af rígmontnum höfundi!

Þetta prjódjekt er meir en 10+, mælt í lopapeysum!  Að sjálfsögðu er gripurinn ekki ókeypis en skipaðir áskrifendur fá kostnaðaryfirlit og rukkun í tölvupósti. Svo reikna ég með því að þá áskrifandi er orðinn áttræður safni hann öllum sínum afkomendum saman og tilkynni hvaða uppáhaldserfingi fái Ættarsöguna miklu …

Ættarsagan smærri verður helmingi ódýrari en hún verður ekki í eins flottu broti og bandi og þessi stóra. (Markhópurinn hennar er sennilega með lægri tekjur en markhópur Ættarsögunnar miklu.)

Eiginlega ætti ég að halda námskeið í hvernig maður snuðrar á vef og hvernig hægt er setja saman flott ættarrit, í ýmsu formi.

Rögnu bók fer í póst á morgun – reynt verður að koma hinum til skila í vikulok – um ákv. ráðuneyti þar sem fólk hefur tíma til að taka á móti pökkum til dreifingar.

6 Thoughts on “Jess!!! Ættarsagan mikla er komin í hús!

  1. freyja systir on August 25, 2009 at 23:44 said:

    Eru bara myndir af Rögnu í bókinni? Ég sé nefnilega að á þessari opnu sem þú sýnir er klassíkerinn “Ragna á koppnum” og gott ef ekki líka “Ragna að borða fisk”.

    Ég hlakka mikið til að fá mitt eintak.

  2. Harpa on August 26, 2009 at 06:51 said:

    Nei, Freyja, það er haugur af myndum af þér af því þú varst (ert?) svo sæt. Sennilega flestar af þér … eða kannski Einari.

    Auðvitað sýni ég klassískustu myndirnar á montmyndunum 😉

  3. guðrún on August 26, 2009 at 10:12 said:

    BÍÐ SPENNT!

  4. Ragna on August 26, 2009 at 10:41 said:

    Þurfti endilega að setja mynd af mér á koppnum í bókina?

  5. Harpa on August 26, 2009 at 11:24 said:

    Ragna: Megnið af kennarastofu FVA hefur lýst því yfir hvað þú sért kjút á þessum myndum 😉 (Allavega einhverjir…)

  6. Harpa on August 26, 2009 at 18:27 said:

    Kannski er rétt að geta þess að í ÆM eru fjórar staðreyndavillur (til þess að gera saklausar). Nú skora ég á eigendur ÆM að finna þessar villur fyrir jól! Bannað er að spurja tengdafólk ættarinnar og svindla sér þannig áfram.

    Ennfremur rétt að geta þess að ég leiðrétti villurnar í Ættarsögunni smærri svo sögufróðir ættingjar sem voru jafnvel uppi þá geta ekki hankað mig 🙂

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Post Navigation