Author Archives: Harpa

“Vellíðunartilfinning, rugl, skapstyggð”

Þetta er tekið beint upp úr Lyfju-lista yfir aukaverkanir nýja lyfsins sem ég hef nú hafið töku á. Þar er einmitt þetta sem titlar færsluna talið algengur fylgikvilli. Ég hef lítið orðið vör við vellíðunartilfinninguna, er búin að vera svo rugluð svo lengi að ég merki ekki mun EN ég finn að ég er hryllilega pirruð og geðvond! Má nefna að ég er búin með allar neglur uppí kviku og er að byrja að naga puttana, af pirringi einskærum! Vona að þessi algenga aukaverkun líði hjá áður en ég ræðst á neglur (og klær) annarra heimamanna …

Ljósi punkturinn er sá að helv. grátköstin og gnístran tanna hafa látið undan lyfinu síga.

Ruglaða og skapstygga konan er svo lúsheppin að eiga óruglaðan og skapgóðan mann, sem nú stendur í húsþrifum aleinn eins og í hverri viku síðan í október. Sú skapstygga hefur legið í kröm lengst af og þótt pirringurinn peppi hana soldið upp í augnablikinu þá afþakkaði maðurinn hjálp og sagði konunni að fara vel með sig áfram (lesist: liggja áfram í sófa).

Kötturinn kom svo inn og var langt kominn með að spora út allt nýþvegna eldhúsgólfið þegar pirraði eigandinn greip hann og þurrkaði loppurnar með eldhúsrúllu, við lítinn fögnuð kattarins.

Kötturinn er farinn aftur út …

Ó-æ-seif færsla þótt um fjármál sé

Ég ákvað að hafa áfram slökkt á sjónvarpi og útvarpi og Jósefína lætur sig hafa það að sofa á sófanum án sjónvarptuðsins. Við viljum nefnilega ekki láta tjúna okkur tvær upp af einhverju matsjó-kjaftæði um athyglissjúkan matsjó-gæja!

Verandi ekki í neinu svaka stuði samt hef ég þessa færslu frekar stutta; vil einungis vekja athygli á grein í samþykkt Akraneskaupstaðar um kattahald, sem hefur vafist mjög fyrir mér.  Greinin er svona:

“d. Akraneskaupstaður ábyrgðartryggir alla skráða ketti, sem greitt er leyfisgjald af hjá viðurkenndu tryggingafélagi.  Vátrygging skal ná til alls þess tjóns sem kötturinn kann að valda á mönnum og munum.  Lágmarks tryggingarupphæð er kr. 10.000.000 (tíu milljónir).”

(Sjá http://akranes.is/stjornsyslan/reglur-og-samthykktir/grs_id/2890/)

Þýðir þetta að Jósefína verði að a.m.k. að kveikja í húsi eða sprengja upp skóla eða ræna bát (flugvélar eru ekki á lausu hér í bæ) til að skaðinn fáist bættur? Verð ég að setja hryðjuverkalög hér innanhúss og byrja að þjálfa minn ljúfa og góða kött í al-kaídískum brögðum og bardagatækni?

Engin krafa er gerð um lágmarks-skaða sem einn hundur þarf að valda, sjá http://akranes.is/stjornsyslan/reglur-og-samthykktir/grs_id/695/. Því miður eru engar upplýsingar um önnur dýr, t.d. kanínur (sem geta reyndar verið stórskaðleg kvikindi komist þær í snúrur og leiðslur), gullfiska eða páfagauka.

Ætli kattaábyrgðartryggingin sé byggð á fordæmi? Ég vísa þessari spurningu til lögfræðings heimilisins!

Almennar fréttir af bloggynju og möbíus II

Bestu þakkir fyrir hlý orð og bataóskir!   Það yljar.

