Author Archives: Harpa

Dagurinn í gær

var skárri! Ekkert alvarlegt grátkast með skjálfta og svima og ógleði … sem er gott. Enn get ég lítið gert; t.d. hvorki lesið né fylgst að ráði með sjónvarpi. Ég prjóna og hlusta á rás 1 (jólagaggið á hinum stöðvunum er ábyggilega óhollt fyrir litla geðveika konu!).

Jósefínu er nú ljóst hver er eigandi hennar (og hver á harðfiskinn og mjólkina í ísskápnum). Hún má ekki af mér líta! Í rauninni er hún verri með þetta en Vífill var í bernsku en hann var einmitt sérstaklega fyrir það að “vera með mömmu”. Þau eru soldið lík.

Er farin að prjóna …

Ef

ég sæi minnsta möguleika á að fá almennilegt læknadóp inni á geðdeild færi ég umsvifalaust á bráðamóttökuna! Ég gæfi hvað sem er til að fá frí frá sjúkdómnum í nokkra klukkutíma á dag! Því miður er allt tálvonir og ég verð að lifa í þessu helvíti áfram, með minni eigin skömmtun lyfja. Þetta minnir mig á fæðingu frumburðarins, þegar kona hugsaði sem svo að ef hún fengi smá pásu frá hríðunum gæti hún alveg haldið þessu áfram … sjálfsagt kannast margar konur við þá hugsun. En við erum ekki að tala um sólarhrings píningu hér; ég reyni að komast gegnum vikulanga daga án þess að grenja alltof mikið eða skjálfa allt of mikið eða pæla alltof mikið í mismunandi sjálfsvígsaðferðum.

Það er ekkert hægt að gera! Hugsanlega má skoða tímafrekar hrossalækningar eftir hátíðar.

Fokið í flest skjól

(metaphorically speaking) – en mér hefur ekki tekist að klæða mig í dagföt, fara út í 50 m í burtu búðina, prjóna skammlaust (villurnar eru orðnar svo margar að ég mun halda því fram að þetta sé svokallað “anarkískt munstur”!) o.s.fr. Maðurinn fór í búðina og í hraðbanka fyrir mig en lá við að bankinn æti kortið enda PIN-númerið, sem ég skrifaði á miða fyrir hann, algerlega úr lausu lofti gripið! Mér tókst að hafa upp á rétta númerinu og það er ekki einu sinni líkt því sem ég lét manninn fá!

Nú er ég næstum alveg hætt að skæla undir sæng, sem þýðir að mér elnar sóttin. Á endanum verð ég eins og trédrumbur, tilfinningalega séð. Samt líður manni einmitt eins og holum trédrumbi, sem er verra en massívum drumbi! Heilastarfsemi minnkar með hverjum deginum (sem er bagalegt þegar prjónað er eftir uppskrift) og mér tekst æ sjaldnar að ljúka heilli setningu (en heimilisfólkið er orðið lagið við að giska á hvað ég er að reyna að segja).

Sem sagt: Mér líður djöfullega og vona að leið niður á botn verði fljótlega náð. Þetta má ekki versna mikið úr þessu.

Í nótt hrökk ég upp kl. 2.30 og gat ekki sofnað aftur. Fór á fætur, spjallaði við afar hamingjusama Jósefínu, hitti óvænt unglinginn þegar hann skilaði sér heim af næturrölti og náði svo að sofa milli kl. 6 og 8.  Einnig hef ég náð svona sirka klukkutíma svefni í dag en eytt þrisvar sinnum lengri tíma undir sæng því mér var orðið um megn að feisa eigin líðan.

Engar töfralausnir eru til – ég er búin að prófa flest sem býðst og það virkar þvi miður ekki á mig. Eina færa leiðin er að sætta sig við að vera tímabundið fatlaður aumingi sem ekkert getur. Ef menn geta ekki sætt sig við það þá er bara ein leið úr vandanum og það er leið sem ég vil ekki og mun ekki fara. Alger uppgjöf fyrir sjúkdómnum er best! Að berjast gegn honum gerir hvort sem er ekkert gagn og getur gert ógagn.

