Geðdeild

Ég er komin inn á geðdeild og verður því vart bloggs að vænta næstu þrjár vikurnar – tölvuaðgangur er mjög takmarkaður og faktískt er ég of veik til að blogga.

Eitthvað virkar facebook einkennilega í þeirri einu netttengdu tölvu sem hér býðst og ég get ekki lesið skilaboð í FB. Ef einhver vill hafa stafrænt samband við mig er skást að gera það á þessu bloggi eða senda hér tölvupóst, á harpa@fva.is.

Vonandi hjarna ég við og get farið að blogga einhvern tíma fyrir jól 😉

6 Thoughts on “Geðdeild

  1. Valdís on October 24, 2010 at 15:03 said:

    Sæl Harpa. Vonandi færðu bót þinna meina. Ég get rétt ímyndað mér hve erfitt það er ofan á sjúkdóminn að geta ekki verið tölvutengd almennilega. Ertu ekki með fartölvu?
    Batakveðja
    Valdís

  2. Harpa on October 25, 2010 at 10:25 said:

    Nei, hef ekki heilsu í fartölvu … læt duga takmarkaðan aðgang að tölvu fjóra daga í viku. Ætti að slá niður hugsanlega tölvufíkn 😉

  3. Valdís on October 25, 2010 at 13:22 said:

    Fíkn? Er þetta ekki bara nútíminn? En sennilega er gott að taka sér frí frá skjánum … Amen

  4. Harpa on October 25, 2010 at 14:14 said:

    Takk Valdís – vel mælt og ábyggilega rétt! 😉 Ef ég hjarna eitthvað við má athuga fartölvu. Sem stendur er nægt verkefni að komast í gegnum heilan 72 klukkustunda dag og það sem ég held fastast í eru prjónar og saumnál. Virkar sennilega betur en FB eins og á stendur.

  5. Hafdís Helgadóttir on October 26, 2010 at 06:54 said:

    Sæl Harpa
    Leiðinlegt að heyra það. Vona að þú verðir fljót að ná þér og hafir nóg á prjónanna. Kv. Hafdís

  6. Góðan bata
    ég las margar færslur til baka, hef greinilega slugsað hér við mætingu
    Hlakka til að lesa meira

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Post Navigation