|
NJÁLU - fréttir |
Heljarmennið Gunnar Hámundarson, stórbóndi á Hlíðarenda, hefur beðið um hönd hinnar fagurhærðu Hallgerðar langbrókar, dóttur Höskulds Dala-Kollssonar úr Dölum. Tókust kaupmálar þeirra á milli, eftir ráðfæringar Höskulds við hálfbróður sinn, Hrút Herjólfsson.
Nú er beðið með eftirvæntingu eftir stórbrúðkaupi þeirra Gunnars og Hallgerðar sem verður haldið á Hlíðarenda þann 8. ágúst, og er öllum velunnurum brúðhjónanna boðið til samsætis.