Mér datt annars í hug í dag þegar ég las póst um að veikum starfsmanni hefði verið færð blóm og annar veikur starfsmaður hefði verið heimsóttur (báðir á spítala) að enginn á vegum starfsmannafélagsins hefur nokkru sinni heimsótt mig, í mínum spítalavistum, hvað þá fært mér blóm. (Aftur á móti fékk ég einu sinni risablómvönd frá norskum samstarfsaðilum mínum, sent gegnum Interflora …) Ég velti því fyrir mér hvort innst inni skipti máli hvaða sjúkdóm maður ber. Er hugsanlegt að hinir meðvituðu og upplýstu samstarfsmenn mínir séu kannski fordómafullir inn við beinið og ytra upplýsta byrðið einungis til skrauts? Telst geðdeild ekki spítaladeild? Telst þunglyndi ekki jafnhatta krabbameini? (Án reynslu þá mundi ég á dögum sem þessum frekar þiggja krabbameinið, takk!) Er ég kannski sjálf paranojuð?  Er útskúfunin vegna þess að ég er með “óeðlilegan sjúkdóm”, sem í augum annarra hefur sama status og holdsveiki eða sullaveiki höfðu hér áður fyrr? Ef elskulegir vinnufélagar mínir lesa þetta þá er ég ekki að falast eftir blómum hingað heim og er slétt sama um mismunandi vinnubrögð KOSS! Mér finnst þetta bara doldið skrítið, eftir svo margar spítalavistir.

Jákvæðar fréttir eru þær helstar að mjálm kattarins er að færast í eðlilegra horf og við vonum að breima-stuðið fari nú að renna af henni á næstu dögum! Maðurinn er upplýstari um þennan gang en ég, bæði ólst hann upp með köttum og einnig á hann Britney sem sína bestu vinkonu á Facebook.

Fyrirboði á ísskáp

Ekki er nóg með að Jósefína fari ferlega vel við nýjar innréttingar og eldri hillur heldur tók ég eftir kattarseglinum á ísskápnum í gær: Örugglega postulínsmynd af Jósefínu!  Fyrir mörgum / nokkrum árum (man þetta ekki svo gjörla) vorum við ég o.fl. í samstarfi við duglegar kennslukonur í Napólí, sem kenndu verðandi glæpaunglingum í slömm-hverfi þar í borg og unnu kraftaverk á hverjum degi!  Þær Luisa og Catarina voru líka alltaf að sinna sinni samstarfskonu með litlum gjöfum, m.a. um jól.  Þannig eignaðist ég t.d. viskastykki með uppskrift af þeim fræga drykk Limoncella, sem ég get því miður ekki drukkið en manninum þótti góður (þær gáfu líka litla flösku). Í önnur skipti fékk ég ísskápsskraut; Miðjarðarhafsbláan krossfisk og bröndóttan kött og eitthvert annað sjávarstykki sem brotnaði. (Þessi samvinna leiddi líka til þess að ég hef tvisvar dvalið í þeirri skítugu borg Napólí, horft áhyggjufull á Vesúvíus gnæfa þar yfir, og tvisvar komið til undurfögru eyjarinnar Caprí!)

Nema hvað: Þær stöllur voru óskeikular í vali á minjagripum sem tengdust Napólí, nema þegar þær gáfu köttinn. Ég man ekki sérstaklega eftir köttum í Napólíborg – aftur á móti man ég eftir “íslenskum hænum” að sporta sig í litlu porti eða bakgarði og dópistum að búa um sig í pappakössum fyrir utan hótelið í miðbænum og sprauta sig fyrir nóttina.

