NJÁLU - fréttir
Gunnars hefnt

Það var þó aldrei svo að höfðinginn Gunnar lægi lengi án hefnda. Þar kom til Högni, sonur hans, og Skarphéðinn Njálsson. Rannveig hafði bannað hverjum manni að snerta atgeirinn nema hann vildi Gunnars hefna. Svo brá við síðastliðið kvöld að Gunnar birtist þeim Högna og Skarphéðni. Haugurinn var opinn, snéri Gunnar öfugt og í móti tungli. Hann kvað vísur og þótti þeim hann segja að hann hefði heldur viljað deyja en vægja fyrir óvinum sínum. Hann eggjaði þá til hefnda. Eftir þetta tók Högni atgeirinn og þeir fóru saman.

Í Odda drap Skarphéðinn Tjörva og Högni Hróald, son Geirs goða. Síðan fóru þeir undir Þríhyrning þar sem Skarphéðinn drap Starkað en Högni Þorgeir Starkaðarson. Þeir fóru víst á Hof einnig en Mörður bað sér griða og tók Högni sér sjálfdæmi.

Samið af Magnúsi


Fletta áfram...
Fletta til baka...
Efst á baugi...
Aftur á forsíðu...