Þórólfur Skalla-Grímsson var fæddur árið 900, að Borg á Mýrum. Hann var sonur hjónanna Skalla-Gríms og Beru. Þórólfur var elstur systkina sinna. Hann var fríður sýnum, vinsæll og mjög líkur Þórólfi Kveld-Úlfssyni, föðurbróður sínum, sem hann var heitinn eftir.Þegar Þórólfur var 15- 16 ára fór hann til Noregs með Birni Brynjólfssyni, vini sínum, og konu hans, Þóru hlaðhönd. Í Noregi dvaldist Þórólfur í 10 ár. Á þeim tíma vingaðist hann við Eirík blóðöxi, son Haralds hárfagra, sem tók svo við konungdómi af föður sínum. Þórólfur fór með Eiríki til Bjarmalands, þar sem Eiríkur hitti Gunnhildi Özurardóttur í fyrsta sinn, en hún varð eiginkona Eiríks og drottning í Noregi.
Þórólfur skrapp heim til Íslands í einn vetur og þegar hann fór aftur til Noregs hafði hann litla bróður sinn, unglinginn Egil Skalla-Grímsson, með í för og einnig Ásgerði, dóttur Björns og Þóru.
35 ára gamall kvæntist Þórólfur Ásgerði og ári síðar eignuðust þau dótturina Þórdísi. Um svipað leyti fór Egill að lenda upp á kant við ýmsa nátengda konungsfjölskyldunni í Noregi. Þórólfi leist ekki á blikuna og fór með Agli til Englands, þar sem þeir gerðust málaliðar í her Aðalsteins Englandskonungs. Í mikilli orustu á Vínheiði á Englandi féll Þórólfur, aðeins 37 ára að aldri.
Egill vildi ekki dvelja lengi í Englandi eftir þetta heldur fór til Noregs og kvæntist Ásgerði tveimur árum eftir fall Þórólfs. Egill gekk Þórdísi Þórólfsdóttur í föðurstað.