Í sumar eignaðist ég Kindil og festi ást á honum umsvifalaust. Ég hef engan áhuga á æpöddum eða öðrum tölvugræjum með snertiskjám. Ekki heldur neinum lesapparötum sem eru með baklýstum skjá. Það er vonlaust að brúka svoleiðis græjur eins og bækur, ýmist vegna þess að tækið er miklu þunglamalegra en bók eða vegna þess að það er illmögulegt að lesa á skjáinn í mikilli sól. Og ég les mjög gjarna í sólbaði. Þarf varla að taka fram hversu mikið þægilegra er að taka með sér 100+ bækur í sólarstrandarfrí til útlanda þegar þær vega einungis 300 gr eða bókastaflana sem ég hef troðið í töskurnar til þessa 😉
Kindillinn minn er með oggolitlu lyklaborði svo ég get skrifað glósur um leið og ég les, þótt ég hafi ekki nennt því til þessa. Hann tengist þráðlausu neti og húkkar sig inn á 3G net ef háhraðanet er ekki í boði. Þ.a.l. get ég keypt mér bók hvenær sem er og nánast hvar sem er (svo framarlega sem farsímasamband er í hvarsemerinu). Ég get líka skoðað tölvupóst og vefinn í honum en það er seinlegt og óhöndugt. Kindillinn er fyrst og fremst lesbretti.
Ég reikna með að lestrarhestar kaupi sér gjarna Kindil. Spjaldtölvur og snjallsímar höfða til annars markhóps. Og ég held að bókalestur í Kindli sé hrein viðbót við annan bókalestur, að Kindla noti fyrst og fremst fólk sem les mikið og mun áfram lesa prentaðar bækur. Kannski er helst að Kindill höggvi skarð í kiljulestur, a.m.k. í mínu tilviki því ég er löngu búin að lesa erlendu kiljurnar áður en þær koma út þýddar á íslensku.
Mér finnst tvennt dálítið skrítið þegar kemur að bókum fyrir Kindil:
- Á Norðurlöndunum (Íslandi meðtöldu) virðast menn sniðganga skráarform sem Kindill les og bjóða einungis upp á skráarform fyrir spjaldtölvur, snjallsíma og sum önnur lesbretti.
- Íslensk útgáfufyrirtæki eru ótrúlega sein í svifum hvað varðar rafbókaútgáfu og verðlagning á þessum fáu nýlegu bókum sem bjóðast algerlega út úr kortinu.
Norrænar rafbækur
Nú er hægt að kaupa danskar, norskar og sænskar rafbækur á netinu. Vilji menn lesa á dönsku má benda á þessar tvær búðir:
MuBook segist bjóða upp á ódýrar danskar bækur. Þar má finna ókeypis bækur og upp í rándýrar bækur; Sé listinn yfir mest seldu bækurnar skoðaðar er t.d. Askepot eftir Kristina Ohlsson á rúmar 30 krónur danskar (600 kr. íslenskar) – sú bók heitir Utangarðsbörn á íslensku og kostar 1.690 kr. í kiljuútgáfu; Kvinden i buret e. Jussi Adler-Olsen kostar 88,50 DKR (1.770 kr.) – kiljan á íslensku, Konan í búrinu, kostar 2.290 kr.; Englemagersken e. Camillu Läckberg kostar hins vegar 212,50 DKR (4.250 kr.) – íslenska kiljan, Englasmiðurinn, kostar 2.170 kr. Allar þessar bækur eru á EPUB-formi , sem Kindill les ekki. Þær eru hins vegar ekki með afritunarvörn heldur einungis vatnsmerki og því hægt að breyta þeim í mobi-skrá fyrir Kindil í forritinu Calibre.
Mibook auglýsir að hún sé stærsta danska rafbókabúðin með um 245.000 titla (en væntalega eru þar taldar með bækur á ensku). Þar eru rafbækurnar aðeins ódýrari, t.d. kostar Englemagersken hennar Camillu Läckberg 207 DKR (4.140 kr.) í þessari búð. Lausleg skoðun bendir til að bækurnar séu yfirleitt á EPUB-formi með DRM-læsingu.
Bokus.com er sænsk rafbókabúð “där alla böcker bor” virðist geyma gott úrval af rafbókum um ýmist efni, á sænsku, ensku, finnsku, rússnesku og dönsku. Rafbókin Askungar eftir Kristina Ohlsson kostar þar 55 sænskar krónur (983 kr. íslenskar) en pappírskiljan af sömu bók kostar bara 39 sænskar krónur (en svo þarf auðvitað að borga póstsendingargjald). Rafbókin Änglamakerskan eftir Camilla Läckberg kostar 126 sænskar krónur (2.265 kr.). Einnig má leita fanga í Livrel24 sem selur bækur á sænsku. Bækurnar virðast flestar vera á EPUB-formi, án afritunarvarnar en með vatnsmerki.
Ég ber það ekki við að skoða norskar rafbókabúðir – nógu dýrar eru norskar bækur á pappír!
