Ég pantaði mér tíma í klippingu og skverun, núna rétt áðan. Þekkti strax á röddinni að ég væri að tala við Hörpu, fyrrum nemanda minn en núverandi hárgreiðslukonu. Það var laus tími hjá nema, á morgun. Við Harpa vógum þetta og mátum sem svo að ekki væru hundrað í hættunni því engar stórfelldar breytingar á lit og klippingu væru á dagskrá. Ég hafði áhyggjur af því að nemanum þætti óþægilegt að klippa kennara (fyrrverandi sinn) en Harpa á hárgreiðslustofunni taldi það ekkert mál. Svona í lokin spurði ég: “Hvað heitir svo neminn?” … Viljið þið giska? Neminn heitir Harpa!
Þetta veit sennilega á stórtíðindi!
P.s. Og systir mín er flutt í kósí múmínhúsið á Hörpugötu, númer “afmælisdagurinn_minn” 😉
Hamingjuóskir til systur þinnar – mig hefur nefnilega alltaf langað að búa við Hörpugötu…
Þegar á hárgreiðsluhúsið var komið fattaðist að Harpa sem svaraði í símann var sama Harpa og höndlaði hárið … sem hún gerði mjög vel og ég er ægifögur 🙂