Category Archives: Uncategorized

Eigi kona rúblur er hún ekki öreigi

Ég hef dúllað við hannyrðir sem sæma melankólískri konu um nokkurt skeið. Þetta eru stafrænar hannyrðir og ég hlakka til að sjá hvernig þær koma út (þótt ég viti nú þegar um villur í stykkinu 😉  Nema hvað: Ég þykist hafa gengið frá öllum endum og sendi nú mína hannyrð til blurb.com, sem mun prenta afraksturinn og senda mér, gegn greiðslu í kreditkorti.

Ég panta – gef upp númer – sé að varan er afgreidd og lögð af stað!  Jess! 

Svo datt mér í hug að gera fleiri eintök og pantaði nokkur í viðbót. Þær pöntunartilraunir hafa allar runnið út í sandinn því Visa-kortið mitt er í einhverjum hroðalegum vandræðum, gott ef ekki á vá-lista.

Þetta var því undarlegra sem nákvæmlega sama vísa-kort hafði verið talið fullgilt í fyrstu atrennu.

Skynug sem ég er fór ég að leita skýringa hjá mínum góða banka Kaupþingi (eða hvað’ann nú heitir núna – svarti sorgarliturinn fer einkar vel á síðunni og mætti ætla að menn hefðu verið forspáir á þeim bænum!).  Kemst að því að ekki sé hægt að taka út útlenska peninga á vísa-kort í þeim banka. Svo skoðaði ég vandlega yfirlitið yfir vísa-kortið, sem ég nota aldrei nema í útlöndum og útlenskum viðskiptum.  Kemur þá ekki í ljós að ég á fyrir eins eintaks greiðslunni af því ég á inni rúmar 5000 kr. í rúblum!

Maðurinn minn elskulegur hafði fyrir svona tveimur mánuðum hjálpað sinni konu að aflúsa og hreingera hennar tölvu. Þá vantaði almennilegt Adaware forrit – eða Spyware. Maðurinn keypti eitt spyware, borgaði og setti upp en í bríaríi var hann langt kominn með að kaupa annað þótt borgunin hafi verið í rúblum. (Ég hef þá reglu að skipta ekki við rúblu-viðskiptamenn af því sambandið getur slitnað í miðju kafi og auk þess er mörgum ekki treystandi.) Enda fór svo að þegar búið var að rukka manninn um allar upplýsingar á kreditkortinu (mínu) gafst forritið upp hálf-niður-halað.

Ég fór daginn eftir í minn góða banka, útlistaði fyrir konu nokkurri hvað hefði gerst (sumsé að við værum nú rukkuð fyrir hálft forrit og eins og allir vita ganga forrit ekki hálf).  Viðskiptin hefðu sumsé mistekist og ég vildi gjarna að þau gengju til baka.  Konan féllst á það.

Rúblurnar sem ég greiddi fyrir hálfa forritið voru svo endurheimtar – í líki rúbla- og lágu inn á kreditkortinu. Þess vegna gátu hinir elskulegu Kanar leyft mér að kaupa eitthvað: Þeir hafa greinilega fullt traust á rúblum en “Something’s rotten in the State of Iceland”!

Svartir hundar að ganga?

Ég er a.m.k. með svörtu hundana – blásaklaus og hafandi lifað heilsusamlegu lífi í margar vikur! (Hreyfing telst ekki með í heilsusamlegu lífi mínu.)  Vaknaði kl. 5 í morgun og gat alls ekki sofnað aftur. Svo ég fór þá á neðri reykleyfðu hæðina mína (sem lítur út eins og loftárásarrústir, þ.e.a.s. gapandi gígar um öll gólf og steypuhlunkar í bunkum), tiplaði milli gíganna og gat búið til oggulítið pláss í litlu stofunni, hvar ég fór svo yfir annan ritgerðabunkann af tveimur. (Sá bunki angar náttúrlega af náttúruafurðinni Winston – ef krakkarnir kvarta get ég svo sem vel spreiað ilmvatninu mínu með vondu lyktinni yfir …)  Þegar klukkan nálgaðist átta var ég orðin sjóveik og viss um að íslenskri tungu yrði hvussumer ekkert bjargað og efaðist um að ég gæti talað heila kennslustund. Svo ég meldaði mig veika.

