Í brúðkaupi Hallgerðar og Gunnars sem haldið var að Hlíðarenda í Fljótshlíð, gerðist sá merki atburður að Þráni nokkrum Sigfússyni var starsýnt á barnunga dóttur Hallgerðar, hana Þorgerði, 14 ára að aldri. Þórhildur, kona Þráins til margra ára, sá þetta og varð mjög afbrýðisöm. Þórhildur kvað þegar niðrandi vísu til eiginmanns síns. Hann brást þannig við að hann nefndi sér votta og sagði skilið við Þórhildi. Í þessu sama brúðkaupi bað hann Þorgerðar og fékk hennar.