Kötturinn hefði verið frábær minjagripur frá Grikklandi, aftur á móti. En þaðan fékk ég enga minjagripi þrátt fyrir að hafa sótt námskeið í Nafplion, sem mun þýða Napólí og vann sér til frægðar að vera höfuðborg Grikklands í einn dag. Í ferðum okkar mannsins til grískra eyja höfum við heillast af litlu fíngerðu kisunum sem gera út á túrista á matsölustað. Jósefína mín er einmitt svona smábeinótt læða með augu í stærri kantinum og mundi gera það gott á grískum matsölusta, næði hún þokkalega mjóróma “mjá-i” (en enn tjáir kötturinn sig líkt og klón af Marge Simpson og Louis Armstrong!  Vonandi að þetta hormónarugl í henni lagist fljótlega.)

Af ofansögðu má ljóst vera að í áraraðir hafa það verið mín örlög að eignast Jósefínu! Ég hefði gefið henni grískt nafn (hafandi átt þær Helenu og Penelópu fyrir næstum tveimur áratugum) ef hún hefði ekki verið svo snjöll að vitja nafns hjá ólíklegasta draumþega, s.s. heimspekingi heimilisins!

Jósefína er búin að venja mig á að gefa sér mjólk þegar ísskápurinn er opnaður. Frá fyrsta degi hef ég tilkynnt ströng að kötturinn fái bara þurrfóður og vatn og vítamín til að minnka hárlosið. Jósefína var ekki búin að dvelja fimm mínútur á sínu nýja heimili þegar maðurinn dró fram steinbítsroð með fisktutlum og gaf henni – maðurinn fékk þarna tímabundinn forgang á vinsældarlista læðunnar. Til  mótvægis dróst ég út í búð, keypti kattanammi (sem kötturinn lítur ekki við) og vestfirskan bitafisk. Ég er núna vinsælust! 😉

Jósefína er líka búin að venja mig á að klóra sér og klappa, á mjúku teppi inni í stofu. Við stundum stöðvaflangs og aðrar lystisemdir í sófanum á kvöldin.

Bloggynja unir annars við prjónadútl en verður yfirleitt að rekja upp það sem er prjónað að kvöldi því þá fokkast meira að segja prjónainstinktið upp! Ég læt mig ekki dreyma um að lesa bækur því athyglisbresturinn er alger. Nóg að lesa mogga mannsins og gleyma honum strax aftur. Við prófuðum Ritalín til að slá á athyglisbrestinn sem fylgir þunglyndiskasti af verra tæinu, meðan ég lá inni á geðdeild, en það hafði engin áhrif, nema kannski að gera mig grátgjarnari?  Ég fann heldur engin fíknaráhrif af Ritalíninu og snögghætti á því á einum degi án fráhvarfa. Samt reikna ég með að hjúkkur læri í skólanum að Ritalín skuli ekki gefið fyrrum fíklum / ölkum …

Sem sagt: Get ekki lesið, man ekki neitt, ruglast í töluðum orðum og (það versta!) ruglast í hannyrðum. Svo líður mér hryllilega illa þegar líður á daginn – eiginlega óútskýranlega illa. Tek daginn í bútum. Og fögur fyrirheit í gær, um að klæða sig og fara á fætur og niðrí hannyrðabúð urðu að engu; skjálfandi á Joe Boxer tældi ég manninn til að fara í búðina fyrir mig, með skýr fyrirmæli í farteskinu.

Ég þarf þá ekkert að fatta upp á neinu nýju í dag, hef bara sama markmið, þ.e. klæða sig og fara út í búðina sem er svona 50 m í burtu frá heimili mínu.

Svo hugsa ég hlýlega til minna góðu fyrrum nemenda sem eiga að þreyta ÍSL 103 prófið í núna á eftir, án mín …

Jósefína II

Til hliðar sést agnarsmá mynd af kisunni Jósefínu, en bloggynja er einmitt pappírslegur eigandi hennar. Smella má á myndina til að sjá stærri mynd af fyrirsætunni, einnig fara á http://this.is/atli/album/2009_12_05_jolahladbord_a_Hotel_Borg/myndir.html ef dyggir lesendur vilja skoða synina og tengdadótturina líka. Bloggynja var engan veginn ferðafær eða sósíal-fær og passaði húsið og köttinn á meðan.