Ég hef næstum ekkert getað sofnað í dag og reyndi það á eigin heila að hafi maður svarta hunda þarf að setja upp dæmi á moggaspássíu skuli margfalda stigafjölda með 4! 

Ég hef lítinn áhuga á að liggja í svörtu hundunum lengur, það er nefnilega ekki þægilegt, minnir helst á heiftarlega timburmenn.  Svo ég geri mitt besta til að mæta á morgun!

Kona með svarta hunda segir annars afskaplega fátt títt.

Ég get svo svarið það

að okkar lið var fegurra og föngulegra en þeirra í Kópavogi! En ekki fer alltaf saman gæfa og gjörvileiki, vita allir sem hafa lesið svona tug Íslendingasagna eða svo, auk Kamelíufrúarinnar, og hefði kópvoxni íþróttafréttarinn kallað frammistöðu okkar Skagamanna í Útsvari  “að lúta í gras”. Eina dæmið sem Orðasambandsbanki Árnastofnunar finnur um þetta er “(<verða að) lúta í gras (fyrir <sverði hans>)”  Svoliðis að mig minnir rétt um að lúta í gras sé að drepast endanlega og því ekki fallegt að sífra það yfir keppnismönnum í gamnikeppni … 

           

              

Þótt okkar lið hafi verið sýnu gervilegra en það kópvoxna komst ég að því áðan að okkar bæjarmerki er klastur eitt hjá þeirra í Kópavogi.  Reyndar má nefna til afsökunar að Akranes notar sitt merki voðalega lítið og sjálfsagt halda flestir, bæði innan og utan bæjarins, að hið gula glaðlega merki ÍA sé bæjarmerkið. Ég sýti ekki þann misskilning eftir að hafa séð lummulegt bæjarmerkið okkar.

Ég hitti kollega minn á vinnustað í gær, hvar hann lék við hvurn sinn fingur (hvernig sem það er nú hægt í ritgerðayfirferð?)  Hann mátti enda una ósigrinum vel því hann var áberandi langvitrastur í liðinu.  Frumburðurinn, sem ég talaði við í síma, bar sig líka ótrúlega vel og sagði að hefði kolleginn minn alltaf fengið að ráða svari hefðu Skagamenn líkast til unnið.

Sjálfri finnst mér að hefði vel mátt splæsa nokkrum aukastigum fyrir óhóflega kunnáttu og á ég þar við ræðu frumburðarins um Bjarna Harðarson. Auðheyrt var að drengurinn kunni jafnmikið eða jafnvel meira um Bjarna þennan en selveste múmínálfana!  Það að draga hann til ábyrgðar fyrir að svara ekki þessari smotteríisspurningu um varamann Bjarna finnst mér lummulegt, þegar búið er að telja upp öll börn Bjarna, segja deili á eiginkonunni o.m.fl. Ég reikna með að báðir ættleggir séu sammála mér um þetta.

Næsta verk frumburðarins verður að skóla til bróðurinn sem brást svo lið FVA vinni nú örugglega lið MK eða hvert það lið sem það mætir 🙂

Yfirvofandi Útsvar!

Við Vífill erum að setja okkur í stellingar fyrir Útsvar. Spennan hefur aukist í dag með miklum bréfaskiptum ættingja minna og strákanna. Austfirska systirin hefur litast af málfari sinna verkamanna-kúnna af ýmsum þjóðernum og sagði: “Máni – þú massar þetta í kvöld er það ekki?” 

Annað austfirskt pepp hljóðaði svona:

“Gangi þér vel í Útsvarinu!