Ég er enn í heimi lifenda – svo snemma að morgni dags. Fór reyndar á fætur um sex leytið og “banhungruð”, að eigin sögn, tók Jósefína Dietrich á móti mér. Við nánari skoðun sást að yngra drengbarnið hafði gefið henni lítra af mjólk, einhvern tíma í nótt,  og stóra sneið af Camenbert sem er hennar uppáhald og kötturinn auðvitað alls ekki náð að torga þessu!  Aftur á móti notaði frk. Dietrich tækifærið til að fara á sitt fína prívat (hún svo myrkfælin greyið litla að hún þarf að hafa manneskju hjá sér eða heyra í manneskju til að líða vel), meðan ég fékk mér kaffibolla, og leyfði mér síðan að þrífa prívatið. Ég hugsa að þessi köttur þoli illa mjólk og mjólkurafurðir … ojsen pojsen (orð sem Jósefína skilur mætavel en tengir aðallega við hægri hönd eigandans þá eigandinn kemur inn eftir að hafa verið að reykja úti á stétt).

Mér tókst að klára bók í gær, Sporaslóð, sem eru frásagnarkaflar eftir Braga Þórðarson, Skagamann.  Bragi hefur skrifað fullt af svona bókum með sögum; sögur af skrítnum körlum og kerlingum á Skaganum eða mannskæð slys eða annað sem minnir á frásagnabækur þeirra Tómasar og Sverris í denn. Að vísu hef ég lesið helling um sumt efnið áður en samt er þetta nú visst afrek að klára bók! Spurning um að taka aðra atrennu að Auði?

Ég labbaði líka einn hring úti, ætli hann hafi ekki verið upp á eina 50 – 60 metra. Þetta er afrek fyrir manneskju sem aðeins hefur komist út á stétt til að reykja eina og eina sígarettu, frá því fyrir jól! Með því að hafa útiveru og hreyfingu svona útspekúleraða litla gat ég haldið áfram að fúnkera þegar inn var komið og hrundi ekki saman á eftir.

Svo horfði ég á Áramótaskaupið endurtekið því ég gat ekki vakað eftir því á gamlárskvöld! Það er náttúrlega hámark aumingjaskaparins, ég viðurkenni það. En hálftíma áður en Skaupið átti að byrja var ég búin með alla orku og hrundi í rúmið, steinsvaf svo af mér allar sprengingar og annað áramóta-vesen. Mér þótti endurtekna Skaupið gott og var gaman að sjá hve ættingjar stóðu sig vel; bæði minn ættingi og svo unglingurinn úr hinn ættinni. Náði líka að sjá þá nanósekúndu sem lögfræðingur heimilisins sést.

Möbíusarprjónið varð algert fíaskó. Ég horfði aftur á kennslumyndbandið og sá hvaða vitleysu ég hef sennilega gert. Miðað við uppskriftina eins og hún er í prjónabókinni er skiljanlegt að misskilja. Nú ætla ég að fitja aftur upp, í þetta sinn fyrir framan tölvuna, horfandi á myndbandið.

Duglegir geðsjúklingar myndu fara úr náttfötunum og klæða sig í dagföt og fara á fund klukkan 11. Það er spurning hvernig ástandið verður á þessari bloggynju kl. 11 … af reynslu tel ég að hún fari frekar aftur upp í rúm og skjálfi soldið af tilhugsuninni um að hafa enn einn ganginn ekki meikað það á fund … en þetta skýrist væntanlega þegar líður á morguninn.

Gleðilegt nýtt ár!

Ég óska öllum gleðilegs nýs árs og þakka fyrir gamla árið!  Þessi kveðja er kannski dálítið snemmbúin því enn eru margar klukkustundir eftir af þessu ári … en miðað við líðan í gær er eins gott að tjá sig þegar færið gefst.

(Ég hef alltaf haldið að ég vissi hvar botn þunglyndisins væri. Núna veit ég að það var bara sylla og nú er ég stödd í botnlausu helvíti. Ég gæfi hvað sem er til að fá frí frá líðaninni í nokkrar klukkustundir!)

