Það
var einn miðvikudaginn að við mæltum okkur mót
við Iðunni Steinsdóttur rithöfund. Erindið var
að spyrja hana um væntanlegu fullorðinsbókina hennar
en hún er fyrsta sagan fyrir fullorðna sem Iðunn skrifar.
Sagan gerist á víkingatímum.
Við vorum
mættar heim til hennar um kl.16:30. Hún bauð okkur þar
upp á léttar veitingar og svo byrjuðum við á
spurningunum.
Hver
er Iðunn Steinsdóttir?
Hún
sagðist vera kona um sextugt, fyrrverandi kennari, húsmóðir,
mamma og sex barna amma. Hún byrjaði að skrifa á
meðan hún var að kenna, en henni fannst svo gaman að
því að hún tók skriftirnar fram yfir kennsluna.
Undanfarin þrettán ár hefur hún sinnt ritstörfum
eingöngu.
Hvað
fékk þig til að skrifa bók fyrir fullorðna?
Iðunn sagðist
hafa rekist á örstutta örlagasögu í Landnámabók
Íslands og sama frásögn er í Droplaugarsona
sögu sem gerist á Austfjörðum. Þar sem hún
er sjálf að austan heillaðist hún af sögunni.
Hún byrjaði að því að skrifa unglingabók
úr efninu, en skriftirnar tóku um tvö ár. Þegar
handritið var um það bil frágengið vaknaði
spurningin um hvort þetta væri unglingabók; hvort efnið
hentaði ekki betur í venjulega skáldsögu? Iðunni
fannst þessi möguleiki spennandi og sló til.
En hvar
fékkstu allar þessar heimildir?
Hún
sagði að það hefði verið erfitt og mikil vinna.
Bækurnar sem hún hefur gripið í og lesið til
að finna heimildir eru um þrjátíu talsins. Það
var mjög erfitt að koma sér inn í heiminn eins og
hann var fyrir 1100 árum því hugsunarháttur
fólks var svo frábrugðinn því sem nú
gerist. En þó að víða væri leitað
fróðleiks kom hugmyndin um söguþráðinn
bara frá þessari litlu sögu sem hún fann í
Landnámabók
Íslands.
Segðu
okkur aðeins frá bókinni:
Venjulega eru
karlmenn í aðalhlutverki í Íslendingasögunum
enda ríkti allsherjar karlaríki á þessum tíma,
en Iðunn ákvað að skrifa út frá sjónarhorni
kvennanna. Bókin heitir Haustgríma.
Svo verðum
við bara bíða spenntar eftir bókinni sem er án
efa mjög góð. Við þökkuðum Iðunni
fyrir viðtalið og héldum áleiðis heim.