En er ekki málið að mæta á tónleika hjá Háskólakórnum? Besta kórnum á Íslandi og þótt víða væri leitað!”

 

Þau sunnlensku eru heldur linmæltari í sínu hrósi verður að segjast. Þessi tvö litlu voru reyndar á tímabili ógislega fyndin í orðaleikjum um vita (að eigin mati) – NOT!

Máni er kúl og hefur gert sínar ráðstafanir, skv. tölvupósti:

Vitringum bæjarins verður safnað saman í gamla vitanum. Þar verður þremur hröfnum og einum bæjarfulltrúa fórnað til heiðurs Mímis, guðs spurningakeppna. Símavinurinn verður vitaskuld þar.”

 

Ég get ekki séð að hægt sé að undirbúa sig betur en frumburðurinn hefur gert skv. þessu bréfi!

Í lókalblaðinu (Skessuhorninu) var örviðtal við frumburðinn.  Þar sagði hann liðið fullskipað og fullskipulagt: Sjálfur sér hann um að hlaupa, Þorvaldur sér um að leika en Steingrímur kollegi situr í miðjunni og sér um að vita. Mér sýnist þetta fúllprúf skipulag!

 

 

Handhæg verkefni önnur en lagnir

Freyja: Það er varla að ég trúi því að háskólakennari (vestr’á Melum?) skuli ekki vita- eða skilja að „Ég skildi að orð er á Íslandi til / um allt sem er hugsað á jörðu“ (Einar Ben.) og öll þessi orð eru geymd á Árnastofnun, sem nú dekkar Íslenska málstöð, Ritmálsskrá o.fl. Maður gerir svona:

Opnar http://www.arnastofnun.is/

Dundar sér við að lesa orð vikunnar og ýmislegt annað en uppáhaldið mitt er Ritmálsskrá – sjá menjú neðst í hægra horni.

Slá inn gægsni og fá upp upplýsingar um að fjögur dæmi séu þekkt og fleira krapp sem má sleppa að lesa. Smella á Sjá dæmi.

Kemur þá í ljós að þetta er ekki meinlaust orð eða lítilsháttar fökkjú heldur:


1
hún var miklu eldri en hann og gægsni. gægsni BGröndRit   IV, 362
Aldur: 19ms
2
Svona grasvembill og gægsni eins og því ættir að hafa vit á að þegja. gægsni KristmGNátt   , 100
Aldur: 20m
3
Og þessi gægsni hafði hún verið að hugsa um að giftast. gægsni KristmGBrúð   , 194
Aldur: 20ms
4
Þetta er andskotans gægsni.

Maður ætti kannski að lesa þennan texta eftir Gröndal – lofar góðu! 

Vandamál 2: Tölvupóstur nær ekki til Hörpu.  Sko, við kerfisstjórinn (í FVA) erum búnar að senda póst þvers og kruss án vandkvæða.  Sennilega er þetta sambúðarvandi við blogg.is.  Ég tékkaði á kæfum og ekki er vandinn þar. Það væri voðagott ef Örverpið sendi póst á anna@fva.is með afriti af því bréfi sem það / hann fékk í hausinn um að harpa@fva.is væri týnd og tröllum gefin. Ef málin leysast ekki þannig tala ég við Örvar á blogg.is (ég held reyndar að vandinn sé þar því venjulegur póstur berst óhindrað.

Jæja, verð að fara að búa til krossapróf handa litlu skinnunum mínum …

Sjáumst!

Uppgjafir

Í gær hringdi ég í konuna sem ætlar að hafa eróbikk námskeið næstu 6 vikurnar, tvisvar í viku, frá 20 – 21. Um sexleytið fann ég íþróttabuxurnar (sem ég enn passa í) og leitaði dauðaleit að svörtum strigaskóm … sennilega hef ég hent þeim svo ég fann til hvítu strigaskóna í staðinn.

