Geðkvarðinn hækkaði um leið og ég fékk gömlu albúmin (það vantar samt ennþá eitt albúm, þetta með myndum frá forsetaheimsókninni í Ásbyrgi … en ég hef ekki brjóst í mér til að bögga gamalmennið meir!) og póstkortin. Myndirnar í albúmunum eru afar illa farnar og verður spennandi að sjá hverjum má bjarga og hversu langt borgar sig að ganga í fiffun.
Svo fólk haldi ekki að ég sé sjálfbjarga einhverf þá tók ég hlé í myndavinnunni til að þrífa húsið almennilega og einnig til að fara með elsku manninum í berjamó í gær. Jafnframt leituðum við að Maríuhöfn og fundum af hyggjuvitinu einu saman – heimkomin fletti ég korti Danska herforingjaráðsins og sá svart á grænu hve við hjón höfðum haft rétt fyrir okkur!
Aðallega er ég samt að skanna kort. Það er óhugnalega seinlegt því á hverju korti þarf að skanna framhlið og bakhlið og reyna einhvern veginn að sortéra í leiðinni. Ég hugsa að þetta séu hátt í hundrað kort.
Íslendingabók er grunnurinn til að reisa svona ættarsögu. Í Íslendingabók stendur klausan til vinstri, um hana Pálínu langömmu, sem ýmist var titluð öllum sínum nöfnum eins og hér, Hildarnafninu oft sleppt, Pálína Einarsson eftir að hún giftist Jóni Einarssyni langafa … og í Legstaðaskrá á gardur.is heitir hún Pálína Einarsdóttir og er algerlega óþekkt, þ.e. fæðingardagur, dánardagur, jarðsetningardagur o.þ.h. er ekki vitað.
Mér finnst Legstaðaskrá soldið líta á hana Pálínu eins og niðursetning og ég er handviss um að hún hefði aldrei verið sátt við það!
Jæja … hafandi þessar upplýsingar reiknaði ég með að Hlaðgerður litla María, sem fæddist árið 1867, hafi dáið í bernsku. Það gæti skýrt það að dánarárs er ekki getið, í Íslendingabók.
Ég tékkaði samt á Legstaðaskrá og með því að gefa alla kirkjugarða landsins sem leitarstað fann ég þessar þrjár Hlaðgerðar. Hlaðgerður Laxdal var heillandi möguleiki uns ég sá að fæðingarárið passaði ekki. Svo hefði verið soldið skrítið að hafa aldrei heyrt minnst á þessa Hlaðgerði Laxdal, hefði hún verið langömmusystir mín og lifað til 1970. (?)
Textinn:
Elsku systir mín!
Jeg sendi þjer þetta kort að gamni mínu og vona að guð gefi að það hitti þig fríska eftir hætti [?]. Jeg kem oft til H [?] / K [?]* frænku því jeg æfi mig á flygelið.
Mamma segir þjer frjettir.
Vertu blessuð og sæl elsku systir
þín Lúlla (?)
*K=Katrín Viðar?
- Er þessi Lúlla systir Pálínu?
- Er Lúlla stytting fyrir Hlaðgerður? (Eina Hlaðgerðurin sem ég man eftir á Raufarhöfn var kölluð Della …)
- Ef Pálína hefur átt systur sem lifði langt fram á síðustu öld; Hvernig stendur á því að maður hefur aldrei heyrt á hana minnst? Nú skora ég á móður mína að útskýra Lúllu, Hlaðgerði eða aðrar konur sem kalla Pálínu Hildi systur sína 🙂
(Kannski er rétt að taka fram að Íslendingabók nefnir allskyns klúður í manntölum og kirkjubókum á tímabilinu 1880-1900. Sem betur fer á ég góðkunningja í Þjóðskjalasafni og ætti kannski næst að róa á þau mið?)
P.s. Ég á í bölvuðum vandræðum með að fá formatið á texta og mynd til að virka. Nú nenni ég þessu ekki lengur og verður að hafa það þótt síðari hluti færslunni líti ekki eins lekker út og óskandi væri.