Ég tala og tala um hvernig mér líður o.s.fr., þegar ég veit hvernig mér líður … svo ég er eiginlega ekki í stuði til að skrifa neitt fyrir ykkur fólkið þarna úti. Í gær leið mér betur í fyrsta sinn síðan ég kom inn. Verður spennandi að sjá hvort þetta er bati eða óskhyggja og lyfleysuáhrif.
Vona að allir mínir dyggu lesendur hafi það gott 🙂 Ég er ekki enn vel heimsóknarhæf, þreytist alveg nóg á því að leika hinn fullkomna sjúkling. Mér gengur illa að taka ofan grímurnar.
Góðan bata!