Klukkan 7 hætti ég við að mæta í íþróttahúsið og batnaði um leið flökurleikinn og sjóveikisyndrómið. (Ath. að hér er ég ekki að tala illa um íþróttahús eða þá sem þar sprikla; hér er ég eingöngu að tala um fokkings kvíðaeinkenni!)

Eftir þessa örlagaríku ákvarðanir var ég örmagna og fór að sofa klukkan átta, eins og þægu börnin.

Best að velta sér ekkert upp úr þessu.  Ég er annars komin á línuna “og hvað get ég gert í því” sem ég hygg að sé ein af praktísku slagorðalínunum í algerlega nafnleynda félagsskapnum mínum. Mér finnst ég skilja þenna sjúkdóm minn nánast alveg í botn (nema ég skil ekki af hverju mér var úthlutað honum í genetíska happdrættinu). Málið er ekki lengur að skilja, málið er að framkvæma.  Í því er batinn fólginn. Því miður er eitt af einkennum þessa sjúkdóms voðalegt framtaksleysi og skortur á drift. Þess vegna gengur mér helv… illa að kveða hann niður með handafli.

Nú er að hefjast þessi venjulega geðveiki sem ríkir síðasta skólamánuðinn, í kennslu og prófum. Í dag er próf úr Eglu. Á föstudag taka tveir hópar próf úr Laxdælu. Níutíogþristarnir taka próf í næstu viku úr Börnunum í Húmdölum.  Svo þurfa börnin að fá yfirlit yfir ýmis skil og útreiknaða annareinkunn í lok nóvember.

Ég kvíði þessu sosum ekki neitt, þetta er árviss viðburður (misseris-viss viðburður). En að fara út að labba eða í eróbikk hopp?  Nei … það er of erfitt fyrir litlar konur.

Lagnafréttir

Nú hefur u.þ.b. tugur sérfræðinga greint vandann, myndað hann, skoðað og komist að niðurstöðu: Það verður að fóðra gömlu leku steinrörin undir húsinu með plasti. Ég þóttist náttúrlega báðum fótum í etu standa því af dyggum lestri Lagnafrétta í mörg ár hafði ég veður af svona plastfóðrun og líka af litlu sniðugu myndkafbátunum sem sigla um rörin blá í sautján ár … æi, missti mig …

Það eina pirrandi við vandamálið sem á að fara að leysa er að það er dj… dýrt!  En við eigum fyrir þessu og það er meira vit í að leggja sitt fé í plasthúðun skólpröra sem endast og endast heldur en í t.d. banka þar sem mölur og ryð og kreppa fá þeim grandað.

Framkvæmdir frestast af þessum lagnalagfæringum – þær verða ekki fyrr en í næstu viku.  Nú er búið að saga neðan af öllum hurðarstöfum, skrapa gamalt flísalím, hreinsa burt gamalt gólfefni o.þ.h. en ekki hægt að flota fyrr en eftir að plasthúðunargræjurnar hafa unnið sitt verk og ekki hægt að leggja gólfefni fyrr en flotað hefur verið og ekki hægt að setja í nýsmíðuð gerefti og hurðir fyrr en gólfefnin eru komin o.s.fr.  Kom í ljós að frummálning eldhússins hefur verið sundlaugargrænt skipalakk (enda skipstjóri sem byggði) en annað merkilegt er ekki að sjá.

Það væsir ekkert um okkur á efri hæðinni. Að sjálfsögðu er það reyklaus hæð en eldhúsið brúkum við og sofum í útilegu á dýnum. Mér finnst svolítið undarlegt að stundum þegar ég kem heim í hádeginu þá finn ég keim af síldarbræðslulykt í forstofunni. Þetta er ekki loðnubræðslulykt og ekki fýlan frá Laugafiski (lengst niður á Neðri- Skaga) … nei, þetta er af síld!

