Snorra- Edda
Snorra- Edda er íslensk handbók í skáldskaparfræðum, samin af Snorra Sturlusyni um 1220. Verkið hefst á Prologus (formála) þar sem lýst er sköpun heims, upphafi trúarbragða og hinna fornu ása. Meginmálið skiptist í þrjá hluta. Fyrsti hlutinn, Gylfaginning, er skrifaður sem inngangsfræði í goðsögum, ætlaður ungum skáldum og er helsta heimild okkar um
norrænan goðsagnaheim. Í öðrum hlutanum, Skáldskaparmálum, segir frá upphafi skáldskaparins. Þar er kenningum og heitum lýst með dæmum. Þar eru líka fjölmargar goðsögur og hetjusögur sem sagðar eru til að lýsa uppruna kenninga. Þriðji hlutinn er kvæðið Háttatal ásamt bragfræðiskýringum. Það er hundrað og tvær vísur og sýnir þá bragarhætti og afbrigði þeirra sem Snorri þekkti.