|
Eiríkur
rauði lagði af stað frá Dímonarvogi við Ísland
og hélt af stað í leit að nýju landi.
Fyrsta veturinn bjó hann í Eiríksey, nær miðri
Eystribyggð á Grænlandi. Um vorið fór
hann til Eiríksfjarðar og tók þar bústað.
Um sumarið fór hann til Eystri óbyggðar og gaf víða
örnefni. Um veturinn var hann í Eiríkshólmum
við Hvarfsgnípu. Sumarið eftir fór hann norður
til Snæfells og inn í Hrafnsfjörð, þá
var hann kominn fyrir botn Eiríksfjarðar. Hvarf hann þá
aftur og var hinn þriðja vetur í Eiríksey fyrir
mynni Eiríksfjarðar.
[Myndin sýnir Eiríksfjörð, eða Tunulliarfik
eins og hann heitir á grænlensku. Horft er inn eftir
firðinum. Hannes Þorsteinsson, kennari við FVA, tók
myndina og leyfði að hún væri birt. Ef þú
ýtir á myndina færðu stærri og skýrari
mynd.]
Sjá einnig síðu um landnám
á Grænlandi og kort
af Grænlandi
|