Við fórum í gullbrúðkaupið mikla, við Vífill mættum reyndar bara í seinni helminginn, af því hann þurfti að vinna upp margar vökunætur og ég er of geðveik til að treysta mér í 10 tíma samveru með háværri tengdafjölskyldunni (þeir taka þetta til sín sem eiga 😉  Þetta var ljómandi skemmtilegt kvöld á Hótel Loftleiðum … nema ég átti erfitt að sætta mig við að eta svo fögur dýr sem þarna voru í boði (rjúpur – skýrt tekið fram að væru skoskar -fasanar, krónhirtir o.s.fr.)

Ég hefði getað pínt mig á interessant fyrirlestur litla bróður en hefði þá verið að taka sénsinn á að gefast upp fyrir gullbrúðkaupinu.  Ég vona að einhver hafi komið 🙂

Síðan síðast hef ég klárað Varginn eftir Jón Hall Stefánsson. Gef henni þrjár stjörnur, hún er ansi fyrirsjáanleg. Hefði mátt þjappa textanum betur og stytta um a.m.k. 100 síður, til bóta. Á bókarkápu segir að Berlinske tidende hafi gefið henni 5 stjörnur ???

Núna er ég með einhverja nýja þunglyndisbók, sem ég man ekki hvað heitir. Ég bjóst við enn einni skruddunni um að soga orku úr jörðinni, drekka grænt te, íhuga og gera Müllersæfingar.  En nú kemur í ljós, á fyrstu síðum, að bókin er skrifuð af fullu viti en ekki mannkynsfrelsurum. Svo ég hugsa að ég lesi hana bara 🙂

Ég nenni ekki að finna neinar myndir núna, sorrí.

Myrká

Ég er búin með þessa en einu hugrenningartengslin við titilinn eru virkilega sikk og ógisleg! (Byggð á texta Mannakorna.) Burtséð frá því er þetta vel skrifaður krimmi með áhugaverðu tvisti í lokin.

Það kann að gleðja Skagamenn að eitt ódóið í bókinni heitir Eðvarð og hafði á árum áður kennt í Fjölbrautaskóla Akraness. Það plott leysist ekki en er á tæru að Eðvarð þessi er skíthæll …

Í augnablikinu er ekki svo mikið ryk í stofunni en þó finn ég vel fyrir því á lyklaborðinu. Hér er búið að rífa gólfefni, panel úr eldhúsi, skræla baðherbergið af öllu nema baðkerinu sjálfu. Við erum meira eða minna flutt upp í íbúðina á efri hæðinni; hún er á sölu og við vildum fá að leigja hana meðan mesta raskið er hér á neðri hæðinni.

Eins og alltaf þegar maður ætlar að sansa eitthvað í húsi kemur upp óvænt vandamál. Óvænta vandamálið okkar er raki í eldhúsgólfi, e.t.v. einnig í stofu. Eftir að hafa ráðfært okkur við 7 sérfræðinga (Atli sér um ráðfærsluna en ég brosi blíðlega hans við hlið, til ráðgjafanna, svona eins og Dorrit) þá erum við búin að ákveða að skipta út korksflísunum yfir í korkparkett (vona að það sé til hvítt) og rannsóknarskólplagningarmaður keyrði skólplagningarmyndavél um öll göt og nú á hæst setti pípulagningarmaðurinn að skoða myndirnar í kvöld og ákveða hvort hægt sé að gera dren utanhúss eða hvort verði að gera slíkt innanhúss. Greiningin liggur fyrir: 55 ára gömul steinrör út í göturæsi eru orðin lek. Það ku algengt með svona steinrör.  Aftur á móti ligga okkars þvert í línu gegnum húsið, sem er ekki svo skynsamlegt. Skynsamlegt er að hafa þau meðfram húsinu. Þá vitum við það.