Möbíus

Dagurinn í dag hefur verið með skásta móti og ég fylgt fötum núna seinnipartinn. Ég nenni samt ekki að skrifa um eigin líðan í augnablikinu (hún hefur hvort sem er ekki breyst sem heitið getur lengi …) en set inn stutta færslu til að grobba mig af því að ég er að prjóna Möbíusar-herðaskjól (Freyja!!!) sem var uppskrift af í skemmtilegu prjónabókinni sem börn og tengdabörn gáfu mér í jólagjöf. Eftir nokkrar tilraunir tókst að fitja upp Möbíusar-fit á 80 cm hringprjóninn. Nú er að sjá hvað kemur út úr þessu ef prjónað er stanslaust undir “De fortvivlede husmødre” sem sömu aðilar gáfu mér líka í jólagjöf.

Annað sem familían gæti haft áhuga á er að nú er Jósefína á forsíðu Kattholts, sjá kattholt.is. Flestir hafa væntanlega þegar kveikt á því að hún er á fésbókinni, undir nafninu Jósefína Dietrich (vegna sérstakrar raddbeitingar).

Akkúrat núna eru drengirnir að prófa ísvélina (sem við hjónin fengum í jólagjöf), þeir stauta sig fram úr uppskrift á engilsaxnesku og mér heyrist að Jósefína sé eitthvað að hjálpa til í vigtun hráefna – og er skömmuð fyrir vikið! Aumingja litla dýrið … Best að að loka sig af inni í stofu meðan þessu fer fram.

Ég óska

dyggum lesendum gleðilegra jóla, árs og friðar!

Ég þarf ekki að skammast mín

þótt ég verði að þiggja ölmusu hins illa stadda “ríkis” fram í ágúst á næsta ári!  Nei, ég hef unnið mér inn þennan rétt og á stolt að nota hann … sem og sætta mig við geðveikina sem gerir mér ókleift að vinna eins og manneskja eða yfirleitt vera human being suma daga!

Aftur á móti hefur loksins komist í fjölmiðla hneyksli sem ég (útsvarsgreiðandi með meiru) hef margoft minnst á við kollega minn, sem vill svo til að hefur setið í svokallaðri “Ritnefnd um Sögu Akraness” frá snemma árs 2001. Nú hefur bærinn blætt 75 milljónum í söguritara nokkurn, sem upphaflega var ráðinn í verkið til plástrunar eftir að bærinn hafði neyðst til að segja honum upp öðru starfi … en við skulum ekki fara nánar út í það hér. Viskum heldur ekki nefna það að til er Saga Akraness, bindi I og II, ljómandi skemmtileg en kannski doldið höll undir sjávarútveg til að hugnast lærðum sagnfræðingum … kannski ætti líka ekkert að vera að nefna að Akranesbær borgaði Jóni Böðvarssyni fúlgur fyrir að skrifa Sögu Akraness; af henni kom út 1. bindi sem var aðallega endursögn Sturlungu og fleiri góðra rita sem samin hafa verið hér á Vesturlandi. 

Í DV í dag ber söguritari því við að: ” Það var ókostur hversu óskýrt var byrjað á verkinu. Ég geri þetta eins vel og ég get. Það er síðan annarra að dæma um gæði verksins en ég er afskaplega sáttur að hafa fengið tækifærið. Mér er vel kunnugt um gagnrýnina en þeir sem tala hæst hafa aldrei komið nálægt ritstörfum. Ég leiði gagnrýnina alveg hjá mér og hún snertir mig ekki.“ 

Það er kannski voða óskýrt að til séu tvær atrennur fyrir – hvað veit ég sem hef bara unnið við að gera ómerkilegt kennsluefni, á kvöldin og um helgar? Ég hef reyndar lesið þessar útgáfur annarra sem eru til um sögu Akraness  Ósagnfræðimenntuð þykist ég geta fullyrt að Saga Akraness I, eftir Jón Böðvarsson, er auðvitað ekki nokkurra milljóna virði – af því að hún er að svo miklu leyti eftir Snorra Sturluson, Sturlu Þórðarson, höfund Harðar sögu og fleiri, sem ekki er gerlegt að borga úr þessu. Ég man heldur ekki hvað bærinn borgaði Jóni Böðvarssyni í mörg ár við að skila engu. Mér er heldur ekki kunnugt um menntun Gunnlaugs Haraldssonar en ef honum líður eitthvað betur þá get ég alveg staðhæft að ég hafi óskup lítið komið nálægt ritstörfum – á pappír alla vega!  Það er náttúrlega ótvíræður kostur að geta snúið upp á sig sagt að leiðinda tuð um skil “snerti sig ekki” enda aðallega eitthvert rugl úr ómerkilegum pöpli sem ekki veit hvað sönn sagnfræði er. 

