Það er ekki allt jafn eymdarlegt í týndu árunum í lífi mínu. Þetta er úr bloggfærslu 15. júní 2006:
Drengbarnið: “Mig hlakkar svo til að fara til Krít.”
Ábyrg móðirin (= ég): “Ég hlakka svo til að fara til Krítar.“
Drengbarnið (í skilningsríkum mæðutóni): “Já, hvern hlakkar ekki til? Krít er svo æðisleg.”