1. -2. kafli |
Ætt Skalla-Gríms kynnt til sögunnar.
Athugaðu ættartöflur vel og hvernig einkenni erfast. |
2. - 4. kafli |
Af innanlandsófriði í Noregi. Haraldur
lúfa/hárfagri er að leggja undir sig Noreg. |
5. kafli |
Haraldur vill stuðning Kveld-Úlfs og sona
hans. Kveld-Úlf grunar að ógæfa hljótist
af tengslum við konunginn. |
6. kafli |
Þórólfur gerist hirðmaður
Haralds konungs. |
7. kafli |
Um Hildiríðarsyni. Athugaðu vandlega
tengsl þeirra við Þórólf og uppruna þeirra. |
8. kafli |
Sigríður á Sandnesi giftist Bárði
(Brynjólfssyni Björgólfssyni). |
9.kafli |
Bárður fellur og Sigríður er gift
Þórólfi, vini Bárðar. Hildiríðarsynir
krefja Þórólf um föðurarf sinn en fá
ekki. |
10. kafli |
Af uppgangi og höfðingsskap Þórólfs;
víkingaferð hans í land Kylfinga. |
11. kafli |
Þórólfur heldur konungi veglega veislu. |
12. kafli |
Hildiríðarsynir segja konungi að Þórólfur
hafi safnað liði gegn konungi og ætlað að brenna
hann inni. Þórólfur vilji verða kóngur. |
14. kafli |
Víkingaferð Þórólfs á
Kirjálalandi. |
15. kafli |
Hildiríðarsynir segja konungi að Þórólfur
dragi undan Finnskatt og gjaldi konungi ekki sinn hlut. |
16. kafli |
Haraldur konungur kastar eigu sinni á eignir Brynjólfs/Bárðar
(Torgir). Konungur lætur Hildiríðarsyni fá
skattheimtu á Finnmörk í stað Þórólfs. |
17. kafli |
Hildiríðarsynir segja að Þórólfur
hafi verið búinn að kúga fé á Finnmörku
svo þeir sjálfir hafi aðeins heimt lítinn skatt
(lítið hafi verið eftir í skatt). |
18. kafli |
Sigtryggur snarfari og Hallvarður harðfari (konungsmenn)
ræna skipi Þórólfs. |
19. kafli |
Þórólfur rænir konungsskipi
í Danmörku. Þórólfur drepur bróður
Sigtryggs og Hallvarðs og brennir bæ þeirra. Þórólfur
rænir og ruplar í Noregi. |
20. kafli |
Skalla-Grímur kvænist Beru Yngvarsdóttur. |
21. kafli |
Hallvarður og Sigtryggur fá leyfi til að
ráðast á Þórólf. |
22. kafli |
Haraldur konungur ræðst á Þórólf
og drepur hann. |
23. kafli |
Ketill hængur drepur Hildiríðarsyni
og fer til Íslands. |
25. kafli |
Skalla-Grímur móðgar Harald konung. |
27. kafli |
Skalla-Grímur og Kveld-Úlfur drepa Sigtrygg
og Hallvarð ásamt sonum Guttorms (fóstra konungs).
Þeir flýja til Íslands. Kveld-Úlfur deyr. |
28. - 30. kafli |
Af landnámi og búskap Skalla-Gríms. |
31. kafli |
Af börnum Skalla-Gríms og Beru. Egill
kemur til sögunnar. Fyrstu vísur Egils. |
32. kafli |
Ástarsaga Bjarnar haldar og Þóru
hlaðhandar. Björn rænir Þóru, sem er
systir Þóris hersis, fósturbróður Skalla-Gríms
(sbr. 25. kafla). Þau dvelja hjá Skalla-Grími,
á Borg. |
35. kafli |
Ásgerður fæðist. Hún
er jafngömul Agli og elst upp á Borg en foreldrar hennar fara
til Noregs og sættast við Þóri hersi. Þórólfur
Skalla-Grímsson fer með þeim. |
36. kafli |
Þórólfur vingast við Eirík
blóðöx Haraldsson. (Ath. að Þórólfur
gefur Eiríki karfa, en Þórólfur Kveld-Úlfsson
gaf Haraldi konungi langskip á sínum tíma.)
Þórir hersir fóstraði Eirík blóðöxi.
Þórir hersir er faðir Arinbjörns, sem seinna verður
besti vinur Egils. |
37. kafli |
Eiríkur blóðöx tekur við ríki
og kvænist Gunnhildi. Þóra hlaðhönd deyr
og Björn hersir/höldur kvænist aftur. Hann eignast
dótturina Gunnhildi með seinni konu sinni. |
38. kafli |
Þórólfur fer til Íslands.
Eiríkur blóðöx sendir gjöf til Skalla-Gríms
(exi) sem Skalla-Grímur eyðileggur. Þórólfur
undirbýr ferð til Noregs og Ásgerður ætlar
með. (Framhald af þessu er í síðari hluta
40. kafla.) |
40. kafli |
Egill drepur leikfélaga sinn.