Auðvitað er þetta enginn venjulegur köttur! Hvaða köttur myndi fyrirfram vitja nafns? Svo er Jósefína mín einstaklega gæf og kelin og þæg (og þannig séð kannski ekkert óskaplega lík Jósefínu I, sem ég var svo lánsöm að kynnast fyrir löngu – sú kisa var afar lagin við að láta þjóna sér og kannski ekkert óskaplega þæg?)

Við tókum ekki eftir því fyrr en eftir nokkurra klukkustunda eign að Jósefína er ekki bara fallega bröndótt heldur tónar fullkomlega við nýju hurðirnar, gereftin og eldhúsinnréttinguna!  Tilviljun? Ég held ekki …

Þessi litla blíða kisa mjálmar eins og Marge Simpson! Saklaus tengdadóttir mín hélt að hún væri kannski með hálsbólgu. En maðurinn, alinn upp með dýrum eins og Tarsan apabróðir, áttaði sig umsvifalaust á að dýrið væri að framleiða estrógen og það skýrði líka mikinn áhuga þess á að komast út. Við pössum vandlega upp á að hún komist ekki út því hér í hverfinu er allt fullt af fress-flögurum sem gætu fallerað hana á svipstundu. (Hún er reyndar árs gömul og hefur eignast fimm kettlinga en eftir ófrjósemisaðgerðina lítum við á hana sem afturbatapíku – auk þess má hún ekki fara út fyrstu vikurnar því þá er viss hætta á að hún rati ekki heim aftur.)

Af eiganda Jósefínu eru engar góðar fréttir. Mestur partur sólarhringsins fer í algeran sljóleika; næ ekki að fylgjast með sjónvarpi eða lesa (las t.d. moggann í morgun og hef ekki hugmynd um hvað stóð í honum) og ferlega pirrandi málglöp þegar kvöldar, sem ýmist felast í hroðalegu mismæli eða að ég man ekki einföldustu orð. Meðvirkir fjölskyldumeðlimir eru duglegir að sparsla inn í setningarnar sem ég er að reyna að segja. Almennt og yfirleitt líður mér eins og einhver hafi dáið og að ég sé ekki partur af þessum heimi.

Planið í dag er að komast í labbitúr niður í bæ til að kaupa prjóna. Einnig að klæða mig í föt en sjúskast ekki allan daginn í Joe Boxer og náttbol.

Í Helju

Þessi færsla er til að tilkynna að einkageðdeildin á Vallholtinu hefur opnað á ný. Í gær sló mér svo rækilega niður að ég man ekki til svo mikilla átaka, áður en botninum var náð. Ég er búin að grenja í meir en  sólarhring, get ekkert og ekki einu sinni tjáð mig almennilega munnlega, við heimspekinginn minn. Núna er dofinn að færast yfir … og kuldinn. Ef ég skríð upp í rúm og slaka aðeins á byrja ég að grenja. Ef ég reyni að hanga á löppum líður mér eins og ég sé áhorfandi að heiminum – ég er einhvers staðar í skuggaríki þar sem er kuldi og frost. Þetta ágæta sjúkdómseinkenni þunglyndis, að líða eins og maður sé frosinn og algerlega heillum horfinn, er að sumi leyti skárra en kvíða- og grátköstin. Svo er gott að vera verseruð í heljufræðum ásatrúarmanna.

