Þetta eru falleg kveðjuorð. Hugur minn hefur í dag verið hjá fjölskyldunni á Ólafsfirði og hjá öllum þeim sem sóttu jarðarför Hrafnhildar Lilju. Megi minningarnar um yndislega stúlku ylja þeim í framtíðinni og hjálpa þeim að sættast við þá óskiljanlegu staðreynd að hún var tekin frá þeim í blóma lífsins.
Ég er búin að skæla síðan ég las minningargreinarnar í morgun. Datt í hug að eigin kveðja myndi gera mig minna hrygga. Það virkar ekki sérlega vel en ég verð að taka mig saman fyrir löngu ákveðna ættarveislu og leikhúsferð (með tengdafjölskyldunni).
Mér þótti vænt um að lesa minningargrein foreldra okkar um Hrafnhildi Lilju; hún var afar falleg og vel við hæfi, fannst mér.