Vilji menn lesa norrænar bækur á ensku í sínum Kindli þá kostar bókin hennar Kristina Ohlsson, Unwanted heitir þýðingin, 14,97 dollara (tæpar 1.800 kr.) en Englasmiðurinn virðist ekki enn hafa verið þýdd á ensku – af öðrum bókum Läckberg má t.d. kaupa rafbókina Hafmeyjuna, The Drowning, í Amazon Kindle Store fyrir 10,79 dollara (1.295 kr).
(Ég kíkti á vinsældarlistann á Amazone Kindle Store og þar voru rafbækurnar á bilinu um 5-16 dollara; Fyrsta bókin í Hungurleikunum kostar t.d. 4,27 dollara sem eru 512 kr. Yfirgnæfandi meirihluti bóka þar er á ensku.)
Þeir sem hafa útlánaskírteini í bókasafni Norræna hússins geta fengið lánaðar sænskar rafbækur á netinu, sjá upplýsingar á síðunni Hvað er rafbók. Bækurnar eru yfirleitt á EPUB eða PDF formi, með DRM-læsingu. Bækurnar í sænska rafbókasafninu eru af ýmsum toga en vinsælastar eru auðvitað glæpasögurnar og sögurnar sem ég hef nefnt hér á undan standa þar til boða. Hægt er að fá lánaðar tvær bækur á viku og hafa þær í láni í fjórar vikur. Mörg dönsk bókasöfn bjóða upp á rafbókalán og vonandi tekst bókasafni Norræna hússins að ná samningum við eitthvert af þeim.
Hvað gera Kindil-eigendur þegar einungis EPUB-skrár eru í boði?
DRM stendur fyrir Digital rights management og er notað til að læsa stafrænum skrám, t.d. rafbókaskrám, svo ekki sé hægt að deila þeim frítt um víðan völl. Þetta er stundum kallað afritunarlæsing. Það kemur þó fyrir lítið því á torrent-bönkum úir og grúir af ólæstum rafbókaskrám. Enginn skortur er á smáforritum sem brjóta upp slíka læsingu. Þegar læsingin er farin er ekkert mál að nota Calibre til að breyta t.d. EPUB skrá í MOBI skrá, sem Kindill les. Calibre er reyndar hið mesta þarfaþing lesi menn rafbækur því þar má flokka sitt bókasafn og raða skipulega upp. Forritið er ókeypis.
Í næstu færslu fjalla ég um rafbækur á íslensku.
Nú á ég ekki svona lesbretti, en ég furða mig samt á því að bókaútgefendur sniðgangi algengustu vélina. Svo ekki sé minnst á verðlagninguna. Hún er algerlega fáránleg finnst mér.
Kindillinn minn sem ég fékk í afmælisgjöf í sumar er í algjöru uppáhaldi hjá mér. Frábært tæki fyrir svona landsbyggðarfólk – eins og mig – sem hefur ekki daglegan aðgang að bókabúðum þar sem fást erlendar kiljur. Það er verst að maður er allt að sjá eitthvað nýtt sem er spennandi að lesa og ekki sjens að komast yfir allt…….
Ekki má gleyma að Calibre er frábært forrit.
Ég fjalla um af hverju norrænir bókaútgefendur sniðganga skráarform sem Kindill les um leið og ég fjalla um íslenskar rafbækur. Rök bókaútgefenda eru fáránleg, svo mikið get ég sagt núna, og hvetja fólk til lögbrota, þ.e.a.s. til að brjóta upp afritunarvörnina … sem kyndir eflaust líka undir framboðið á ólöglegu torrent-bönkunum.
Já, Ragna, Kindill er náttúrlega nauðsyn fyrir landsbyggðarfólk! En þar á ofan er Ísland á hjara veraldar hvað bókaúrval snertir svoleiðis að möguleikinn á að sækja bækur gegnum netið kemur öllum til góða 😉
Dito.se (sem afgreiðir allar rafbækur á Bokus) selur sænskar bækur á epub-formati með vatnsmerki en engri afritunarvörn. Það er því afar hægur vandi að lesa þær á Kindle.
Hægur vandi og hægur vandi: Vissulega þarf ekki að hafa fyrir því að brjóta upp DRM læsingu en eftir sem áður þarf að nota forrit á borð við Calibre til að breyta epub-skránum í mobi skrár. Dito.se svarar spurningunni um hvort hægt sé að lesa bækur þaðan í Kindli:
“Ja, det går bra om boken du köpt är i formatet EPUB med vattenmärke och du först konverterar boken till det Mobi-format som Kindle stödjer. För att konvertera en bok kan du använda dig av programmet Calibre.”