Ég hef ekki hugsað mér að fara út í frekari smáatriði en tilkynni vinum, ættingjum og nemendum mínum að ég get ekki haft samskipti við fólk hvorki læf né í síma fyrr en einhvern tíma eftir helgi. Nemendur mínir fá forfallakennara til að fara yfir prófin en kannski gleðjast mín góðu börn eitthvað yfir því að ég var búin að búa prófin til áður en mér var varpað út í ystu myrkur nánast óforvarendis.  Þið verðið að spyrja aðra en mig hvernig þetta verður græjað.

Beigurinn og geigurinn …

     

     

   

   

   

   

   

Hugleiðing um sokk, kött og hamingjuna

Í fyrradag uppgötvaði ég að ég kann ekki að prjóna hæl á sokk. Í gær prentaði ég út alls konar imbaleiðbeiningar um sokkaprjón, af netinu. Spurning hvort ég nenni að rekja upp og reyni að fara eftir þeim leiðbeiningum undir fréttum RÚV í kvöld? Ég er búin að steinsofa í 3 klukkutíma svo það er alveg möguleiki á að ég skilji ritað mál og jafnvel leiðbeiningar. Á hinn bóginn vantar mig ekki beinlínis sokk …

Við maðurinn brugðum okkur til þurrabúðarinnar-handan-Flóans í dag. Ég hitti minn góða lækni og hitti svo góða stéttarfélagsforkólfa sem höfðu fundið út næs niðurstöður um veikindaréttinn minn.  Púff!  Í alvöru hafði ég nefnilega sotlar áhyggjur af því að verða að sjá fyrir mér næstu árin með lopapeysuprjóni (sem er ömurlegt fyrir manneskju sem ekki höndlar vel uppskriftir en er fín í eigin uppfinningum með prjóna og garn, svo ég hrósi sjálfri mér oggolítið). Svo var enn eitt erindi en það tengist jólagjöfum svo yfir því skal þagað.  Aftur á móti var eins gott að við sluppum snemma af stað heim, veðravítið Kjalarnes var með verra móti og er víst orðið nánast kolófært núna.

Á leiðinni til þurrabúðarinnar heyrði ég að bókin Enn meiri hamingja (eða einhver svoleiðis titill) hefði selst upp á fyrsta útgáfudegi (eða eitthvað). Ég hafði hlustað á Ásdísi Ólsen lýsa þessari bók á sunnudaginn og fræðum bakvið hana og Karl Ágúst þýðandi skaut inn einni og einni jákvæðri athugasemd (svona er að vakna kl. 6 á sunnudagsmorgni og prjóna við útvarpsniðinn …). Auðvitað óska ég þeim hjónum alls hins besta og vona að seljist sem flest eintök. En ég vil bara taka það skýrt fram við alla sem gefa mér jólagjafir að ég vil ekki sjá þessa bók (þótt ég sé oft pínu ekki-hamingjusöm)!  Handbækur í hamingju eru ekki alveg að gera sig í mínum huga, ekki frekar en verkleg sporavinna eða ofurást á meðvirknifræðum (þetta þrennt tengist síðan alveg ótrúlega mikið). Í prjónabókinni sem ég hef að láni eru meira að segja 7 prjónaspor (hamingjuspor með prjónaívafi) og svo lagt mikið upp úr árvekni og hugleiðslu við “ljúfan klið prjónanna” (ég lýg þessu ekki, ljósritaði meira að segja hluta af hugleiðslu- og öndunarprjónaæfingunum handa sálfræðingnum á deildinni góðu á Lans og fékk lagt í pósthólfið hans í dag).

