Vínland, sem var uppgötvað af
Leifi
hinum heppna árið 1000, var staðsett þar sem Kanada
er nú, þ.e.a.s. suðvestan af Íslandi. Vegna fjölda
vínberja og vínviðar telst landið heita Vínland
eins og Leifur nefndi það frá upphafi en ekki Vinland.
Veðurfar: Veðurfar á Vínlandi
var á þessum tíma mjög milt, hitinn var um 2-3
stigum hærri en fólk átti að venjast.
Þrátt fyrir þetta veðurfar var hafís mikill
á þessum slóðum og vegna hans var sjávarkuldi
mikill.
Náttúra: Leifur og hans samferðamenn
fundu á Vínlandi plöntur nokkrar, þ.á.m.
sjálfsána hveitiakra, hlyn mjög mikinn og tvær
tegundir af villtum vínberjum; refaþrúg og árbakkaþrúg.