Freyja: Það er varla að ég trúi því að háskólakennari (vestr’á Melum?) skuli ekki vita- eða skilja að „Ég skildi að orð er á Íslandi til / um allt sem er hugsað á jörðu“ (Einar Ben.) og öll þessi orð eru geymd á Árnastofnun, sem nú dekkar Íslenska málstöð, Ritmálsskrá o.fl. Maður gerir svona:
Opnar http://www.arnastofnun.is/
Dundar sér við að lesa orð vikunnar og ýmislegt annað en uppáhaldið mitt er Ritmálsskrá – sjá menjú neðst í hægra horni.
Slá inn gægsni og fá upp upplýsingar um að fjögur dæmi séu þekkt og fleira krapp sem má sleppa að lesa. Smella á Sjá dæmi.
Kemur þá í ljós að þetta er ekki meinlaust orð eða lítilsháttar fökkjú heldur:
1 |
hún var miklu eldri en hann og gægsni. | gægsni | BGröndRit IV, 362 Aldur: 19ms |
2 |
Svona grasvembill og gægsni eins og því ættir að hafa vit á að þegja. | gægsni | KristmGNátt , 100 Aldur: 20m |
3 |
Og þessi gægsni hafði hún verið að hugsa um að giftast. | gægsni | KristmGBrúð , 194 Aldur: 20ms |
4 |
Þetta er andskotans gægsni. |
Maður ætti kannski að lesa þennan texta eftir Gröndal – lofar góðu!
Vandamál 2: Tölvupóstur nær ekki til Hörpu. Sko, við kerfisstjórinn (í FVA) erum búnar að senda póst þvers og kruss án vandkvæða. Sennilega er þetta sambúðarvandi við blogg.is. Ég tékkaði á kæfum og ekki er vandinn þar. Það væri voðagott ef Örverpið sendi póst á anna@fva.is með afriti af því bréfi sem það / hann fékk í hausinn um að harpa@fva.is væri týnd og tröllum gefin. Ef málin leysast ekki þannig tala ég við Örvar á blogg.is (ég held reyndar að vandinn sé þar því venjulegur póstur berst óhindrað.
Jæja, verð að fara að búa til krossapróf handa litlu skinnunum mínum …
Sjáumst!
Ég er reyndar standandi bit á innsláttarvillunum í Ritmálsskrá …
Sendi þér póst úr lýðveldispósthólfinu sem bánsaði strax. Nennekki að skoða þetta fyrr en á morgun
Þessa tilvitnun “ég skildi að orð…. ” hef ég oft heyrt og satt að segja hefur hún farið ferlega í taugarnar á mér enda týpískt dæmi um íslenskan þjóðarrembing. Þetta er svona ámóta og að hugsa að hægt sé að kaupa allan heiminn með íslenskum krónum ;-). Kannski rétt að taka það fram að ég er í hlíðaútibúi HÍ og ekki í Melaskólanum sjálfum.