Kindle Fire byggir á Android-stýrikerfinu og hægt er að setja upp app (viðbót) svo lesa megi epub-skrár í svoleiðis Kindli (sjá http://blog.the-ebook-reader.com/2011/11/29/how-to-read-epub-ebooks-on-kindle-fire-android-epub-app-list/). Kindle Fire er hins vegar með baklýstum litaskjá, líkist svolítið æpöddu að því leyti, og álíka auðvelt að lesa á slíkan skjá í sól og að lesa af tölvuskjá í sól (sem sagt vonlaust). Á hinn bóginn nýtist tækið náttúrlega vel í myrkri sem Kindill á borð við minn gerir ekki 😉
P.s. Ef einhver skyldi hafa áhuga þá er vatnsmerki nokkurs konar stafrænn stimpill með pöntunarnúmeri (hjá dito.se) eða nafninu þínu og dagsetningu kaupa (hjá sumum öðrum seljendum rafbóka). Hafir þú keypt vatnsmerkta rafbók er ævinlega hægt að rekja hana til þín. Þ.a.l. kemst strax upp um þig ef þú dreifir henni ólöglega 😉
Ég bendi áhugasömum um rafbækur á mjög skemmtilega og vel skrifaða bloggfærslu Eiríks Arnar Norðdahl frá því nú í janúar, Sextíuogníu: Afritunarvarnir (eru þjófnaður). Hef sjálf lesið hana oft og er mjög hrifin af.
Mig hefur aldrei langað í svona kindle eða i”Spjald” eða iHvað sem þetta heitir.
Ég læt mér nægja minn snjallsíma (android) en í honum get ég lesið þessar sömu bækur .pdf .epub eða hvað sem þetta heitir nú allt saman. Vissulega minni skjár en ég get stækkað þann part sem ég les hverju sinni.
Síðan get ég verið á netinu og allt sem því fylgir og ekki má gleyma því að ég get hringt líka, úreltur fídus að margra mati, en kemur sér ágætlega þó. 😉
Takk fyrir áhugaverðan pistil að venju. Kíkti á þetta sem þú bentir á um norrænu bækurnar.
mbk
Þór
Jú vissulega er hægt að nota snjallsíma til að lesa bækur en þá komum við enn og aftur að baklýsta skjánum … Kindill (og fleiri lesbretti) lítur út eins og blaðsíða í bók en baklýstir skjáir eru eins og tölvuskjáir. Sjálf á ég afar ómerkilegan eldgamlan Nokia-farsíma sem einungis er hægt að hringja úr og senda SMS með því að hjakka oft á lyklana; Ég nota þessa hörmung einungis þegar ég er af bæ enda hef ég engan áhuga á að vera alltaf ínáanleg 😉
Gleymdi að geta þess að fídusinn að stækka letur nýtist afar vel á kvöldin þegar ellifjarsýnin grípur mig. Ég reikna með að sami fídus sé á snjallsímum og æpöddum og öðrum lesbrettum.
Ég er búinn að eiga iPad í tæp tvö ár og er þegar kominn með tæpar 200 bækur. Mér finnst hann fínn til lestrar en er nú búinn að ákveða að fá mér kindil til viðbótar. Í sumum tilvikum er þó prentaða bókin betri eins og mér fannst þegar ég var að spæna mig í gegnum Game of Thrones bálkinn í sumar því þá þarf að hafa kortin og nafnalistana til hliðsjónar.
Ég kaupi einnig mjög margar hljóðbækur á netinu (audible.com) og þær gagnast mjög vel í strætó, gönguferðum og þegar maður er á ferðinni.
Verðlagning og þjónusta íslenskra bókaútgefenda á rafbókum og hljóðbókum er til vansa.
Sæl Harpa,
þú veist kannski af þessu?
http://www.gutenberg.org/wiki/Free_Kindle_Books
http://www.amazon.com/b?ie=UTF8&node=2245146011
Ótrúlega margar ókeypis rafbækur.
En hér er auðvitað um að ræða bækur sem ekki falla lengur undir höfundarrétt.
Þakka fjölmörg áhugaverð skrif
Kærar þakkir fyrir slóðirnar. Jú, ég vissi um ókeypis bækurnar á Amazon og þekki Gutenberg frá gamalli tíð þótt ég hafi ekki leitað sérstaklega að bókum fyrir Kindilinn á þeirri síðu. (Maðurinn minn les helst ekkert sem er mikið yngra en þrjúhundruð ára og er mjög duglegur að sækja ókeypis eldri bækur í sinn Kindil. Viðurkenni alveg að sjálf leita ég stundum í torrent-banka þótt það sé ekki fallegt til afspurnar.)
Tak for omtalen af muBook. Jeg har oversat med Google Translate og forstår at du skriver at muBook’s e-bøger er DRM-beskyttede. Det er de ikke. De har et “vandmærke”, så man kan finde frem til køberen, hvis bogen bliver kopieret ulovligt. Men bøgerne er ikke låste og kan sagtens konverteres til Kindle-format med Calibre.
MVH Tommy Andreasen
http://www.mubook.dk
Undskyld, Tommy, jeg har ikke læst muBooks side grundigt nok. Tak for dit komment. Jeg vil korrigere denne fejl senere i dag ( i øjeblikket har jeg ikke tid). Og jeg må da også tilføje nyeste nyt, som er at den største formidler med islandske e-bøger har givet op og nu vil tilbyde bøger for Kindle (mobi-filer).