Jæja, nú er ég búin að reykja tvær og get farið aftur að hreiðra um mig á efri hæðinni, með bók …

Athugasemdir í ólagi

Ég var að komast að því að ekki er hægt skrifa komment við síðustu færslur.  Ég var farin að halda að mínir dyggu lesendur (innifalin sníkjubloggandi systkini mín) væru að hunsa mig gersamlega!  Gleður mig að þetta sé bara tæknilegt vandamál. Mun ég nú skrifa mínum góða vefstjóra og biðja hann að kippa þessu í liðinn.

Innrás svörtu hundanna

Mér hefur lengi verið kunnugt um að Churchill kallaði sitt þunglyndi, sem karlinn sökk öðru hvoru í, svarta hundinn. Þegar svarti hundurinn var í heimsókn var karlanginn ekki mönnum sinnandi. Ég vorkenni honum svo sem ekkert mikið því hann gat alltaf sturtað í sig svo sem einum pela af viskíi á dag og þá er manni meira sama um þetta sem hann vildi kalla hund (hér tala ég af eigin reynslu). Til langframa er viskí-aðferðin hins vegar ekki mjög gagnleg, ekki einu sinni þótt maður púi vindla með.

Aldrei hef ég sett sérstakt samasem-merki milli okkar Churchills þótt bæði þjáumst við af sama sjúkdómi. Enda sér hver maður að við erum ekki sérlega lík (a.m.k. útlits). Af þessari mynd að dæma er ég t.d. umtalsvert flinkari í “fake it till you make it” en hann.

Svo hef ég bara átt hund í æsku, litla heimska vingjarnlega tík sem var brún og hvít og glaðlynd.

Í fyrra las ég Þar sem vegurinn endar, eftir Hrafn Jökulsson. Mér fannst hún algerlega frábær! Þar kom fyrir setning um að Hrafn hefði verið lagður inn á Lsp (eða Vog) með svörtu hundana. Þetta fannst mér sniðugur orðaleikur (út frá Winston og rauðu hundunum).

Ég hef verið að renna yfir bókina Ofsi, eftir Einar Kárason. Þar er persóna með geðhvarfasýki, Eyjólfur ofsi heitir sá. Bókin gerist á Sturlungaöld og endar á Flugumýrarbrennu. Satt best að segja finnst mér þetta hundleiðinleg bók og hennar helsti kostur er að hún er stutt. Ég fatta ekki hvað þeir sjá við hana sem koma henni í efsta  sæti metsölulista Eymundsson.

Sagan er brotakennd þannig að hver persóna fær nokkrar blaðsíður um sig, sem eru þá oftast útdráttur úr Sturlungu, svona svipað og kennari fær ef sett er fyrir verkefnið: “Settu þig í spor Guðrúnar Ósvífursdóttur þegar Bolli biður hennar” eða “Skrifaðu dagbókarsíðu í orðastað Kjartans þegar hann kemur að landi og fréttir að Guðrún sé gift” o.s.fr. Allir kennarar landins hafa lesið mýgrút af slíkum úrlausnum.

Auðvitað skrifar Einar Kárason betur en framhaldsskólanemendur, þó ekki væri nema vegna þess að hann er kominn til vits og ára. Hins vegar hefur hann pikkað upp hugmynd Hrafns Jökulssonar og er troðandi svörtum hundum (metafórunni) upp á þennan óinteressant Eyjólf nánast hvar sem persónan fær orðið.

Það sem var sniðugt í bók Hrafns Jökulssonar, sem er brotakennd sjálfsævisaga, er hroðalega ósniðugt í bók sem á að gerast á Sturlungaöld, þegar menn töldu melankólíu stafa af ójafnvægi í vessum líkamans en alls ekki af hundum yfirleitt, hvorki svörtum né móálóttum. (Og er ekki vafamál að svartir hundar hafi verið til í landinu á þessum tíma?)

Ég verð alltaf soldið pirruð þegar ég sé svona ómerkilegar eftirhermur – þetta er eiginlega eins og stolin ritgerð.