Nei, ég hef ákveðið að prófa enn nýja leið í batafræðum (e.t.v. ekki að fullu uppfundna ennþá) sem er að leyfa að mér sé gefinn köttur í jólagjöf. Reyndar fæ ég kisuna fyrir jól og finn fyrir tilhlökkun; Tilfinningu sem ég var næstum búin að gleyma hvernig er! Ýmsar umræður hafa verið um nafn á dýrinu (nafngiftir Kattholtsfólks voru ekki fýsilegar) en þótt ég hafi verið komin á þá skoðun að nefna dýrið Freyju, einungis með kattagyðjuna í huga (!), eða Elísu því Elísa er soldið bröndótt nafn finnst mér … þá breyttist það allt í morgun því hinn jarðbundna heimspeking heimilisins dreymdi í nótt að köttur vitjaði nafns!  (Þetta gerðist í hvorugt skiptið með strákana okkar … enda maðurinn óhugnalega óberdreyminn og man oftast enga drauma. Stundum hefur mér dottið í hug að hann dreymi ekki – heldur sé í svefninum að “sanna” eitthvað, t.d. að tvær línur séu samsíða eða álíka “QED” sannanir. Tuldrið úr honum upp úr svefni bendir til þess.)  Nema nú er ljóst hvað kisan heitir. Henni er það að vísu ekki ljóst sjálfri enda önnum kafin í ormahreinsun, ófrjósemisaðgerð, sprautu gegn kattafári og guð-má-vita hvaða hremmingum öðrum. Auðvitað er nafnið leyndarmál þar til ég hef hvíslað því í eyra nafnberans!

Ég verð víst að nýta þennan geðhressa tíma minn núna til fleiri verka en málæðis á bloggi – þarf að ganga frá prófi og fara yfir próf og vinna svoleiðis hundleiðinleg verk sem vissulega eru best unnin milli 7 og 9 á morgnana.  En 3 klukkutímar af fastasvefni hafa greinilega skilað hellings bata! Ofursvefn er vanmetinn í þessum geðveikigeira, finnst mér.

Þolinmæði er hrikalega erfið dyggð!

Eins og ég hef einhvern tíma bloggað áður þá er varla tilviljun að þolinmæði og sjúklingur er nánast stafsett eins meðal engilsaxa! Og víst er að ég hef ekki nóga þolinmæði (eða æðruleysi) úr því mér er stöðugt sköffuð frekari æfing í slíku, þótt ég sé að verða vitlaus á þessu!

Mér batnar sumsé ekki neitt … vikur hafa liðið án batavottar og í gær setti eitt oggulítið smáatriði mig út af laginu allan seinnipartinn og kikkaði af stað kvíðakasti!

Minn besti vinur er Morfeus – ef ég gæti ekki sofið lungann af sólarhringnum veit ég ekki hvernig ég höndlaði alla þessa ofurlöngu klukkutíma sem leynast í einum sólarhring.

Planið í dag: Vaka núna lengur við að leysa sunnudagskrossgátu, leggja sig svo, reyna svo að byrja að semja próf, leggja sig kannski aftur?, prjóna sig í gegnum seinnipart dags og fyrripart kvölds og hlakka allan tímann svolítið til að geta bráðum farið aftur að sofa! Skv. eigin sunnudagskrossgátumælingum undanfarnar vikur er ekkert að vitsmunum mínum eða fattara. En svo leggst dökka skýið yfir og í verstu tilvikum er ég málstola.

Þeim sem blöskrar væl og víl á þessu bloggi er bent á að vera ekkert að lesa það, lesa frekar Gunnlaugs sögu eða Fóstbræðrasögu (eða Gerplu) í staðinn 😉

Þeir sem vilja stafsetja dyggð með einu g-i mega það fyrir mér.

Haga sér eins og hinn íslenski karlmaður í þúsund ár!

Ef þess væri nokkur kostur væri ég í bælinu í dag. Þess er hins vegar ekki kostur og því hef ég brugðið yfir mig karlmennskugrímu sem myndi sæma hvaða Íslendingasöguhetju sem er (nema Agli því hann þurfti stundum að láta undan síga fyrir helv. þunglyndinu … en sennilega hafa þeir Þorgeir Hávarsson og Þormóður félagi hans aldrei þurft að lúffa og þar með tek ég mér þá til fyrirmyndar).

Taka 20 mínútur í einu í dag … það er aðferðin!