 Sögum annarra bæjarfélaga hefur samt verið snarað fram á liðnum árum, stundum hefur það tekið tímann sinn en mitt bæjarfélag á ábyggilega metið í að láta draga sig á asnaeyrunum í svona söguritun: Ekki einu sinni heldur tvisvar! ! Meira segja stórvirkið seinunna Silfur hafsins- Gull Íslands og Síldarútvegsnefnd nær ekki með tærnar þar sem sagnaritari og Ritnefnd um Sögu Akraness hefur hælana!

Fyrir utan þessar 75 milljónir sem búið er að blæða í karlinn lærða en seinskrifandi eru ótaldar þær fúlgur sem fulltrúar í Ritnefndinni fá fyrir hvern setinn fund. Og þeir fundir eru eðli málsins samkvæmt ansi margir, sjá http://akranes.is/stjornsysla/nefndir-rad-og-fundargerdir/fundargerdir/ritnefnd-um-sogu-akraness/ þar sem lesa má um marga fundi um það sem á að gera en hefur sumsé ekki verið gert.. Í fyrstu ritnefnd sitja t.d. kollegi minn sem ég kýs að nefna ekki, hann er mágur fyrrum bæjarstjóra sem situr í fyrstu ritnefndinni og systkinabarn við núverandi skólastjóra sem sat einmitt  í sömu ritnefnd en aðrar ættir kann ég ekki að rekja. Eitthvað hefur svo kvistast úr þessari ætt í ritnefndinni, í áranna rás,  enda gæti ég trúað að það reyndi á þolinmæðina að sitja svona fundi, a.m.k. ef maður kann ekki að prjóna. Kollegi minn er þó nógu staðfastur til að mæta samviskusamlega á fundi, ár eftir ár. Sumum er gefið ótrúlegt langlundargeð.

—- 

Mér finnst voða gott að geta fundist eitthvað – því miður finnst mér samt kannski of lítið um þetta mál, af því þetta er stórmál, sérstaklega ef haft er í huga hve bæjarfélagið er nískt þegar ekki er um að ræða íþróttir neðan klofs …  en það aðeins hreyfir við mér. Og gott er að geta fundið eitthvað annað til bloggunar en sífellt væl og víl hinnar óritstarfandi þunglyndu kvenpíslar sem hér ræður ríkjum.

Á morgun hitti ég minn góða lækni. Maður skyldi ætla að á degi heilags Þolláks sé séns á kraftaverki. Ég hef þegar kveikt á kerti. Annars er ég búin að liggja í rúminu í allan dag.

Bara

engar fréttir. Dagurinn í gær var fínn enda lá ég í rúminu bróðurpart dagsins. Þannig tókst mér að lesa heila bók. En ég merki enga sérstaka breytingu á líðan og reikna með að hún verði slæm áfram og ég fötluð.

Jósefína virðist hafa stofnað síðu á Facebook í nótt – a.m.k. lá vinaboð frá Jósefínu Dietrich í pósthólfinu mínu. Ótrúlega gáfaður þessi köttur!

Erfiður dagur framundan

Ef þetta morgunsár hefur forspárgildi þá verður dagurinn langur, dimmur og kaldur. Fór á fætur rúmlega fimm og fékk ekki nema rétt hálftíma ógeðveik. Veit ekki á gott.

Það er slatti af smámunum sem ég á eftir að gera, t.d. pakka utan um jólagjafir og  fara í sturtu. Allt þetta vex mér í augum og ég er mest að hugsa um að liggja í rúminu í dag, vandlega grafin undir sængur.

