Gerði mér lítið fyrir og strokaði mig út af Facebook. Ég held að fésbókin sé eins og lyngormur og muni vaxa í einhverja gróteska mynd og nærast á notendum. Ég er mjög glöð yfir frelsistilfinningunni sem “de-activate” veitir einni konu!

Hvílíkt feigðarflan! Veit hún ekki í hvaða vefjum dauðans þær konur lenda sem loka á eftir sér dyrum facebook.com?
Sko þig!
Þetta gerði ég reyndar einu sinni líka, fékk ógeð – en svo féll ég 😉
Gott hjá þér!
Ég held að andlitsbókin sé reyndar ansi varasöm, en hangi þar inni væntanlega eitthvað lengur.
Ath, það er ekki hægt að hætta á fb – á morgun koma stórir og skuggalegir menn með niðurdregin hattbörð og eiga við þig samtal
Snjáldurskræðan er líka gott nafn sem ég heyrði um daginn. Ég hef ekki þorað þar inn og enn síður eftir þennan lestur!
það er bara tímaþjófur og forvitni að vera á fb.
Vilborg: Það er álíka auðvelt og að útskrifast úr Svartaskóla að komast með skuggann sinn af fésbókinni.!
Einar: Það eru hér tveir menn, ekki mjög skuggalegir og vilja ekki tala mikið við mig. Þeir líkjast tréiðnaðarmönnum meir en FBI.