Nú líður að afmælinu Jesúbarnsins og kannski rétt að huga að því hvernig hann var klæddur blessaður, eftir að hafa vaxið upp úr reifunum. Þá þarf, eins og oft í upphafi, að skoða endi sögunnar um ævi Jesú:
Í Jóhannesarguðspjalli 19:23 segir, um krossfestingu Jesú: „Þegar hermennirnir höfðu krossfest Jesú tóku þeir klæði hans og skiptu í fjóra hluti og fékk hver sinn hlut. Þeir tóku og kyrtilinn en hann var saumlaus, ofinn í eitt ofan frá og niður úr. 24Þeir sögðu því hver við annan: „Rífum hann ekki sundur, köstum heldur hlut um hver skuli fá hann.“ Svo rættist ritningin: Þeir skiptu með sér klæðum mínum og köstuðu hlut um kyrtil minn.“ (Þetta er úr nýjustu þýðingunni, tekið af vef Hins íslenska Biblíufélags, feitletrun mín.)
Í Guðbrandsbiblíu, prentaðri á Hólum 1584, er kyrtli Krists hins vegar lýst sem prjónuðum: „Enn kyrtillin[n] var eigi saumaðr / helldr fra ofan verdu allr prionadr.“ (Smelltu á litlu myndina til hægri með klausunni úr Guðbrandsbiblíu ef þú vilt sjá stærri útgáfu. Guðbrandsbiblíu má skoða á http://www.baekur.is.) Þetta er elsta prentaða dæmið um orðið prjónaður (prjón) á íslensku. Oddur Gottskálksson segir hann aftur á móti ofinn, í Nýja testamentisþýðingu sinni sem prentuð var í Hróarskeldu 1540: „En kyrtillinn var eigi saumaður, heldur frá ofanverðu allur ofinn.“ (Sjá Jóhannesarguðspjall í þýðingu Odds.)
Til er norsk bók um bernsku Krists, frá 1508, Jesu Barndoms Bog, þar sem kyrtillinn er sagður prjónaður: María gerði syni sínum skyrtu með að „knøtte garn offuer stocke“ (stocke = prjónar). Í norskri Jærtegnspostille, sem prentuð var 1515, segir um kyrtilinn: „Knøttet eller bunden oc osyd, han wor heel offuer alt saa ath der wor ingen søm paa hannem“ og loks má nefna norska þýðingu á Húspostillu Lúthers (frá 1564) þar sem segir: „Kiortelen, efterdi hand vaar icke syt, men stockebunden.“ (Heimild fyrir þessu er Osynlege trådar i strikkekunsten eftir Annemor Sundbø, 3. útg. 2009, s. 72.)
Hvað sem því nú líður þá urðu vinsæl málverk strax á 13. öld sem sýna Maríu mey vera að prjóna kyrtil á Jesú lítinn. Skv. þjóðsögnum óx kyrtillinn með honum og hefur því verið sami kyrtillinn og hann var seinna krossfestur í (reyndar eru Austur- og Vesturkirkjan ekki alveg sammála um þetta, sem gæti skýrt af hverju hafa varðveist fleiri en eitt eintak af þessum kyrtli).
Það sem er athyglisvert við þessar myndir er að María prjónar með fimm prjónum, vandræðalaust, sem sýnir að slíkt hefur verið þekkt þegar snemma á 14. öld; málverk Ambrogio Lorenzetti er talið frá því um 1349 og málverkið sem er hluti Buxtehude altarinsins, eftir Meistara Bertram af Minden, er talið frá því um 1400 – 1410. Málverk Bertrams er hér að ofan til hægri en málverk Lorenzettis til vinstri. Á málverki Lorenzetti situr María á gólfinu eins og hvur önnur alþýðukona, Jesú litli þrýstir sér upp að mömmu og eiginmaðurinn Jósef situr á stól og horfir á. (Reyndar klippti ég Jósef út úr báðum myndunum í færslunni og vona að enginn sakni hans – menn verða þá að brúka myndaleitina í Google til að finna málverkin með Jósef og öllu.)
Hvað varð svo um kyrtilinn sem María prjónaði? Eins og áður sagði eru varðveitt nokkur eintök, sem eru:
Kyrtillinn í Dómkirkjunni í Trier, Þýskalandi er langfrægasta eintakið. Sagt er að Helena, móðir Konstantíns mikla, hafi fundið kyrtilinn í Landinu helga og sent hann til Trier, á sínum tíma. Þessi kyrtill hefur verið sýndur opinberlega öðru hvoru allt frá 1512, síðasta sýning var 1996. Hann hefur ekki verið rannsakaður eða aldursgreindur og engar heimildir eldri en um 1200 geta hans.
Annað eintak af kyrtlinum Jesú er varðveitt í basilíkunni í Argenteuil í Frakklandi. Sá er sagður hafa verið borinn af Jesú alla ævi og staðfestir þannig söguna um að kyrtillinn sem María prjónaði hafi vaxið með honum. Skv. sögusögnum þessum fylgir að kyrtillinn í Trier sé bara ytri kyrtill sem Jesú hafi klæðst seint á ævinni. Því miður er franski kyrtillinn ekki lengur heill heldur í fjórum bútum. Hann, eða bútarnir, var síðast sýndur árið 1900.
Nokkrir bútar úr kyrtli Jesú bárust Austurkirkjunni / grísk-orþódoxu kirkjunni, s. s. til Pétursborgar, Moskvu, Kænugarðs og víðar. 10. júlí ár hvert er Moskvubúturinn sýndur við hátíðlega athöfn.
Myndin sýnir kyrtilinn hans Jesú sem varðveittur er í Trier.
Þeim sem hafa áhuga á kyrtli Jesú er bent á síðuna Seamless robe of Jesus, á Wikipedia og aðra sérstaka síðu um kyrtil grísk-oþódoxu kirkjunnar rússnesku.
Við prjónakonurnar getum svo velt því fyrir okkur hvort og þá hvernig hún fór að því að prjóna ermarnar því þær virðast einhvern veginn prjónaðar með bolnum, skv. málverkunum, … og ekki hvað síst hvernig unnt sé að prjóna flík sem vex með krakkanum, hafandi alist upp við málsháttinn “barnið vex en brókin ekki” 🙂