Tákn fálkans

Af hverju ætli menn (lesist karlar) séu svona svag fyrir fuglkvikindinu fálka?  Í 5 ár átti ég heima við súlu með steindum fálka þeim sem settist á Keldunesbæinn í miðri fæðingu árið 1711. Þetta þótti náttúrlega vita á eitthvað í denn.

Svo er ég búin að finna mynd af ljósbláa fálkafánanum í fórum afa míns sjálfstæðismannsins (fáninn brann eins og allt annað þar á bæ), ljómandi lekkera mynd af svipuðum fálka en með kórónu og því öfugt tákn við ljósbláa frelsisflygildið … endaði sá ljósblái ekki á glímufélagi og Schola Reykjavicensis?

Ég er líka að velta fyrir mér hvort skipti máli að fálkinn snúi til hægri eða vinstri; Einnig hvers vegna fálki Sjálfstæðisflokksins er að pissa í sig.

2 Thoughts on “Tákn fálkans

  1. guðrún on April 15, 2009 at 09:53 said:

    það á að vera til mynd af afa þínum ásamt fálkafánanum í einhverju af albúmunum sem þú ert með, gaman að fá hana inn sona til samanburðar

  2. Harpa on April 16, 2009 at 06:36 said:

    Já, ég veit. Var að hugsa um að leita að henni því ég hef birt myndina áður á bloggi … en skorti svo driftina til þess 🙂

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Post Navigation