Skalla-Grímur drepur Brák. Egill drepur ráðsmann
föður síns. Egill kúgar Þórólf
til að taka sig með til Noregs. (Þá eru Egill
og Ásgerður sennilega 17 ára en Þórólfur
27 ára.) Þórólfur hendir exinni, sem Skalla-Grímur
spillti og endursendi, í sjóinn. |
41. kafli |
Egill dvelur hjá Þóri hersi og vingast
við Arinbjörn. Þórólfur færir
Eiríki „gjöf frá Skalla-Grími“.
8 ár líða, þannig að í upphafi 42. kafla
er Egill orðinn 25 ára og Þórólfur 35 ára. |
42. kafli |
Þórólfur biður Ásgerðar
og fær hennar. Egill tekur sótt. |
43. - 45. kafli |
Egill drepur Atleyjar-Bárð og verður því
óvinur Gunnhildar drottningar. |
46. - 48. kafli |
Egill og Þórólfur eru í víking.
Dæmi um grimmd Egils. |
49. kafli |
Gunnhildur drottning biður bræður sína
að drepa Egil eða Þórólf en það mistekst.
Egill rænir skipi bróður Gunnhildar. |
50. - 54. kafli |
Egill og Þórólfur berjast með
Aðalsteini Englandskonungi gegn Skotum o.fl. Þórólfur
fellur. |
55. kafli |
Egill greftrar Þórólf. Ath.
merkilega lýsingu á Agli. Arinbjörn gerist lendur
maður Eiríks konungs. |
56. kafli |
Ástarsorg Egils. Egill kvænist Ásgerði
og þau flytjast til Íslands. Berg-Önundur kvænist
Gunnhildi, hálfsystur Ásgerðar. |
57. kafli |
Björn höldur deyr. Berg-Öndunur
og Gunnhildur taka allan arf. Egill fer til Noregs og reynir að
fá arfhlut Ásgerðar á Gulaþingi en tekst
ekki. Egill fer með ákvæðavísu gegn Eiríki
og Gunnhildi drottningu. |
58. kafli |
Egill er gerður útlægur úr Noregi.
Egil drepur Berg-Önund og fleiri. Egill drepur Rögnvald
konungsson. Egill reisir níðstöng gegn Eiríki
og Gunnhildi drottningu. Egill fer til Íslands. |
59. kafli |
Lát Skalla-Gríms. |
60. kafli |
Eiríkur og Gunnhildur flýja úr Noregi
til Norðimbralands (á Englandi). Gunnhildur eflir seið.
Egill fer til Englands. Eiríkur ætlar að láta
lífláta Egil. |
61. kafli |
Arinbjörn leggur Agli lið. Egill flytur
Höfuðlausn. |
62. kafli |
Agli er gefið höfuð sitt og fer til Aðalsteins
Englandskonungs. Egill gefur Arinbirni gjöf. |
63. kafli |
Þorsteinn Þóruson (systursonur Arinbjarnar)
ætlar til Noregs til að ná arfi sínum. Egill
fer með sem stuðningsmaður. Egill hyggst ná arfi
Ásgerðar, er Atli hinn skammi, bróðir Berg-Önundar,
gæti nú. |
64. kafli |
Hákon konungur vill að Egill nái rétti
sínum í Noregi. Hann vill losna við Egil til Íslands. |
65. kafli |
Egill er veðurtepptur hjá Friðgeiri og
Gyðu, systur Arinbjarnar. Egill berst við Ljót berserk
og fellir hann. |
66. kafli |
Agill krefst arfs Ásgerðar af Atla hinum skamma.
Egill fellir Atla í hólmgöngu og fær arf Ásgerðar. |
67. kafli |
Egill fer til Íslands. Afkomendur Egils
kynntir til sögu. |
68. kafli |
Egill heimsækir Arinbjörn í Noregi. |
69. kafli |
Egill gerist þunglyndur vegna fjár Ljóts
hins bleika. Arinbjörn gefur Agli mikið fé og Egill
tekur gleði sína. |
70. kafli |
Arinbjörn og Egill fara í víking. |
71. - 72. kafli |
Egill fer í skattheimtuferð fyrir Þórstein
Þóruson. Honum sinnast við Ármóð
skegg. |
73. kafli |
Egill læknar dóttur Þorfinns. |
75. kafli |
Egill gefur Álfi loðúlpu. |
76. kafli |
Egill drepur 8 menn og 11 menn, einsamall. |
77. kafli |
Egill kemur alkominn til Íslands. |
79. kafli |
Þorgerður Egilsdóttir giftist Ólafi
pá. Böðvar Egilsson drukknar. Egill hyggst
svelta sig í hel. Þorgerður fær hann til að
yrkja Sonatorrek. |
80. kafli |
Egill yrkir Arinbjarnarkviðu. |
81. kafli |
Einar skálaglamm gefur Agli skjöld en Egill
vill drepa hann fyrir vikið. |
82.kafli |
Þorsteinn Egilsson stelst í slæður
Egils. Ásgerður deyr. Egill sest að hjá
Þórdísi Þórólfsdóttur á
Mosfelli. |
83. - 87. kafli |
Deilur Þorsteins Egilssonar og Steinars um landamerki. |
88. kafli |
Egill í ellinni. Egill felur silfrið.
Egill deyr áttræður að aldri (árið 990). |
89. kafli |
Um bein Egils. |
90. kafli |
Um afkomendur Egils. |