Jósefína á líka bágt því í gær var ákveðið að hætta að traktera köttinn á mjólk, vegna meltingartruflana. Hún situr því hissa / bálvond / sár / fortvivlet við ísskápinn þegar ég sæki mér mjólk í kaffið en læt svo fernuna festulega aftur inn í skáp og loka! Ég hef reynt að sleikja úr henni fýluna með því að vera óvenju örlát á kattafreistinguna lax-þurrbitar en mér er ekki vel fyrirgefið. Hin kattafreistingin sem ég keypti er litin sömu augum og ómerkilegt Bónus-þurrfóður. Annars fékk kisan loksins eitthvað almennilegt í gær; kjúklinga, vandlega brytjaða fyrir hana; ótrúlegt hvað svona lítill köttur getur troðið miklu í sig! Matarást hennar snérist umsvifalaust 180° að manninum, sem eldaði og brytjaði oní’ana.

Sá grein um meðvirkni í mogganum áðan. Eru menn ekki aðeins að einfalda hlutina með því að halda því fram að yfir helmingur þjóðarinnar “þjáist” af meðvirkni? Sjálf er ég meðvirk með kettinum og skil vel ásakandi og harmþrungið augnaráð hennar og þarf að beita mig hörku til að loka ísskáp án þess að skaffa mjólk. Og vel að merkja var kötturinn líka búinn að skilyrða mig til að horfa á sig drekka mjólkina – annars drakk hún hana ekki! Hef prófað að bjóða sódavatn í staðinn (úr ísskápnum) en það boð hefur verið hunsað.

Ég er annars of lasin til að skrifa um meðvirkni núna og Lausnina … bendi fólki á að lesa greinina í sneplinum ( ef það kemst einhvers staðar yfir snepilinn)  og spurja sig svo hreinskilnislega hvort það trúi þessu eins og nýju neti. Vel að merkja er ég alls ekki að afneita meðvirkni. Mér finnst hins vegar einum of þegar hún er talin valda flestum geðrænum eða andlegum kvillum. Þessi andsk. alhæfingarárátta; að lausnin á t.d. mínum veikindum sé einfaldlega að svissa úr AA í CODA eða svissa yfir í grænmetisfæði eða svissa yfir í labbitúra fer óskaplega í taugarnar á mér!

E.t.v. hætt að versna?

Í gær fór ég í hálftíma upp á Byggðasafn, á handverkssýningu. Það var mér nánast um megn en ég kláraði dæmið án þess að hrynja skjálfandi og grenjandi upp í rúm, eftir að hafa séð allt þetta fólk og alla þessa handavinnu. Ég hrundi bara upp í rúm og lá þar í 2 -3 tíma, skjálftalaus. Ég held að þetta sé í fyrsta sinn sem ég fer út úr húsi síðan 3. desember.

Núna fór ég að hugsa um að ég þyrfti að panta lyf, fara út í bókabúð (50 m í burtu?) og lesa þar marga titla af barnabókum. Byrjaði að skjálfa um leið. Svo ég samdi við mig um að fara núna í sturtu og leggja mig lengi og skoða svo hvort ég treysti mér út í bókabúð. Kannski líka bókasafn (í sama húsi) að fá lánaðar fleiri myndabækur. (Undanfarinn mánuð hefur “lestur” minn einskorðast við ljósmyndabækur, einkum til að skoða fötin sem fólk klæddist í denn, og moggann, sem er einkaeign mannsins en hefur þann undraverða hæfileika (altso mogginn) að skolast samstundis úr heilabúinu aftur!  Þarf líka að hringja eitt símtal … því er einnig frestað um sinn.

Ég vaknaði kl. 4, náði að sofna aftur til rúmlega 5 en fór þá á fætur. Samt fór ég að sofa með seinna fallinu í gærkvöldi, klukkan orðin meir en ellefu og ég algerlega örmagna. Ætli kona hverfi þá ekki til fyrri hátta, sem er að sofa frá níu til níu og leggja sig um miðjan daginn. Guði sé lof fyrir svefninn! Á hinn bóginn hlýtur að vera ömurlegt að búa með svona konu.

Enn eitt:  Vilborg, ef þú lest þetta þá þakka ég kærlega fyrir kveðjuna sem þú sendir með þínum gamla frönskukennara!  Vonandi gengur vel að halda sjó í bókaflóðinu og öllum upplestrunum.