Maðurinn veit ekki svarið – hann las þetta bara í leiðarvísisbókinni á 24 tungumálum; held að hann styðjist við þýsku leiðbeiningarnar.
Jólaboð Freyju verður sem sagt hjá Freyju í ár? Viltu ekki láta hvert gestaholl koma með einhvern rétt með sér? Úr því þú ert búin að planera svo mikið og úr því maðurinn er svo hoppandi kátur með eldhúsið … eldhúsgenin ganga svo í arf því frumburðurinn skveraði upp piparkökuhúsi og lausum kökum handa sinni tengdafjölskyldu, og ljómaði í nýja eldhúsinu! En sumsé er sjálfsagt að búa eitthvað til (ekki úr fiski samt) og leggja með sér. Það eru oft bestu veisluboðin (almennt meint).
Gleðileg jól
kveðja gua
Gleðileg jól sömuleiðis. Minni á jólaboðið hjá mér. Ég er búin að leggja mikla vinnu í að planera matseðilinn og vona að sem flestir komi.
Gleðileg jól 🙂
Hrefna spyr hvort við eigum ekkert að fá að vita þetta með saltið?